Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.07.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 41 i A Ytra-Skörðugili, eigandi auk Jó- hanns er Magnús B. Magnússon. Þá eru eftir þeir þrír heimsmeist- arar íslendinga sem nýta sér þann rétt að mæta tO að verja titilinn og ekki tókst að tryggja sér sæti í lið- inu með öðrum hætti. Skal þar fyrstan frægan telja Sigurbjöm Bárðarson en það þykja ávallt mikil tíðindi þegar þessi keppnisjöfur kemst ekki í landsliðið. Sigurbjörn, sem er 47 ára, er sá liðsmanna sem flesta sigra hefur unnið á BM/HM. Hann keppti fyrst ‘77 í Danmörku en vann sinn fyrsta titil í Noregi ‘81 á Adam frá Hólum er hann varð Evrópumeistari í samanlögðu og gæðingaskeiði, 250 metra skeiði. I Austurríki ‘87 varð hann heims- meistari í tölti á Brjáni frá Hólum og var sá sigur mjög sætur. í Hollandi ‘93 sigraði hann í fimm- gangi, samanlögðu og gæðingaskeiði á Höfða frá Húsavík og aftur í gæð- ingaskeiði ‘95 í Sviss. A síðasta móti bætti hann tveimur titlum við í safn- ið á Gordon frá Stóru-Asgeirsá, í samanlögðu og gæðingaskeiði. Á þessum síðasttalda árangri flýtur Sigurbjöm inn í liðið og hefur hann breytt upphaflegri áætlun og hyggst fara um næstu helgi utan og kanna stöðu hestsins. Ef til kemur munu Sigurbjöm og Gordon keppa í tölti, fimmgangi, gæðingaskeiði og 250 metra skeiði og verða með í keppn- inni um sainanlagðan sigurvegara. Styrmir Árnason, sem er 29 ára, mætir til leiks með Boða frá Gerð- um en þeir sigraðu sem kunnugt er í fjórgangi á síðasta móti. Styrmir hleypti heimdraganum ungur og óþekktur og fór hann til starfa í Þýskalandi. Hefur hann skapað sér gott nafn í Þýskalandi og náð þar góðum árangri á stærri sem minni mótum. Hann og Boði keppa aðeins í fjórgangi en verjendur heims- meistaratitla fá aðeins að keppa í þeim greinum sem þeir hafa orðið heimsmeistarar í. Boði er 10 vetra undan Ófeigi frá Flugumýri og Bylgju frá Vatnsleysu. Eigandi er Nina Engel í Köln í Þýskalandi. Vignir Siggeirsson, sem er ?? ára, hefur á undanförnum áram skipað sér á bekk með bestu reiðmönnum landsins. Hæst ber árangur hans með gæðinginn Þyril frá Vatns- leysu, sem Vignir tamdi og reið síð- ar á toppinn, fyrst í B-flokki á fjórð- ungsmóti á Vindheimamelum 1993 og síðar á fjórðungsmóti á Gadd- staðaflötum. Fyrir tveimur áram unnu þeir svo Tölthornið til varð- veislu til tveggja ára er þeir urðu heimsmeistarar í tölti. Varð Vignir þar með þriðji íslendingurinn til að vinna þennan eftirsótta titil og koma Tölthominu fræga heim. Þyrill er 12 vetra undan Þyt frá Enni og Dáð frá Kolkuósi. Landsliðseinvaldurinn er sem oft fyrr Sigurður Sæmundsson en hann hefur manna oftast verið tengdur landsliði íslands í hestaíþróttum, ýmist sem keppandi eða liðsstjóri eða landsliðeinvaldur eins og staðan heitir í dag. Hann keppti á mótun- um í Sviss ‘72, Austurríki ‘75, Dan- mörku ‘77, Hollandi ‘79 og Austur- ríki ‘87. Þá hefur hann verið lið- stjóri/landsliðseinvaldur í Noregi ‘81, Þýskalandi ‘83, Danmörku ‘89, Svíþjóð ‘91, Sviss ‘95 og Noregi ‘97. Sigurður varð Evrópumeistari í Danmörku ‘77 í fimmgangi og sam- anlögðu og hefur átt góðu gengi að fagna yfirleitt þegar hann hefur tekið þátt í keppni. Þá er hann að kveða sér hljóðs sem góður hrossa- ræktandi á landsvísu. Sigurður býr orðið yfir mikilli reynslu eftir öll þessi mót sem hann hefur tekið þátt í og sérstaklega þótti frammistaða hans í stöðu landsliðseinvalds góð þegar þeir tveir keppendur sem hann valdi í liðið ‘97 urðu heims- meistarar í tölti og fjórgangi. Valið var mjög umdeilt en gagnrýnis- raddir þögnuðu fljótt þegar eftii- verðlaunaafhendinguna. Atli Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Sæ- mundssonar en hann hefur fjórum sinnum skipað sæti í landsliði Is- lands á heimsmeistaramótum. Alltaf verið í úrslitum fimmgangs þegar hann hefur keppt en í eitt skiptið forfallaðist hestur hans og hann gat ekki tekið þátt í keppninni HRAFN Hjartarson og Helga Bjömsdóttir vom kraftmikil og áberandi á gólfinu. Góður árangur í danskeppni á Italíu GRÉTAR AIi Khan og Jóhanna Berta Bernburg voru glæsileg á gólfinu. IIAJVS Alþjóðleg danskeppni f Alassi», Ítalíu Islenskir dansarar stóðu sig vel í stórri alþjóðlegri danskeppni sem haldin var um síðustu mánaðamót í Alassaio, litlum strandbæ á Ítalíu, stutt frá landamærum Frakklands. KEPPNI þessi var nú haldin í 11. skipti en það eru þau Anna og Guido Maero sem standa að skipu- lagningu og framkvæmd hennar. Guido kvaðst mjög ánægður með að íslensk danspör væra nú á með- al þátttakenda og mundi ekki eftir að svo hefði verið áður. Hann var mjög leiður yfir því að ekki hefði tekist að útvega íslenska fánann til að hafa með hinum fánunum í íþróttahöllinni, þar sem danskeppnin fór fram, og bað okk- ur að taka með fána næsta ár. íslenskt par í úrslitum í rúmbu Keppnin hófst laugardaginn 26. júní sl. á keppni í rúmbu í flokki Unglinga II. Tuttugu og tvö pör frá ýmsum löndum voru skráð til keppni og var mikil stemmning í íslenska hópnum þegar Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta Bem- burg, Kvistum, gerðu sér lítið fyr- ir og dönsuðu sig inn í úrslit og höfnuðu þar í 6. sæti, en par frá Slóveníu sigraði. Að sögn Grétars AIi og Jóhönnu Bertu kom þessi góði árangur þeim nokkuð á óvart þar sem hitinn var mikill í íþrótta- höllinni og þau ekki vön að dansa við slíkar aðstæður. En þau vora glæsileg á gólfmu og báru sig vel ogjiað hefur án efa hjálpað þeim. I flokki Unglinga I var á þess- um fyrsta degi keppninnar keppt í standard-dönsum. Þrjátíu og fjög- ur pör voru skráð í keppnina og náðu Hrafn Hjartarson og Helga Björnsdóttir, Kvistum, þeim góða árangri að komast í 14 para und- anúrslit, en ítalskt par sigraði. Hrafn og Helga dönsuðu vel í und- anúrslitunum og höfðu mikla út- geislun á gólfinu. ftalarnir signrsælir Keppt var í latín-dönsum í flokki Unglinga II mánudaginn 28. júní og tóku 49 pör þátt í henni. Hilmir Jensson og Ragnheiður Ei- ríksdóttii-, Gulltoppi, komust þar í aðra umferð, þ.e. 26 para úrslit, en þess má geta að í 13 para undan- úrslitum dansaði íslensk stúlka, Ásta Sigvaldadóttir ásamt dans- herra sínum, Micky Chow. Ásta flutti til Danmerkur fyrir ári og dansar fyrir Danmörku. Þeim Ástu og Micki hefur gengið vel að undanfömu og era nú tvöfaldir Danmerkurmeistarar. Þar var par ÍSLENSKIR áhorfendur í Alassio hvöttu sitt fólk. frá Ítalíu sem sigraði í þessari keppni. Þriðjudaginn 29. júní var keppt í latín-dönsum í flokki Unglinga I og komust Hrafn og Helga, Kvist- um, þar í 24 para úrslit, en par frá Italíu vann. Keppt var í standard-dönsum í flokki Unglinga II miðvikudaginn 30. júní og vora 49 pör þátttakend- ur. Hilmir og Ragnheiður, Gull- toppi, og Grétar Ali og Jóhanna Berta, Kvistum, komust þar bæði áfram í 25 para úrslit en þar við sat. Sigurvegarnir vora frá Rúss- landi. Tíudansaþolraunin Keppni í 10 dönsum, þ.e. 5 standard-dönsum og 5 latin-döns- um var án efa erfiðasta þrautin í ferðinni og ekki bætti úr skák að hitinn var mikill og reyndi því mikið á þol og úthald keppenda. Fimmtudaginn 1. júlí kepptu Hrafn og Helga, Kvistum, í 10 dönsum í flokki Unglinga I og komust strax áfi-am í aðra umferð og náðu síðan að dansa sig í 12 para undanúrslit. Hrafn og Helga dönsuðu mjög vel þennan dag, voru kraftmikil og áberandi á gólf- inu. í úrslitunum var hart barist, en sigurvegararnir vora ítalskir. Tíudansaþolraunin beið para í flokki Unglinga II föstudaginn 2. júlí. Þrjátíu pör hófu keppnina og komust Hilmir og Ragnheiður, Gulltoppi, og Grétar Ali og Jó- hanna Berta, Kvistum, áfram í 25 para úrslit. Grétar Ali og Jóhanna Berta náðu 14. sæti en Hilmir og Ragnheiður náðu þeim glæsilega ái-angri að dansa sig inn 6 para úr- slit og höfnuðu í 6. sæti. Hilmir og Ragnheiður voru stór og áberandi á gólfinu og dönsuðu vel. Þau komu greinilega vel undirbúin til þessarar keppni og árangurinn lét því ekki á sér standa. Sigurvegar- arnir vora frá Úkraínu. Góður lokasprettur Lokadagur keppninnar var laugardagurinn 3. júlí og kepptu þá pörin í flokki Unglinga II í enskum valsi. Það er skemmst frá því að segja að á verðlaunapallin- um var töluð íslenska, því á eftir pari frá Moldavíu, sem var í fyrsta sæti, komu Hilmir og Ragnheiður í öðra sæti og Grétar Ali og Jó- hanna Berta í því þriðja. Ásta og Micki frá Danmörku voru í fjórða sæti. Sannarlega góður loka- sprettur fyrir íslenska dansara í annars langri og strangri keppni. Keppnin í Alassio var undan- tekningarlítið vel skipulögð og dómaraniðurstöður bárast hratt og vel og virtist tölvukerfíð, sem sá um útreikning stiga, mjög hrað- virkt og fullkomið, nokkuð sem oft hefur verið ábótavant í keppni bæði hérlendis og erlendis. Islenskh' dansarar hafa greini- lega tekið miklum framföram und- anfarin misseri og hafa staðið sig vel í keppni. Danspörin leggja hart að sér bæði við æfingar og fjáröflun og það verður spennandi að fylgjast með árangri þeirra á næstu mánuðum. Aðalheiður Karlsdóttir HILMIR og Ragnheiður, Gulltoppi, og Grétar Ali og Jóhanna Berta, Kvistum. Glæsilegir fulltrúar íslands í heimsmeistarakeppninni í Standard-dönsum. Tvö íslensk pör í Heimsmeist- arakeppninni HEIMSMEISTARAKEPPNIN í standard-döns- um í flokki Unglinga II var haldin sunnudaginn 27. júní sl. í tengslum við alþjóðlegu danskeppn- ina í Alassio á Italíu. Þetta er lokuð keppni og þykir mjög sterk þar sem sérstaklega er boðið tveimur bestu standard-danspöranum frá hverju Iandi og vora 56 pör mætt til keppni. Fyrir Islands hönd höfðu tvö íslensk pör áunnið sér rétt til þátttöku, þau Hilmar Jensson og Ragnheiður Eríksdóttir, GuIItoppi, og Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta Bernburg, Kvistum, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem Island send- ir fulltrúa í keppni. Strax í upphafi keppninnar var Ijóst að baráttan um heimsmeistaratitilinn yrði hörð og sjaldan hafa jafnmörg pör dansað jafnvel. Islensku pörin stóðu sig vel og náðu Hilmir og Ragnheiður og Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta 27.-28. sæti. Það var par frá Slóveníu sem hlaut heimsmeistaratitilinn og voru þau vel að honum komin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.