Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 39 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Leikjadagskrá Laugarnes- kirkju I dag, miðvikudaginn 21. júlí, verð- ur leikjadagskrá í Laugameskirkju. Þetta er nýr liður í safnaðarstarflnu og verður vikulega á miðvikudögum kl. 17.30-19 í sumar. Þessi leikja- dagskrá verður í umsjá sóknar- prests og æskulýðsfulltrúa og er fyrir allan aldur. Það er því tilvalið fyrir fjölskylduna að koma saman og leika gömlu, góðu útileikina. Við byrjum með stuttri helgistund í kirkjunni en færum okkur svo út og hefjum fjörið. Allir velkomnir. Starfsfólk Laugarneskirkju. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10 í safnaðarheimilinu. Orgel- leikur á undan. Léttur málsverður á eftir. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr- irbænir kl. 18. Laugarneskirkja. Leikjadagur Laugarneskirkju kl. 17.30-19. Sóknarprestur og æskulýðsfulltrúi bjóða út í leiki á kirkjulóðinni. Fjölskyldan öll velkomin. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar- stund i hádegi í kirkjunni kl. 12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í minni Hásölum. Kl. 20-21.30 íhugun og samræður í safnaðarheimilinu í Hafnarfjarðar- kirkju. Leiðbeinendur Ragnhild Hansen og sr. Gunnþór Ingason. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, JÓNU ÞURÍÐAR BJARNADÓTTUR, Vallargötu 14, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A á Heilbrigðisstofun Vestmannaeyja fyrir hlýja og notalega umönnun. Guðmundur Ármann Böðvarsson, Sigurleif Guðfinnsdóttir, Höskuldur Rafn Kárason og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HAUKS SVEINSSONAR, Langholtsvegi 154. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hólmfríður Sölvadóttir, Kristján Hauksson, fsafold Aðalsteinsdóttir, Guðmundur V. Hauksson, Nanna H. Ásgrímsdóttir, Edda Björk Hauksdóttir, Hartmann Ásgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. Óvænt úrslit SIGURSVEIT Hafnfírðinga: Páll Agnar Þórarinsson, Þorvarður F. Ólafsson, Björn Fr. Björnsson, Sigurbjöm Björasson, Ásgeir P. Ás- björnsson, Ágúst S. Karlsson og Láras Knútsson. Dos Hermanas 1999 Nr. Nafn Sticj 1 2 3 4 5 6 7 8 Vinn. Röð 1 Michael Adams 2716 % 0 1Á 1/2 1/2 1 1 4 3.-5. 2 Viswanathan Anand 2781 1/2 Vz Vz Vz 1A 1/2 1 4 3.-5. 3 Peter Leko 2694 1 % 1/z Vz 1/2 1 1 5 1. 4 Anatoli Karpov 2710 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1/2 % 4 3.-5. 5 Ivan Sokolov 2624 1/2 1Á 1/2 0 Vz 0 Vz 2,5 6. 6 Vladimir Kramnik 2751 Vz Vz Vz Vz 1/2 1 1 4,5 2. 7 Veselin Topalov 2700 0 Vz 0 1/2 1 ol lo 2 7.-8. 8 Jan Timman 2670 0 0 0 1Á 1/2 0 1 1 2 7.-8. SKAK Dortmund SPARKASSEN-SKÁKMÓTIÐ 10.-17. júlí 1999. ÓHÆTT er að segja að síðasta vika hafi einkennst af óvæntum úr- slitum í skákheiminum. Hinu gríð- arsterka Sparkassen-móti í Dort- mund lauk á laugardaginn. Fyrir mótið var almennt talið að keppnin um efsta sæti mundi standa á milli þeirra Anands og Kramniks. Annað kom þó á daginn og í lok mótsins var Peter Leko einn efstur með 5 vinninga af 7 mögulegum. Komu þessi úrslit á óvart enda var Leko þriðji stigalægsti keppandinn. Kramnik fylgdi honum þó fast á eft- ir og endaði mótið með 414 vinning, en Rramnik hefur ekki tapað skák í Dortmund frá því 1992. Þriðja til fímmta sæti deildu þeir Karpov, Anand og Adams með 4 vinninga. Úrslit mótsins má sjá meðfylgjandi töflu. Mótið vakti mikla athygli í þýsk- um fjölmiðlum eins og ýmsir skák- viðburðir sem þar hafa farið fram að undanfömu. M.a. var sjón- varpsstöðin WDR 3 með klukku- stundar umfjöllun um skákmótið á sunnudagskvöld auk þess sem mikið var fjallað um mótið í þýsk- um blöðum. Ungverjinn Peter Leko varð stórmeistari einungis 14 ára gamall og þá hafði enginn náð þeim áfanga svo ungur. Arið 1992 var hann staddur í Dortmund og þá var hann spurður hvað hann vildi verða. Svarið var ákveðið: „Heimsmeistari í skák árið 1999.“ Þá var hann spurður hvort hann ætlaði að sigra Kasparov, en Leko sem þá var 12 ára sagðist ætla að sigra Anand í keppni um heimsmeistaratitilinn. Algjörir yfírburðir Shirovs gegn Judit Polgar Alexei Shirov gerði sér lítið fyrir og sigraði Judit Polgar með 5'A vinningi gegn lh vinningi Polgar í EuroTel-einvíginu. Þessi úrslit koma mjög á óvart, sérstaklega þar sem Judit er einn af sterkustu skák- mönnum heims og er í 19. sæti á skákstigalista FIDE. Shirov vann fyrstu þijár skákimar og tryggði sér sigur í einvíginu með jafntefli í fjórðu skáldnni. Þrátt fyrir það voru allar sex skákimar tefldar og Shirov vann tvær síðustu skákimar. Judit Polgar eygði von um sigur í síðustu skákinni, en í tímahrakinu fyrir fyrstu tímamörkin missti hún af bestu leikjunum og þegar tíma- hrakið var um garð gengið var ljóst að taflið hafði snúist við. Hafnfirðingar sigra í hraðskákkeppni taflfélaga Skákfélag Hafnarfjarðar sigr- aði Taflfélag Reykjavíkur í úr- slitaviðureigninni í Hraðskákk- eppni taflfélaga á Suðvesturlandi. Hafnfirðingar sigmðu með minnsta mun og endaði keppnin með 3614 vinningi S.H. gegn 3514 vinningi T.R. Þetta er í fyrsta sinn sem Skákfélag Hafnarfjarðar sigrar í keppninni auk þess sem þetta er í fyrsta sinn sem félag ut- an Reykjavíkur sigrar í keppn- inni. Þessi árangur S.H. er mjög góður, sérstaklega þegar haft er í huga að þetta er í fyrsta sinn sem félagið kemst upp úr 8 liða úrslit- um. S.H. byrjaði betur í viðureign- inni og náði þriggja vinninga for- skoti eftir tvær umferðir. T.R.-ing- ar jöfnuðu í fjórðu umferð og vom komnir með ágætis forskot í hálf- leik, 20-16. Munurinn hélst svipað; ur þar til í næstsíðustu umferð. I henni sigmðu heimamenn 5-1 og náðu eins vinnings forskoti. Loka- viðureignin fór 3-3 og því sigruðu heimamenn með minnsta mun. Ás- geir P. Ásbjörnsson náði bestum árangri Hafnfirðinga fékk 814 vinn- ing. Bestum árangri T.R.-inga náði Amar Gunnarsson með 9 vinninga. Fram að þessu hafa Hellir og T.R. skipst á um að sigra í þessari keppni og hafa aldrei fyrr tapað viðureign við önnur félög. Góð byrjun Helga og Róberts á tékkneska meistaramótinu Helgi Áss Grétarsson og Róbert Harðarson taka nú þátt í tékk- neska meistaramótinu sem hófst á föstudaginn. Þeir keppa báðir í efsta flokki sem er opinn fyrir skákmenn með a.m.k. 2.200 stig, en þar eru 260 keppendur. Meðal- stig keppenda em u.þ.b. 2.300 stig. Þetta em töluverð viðbrigði fyrir Róbert sem er nýkominn frá Politiken Cup-skákmótinu þar sem styrkleikamunur keppenda var mjög mikill. Tékkneska meistaramótið er í raun skákhátíð með hvers kyns skákviðburðum. Þátttakendur á helstu skákmótum hátíðarinnar em fjölmargir, eða á annað þúsund. íslensku keppendurnir geta ekki kvartað yfir árangrinum í fyrstu umferðunum, en þeir unnu báðir fyrstu tvær skákimar. Róbert sigraði rússneskan alþjóðlegan meistara í annarri umferð, Ramil Hasangatin, en hann er með 2.449 stig. Helgi Áss sigraði aftur í þriðju umferð og var þar með kominn í 1.-8. sæti. Róbert tapaði hins veg- ar og var í 37.-101. sæti með tvo vinninga. í fjórðu umferð gerði Helgi Áss jafntefli við Rússann Evgeny Alekseev og Róbert gerði jafntefli við ungverska stórmeistarann Peter Szekely. Helgi Áss er með 314 vinn- ing í 1.-18. sæti á mótinu eftir fyrstu fjórar umferðimar, en Róbert er í 47.-105. sæti með 214 vinning. Sigurbjörn teflir á Englandi Sigurbh’ni Bjömssyni var boðið með stuttum fyrh-vara á alþjóðlegt skákmót í Wakefield á Englandi. Hann þurfti að hafa hraðar hendur við undirbúninginn, en það tókst og hann komst á mótið í tæka tíð. Lítill undirbúningstími virðist ekki hafa komið niður á tafl- mennsku Sigurbjöms, því að tveimur umferðum loknum er hann efstur á mótinu með fullt hús ásamt stórmeistaranum Keith Ar- kell. í fyrstu umferð sigraði Sigur- bjöm ensku skákkonuna Cathy Forbes sem er alþjóðlegur meist- ari. I annarri umferð sigraði hann annan enskan skákmann, Peter Gayson, en þeir Sigurbjörn era jafnháir að stigum. Lokasiagur VISA- bikarkeppninnar Nú liggur fyrir þátttakendalisti í lokamóti VISA-stórbikarkeppn- innar á Norðurlöndum, sem jafn- framt er Norðurlandamótið í skák: Hannes Hlífar Stefánsson Þröstur Þórhallsson Helgi Áss Grétarsson Jonny Hector (Svíþjóð) Ralf Ákesson (Svíþjóð) Tiger Hillarp-Persson (Svíþjóð) Simen Agdestein (Noregi) Einar Gausel (Noregi) Torbjöm R. Hansen (Noregi) Heikki Westerinen (Finnlandi) Heini Olsen (Færeyjar) Peter Heine Nielsen (Danmörku) Nikolaj Borge (Danmörku) Lars Schandorff (Danmörku) Keppendur verða því 14, en ekki 16 eins og upphaflega var áætlað. Þeir Jóhann Hjartarson, Curt Hansen og Jesper Hall sáu sér ekki fært að taka þátt í mótinu. Einar Gausel kemur inn í stað Jesper Hall. Eftir þessar breyting- ar er Svíinn Patrik Lyrberg fyrsti varamaður. Mótið hefst hinn 5. ágúst og því lýkur 19. ágúst. Teflt verður á hveijum degi, nema hvað 13. ágúst verður frídagur. Teflt verður í Gentofte skammt fyrir utan Kaup- mannahöfii. Hannes Hlífai- gæti reyndar þurft að aflýsa þátttöku í mótinu vegna heimsmeistarakeppninnar í skák. Strax og hann kemst í aðra umferð keppninnar er þ átttaka í VISA mótinu í hættu. Alþjóðleg bréfskákstig ICCF Ný alþjóðleg bréfskákstig hafa nú verið gefin út af ICCF, sem era alþjóðleg samtök bréfskák- manna. íslenskir skákmenn hafa náð ágætum árangri á þessum vettvangi og stigahæstir þeirra era: 1. Bragi Þorbergsson........SM 2.553 2. Hannes Ólafsson................SM 2.538 3. Jón Á. Halldórsson.......AM 2.477 4. Vigfus Ó. Vigfusson....(AM) 2.476 5. Áskell Ö. Kárason ......AM 2.452 6. Jón Adólf Pálsson..............AM 2.446 7. Jón Kristinsson ..........AM 2.440 8. Sverrir Karlsson ...........2.424 9. Eggert ísólfsson ...........2.420 10. Gísli Gunnlaugsson ........2.403 Vigfús Óðinn Vigfússon hækkar mest frá síðasta stigalista, eða um 81 stig. Ralf Ákesson sænskur meistari Stórmeistarinn Ralf Ákesson sigraði á sænska meistaramótinu sem fram fór í Lidköping dagana 3.-18. júlí. 1. SM Ralf Ákesson..........2.535 10 v. 2. SM Jonny Hector .........2.505 9 v. 3. AM Stellan Brynell......2.488 8V4 v. 4. SM Thomas Emst...........2.409 8 v. 5. Peter Laveryd..........2.400 714 v. 6. AM Robert Bator .........2.431 7 v. 7. SM Tom Wedberg ........2.487 614 v. 8. Christian Jepson ........2.373 6 v. 9. Emanuel Berg.............2.348 6 v. 10. AM Ari Ziegler .........2.404 5 v. 11. AM Jan Johansson .......2.360 5 v. 12. AM Robert Áström........2.452 5 v. 13. FM Johan Eriksson.......2.373 4 v. 14. Anders Olsson.........2.206 314 v. Meðalstig keppenda vora 2.412 sem þýðir að mótið var í sjöunda styrkleikaflokki. Tíu vinninga þurfti til að ná stórmeistaraáfanga og Th vinning til að ná alþjóðlegum áfanga. Eins og á norska meistaramót- inu, sem sagt var frá hér í skák- þættinum um daginn, var keppt í öllum flokkum meistaramótsins samtímis. Dennis Rylander varð unglingameistari Svíþjóðar og Bengt Andersson varð meistari í flokki 60 ára og eldri. Þegar aðalkeppninni var lokið fór fram hraðskákmót Svíþjóðar, en þar sigraði Emanuel Berg. Daði Örn Jónsson S k
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.