Morgunblaðið - 24.07.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdastióri Reykjagarðs hf. vfsar fullyrðingum um óþrifnað á bug
Aðfor á hendur
kjúklinga-
framleiðslu
BJARNI Ásgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs hf., sem
framleiðir Holtakjúklinga, vísar því
á bug að nokkuð athugavert sé við
hreinlætismál á_ kjúklingabúi fyrir-
tækisins að Asmundarstöðum í
Rangárvallasýslu. Hann telji at-
hugasemdir Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands við hreinlætismál á bú-
inu og fjölmiðlaumfjöllun í kjölfarið
hluta af aðför á hendur sér og
kjúklingaframleiðslu hérlendis í
heild.
Bjarni Asgeir segir jafnframt að
gámur með dauðum hænum sem
Heilbrigðiseftirlitið gerði sérstakar
athugasemdir við á Asmundarstöð-
um, hafi verið á ábyrgð gámafyrir-
tækisins sem dregið hafi að fjar-
lægja hann.
Gámafyrirtæki ábyrgt
„Við skrifuðum Gámastöðinni 2.
júlí og óskuðum eftir því að fjar-
lægður yrði gámur með úrgangi, en
þá höfðum við margsinnis þurft að
bíða eftir því að fyrirtækið stæði
við skuldbindingar sínai’. Tíu dög-
um síðar komu fulltrúar Heilbrigð-
iseftirlits Suðurlands á vettvang og
ráku augun eðlilega í þennan gám.
Við höfum sömuleiðis margsinnis
óskað eftir því að gámafyrirtækið
hreinsaði gáma áður en þeir skiluðu
þeim, en seinast í dag [gær] skiluðu
þeir okkur gámi sem hafði verið
fullur af úrgangi og hann kom til
baka með dýraleifum, flugum og
óhreinindum.
Bjarni Asgeir segir að aðbúnað-
ur fugla á Asmundarstöðum, um-
gengni við þá og hreinlæti sé sam-
kvæmt reglugerðum um þau mál
og verði að teljast fyrsta flokks.
Bæði búið og sláturhús fyrirtækis-
ins á Hellu séu undir eftirliti hér-
aðsdýralæknis og einnig banda-
rískra dýralæknayfirvalda, þar
sem búið selur kjúklinga inn á
svæði varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. „Við höfum fengið allt
upp í 100% gæðavottun frá Banda-
ríkjamönnum og þar fyrir utan
93%, 94% og 96% gæðavottun eftir
skoðun þeii’ra aðila. Þeir skoða
staðinn einu sinni til tvisvar á ári
án þess að gera boð á undan sér.
Við fengjum ekki að selja Banda-
ríkjamönnum kjúkling ef þetta
væri ekki í lagi. Við gætum fyllsta
hreinlætis," segir hann.
Bjami Asgeir segir að markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins í kjúklinga-
sölu hérlendis hafi verið á milli 48
og 50%, en sláturhús fyrirtækisins á
Hellu slátrar rétt um 80% af alifugl-
um í landinu, þar á meðal hænum
og öndum fyrir bændur og einnig
fyrir aðra kjúklingabændur. Kjúk-
lingabúið var byggt um 1980. Alls
eru um 130 þúsund kjúklingar þar
og um 10 þúsund stofnhænur.
Bjami Asgeir kveðst nú þegar
hafa orðið var við neikvæðar afleið-
ingar umfjöllunar um skýrslu Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands, við-
skiptavinir hans hafi sumir hverjir
dregið í land með pantanir og
einnig gæti ótta í þeirra hópi vegna
málsins. Hann kveðst telja að um-
fjöllunin sé aðför á hendur fyrir-
tækinu og kjúklingaframleiðslu í
heild sinni.
„Einhver sá sér hag í að dreifa
þessari skýrslu Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, til að koma höggi á
okkur sem vinnum með kjúklinga.
Hverjir hafa mestra hagsmuna að
gæta, spyr maður, og þá beinast
böndin að samkeppnisaðilum í
annarri kjötframleiðslu," segir
hann. „Við skulum ekki gleyma því
að markaðshlutdeild kjúklinga hef-
ur á fimm ámm farið úr 9% í 17%
og neysla ýmissa annarra kjötvara
hefur minnkað að sama skapi, t.d.
hefur hlutdeild lambsins farið úr
46% í 37% á sama tíjna.“
Olafur Rúnar Arnason, fram-
kvæmdastjóri Gámastöðvarinnar
ehf., kveðst ekki vilja tjá sig um
ásakanir framkvæmdastjóra
Reykjagarðs hf. „Við viljum ekkert
um þetta mál segja. Við erum þjón-
ustuaðilar sem reynum okkar besta
en erum ekki sáttir við málið og eig-
um eftir að ræða það innan fyrir-
tækisins,“ segir Olafur Rúnar.
Óskar athugunar á búrekstri
Sigurður Örn Hansson, stað-
gengill yfirdýralæknis, kveðst ekki
hafa skoðað aðstæður hjá Reykja-
garði hf. um nokkurra ára skeið, en
fulltrúi embættisins, Grétar Hrafn
Harðarson, hafi haft eftirlit með
ræktun kjúklinga þar og slátrun.
„Grétar Hrafn er nú í leyfi en ég
talaði við hann í morgun [gærmorg-
un] og hef óskað eftir að hann fari
ásamt settum héraðsdýralækni að
Asmundarstöðum, vegna skýrslu
Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Eg
bað hann um að skoða aðstæður
þar, skrifa skýrslu um það og gera
kröfur um þær úrbætur sem hann
telur nauðsynlegar," segir Sigurður
Öm. „An þess að ég felli einhverja
dóma um ástandið á Asmundar-
stöðum, tel ég að vekja þurfi at-
hygli á því sem ekki er í lagi, en það
þarf að gera án stóryrða. Dýra-
læknir alifuglasjúkdóma er vænt-
anlegur úr leyfi eftir helgi og ég hef
þegar lagt þetta mál fyrir hann og
vænti þess að hann muni skoða það
betur þegar hann kemur aftur til
starfa."
UNNIÐ að slátrun kjúklinga.
Héraðsdýralæknir á Hellu segir greiðslur frá Reykjagarði hf. ekki tengjast mati á Ásmundarstöðum
Vísar ábyrgð á
gámafyrirtæki
HÉRADSDÝRALÆKNIRINN á
Hellu, Grétar Hrafn Harðarson,
heimsótti í gær kjúklingabú
Reykjagarðs hf. að Ásmundarstöð-
um og skoðaði það að beiðni stað-
gengils yfirdýralæknis. „Það er
ýmislegt sem fara má betur í
svona stórum búrekstri. Þetta er
aldrei fullbúið eða fullkomið og
auðvitað á það líka við í þessu til-
vik, en þessi skýrsla Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands er víðsfjarri
sannleikanum," segir Grétar
Hrafn. Framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands segir
héraðsdýralækni ekki hlutlausan
vegna greiðslna sem hann þiggi
frá Reykjagarði hf.
Grétar Hrafn segir að heilbrigð-
iseftirlitið hafi fyrst og fremst sett
út á gáma á búinu og hann telji að
þjónustufyrirtækið, Gámastöðin
ehf., sem starfar sem undirverk-
taki Sorpstöðvar Rangárvalla-
sýslu, hafi ekki staðið sig að þessu
leyti. Hann bendir jafnframt á að
starfsmenn Reykjagarðs hf. hafi
ítrekað gert athugasemdir við
starfsemi Gámastöðvarinnar ehf.
og óskað eftir bragarbót á sorp-
hirðu.
Geta ekki þrifíð gáma
„Mergur málsins er sá að gám-
arnir hafa ekki verið í lagi og
Reykjagarður hf. hefur óskað eftir
bættri þjónustu á því sviði. Það er
engin aðstaða við sorpstöðina á
Strönd í Rangárvallasýslu til að
þrífa gámana og við teljum þetta
ekki viðunandi," segir Grétar
Hrafn.
Hann bendir á að 2. júlí sl. hafi
verið farið fram á í bréfi til stjórn-
ar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
að ekki yrði dráttur á losun gáma
og að þeir yrðu þrifnir. „Ég veit
ekki af hverju Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands ákvað að koma á stað-
inn, nema kannski vegna þessara
óska Reykjagarðs hf. um bætta
þjónustu gámafyrirtækisins. Eftir
því sem ég veit best er þetta í
fyrsta skipti í þau tuttugu ár sem
Ásmundarstaðir hafa verið starf-
andi, sem Heilbrigðiseftirlit Suð-
urlands kemur þangað. í svari
stjórnarformanns Sorpstöðvarinn-
ar við erindi Reykjagarðs hf.
stendur að Heilbrigðiseftirlit Suð-
urlands sé reiðubúið að aðstoða við
upplýsingagjöf varðandi reglur um
meðferð úrgangs af því tagi sem
þarna um ræðir. Ég geri því ráð
fyrir að Heilbrigðiseftirlit Suður-
lands hafi fengið upplýsingar um
þessar óskir Reykjagarðs um
bætta þjónustu. Ég tel líklegt að
þeir hafi farið af stað í kjölfarið,"
segir hann.
Slæm staða opinberra
eftirlitsmanna
Matthías Garðarsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands kvaðst í samtali við
Morgunblaðið ekki vilja standa í
orðaskaki við héraðsdýralækni á
Hellu varðandi þessi mál. Hann
bendi hins vegar á að Reykjagarð-
ur hf. sé einn stærsti launagreið-
andi héraðsdýralæknis. „Grétar
Hrafn sinnir Reykjagarði hf. sem
dýralæknir fyrir allt þeirra
skepnuhald og fær greiðslur íyrir
vikið, en jafnframt er hann opinber
eftirlitsmaður með rekstri þeirra.
Það er slæmt að setja menn í þessa
stöðu, þ.e. að vera bæði opinberir
eftirlitsmenn og eiga fjárhagslegan
hag undir þessum fyrirtækjum. Ef
þeim verður illa við hann leita þeir
til annars dýralæknis og þá missir
hann tekjur. Svona er þetta hins
vegar í landinu og ég vona að menn
beri gæfu til að breyta þessum lög-
um og skilst raunar að það sé í
deiglunni. Við munum hins vegar
ekki bregðast við yfirlýsingum hér-
aðsdýralæknis með formlegum
hætti. Mér þykir þær miður og vil
að allir sem einn einblíni á vanda-
málið og fari að ráða bót á því,“
segir Matthías.
Grétar Hrafn bendir á að hlut-
verk héraðsdýralæknis sé marg-
þætt lögum samkvæmt og beri
honum bæði að sinna opinberu eft-
irliti og þjónustu við dýraeigendur.
„Ég veiti Reykjagarði hf. vissulega
þjónustu sem ég þigg greiðslur
fyrir, en ég er ekki launþegi hjá
þessu fyrirtæki. En svona er hér-
aðsdýralæknisþjónustunni háttað
og ég tel að ég starfi ekki þannig
að greiðslur hafi áhrif á mín opin-
beru störf. Það er mín sannfæring
að ég hafi unnið af heilindum í
þessu máli,“ segir Grétar Hrafn.
Bundinn trúnaði
í svari heilbrigðisfulltrúa Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands við yfir-
lýsingu héraðsdýralæknis á Hellu,
er fullyrt að starfsmenn Reykja-
garðs hf. á Ásmundarstöðum og í
sláturhúsinu á Hellu hafi veikst al-
varlega og sé héraðsdýralækni
kunnugt um þau veikindi. Grétar
Hrafn kveðst ekki vilja tjá sig um
þessi efni. „Ég er bundinn ákveðn-
um trúnaði gagnvart bæði við-
skiptavinum mínum og gagnvart
starfi mínu, yfirmönnum og öðru,
og finnst ekki rétt að tjá mig um
þessi mál. Ég hef ekki upplýsingar
um þetta mál og það er heilsugæsl-
an sem sér um og annast heilsu-
gæslu og reglubundnar læknis-
skoðanir starfsfólks, eins og gert
er ráð fyrir í matvælaiðnaði. Ég
vísa því á heilsugæslulækninn eða
heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi,“
segir hann.