Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Trausti Traustason, framkvæmdastjóri Tindfjalla ehf. LAGT af stað í lygnunni. SVEINN Þórðarson, brtíarsmiður í Vík í Mýrdal og brúðgumi, veltir fyrir sér skelfingunni sem hann á að standast. Vitnin að karlmennskunni í baksýn. Fljótareiðar verði hlekkur í lengri keðju útivistar Breiðabólstað í Fljótshlíð - Fljót- areið er títivistargrein sem æ meir kveður að hér á landi. Lengst af hefur fólk ekki haft um margar ár að velja til sigl- inga, framan af aðeins á Hvítá, en ntí hefiir verið gerð bragar- bót þar á. Um miðjan maí var farin fyrsta fljótareiðin á vegum Tindfjalla ehf. niður Markar- fijót. Ntí sinnir fyrirtækið öllum þeim sem hug hafa á slíkum ferðum. Tindfjöll ehf. er fyrirtæki sem stofnað var á liðnum vetri og hefur að megintilgangi að ann- ast fljótareið eða „river rafting" eins og það er nefnt á engilsax- nesku. Að sögn Trausta Traustasonar verkfræðings, sem er stofnandi og framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, hafa ferðir á Markarfljóti verið vel sóttar það sem af er sumri, en unnið er að því að fínna léttari og erfiðari ár og auka þannig fjölbreytni. I þessum tilgangi hafa starfsmenn Tindfjalla farið vítt og breitt um vatnasvæði Suðurlands og fund- ið nokkur spennandi ársvæði. Emstruá, Hólmsá og Skaftá eru meðal þeirra sem reynd hafa verið en sú síðastnefnda er mjög erfið og ætti því að losna þónokkuð um adrenalínbtískap þeirra sem þar sigla í framtíð- inni ef af verður. Lengri og skemmri ferðir Sem áður segir heldur fyrir- tækið úti ferðum á Markarfljóti en auk þess er hægt að komast í lengri ferðir. Stí lengsta sem nú er í boði hefst í Innri-Emstruá þar sem siglt er niður að Emstrubrtí Markarfljóts. Þar eru bátar teknir upp vegna vatnsfalla þar fyrir neðan og ek- ið með fley og farþega að upp- tökum Fremri-Emstruár, siglt þaðan niður í Markarfljót og áfram sem Ieið liggur niður til móts við Húsa- dal í Þórsmörk. Einnig gefst fólki kostur á að sleppa Innri- Emstruá og hefst þá ferðin sem áður við upptök Fremri- Emstruár. Slík ferð tekur um tvær klst. í sigl- ingu en fullur dagur fer í alla ferðina. Sigling- in á Markarfljóti tekur skemmri tíma eða um eina klukku- stund; heildar- tími er um fjór- ar klukkustund- ir. Sú ferð kost- ar 4.000 kr. en hinar nokkru meira. Að sögn Trausta er framtíðar- sýn hans stí að fljótareiðar verði hlekkur í lengri keðju útivistar. „Vel mætti hugsa sér að hópar hæfu göngu í Landmannalaug- um sem lyki við Botnaskála í Botnum. Þar hæfist sigling á Emstruá, niður Markarfljót og endaði til móts við Htísadal í Þórsmörk, þar sem ferðalangar gætu áð og notið náttúrufegurð- ar. Einnig sé ég fyrir mér að hægt væri að tengja saman göngu, fljótareið og hestaferð þannig að fólk fái sem mest tít úr títvist og nátttíruupplif- un,“ sagði Trausti. Þrautreyndur siglingakappi Hér á landi er nú staddur þrautreyndur fljótasiglinga- maður á vegum Tindfjalla, Frakki að nafni Nicolas Nouhen. Hann hefur far- ið um með starfsmönnum fyrir- tækisins og reynt hin ýmsu vatnasvæði. Að sögn Trausta er hæfni þessa manns fáu eða engu lík, þar sem hann getur leikið ótrúlegar listir á straumhörð- Morgunblaðið/Önundur S. Bjömsson TRAUSTI Traustason, verk- fræðingur og framkvæmda- stjóri Tindfjalla ehf., vill að ferðamenn fái upplifað sem mest af íslenskri náttúru. ustu jökulám og gildir þá einu hvort hann er á kajak eða gtímmíbát. Hann hefur m.a. ver- ið að þjálfa siglingamenn Tind- fjalla, kennt þeim að stöðva bát- ana á ólíklegustu stöðum og leita vars, t.d. í gljtífurhellum, nota hringiður til lystisemda og beita bátunum líkt og brimbrett- um. Nicolas segir íslensku árnar sérstaklega spennandi og með þeim allra bestu sem hann hafi kynnst fram að þessu. Hann hef- ur víða farið og hefur því sam- anburð, hefur verið við siglingar í Kanada, Bandaríkjunum og víða í Asíu Steggjapartí á Markarfljóti Það eru ekki aðeins spennu- fíklar sem sækjast eftir átökum við römmustu jökulár, heldur einnig ofurvenjulegt fólk, en slíkur hópur var einmitt mættur til siglingar eða fljótareiðar á Markarfljóti á dögunum. Þar var á ferð fimmtán manna hópur sem hugðist gera títtekt á áræði og manndómi eins þeirra, nefni- lega væntanlegs brtíðguma í um- boði verðandi brtíðar. Heldur virtist blaðamanni hópurinn vera fölur ásýndum þar sem staðið var á þverhníptum gljúf- urbarminum og horft niður í beljandi Markarfljótið. Aðspurð- ur sagði brúðguminn, Sveinn Þórðarson brúarsmiður frá Vík í Mýrdal, að hann hefði fengið að vita hvað til stóð um hádegisbil þann sama dag og því ekki gef- ist ráðrúm til að magna upp spennu eða hræðslu. En allur fór hópurinn um borð í bátana og tókst ferðin, steggjapartíið, hið besta þótt af óvenjulegum toga væri. Tíðast fara víst slíkar manndómskannanir fram á öld- urhtísum, síður við aðstæður sem þessar. Morgunblaðið/Sigurðm- Aðalsteinsson Lætur vel að lambinu Vaðbrekku, Jökuldal. SIGURJÓN Andri Jónasson er í sveitinni að hjálpa afa sínum og ömmu á Eiríks- stöðum. Hann gaf sér tíma milli þess sem hann lék sér við lömbin í gjafarhólfinu að kjassa gæfa þrílembinginn sem hann gerði mannelskan á sauðburðinum. Réttu eru átakkarnir mbl.is Fylgstu með boltanum í sumar á íþróttavef mbl.is <§>mbl.is —ALLT/\f= eiTTH\SAÐ NýTT~
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.