Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 21
Málamiðlun hjá WTO
Supachai tekur
við af Moore
eftir þrjú ár
Genf. Reuters.
EFTIR margra mánaða deilur
komust aðildarríki Heimsviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) loks að sam-
komulagi um það í gær að Mike
Moore, fyrrverandi forsætisráð-
herra Nýja Sjálands, yrði næsti
framkvæmdastj óri
WTO. Hann mun
gegna stöðunni næstu
þrjú árin en þá tekur
Supachai Panitchpak-
di frá Taílandi við
stöðunni og gegnir
henni í þrjú ár, skv.
málamiðlun sem sæst
var á í gær. Verður
boðað til formlegs
fundar seinna í vik-
unni til áð staðfesta
þetta óvenjulega sam-
komulag.
Fyrir fundinn í gær
tryggði Krirk-Krai
Jarapaet, sendiherra
Taílands, að enginn
vafi léki á um niður-
stöðu hans. Sagði hann þá við
fréttamenn að Supachai, sem um
þessar mundir er aðstoðarforsætis-
ráðherra Taílands, hefði ekkert á
móti því að koma á eftir Moore.
„Samkomulag er í höfn,“ sagði
ónefndur fulltrúi hjá WTO. „Engin
mun mótmæla þessari málamiðlun,
þótt reyndar enginn hafi heldur lýst
sérstakri ánægju með hana,“ sagði
talsmaður WTO.
Venjulega er framkvæmdastjóri
WTO útnefndur til fjögurra ára og
getur síðan sóst eftir því að sitja
lengur. I ár deildu menn hins vegar
hart um hvort Moore eða Supachai
skyldi verða arftaki Renatos Ruggi-
eros frá Italíu, og kom til harka-
legra orðaskipta milli stuðnings-
manna Moores og Supachais á fund-
um WTO í apríl og maí. Vestræn
ríki studdu flest framboð Moores en
Supachai naut víðtæks stuðnings
meðal fulltrúa þróunarlanda.
I júní stakk fulltrúi Bangladesh
loks upp á þeirri málamiðlun, sem
nú hefur verið samþykkt, og óx
fljótt mjög stuðningur við hana
enda töldu aðildarríki WTO bráð-
nauðsynlegt að leysa deiluna.
Mike Supachai
Moore Panitchpakdi
Margot Wall-
ström vill EMU-
aðild Svíþjóðar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SVIAR eiga að gerast aðilar að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU, álítur Margot Wall-
ström, nýútnefndur fulltrúi Svía í
framkvæmda-
stjóm ESB. Wall-
ström var áður fé-
lagsmálaráðherra
en lét þá ekki
skoðun sína í Ijós
þar sem sam-
komulag er um
það innan sænsku
stjórnarinnar, að
ráðherrar segi
hvorki af né á um
EMU-aðild. A fyrsta blaðamanna-
fundi sínum í Brussel notaði Wall-
ström hins vegar tækifærið til að
segja álit sitt á aðildinni.
Það hefur löngum verið vitað að
jafnaðarmaðurinn Wallström væri
höll undir EMU-aðild. Rök sín nú
sagði hún vera stjómmálalegs og
efnahagslegs eðlis. Það gagnaðist
bæði myntbandalaginu að öll ESB-
löndin væm með og eins gagnaðist
það efnahag Svía að vera með.
Flokkurinn sundraður
í samtali við sænska útvarpið seg-
ist hún hafa virt samkomulag
stjómarinnar um að tala ekki út um
EMU-aðild en sem fulltrúi í frarm
kvæmdastjórninni gilti öðm máli. I
máli hennar fólst gagnrýni á
sænsku stjómina fyrir að ræða ekki
aðildarmálin. Þögn hennar væri
dragbítur á alla umræðu í Svíþjóð.
Þegar leitað var álits Margarethu
Winberg félagsmálaráðherra sagði
hún að það væri einmitt drepandi
Margot
Wallström
EVRÓPA^
fyrir umræðuna, að ráðherrar
kæmu fram og segðu fólki hvað það
ætti að álíta. Betra væri að fólk
myndaði sér sjálfstæðar skoðanir
og ráðherrarnir kæmu síðan fram
með sínar skoðanir þegar Jafnaðar-
mannaflokkurinn hefði tekið af-
stöðu. Flokkurinn er mjög sundrað-
ur í afstöðu sinni þótt búast megi
við að stuðningur við EMU nái í
gegn á endanum.
W £; :.iij
W 9 9 ^
7 W f &&
hornum á
frábæru verði
,6^
Gagnvarvn
15 ára g
Hja okkur eru Visa- og
Euroraösamningar
ávísun á staðgreiðslu
Sími 581-2275 H 568-5375* Fax568-5275
Dagskráin í hálfan mánuð
Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Halldóru Björnsdóttur á rás 1 þar
sem rætt er við hana um gildi hreyfingar, umijöllun um leikkonuna
Kirstie Alley, sem meðal annars lék í Staupasteini f mörg ár, fjallað er
um Hálandaleikana í sumar, yfirlit yfir beinar útsendingar frá íþrótta-
viðburðum, kvikmyndadómar, fræga fólkið og stjörnurnar, krossgáta
og fjölmargt annað skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblað Morgunblaðsins alltaf til taks
nálægt sjónvarpinu!
Þú sérð dagskrá sjónvarps- og útvarpsstöðva næsta hálfa mánuðinn í
Dagskrárblaði Morgunblaðsins sem kemur út með Morgunblaðinu
í dag.