Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. RETTINDI OG DVALARSTAÐUR TRYGGINGASTOFNUN ríkisins synjaði 73 ára íslenzkum ellilífeyrisþega, sem legið hefur fársjúkur í sjúkrahúsi í Taílandi frá 19. maí sl., um yfirlýsingu um að hann nyti sjúkratryggingar hjá stofnuninni og þar með ábyrgð á greiðslu til heilbrigðisyfirvalda þar í landi. Synjunin byggist á þeirri samþykkt tryggingaráðs, „að ekki þyki ósanngjarnt við endurtekna dvöl erlendis að gera þá kröfu, að viðkomandi einstaklingur dvelji a.m.k. 6 mánuði á ári á Islandi. Þegar einstaklingur hefur dvalið erlendis lengur en 6 mánuði á ári, tvö eða fleiri undanfarin ár, teljist hann hins vegar ekki lengur sjúkratryggður." Tryggingastofnun vísar til lögheimilislaga frá 1990 og almannatryggingalaga frá 1993 til rökstuðnings úrskurði sínum. Lögmaður sjúklingsins hefur vísað málinu til dómstóla og krafizt ógildingar á úrskurðinum. Islendingurinn, sem í hlut á, á lögheimili á Islandi samkvæmt vottorði Hagstofunnar, á íbúð í Reykjavík, þar sem innbú hans og aðrir persónulegir munir eru. Hann hefur alla sína tíð búið á Islandi, hefur unnið fulla vinnu, nýtur nú eftirlauna frá vinnuveitanda sínum og ellilífeyris frá Tryggingastofnun. Hann greiðir skatta og önnur opinber gjöld hér á landi. Undanfarin tvö til þrjú ár hefur hann dvalið langdvölum í Taílandi, en jafnan komið heim og dvalið nokkra mánuði á sumrin. Utanríkisráðuneytið hefur nú tekið af skarið og tilkynnt viðkomandi aðilum í Taflandi, að ríkið ábyrgist kostnað vegna læknisaðgerða á manninum og jafnframt er ljóst að í nýjum lögum, sem tóku gildi fyrir skömmu er meiri sveigjanleiki til þess að taka á málum sem þessum en afgreiðsla Tryggingastofnunar byggðist á eldri lögum. Það er hins vegar afar brýnt, eins og lífsmáta fólks er nú háttað, að þessar reglur séu alveg skýrar og taki mið af gjörbreyttum aðstæðum. Töluverður hópur íslendinga, ekki sízt eldri borgara, hefur á undanförnum árum fest kaup á fasteignum í suðlægum löndum. Tilgangurinn með þeim kaupum er ekki sízt sá að búa við betra og hlýrra veðurfar en hér tíðkast yfir vetrarmánuðina. Að auki kemst fólk stundum betur af á eftirlaunum sínum vegna lægra verðlags. Það er ekki frambærilegt að svipta þetta fólk réttindum, sem það hefur áunnið sér sem Islendingar, sem hafa lifað og starfað á Islandi alla ævi, greitt hér skatta og skyldur en telur sér henta af framangreindum ástæðum að búa töluverðan hluta árs í öðrum löndum, þegar það er komið á eftirlaun. Það er satt að segja afar erfitt að sjá efnisleg rök fyrir slíku og alveg ljóst að í því er engin sanngirni. Slíkar ákvarðanir jafngilda því að fólk sé sett í átthagafjötra. Ef ný lög og reglur eru ekki alveg skýr að þessu leyti þarf að gera á þeim frekari breytingar. STAÐA KVENNA STAÐA KVENNA í heiminum hefur verið eitt af þeim málefnum sem smám saman hafa verið að koma upp á yfirborðið á síðustu árum og áratugum. Umræðan tengdist lengst af kvennahreyfingunum sem óx fiskur um hrygg á sjöunda og áttunda áratugnum en með eflingu hinna svokölluðu kvennafræða í háskólum víða um heim hefur umræðan fengið byr undir báða vængi. Tekist hefur að gera mörg þau vandamál sem snúa að bágri stöðu kvenna víða í heiminum sýnilegri og þar með viðráðanlegri. Mörgum þykir þó engu að síður hægt hafa gengið en eins og fram kom í fjórum greinum Kristínar Astgeirsdóttur, sagnfræðings og fyrrverandi alþingismanns, sem birtar hafa verið hér í blaðinu undanfarna daga er enn mikill kraftur í kvennafræðunum og kvennabaráttunni. Það er enda enn ærið verk að vinna við að rannsaka stöðu kynjanna á öllum tímum og styrkja stöðu kvenna um allan heim. í greinum Kristínar, sem fjalla um þrjár alþjóðlegar ráðstefnur um stöðu kvenna, mannfjöldaþróun og kynheilbrigði, kemur fram að ein af grunnforsendum þess að konur styrki stöðu sína sé aukin menntun þeirra og fræðsla. Á Vesturlöndum hefur vissulega mikið áunnist en í mörgum fátækari ríkjum heims er ástandið átakanlegt, ekki síst hvað varðar þróun mannfjölda, ofbeldi og kúgun gagnvart konum og börnum, fáfræði og trúarofstæki. Af rannsóknum að dæma eru samt sömu grundvallarvandamálin að hrjá flest öll lönd heims hvað varðar stöðu kvenna og kynheilbrigði: skortur á upplýsingum og ráðgjöf, óöryggi um eigin kynímynd, ofbeldi, unglingaólétta, kynsjúkdómar, endurteknar fóstureyðingar og óábyrg hegðun í kynlífi. Eins og kemur fram í umfjöllun Kristínar hefur reynslan þó kennt okkur að þar sem fræðslan er mest eru vandamálin fæst. í sumum tilfellum virðist erfitt og nánast ógerlegt að yfirstíga þær hindranir sem eru í vegi fyrir því að konur fái að njóta réttar síns sem einstaklingar, ekki síst vegna menningarlegra og trúarlegra aðstæðna. Eins og margoft hefur verið bent á, þar á meðal af indverska Nóbelsverðlaunahafanum Amartya K. Sen sem nýlega var sagt frá hér í blaðinu, þá skiptir þekking mestu máli í glímunni við slíkar tálmanir. Kvennafræðin eiga vafalaust eftir að gegna æ stærra hlutverki í öflun þeirrar þekkingar, kannski einkanlega vegna þess að þeim virðist hafa tekist að sameina mörg sjónarhorn undir einum hatti. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 29 , FJOLBREYTT HATIÐARHOLD UM VERSLUNARMANNAHELGINA Akureyri Mývatnssveit Neskaupstaður VatnaskógurA ▲ Kirkjubæjar- klaustur A Múlakot krónur en frítt er fyrir 13 ára og yngri. Boðið er upp á ókeypis sæta- ferðir frá Síðumúla að Staðarfelli og aftur heim að hátíð lokinni. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Sem fyrr er dagskrá þjóðhátíðar fjölbreytileg. Iþróttabandalag Vest- mannaeyja stendur fyrir keppninni og að sögn Birgis Guðjónssonar verð- ur síðasta þjóðhátíð aldarinnar einnig sú glæsilegasta og nefnir hann sér- staklega góða bamadagskrá, nýtt veitingatjald og glæsilega flugelda- sýningu því til sönnunar. Eins og vanalega verður húkkara- ball á fimmtudagskvöldinu en þar spila SSSól og Ensími. Aðrar hljóm- sveitir sem spila á þjóðhátíð eru Stuðmenn, Lands og synir, 8 villt, Blístrandi æðarkollur, Mannekla, Dísel, Víkingabandið frá Færeyjum og fleiri. Einnig koma fram Geiri og Villa, Bjartmar Guðlaugsson og Guð- laug Ólafsdóttir. Fyrir yngri kynslóðina og aðra er boðið upp á brúðubílinn, Hirðfífl hennar hátignar, sprell með Ladda, atriði úr Ávaxtakörfunni og haldin verður söngvakeppni barna. Samkvæmt langri venju verður einnig brekkusöngur, brenna á Fjósakletti og fnimflutningur á þjóð- hátíðarlagi. Aðgangseyrir á þjóðhátíðina er 7.000 kr en fyrir 14-15 ára böm kost- ar 4.000 kr. Herjólfur, Flugfélag ís- lands og Islandsflug bjóða pakkaferð- ir. Bindindismótið í Galtalæk Dagskrá útihátíðarinnar í Galtalæk er sniðin að áhuga og þörfum stór- fjölskyldunnar. Haldnir verða úti- dansleikir, unglingaböll, bama- skemmtanir, kvöldvökur, íþrótta- og þrautaleikir í vímulausu umhverfi. Af einstökum dagskrárliðum má nefna Spaugstofuna, hljómsveitina SAGA KLASS, Síðan skein sól, trúðaparið Barböm og Úlf, fjöllistahópinn Imyndun, eldgleypi og margt fleira. I Galtalæk eru einnig leiktæki fyi'ir bömin, tívolí og hestaleiga. Miðaverð fyrir 13-15 ára er 4.000 kr. en 3.300 kr. í forsölu. Fullorðins- miði er á 5.000 kr. en 4.300 kr. í for- sölu. Sætaferðir verða frá Reykjavík og Keflavík. Ólympíuleikar á Kirkjubæjarklaustri Fjölskylduhátíð verður á Kh'kju- bæjarklaustri um verslunarmanna- helgina. Þar verða „Litlu Ólympíu- leikarnir" haldnir sem og götubolti og róðrarkeppni. Einnig verða skipu- lagðar gönguferðir, sögustundir, varðeldur, flugeldasýning og fjölda- söngur. Á svæðinu eru hestaleigur, sundlaug og einnig sýning um eld- virkni í Vatnajökli og Skaftárelda. Ekkert kostar inn á fjölskylduhá- tíðina í Kirkjubæjarklausturi en greiða þarf fyrir gistingu og einstaka dagskrárliði. Landsmót hvítasunnumanna í Kirkjulækjarkoti Landsmót hvítasunnumanna verð- ur haldið í fimmtugasta sinn um verslunarmannahelgina og mun af- mælisins minnst með ýmsum hætti. Mótið verður sett fimmtudagskvöldið 29. júlí og því lýkur að morgni mánu- dagsins 2. ágúst. Samkvæmt umsjónarmönnum ein- kennir mikill og líflegur söngur sam- verustundimar ásamt góðri fræðslu og fyrirbænaþjónustu. Samkomur á mótinu fara fram í Örkinni en þar rúmast 1.000 manns í sæti. Kvöldvök- ur verða haldnar fyrir yngri kynslóð- ina, kveiktur varðeldur auk annarra atriða. Sérstakt mót fyrir bömin verður haldið líkt og verið hefur síðustu sex ár. Þar verður boðið upp á leiki, fönd- ur, fræðslu auk brúðuleikhúss. Einnig verður dagskrá fyrir ungling- ana t.d. samkomur, fótbolti, leikir, gönguferðir og fleira. Verð fyrir eitt barn á barnamótinu er 2.300 kr. og veittur er sérstakur systkinaafslátt- ur. Ekkert kostar fyrir fullorðna en greiða þarf íyrir gistingu. Flugsýning í Múlakoti Eins og undanfamar verslunar- mannahelgar koma allir flugáhuga- menn og fjölskyldur þeirra saman til hátíðarhalda að Múlakoti í Fljótshlíð. Á mótinu gefst fólki kostur á að sjá margar þekktar flugvélar og fara í útsýnisflug um nágrenni Múlakots. Á hátíðinni verður boðið upp á leiki fyrir böm og fullorðna s.s. hveiti- pokakastkeppni og lendingakeppni á vélflugum, listsýningu, módelflug og fleira, með fyrirvara um veður. Einnig verður sameiginlegt grill og kvöldvaka. Ekkert kostar á hátíðina en greiða þarf fyrir gistingu og gi'fll- mat. Hátíð á Flúðum Á Flúðum er löng hefð fyrir fjöl- skylduhátíð um verslunarmannahelg- ina. Lifandi tónlist verður alla helg- ina og m.a. leikur Rúnar Júlíusson fyrir gesti. Fastir liðir eins og varð- eldur og brekkusöngur verða í Torf- dalnum og sitthvað fleira. Stutt er í HVERT LIGGUR LEIÐIN? Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir útihátíðir um verslunarmannahelgina. Fjölbreytt dagskrá verður í boði um allt land vegna þessarar mestu ferðahelgi ársins. Eyrún Baldursdóttir aflaði sér upp- lýsinga um þær úti- og fjölskylduhátíðir sem haldnar verða um helgina. fræðslu, skemmtun, samvem og helgiathöfnum. Boðið verður upp á fyrirlestra af ýmsu tagi, námskeið, svitahof, spflalestur, skyggnflýsingar, talnaspeki og margt fleira. Fyrir bömin verða sérstakar ævintýraferð- h’, friðarathöfn, varðeldur og sam- söngur. Tveir erlendir leiðbeinendur verða á mótinu; Isabel Contreras sem er viðurkenndur Louise L. Hay- leiðbeinandi og Peggy Rada sem kennir notkun blómadropa. Mann- rækt undir Jökli er vímuefnalaust mót. Aðgangseyrir er 3.500 krónur og 3.000 í forsölu, en frítt er inn fyrir böm yngri en 14 ára. Sætaferðir era frá BSÍ og tekur akstur að Hellnum frá Reykjavík um tvær og hálfa klukkustund. Sæludagar í Vatnaskógi 1999 Sæludagar hafa verið haldnir í Vatnaskógi árlega síðan 1991, en að þeim standa KFUM Vatnaskógi, KFUM og KFUK í Reykjavík og Samband íslenski-a kristniboðsfélaga. Líkt og hefðbundið er, verður úrval dagskrárliða fyrir alla aldurshópa. Ævintýraferð og hæfileikakeppni verður haldin fyrir böm og einnig verður boðið tfl þátttöku í knatt- spymu, Sæludagaleikum, kassabíl- aralli, koddaslag, vatnasporti og gönguferðum. Kristniboðsstund, bænastundir og kvöldvökur verða fyrir alla fjölskylduna sem og varð- eldur og flugeldasýning við vatnið. Þeir tónlistarmenn sem fram koma á Sæludögum eru m.a. Laufey Geir- laugsdóttir, Páll Rósinkranz og Kangakvartetinn. Aðgangseyrh- er 2.500 kr. á mann en hámarksverð fyr- ir fjölskyldu er 5.000 kr. Rútuferðir eru frá BSÍ. Mjólkurgleði SÁÁ og Dalamanna Vímuefnalaus fjölskylduhátíð verð- ur haldin öðra sinni um verslunar- mannahelgi á Staðarfelli í Dölum. I ár verður dagskráin einkar fjöl- breytileg og hentar öllum. Börnunum verður boðið að fara á hestbak og að taka þátt í ýmsum leikjum. Ratleikur, fótboltamót og íþróttaleikir verða handa þeim sem og hinum eldri. AA- fundir verða haldnh', sameiginleg gróðursetning á svæðinu og grill- veisla. Skemmtikraftarnir Omar Ragnarsson og Jóhannes Kristjáns- son halda uppi gríninu og harmon- ikkusveitin Nikkolína gefur fólki tækifæri á að taka léttan snúning. Auk þessa verður varðeldur og flug- eldasýning og hljómsveitin Karma leikur fyrh' dansi öll kvöldin. Aðgangur að svæðinu er 3.000 UM SÍÐUSTU verslunar- mannahelgi aldarinnar munu íslendingar ekki fara varhluta af skipu- lögðu skemmtanahaldi. Hátíðarhöld verða á yfir tuttugu stöðum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þeirri fjölbreyttu flóra. Síðustu ár hefur fjölskyldu- skemmtunum fjölgað og nú bjóða nær allir upp á sérstaka barnadag- skrá. Verslunarmannahelgin hefst föstudaginn 30. júlí og stendur tfl 2. ágúst en sums staðar er forskot tekið á hátíðarsæluna. Neistaflug ’99 á Neskaupstað í ár verður Neistaflug á Neskaup- stað haldið í sjöunda skipti. Að þessu sinni verður Neistaflug með breyttu sniði og mun það einna helst vera í formi aukinnar íhlutunar heima- manna í skemmtun hátíðarinnar; „enda er af nógu tónlistar-, leiklistar- og myndlistarfólki að taka hér í Nes- kaupstað," segja skipuleggjendur Neistaflugs. Á Neistaflugi verður hljómsveitin Amon Ra með Eirík Hauksson í broddi fylkingar endurvakin og blús-, rokk- og djassklúbburinn á Nesi (BRJÁN) mun einnig skemmta ásamt ýmsum söngvuram. Jóhannes Kristjánsson verður með eftirhermur og Bjami töframaður mætir á svæð- ið. Þar að auki munu hljómsveitirnar Stuðkroppamir og Sú Ellen leika fyr- ir gesti. Frítt er inn á svæðið og á tjald- stæði, en einungis þarf að borga inn á böllin. Vopnaskak ’99 á Vopnafirði Síðan 1994 hefur Vopnaskak verið haldið árlega og verður sífellt fjöl- skylduvænni hátíð. Vopnafírðingar taka tæprar viku forskot á verslunarmannahelgarsæl- una með hagyrðingakvöldi, bridge- móti og sagnakvöldi. Þegar sjálf verslunarmannahelgin gengur í garð munu hátíðargestir fyllga liði í skrúðgöngu, njóta lifandi tónlistar og grfllmatar í boði Vopna- fjarðarbæjar. Meðal þess sem boðið er upp á era skemmtiatriði úr Ávaxtakörfunni, Skralli trúður og annað fyrir börnin. Dorgveiðikeppni og opið sjóstangveiðimót verður hald- ið auk þess sem félagamir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Krístjánsson koma og syngja. Sérstakur Burstar- feflsdagur verður haldinn en þá verð- ur gamli tíminn endurvakinn að sögn skipuleggjenda. Hljómsveitimar sem spila á Vopnaskaki era Sixties, Sól- dögg og Papamir. Frítt er inn á Vopnaskak og ekkert kostar á tjaldstæðið. Greiða þarf 2.000 kr. inn á böllin en 5.000 kr. fyrir þau öU þrjú. Unglingar yngri en sext- án ára verða að vera í fylgd með fuU- orðnum. Halló Akureyri í sjötta sinn Ferðamálafélag Eyjafjarðar held- ur fjölskylduhátíðina Halló Akureyri í sjötta sinn um komandi verslunar- Skipulögð hátíðarhöld um verslunarmannahelgina Siglufjörður Skagaströnd Flókalundur Staðarfell Hellnar Vestmannaeyjar Vopnafjörður mannahelgi. Að sögn skipuleggjenda hefur hátíðin vaxið árlega í umfangi en áætlað er að þangað hafi 12-15.000 manns komið í fyrra. í Sjallanum og KA-heimflinu spila hljómsveitimar Sálin hans Jóns míns, SkítamóraU, Land og synir og Sól- dögg. Á sviði Halló Akureyri koma fram auk fyrmefndra hljómsveita Paparnir, Skriðjöklar, Stefán og Eyvi, hljómsveitin einn og sjötíu, Opíum, Hundur í óskflum og fleiri. Yngri spfluram frá Akureyri og ná- grenni verður einnig gefið tækifæri á að spreyta sig Á Halló Akureyri koma ennfremur fram götuleikhópurinn Zirkús Zímsen, söng- hópurinn Brooklyn fæv, leikbrúðumeist- aramir Helga Arn- alds og Bemd Ogridnik, Pétur pók- us, Bjami töframað- ur, Steinn Armann, Helga Braga og fjöldi annarra. Þar að auki er boðið upp á ýmis- legt tfl skemmtunar bæði inn í miðbænum sem utan hans s.s.; Sprell-leiktæki, hestateymi, go-kart- braut og akstur með farþega í torfærabíl- um í malarkrúsum of- an Akureyri. Hápunktur hátíðar- innar er Hagkaups- gangan og flugeldasýning í kringum miðnætti á sunnudagskvöldið 1. ágúst. Allir geta komið og notið skemmt- unar í miðbæ Akureyrar um verslun- armannahelgina án endurgjalds, en borga þarf sérstaklega fyrir tjald- stæði og dansleiki. Kántríhátíð á Skagaströnd Að sögn aðstandenda verður kán- tríhátíðin í ár sú veglegasta frá upp- hafi. Skemmtidagskráin er fjölbreytt og hentar stóram sem smáum. Fyrir bömin verður á staðnum risarenni- braut, hoppukastali ásamt rafmagns- bílum og fleiri leiktækjum. Gestir fá tækifæri tfl þess að spreyta sig í keppnum af ýmsu tagi s.s mark- hnútaveiði, kassabílarrallíi, ratleik og kraftakeppni. Línudans mun sem fyrr setja mik- inn svip á hátíðina en Jóhann Öm Ólafsson mun bæði kenna línudans og stjóma keppni. Boðið er upp á út- sýnissiglingu, hestaferðii’, skemmti- dagskrá á útipalli og einnig verður varðeldur og flugeldasýning. Þeir sem sjá um tónlist á kántríhá- tíðinni era hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar og Ruth Reginalds, Mannakom, Lausir og liðugir og síð- ast en ekki síst Lukkulákamir ásamt Hallbimi Hjartai’syni. Við gospel- messu, sem er hápunktur hátíðarinn- ar, munu nokkrir af fyrrnefndum tónlistarmönnum koma fram auk Pálma Gunnarssonar og gospelkórs. Engin aðgangseyrir er á hátíðina, en tekið verður gjald fyrir tjaldstæði og dansleiki. Ef veður bregst verður nýtt íþróttahús notað íyrir þau atriði sem annars era ætluð utandyra. Hátíð í Mývatnssveit Markmið Mývetninga um verslun- armannahelgina er að koma tfl móts við þarfir fjölskyldunnar og skapa sem besta stemmningu í Mývatns- sveit. Ferðamálafélag Mývatnssveit- ar stendur fyrir uppákomunum ann- að árið í röð. Lifandi tónlist verður víða um sveitina og má t.d. nefna Tjarnai’kvartettinn sem spilar í Reykjahlíð. Boðið verður upp á hestaferðir í kringum Mývatn, ferð um Gjástykki, reiðhjólaferð um sveit- ina, siglingu á Mývatni og margt fleira. Einnig verður sérstakt kaffi- hlaðborð, útigrfll og síðast en ekki síst verður varðeldur með tilheyrandi gítarspili og söng. Hápunktur helgar- innar er kraftakeppnin Víkingar norðursins sem haldin er vítt og breitt um Norðurland, en ein grein keppninnar verður haldin í Mývatns- sveit. Engin sérstakur aðgangseyiir er á fjölskylduhátíðina í Mývatnssveit en greiða þarf fyrir fáeina dagskrárliði. Fjölskylduhátíð í Flókalundi í Flókalundi verður skipulögð úti- vistardagskrá um verslunarmanna- helgina í fimmta skipti, undir nafninu Fjölskyldan og Flóki. Dagskráin hefst laugardaginn 31. júlí, og er sniðin fyrir fjölskyldufólk. í Flóka- lundi verður boðið upp á lengri og styttri sjókajakferðir, gönguferðir með landverði um Surtarbrandsgil og fyrir yngstu kynslóðina verða leikir skipulagðir og sandkastalakeppni haldin. Helgistund verður í fjörunni fyrir neðan Flókalund og þar verður einnig varðeldur og söngur. Auk þessa er boðið upp á litskyggnusýn- ingu í matsal Hótels Flókalundar, af sjókajakferð um Vestfirði. Borga þarf fyrir tjaldstæði og kajakferðir en annað er frítt. Rútu- ferðir eru frá ísafirði, Patreksfírði, og Reykjavík. Breiðafjarðarferjan Baldur fer frá Stykkishólmi yfir á Brjánslæk sem er sex kflómetram frá Flókalundi. Mannrækt undir Jökli ’99 á Snæfellsnesi Á mótinu Mannrækt undir Jökli, sem haldið er að Brekkubæ á Helln- um í þrettánda skipti, safnast saman áhugafólk um andleg og náttúruvæn málefni. Mótið í ár fer fram með hefð- bundnum hætti; samblandi af + hestaleigu og mikið er af gönguleið- um um nágrennið. Þrettánda árið í röð verður furðubátakeppni á Flúð- um. Þar keppast ungir sem aldnir við að búa tfl glæsflegustu og frumleg-^.. ustu farartækin og sigla þeim á Litlu- Laxá. Sætaferðir að Flúðum era dag- lega frá BSÍ. Ókeypis er inn á svæðið en greiða þarf fyrir tjaldstæði. Úthlíð í Biskupstungum Líkt og Flúðir er Úthlíð í uppsveit- um Árnessýslu og þar verður fjöl- skylduhátíð um verslunarmannahelg- ina eins og allmörg undanfarin ár. Þeir sem spfla á dansleikjum í Úthlíð era hljómsveitin Dans á rósum, Rún- ar Júlíusson og Gildramezz. Grfll- veisla verður haldin á staðnum, varð- eldur kveiktur og flugeldum skotið á / loft. Áætlunarferðir era daglega frá BSI að Úthlíð og þar er ekkert gjald inn á svæðið en greiða þarf fyrir gist- ingu. Undir bláhimni í Árnesi Um verslunarmannahelgina verður haldin söng- og hljóðfærasláttarhátíð í Ámesi í Gnúpverjahreppi og er því um að ræða þrjár hátíðh- í uppsveit- um Amessýslu. Samkvæmt umsjón- armönnum Undir bláhimni verður reynt að skapa einstaka stemmningu með linnulitlum söng- og hljóðfæra- áslætti að erlendri þjóðhátíðafyrir- mynd. Gestir hátíðarinnar era hvattir til að hafa með sér hijóðfærin sín og söngbækur og öllum er frjálst að \' koma fram. Fjöldi listamanna stígur á stokk s.s. Bubbi Morthens, KK, Bjartmar Guðlaugsson, Eyjólfur Kristjánsson, Ólafur Þórðai’son, Wflma Young o.fl. Einnig verða á hátíðinni hljómsveit- irnar Súkkat og Geirfuglamir og klassískir tónleikar Strengjatríósins og jslenska tríósins era í boði. I Árnesi verður farið í leiki, knatt- spyrnu og einnig verður grillað. Hestaleiga er á staðnum og fallegar gönguleiðir um svæðið. Miðaverð er 2.000 kr. en á sérstaka dansleiki kost- *" ar 300 kr. Vík í Mýrdal Um verslunarmannahelgina er fólki á öllum aldri boðið að koma til Víkur og njóta þess sem þar er í boði. Ymislegt er þar tfl afþreyingar s.s. hestaleiga, bátsferðir með hjólabát- um út í Reynisdranga og Dyrhólaey, styttri og lengri gönguferðir með leiðsögn og margt fleh’a. Kaffi- húsastemmning verður í Brydebúð, sýningar af ýmsu tagi og óvæntar uppákomur. Einnig verður varðeldur á tjaldstæðinu í Vík öll kvöldin og væntanlega mun þar ríkja góð stemmning. Ekki er um að ræða sérstakt móts- ! gjald heldur þarf að greiða fyrir það sem tekið er þátt í. Uppákomur á Laugarvatni Á Laugarvatni verða ýmsar uppá- komur í tilefni verslunarmannahelg- arinnar. Hefðbundnir dagskrárliðir eins og samsöngur, varðeldur og flugeldasýning mun ekki vanta. Diskótek verða haldin öll kvöldin auk þess sem verða óvæntar uppákomur fyrir böm. Greiða þarf fýrir tjald- stæði. Skjálfti ’99 Skjálfti er nú haldinn öðra sinni. r Um síðustu verslunarmannahelgi var Skjálfti á Akureyri en nú fer hann fram á umbrotasvæðinu Inghóli á Selfossi. Að sögn Isa, eins sldpuleggj- enda hátíðarinnar, er markmiðið að halda siðmenntaða samkomu með vandaðri danstónlist. Tveir erlendir plötusnúðar, Erik Rug og Kontrol, verða á Skjálfta ‘99 ásamt fjölda íslenskra plötusnúða s.s. Áma Einari, Herb Legowitz, Mar- geiri, Jóni AÚa „Rödd Guðs“, Andi’ési, Þossa „Rauða stjaman", Habit, Pol- aroid og fleiram. Hljómsveitimar Qu- arashi og Northem Light Orchestra munu spila og auk þess mun Daníel Ágúst koma fram ásamt Alfred More en þeir era báðir úr GusGus. Ái-mband sem gfldir alla helgina kostar 2.900 kr. en miði á hvert kvöld kostar 1.500 kr. Sætaferðir eru oft á dag frá BSI að Selfossi og nefnir ísi að fólk geti einnig farið heim með rútum eftir böllin. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.