Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 56
Heimavörn
Drögum næst
27. júií
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓIA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Arnaldur
FORSETI Tékklands, Václav Havel, kveður Ólaf Ragnar Grímsson,
forseta Islands, á Bessastöðum áður en haldið var í sumarhús.
Forseti
Tékklands í
leyfi hér
FORSETI Tékklands, Václav
Havel, og eiginkona hans, Dagmar
Havlová, hafa þegið boð forseta
Islands, Ólafs Ragnars Grímssonar,
að koma til sumarleyfísdvalar á
Islandi. Komu þau til landsins í gær
og munu dvelja hér til
mánaðamóta.
Tékknesku forsetahjónin komu
til Bessastaða laust eftir hádegi í
gær og héldu þaðan til dvalar í
sumarhúsi til 1. ágúst. Forseti
Islands bauð forsetahjónunum frá
Tékklandi „að njóta hvfldar og
kyrrðar í fögru íslensku umhverfi
og er það í senn heiður og ánægja
að tékknesk'u forsetahjónin hafa
kosið að veija sumarleyfi sínu á
Islandi“, segir m.a. í frétt frá
skrifstofu forseta íslands.
Vatnavextir eru í Múlakvísl við Mýrdalsjökul
Bann lagt við öllum
ferðum á jökulinn
LÖGREGLAN í Vík í Mýrdal hefur
lagt bann við ferðum upp á Mýrdals-
jökul í kjölfar jarðhræringa og vatna-
vaxta í Múlakvísl. Við flug yfir jökul-
inn rétt fyrir hádegi í gær kom í ljós
að sigkatlar á honum höfðu dýpkað
og nú við svokallaða Kötlukolla. Að
mati Almannavama ríkisins er stór-
varasamt að fara á jökulinn.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
hjá Raunvísindastofnun, segir að vís-
indamenn hafi farið í könnunarferð á
jökulinn í gær, sérstaklega vegna
þess að fréttir hefðu borist um að
nýir sigkatlar hefðu myndast. „Pað
kom enda í ljós, að þrír katlar á aust-
anverðum jöklinum höfðu dýpkað og
sprungur myndast í kringum þá.
Þetta eru gamlir jarðhitakatlar og
þekktir sem slíkir. Þeir hafa jafnan
brætt ís og vatnið hefur sigið undan
jöklinum, stundum í gusum og
stundum jafnt og þétt. Þetta er það
sem veldur vatnavöxtum og fýlu í
Múlakvísl," segir hann.
Enginn gosórói
Páll segist ekki telja að gos hafi
orðið undir jöklinum Jarðskjálfta-
mælar sýndu jarðskjálfta undir
Mýrdalsjökli í fyrrakvöld og mæld-
ist hann 2,8 á Richter. „Þá kom svo-
lítil hrina, en að öðru leyti hefur
verið kyrrt. Við höfum ekki orðið
vör við nokkuð sem kalla má gos-
óróa eða þessháttar,“ segir Páll
Einarsson.
Páll segir þó nauðsynlegt að hafa
allan vara á og fylgjast vel með þró-
un mála næstu daga. Þær upplýs-
ingar fengust hjá lögreglunni í Vík
að ákvörðun um bann við ferðum á
jökulinn yrði endurskoðuð þegar al-
mannavarnanefndin í Vík kæmi
saman á hádegi í dag.
- ; t " "
);
-----
Urskurðað-
ur í 5 mán-
aða gæslu-
varðhald
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði Þórhall Ölver Gunnlaugs-
son, í fimm mánaða gæsluvarðhald í
gær vegna rannsóknar lögregiunnar í
Reykjavík á dauða Agnars W. Agn-
. >arssonar. sem ráðinn var bani á heim-
ili sínu við Leifsgötu í síðustu viku.
Þórhaliur kærði úrskurðinn til
Hæstaréttar.
Niðurstaða rannsóknar á blóði úr
fötum Þórhalls er hann var handtek-
inn aðfaranótt miðvikudags í síðustu
viku vegna gruns um ölvunarakstur
hefur leitt í ljós að blóðið er úr hinum
látna.
íslenskir lögi'eglumenn komu í
fyrrinótt með Þórhall til landsins frá
Kaupmannahöfn og færðu hann á lög-
reglustöð grunaðan um manndrápið á
Leifsgötu. Hinn grunaði var yfir-
- Tjheyrður í á aðra klukkustund í gær
og í framhaldinu fór lögreglan fram á
gæsluvarðhald yfir honum til 21. des-
ember, sem dómari við Héraðsdóm
samþykkti síðdegis í gær.
Að sögn lögreglunnar var fyrst og
fremst farið fram á fimm mánaða
gæsluvarðhald yfir hinum grunaða I
því skyni að mynda samfellu í
-^rannsókn málsins, ákæru og
dómsmeðferð.
Morgunblaðið/Jónas
EINN sigkatlanna sem dýpkað hafa á suðaustanverðum Mýrdalsjökli. Eystri Kötluhnjúkur er í bakgrunni.
Deiliskipulag fyrir
Hveravelli fellt úr gildi
ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og byggingar-
mála hefur fellt úr gildi deiliskipulag fyrir Hvera-
velli sem samþykkt var af sveitarstjóm Svína-
vatnshrepps 13. maí 1998 og auglýst í B-deild
Stjórnartíðinda 20. nóvember sama ár. Jafnframt
hefur nefndin lagt fyrir sveitarstjórn Svínavatns-
hrepps að birta auglýsingu í B-deild Stjórnartíð-
inda um að deiliskipulagið hafi verið fellt úr gildi.
Ferðafélag Islands kærði samþykkt deiliskipu-
lagsins til úrskurðarnefndarinnar. í úrskurðinum
kemur fram að í málatilbúnaði kærenda sé ítrekað
að því vikið að deiliskipulagið sé ekki í samræmi
við gildandi aðalskipulag Hveravallasvæðisins. í
greinargerð aðalskipulagsins komi fram ákvörðun
um að flytja nýrri skála Ferðafélagsins og salern-
ishús á þjónustusvæði í Hvin og hafi ekki verið
horfið frá þeirri ákvörðun með þeirri breytingu
sem gerð hafi verið á aðalskipulaginu á árinu 1998.
I greinargerð deiliskipulagsins felist hins vegar
ákvörðun um að rífa þessi mannvirki eða fjarlægja
þau af hinu skipulagða svæði.
Ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag
„Samkvæmt þessu er hið umdeilda deiliskipulag
ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag svæðis-
ins og fullnægir því hvorki skilyrði 1. mgr. 23.
greinar laga nr. 73/1997 um að deiliskipulag skuli
gert á grundvelli aðalskipulags né því skilyrði 7.
mgr. 9. greinar sömu laga að innbyrðis samræmi
skuli vera milli aðal- og deiliskipulags. Fullnægj-
andi lagaskilyrði skortir því fyrir hinu umdeilda
deiliskipulagi. Ber af þeim ástæðum að fella það
úr gildi,“ segir í úrskurðinum.
Þá vekur úrskurðarnefndin athygli á því að
sveitarstjórn Svínavatnshrepps samþykkti hið
umdeilda deiliskipulag áður en fyrir lá afgreiðsla
Skipulagsstofnunar og staðfesting umhverfisráð-
herra á þeirri breytingu á aðalskipulagi sem
deiliskipulagið var að hluta til grundvallað á. Segir
að slík málsmeðferð samrýmist ekki ákvæðum
skipulags- og byggingarlaga um samþykkt skipu-
lagsáætlana.