Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vel heppnuðu lands- móti skáta lokið LANDSMÓTI skáta við Úlfljóts- vatn lauk í gærmorgun og í gær stóð yfír vinna við frágang. Að sögn Helga Grímssonar, fræðslustjóra skáta, tókst mótshaldið framar von- um. „Eg held að það sé einróma álit manna að mjög mörg ár séu síðan skátar héldu jafn vel heppnað mót hér á landi,“ segir hann. Helgi segir að nú hafí mótið í fyrsta skipti verið haldið í svo þjóð- legu umhverfi og að aldrei hafi hlut- fall erlendra skáta verið jafn hátt. „Við reyndum margt nýtt í dag- skránni og til að mynda völdu flokk- amir nánast alveg sjálfir eigin dag- skrá. Hver flokkur bjó til sína stundaskrá og valdi úr 100 dag- skrárliðum. Þá má nefna nýjungar í kvölddagskránni, en til dæmis voru haldin diskótek eftir hefðbundinn varðeld," segir Helgi. Undirbúningur öðruvísi í ár Undirbúningur mótsins var frá- brugðinn fyrri árum að því leyti að reynt var að gera aðstöðuna sem varanlegasta, þannig að hægt væri að nota hana á skátamótum framtíð- arinnar. „Nú er staðurinn í margfalt betra ásigkomulagi en áður, enda var töluverðum fjármunum varið í undirbúninginn, um 15-20 milljón- um króna,“ segir Helgi. Hann segir að meginhluti þeirrar fjárhæðar hafi verið þátttökugjöld, en einnig hafi öflugt starf sjálfboðaliða skipt sköpum, auk þess sem styrkur hafi fengist frá ríkinu og hjálp frá Orku- veitu Reykjavíkur. Næsta landsmót skáta verður að Hömrum við Akur- eyri árið 2002, en í haust verður haldið mót fyrir eldri skáta, 15-30 ára, að Úlfljótsvatni. Erlendir sem innlendir skátar hafa því tilhlökkun- arefni, en að sögn Helga voru er- lendir gestir mjög kátir með mótið og vildu margir ekki snúa heim. Morgunblaðið/J ónas Baukur á beit Árekstur í Kópavogi HARÐUR árekstur varð á mótum Nýbýlavegar og Túnbrekku í Kópa- vogi um miðjan dag í gær. Fjar- lægja varð báðar bifreiðamar með kranabifreið en engin slys urðu á fólki. Lögreglan hefur tekið um 100 ökumenn fyrir of hraðan akstur í fyrradag og í gær og hefur lögregl- an í Kópavogi verið við hraðamæl- ingar á ljósmyndabifreið embættis ríkislögreglustjóra og haft í nógu að snúast. Mælt hefur verið vítt og breitt um bæinn og sagði lögregluvarð- stjóri að engir ækju þó það hratt að styngi í augu en margir ækju engu að síður allt of hratt. „Þetta er óskaplegur fjöldi sem hefur ekið of hratt,“ sagði varð- stjórinn og bætti við að áfram yrði mælt næstu daga. BAUKUR nefnist sá myndarlegi hrútur sem hér sést á beit í urð við Fagradalshamra. Áin að baki hon- um heitir Kerlingardalsá, en aust- an þeirra má greina sandhrúgöld sem bera nafn sem mörgum kann að þykja lítt viðeigandi, þ.e. Höfða- brekkujökull. Svo heitir einnig skriðjökuil einn er gengur suð- austur úr Mýrdalsjökli, en sand- hrúgöldin munu hafa myndast er hann hljóp fram við Kötlugos. Fjærst má svo sjá Hjörleifshöfða rísa upp úr Mýrdalssandi. Laugavegshlaupið fer fram um helgina Þátttakendur aldrei fleiri RÚMLEGA hundrað þátttakendur hafa skráð sig til þátttöku í Lauga- vegshlaupinu, sem fer fram um helg- ina, en um er að ræða 55 km hlaup frá Landamannalaugum yfir í Þórsmörk. Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri en nú, en þetta er í þriðja skiptið sem hlaupið fer fram. í gær höfðu 102 skráð sig, þar af eru 25 útlendingar, sem koma frá Frakklandi, Bandaríkj- unum, Þýskalandi, Slóveníu, Finn- landi og Hollandi. Að sögn Ágústs Þorsteinssonar, hjá Reykjavíkur- maraþoni, sem sér um framkvæmd hlaupsins, er mikil stígandi í þátttök- unni, en árið 1997 voru þátttakendur 49, í fyrra voru þeir 79 og nú verða þeir yfir hundrað. Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Islands í Landmannalaugum á laug- ardaginn klukkan átta að morgni og því lýkur við skála Austurleiðar í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið er eftir stíg alla leiðina, þar sem undirlag er að mestu leyti sandur, möl, gras, snjór, ís og vatnsföll. Fyrsti áfangi leiðarinnar er frá Landmannalaugum í Hrafntinnu- sker og er loftlína um 10 km en lóð- rétt hækkun um 500 m. Annar áfanginn er frá Hrafntinnuskeri að Álftavatni og er loftlínan um 11 km en lóðrétt hækkun um 500 m. Þriðji áfanginn er frá Álftavatni í Emstrur og er loftlína um 16 km en lóðrétt lækkun um 50 m. Fjórði og síðasti hluti leiðarinnar er frá Emstrum í Þórsmörk og er loftlína um 13,5 km en lóðrétt lækkun um 300 m. Laugavegurinn er venjulega geng- inn og þykir eðlilegur göngutími vera um fjórir dagar en fyrir tveim- ur árum hljóp Rögnvaldur D. Ing- þórsson, fyrrverandi skíðagöngu- kappi, leiðina á 5.19,54 klst, sem er jafnframt metið í karlaflokki. í kvennaflokki á Bryndís Ernstdóttir metið, en í fyrra hljóp hún leiðina á 5.44,26 klst. Gæsluvarðhald framlengt HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkm- framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir tveimur einstaklingum, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á e-töflumáli, sem upp kom 7. júlí sl. þegar 969 töflur fundust í hraðpóst- sendingu frá Þýskalandi. Var gæslu- varðhaldið framlengt til 22. septem- ber og er gert ráð fyrir því að dómur falli í málinu á tímabilinu. Þrír einstaklingar, tvær erlendar nektardansmeyjar og einn íslenskur karlmaður, sátu í gæsluvarðhaldi til dagsins í gær og voru önnur stúlkan og karlmaðurinn úrskurðuð í áfram- haldandi gæsluvarðhald en hin stúlk- an var leyst úr gæsluvarðhaldi og sett í farbann. Síðastliðinn föstudag var íslenskur karlmaður á fimmstugsaldri úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 28. júlí vegna málsins. Háir innflutningstollar á kartöflum standa mnflutningi á þeim fyrir þrifum Kvartað undan lélegum kartöflum Talsvert hefur veríð kvartað að undanförnu undan lélegum og skemmdum kartöflum í verslunum. Nóg er til af kartöflum frá því í fyrrahaust, en þá varð metuppskera. Von er á nýjum ís- lenskum kartöflum í búðir í næstu viku. Þangað til verða neyt- endur að gera sér að góðu íslenskar kartöflur frá síðasta ári. Ekkert hefur verið flutt inn af kartöflum utan bökunarkartöfl- ur enda háir innflutningstollar á kartöflum. AÐ SÖGN Jóhannesar Gunnarssonar fram- kvæmdastjóra Neytendasamtakanna er það árlegur viðburður að kvartað sé undan léleg- um kartöflum á þessum tíma. „Þetta er óþol- andi ástand og verst þegar góð uppskera hef- ur verið árið á undan. Það er verið að reyna að koma út framleiðslu sumarsins áður og menn hreinlega að notfæra sér innflutnings- vemdina því ekki er inni í rnyndinni að flytja inn kartöflur vegna hárra tolla.“ Að sögn Ólafs Friðrikssonar deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu leggst 30% verð- tollur og 60 kr. magntollur á hvert kíló á inn- fluttar kartöflur. „Þessir tollar fara eftir inn- lendri framleiðslu og lækka þeir ef hún upp- fyllir ekki þarfir markaðarins eins og raunin er með bökunarkartöflur. Frá lokum maí hefur lagst á innflutning á þeim 15% verð- tollur og 30 kr. magntollur á kflóið. Þessir tollar gilda fram til loka ágúst þegar íslensk uppskera verður komin á markaðinn. Ef sú staða kemur upp að engar íslenskar kartöfl- ur eru til er magntollur felldur niður.“ Leyfilegt er að flytja inn kartöflur ef þær uppfylla heilbrigðisskilyrði en lögin um inn- flutning eru frá árinu 1995. Þá var lögum breytt vegna gildistöku GATT samningsins hér á landi. Áður var innflutningur kartaflna háður leyfum stjórnvalda og þá eingöngu leyfður þegar innlend framleiðsla annaði ekki eftirspurn. Jón Þorsteinn Jónsson, markaðsstjóri Nóatúns segir að á næstunni verði á boðstól- um kartöflur frá Spáni eða Frakklandi, rétt eins og á sama tíma í fyrra. „Það er eftir- spurn eftir nýjum kartöflum og fólk er tilbúið að borga fyrir þær. I raun er óþolandi hversu háir tollarnir eru á kartöflum en í fyrra gáf- um við okkar álagningu eftir.“ Jón Þorsteinn segir miklu betra ástand á kartöflunum nú en fyrir nokkrum árum, geymsluaðferðir séu orðnar það miklu betri. Að sögn Áma Ingvarssonar, innkaupastjóra Nýkaupa, hefur ekki verið ráðist í innflutning á kartöflum, fyrir utan bökunarkartöflur, „Við höfum reynt að biðja okkar birgja um að velja vel fyrir okkur þannig að við höfum ekki orðið mikið varir við kvartanir. Gæði kartaflnanna rýrna vissulega á svo löngum tíma en við höf- um skipt við aðila sem hafa verið með góðar kartöflur hingað til.“ Arni segir að um leið og gæðin uppfylli ekki kröfur Nýkaupa muni innflutningur vera tek- inn til skoðunar. „Við munum þá bjóða fólki upp á þessa valkosti þrátt fyrir háa tolla. En höldum í þá von að uppskeran berist bráðum." Ósanngjörn umræða Sigurbjartur Pálsson kartöflubóndi á Skarði í Þykkvabænum segir umræðu um slök gæði kartaflna vera ósanngjarna. „Kartöflum- ar em vissulega ekki eins og nýjar en kæli- geymslur era orðnar það góðar að það er mjög viðunandi ástand miðað við að það er kominn 20. júlí.“ Sigurbjartur segir að alltaf sé eitthvað um að kvartað sé við heildsölufyrirtæki en þær kvartanir hafi ekki borist til framleiðenda. „Við eram að kljást við hýðissjúkdóma sem ágerast í geymslunum en þeir gallar sem fólk sér era gallar í hýðinu sem er kannski það eina sem fólk ætlar ekki að borða. Það sem er innan í er ágætt." Sigurbjartur segir að kart- öflumar eyðileggist með vorinu hjá þeim bændum sem ekki hafi nægilega góða geymslu og þeir detti sjálfkrafa út úr sölunni. „Það era nú ekki nema 15-20 ár síðan farið var að setja kælibúnað í geymslur þannig að við erum að prófa okkur áfram.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.