Morgunblaðið - 24.07.1999, Síða 38
'Í58 LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Út í veður
og vind
Nú veltur allt á því hvort Schmeiser getur
sannað að vindurinn sé sekur en ekki
hann sjálfur og niðurstaðan getur orðið
mikilvægt fordæmi. “
MYNDIR af jarð-
ýtum sem ekið er
yfir geislaplötur í
Kína, plötur með
vestrænni
popptónlist sem hefur verið fjöl-
földuð án þess að spyrja kóng
eða prest, sýna að réttlætið og
lögin sigra en ekki er þetta fög-
ur sjón. Þetta er nú einu sinni
tónlist.
I nútímasamfélagi eru verð-
mæti í vaxandi mæli að verða
eitthvað sem enginn getur snert,
eins og menntun eða sköpunar-
gáfa. Hugverkaþjófnaður hefur
alltaf hefur verið til en er fyrst
orðinn stórmál á þessari öld. Og
eitthvað verður
VIÐHORF sera’annars
______ riðar sjálfur
Eftir Kristján eignarréttur-
Jónsson inn til falls ef
hugverk eru
meðhöndluð eins og þau kosti
ekki neitt. Við nánari athugun er
það samt ekki neitt einfalt mál
hvernig lagaverndar hugverk á
að njóta. Og að manni læðist
grunur um að í versta falli geti
niðurstaðan orðið sú að í miðri
sókninni til markaðskerfis og
frjálsrar samkeppni reyrum við
okkur í viðjar sem flæki lífið
óendanlega mikið íyrir okkur.
Dæmið um hugverkaþjófnað
sem allir þekkja er í hugbúnað-
inum. Hér hefur um langt skeið
tíðkast að menn taki það sem þá
langar í en vegna þess að við er-
um svo fámenn þjóð komumst
við enn og aftur upp með meira
en aðrir. Tölvurisarnir hafa fram
á síðustu ár ekki munað eftir að
kanna hvemig við högum okkur
en nú er orðin þar breyting á.
Microsoft er farið að kvarta.
Tímaritið Economist fjallaði
nýlega um höfundarréttinn og
komst að þeirri niðurstöðu að nú
væri lögð svo mikil áhersla á að
finna tæknilegar leiðir tO að
hindra hugbúnaðarþjófnað að
höfundarréttur yrði líklega
sterkari á heimsvísu vegna
tölvubyltingarinnar en ella.
Hannaður er búnaður sem sett-
ur er inn í forritin þannig að
annaðhvort er ekki hægt að fjöl-
falda þau eða fjölföldunin tak-
mörkuð við fáein eintök. Einnig
er í smíðum búnaður sem sendir
rétthafanum merki um leið og
reynt er að fjölfalda og þá er
hægt að krefja sökudólginn (við-
skiptavininn) um greiðslu.
En eigi dæmið að ganga upp
þarf sá sem leitar að afbrota-
mönnunum og vill fá þá til að
greiða að hafa um þá meiri upp-
lýsingar en mörgum þykir við
hæfi, nú á tímum baráttunnar
milli persónuvemdar og
„gluggatjaldalausa samfélags-
ins“ eins og það er stundum
nefnt. Þá mun vera átt við að all-
ir eigi að geta vitað allt um allt
og alla ef þeir bara kunni að
nálgast upplýsingamar.
En vilja þessir sömu áköfu
áhugamenn um upplýsingafrelsi
að fyrirtækin sem eiga höfund-
arrétt geti aflað sér hvers kyns
upplýsinga um hegðun þeirra
sem nota forritin? Vilja þeir
fóma öllum eignarrétti? Ef ekki
verður að leyfa rétthöfum að
fylgjast með öllum sem eru að
reyna að fara í kringum lög um
höfundarréttinn, sækja hugbún-
að sem þeir ætla að gefa vinum
og ættingjum, jafnvel viðskipta-
vinum sínum, án þess að greiða
sérstaklega fyrir það.
Upplýsingasamfélagið getur
orðið rangnefni. Sífellt mikil-
vægara verður að vernda þekk-
inguna sem búið er að hafa svo
mikið fyrir að afla. Nemendur í
rafeindatæknifræði sem fengu
að heimsækja stöðvar fjarskipt-
arisa í höfuðborg einnar grann-
þjóðarinnar fengu fjögurra tíma
fyrirlestur um marga forvitni-
lega hluti á sínu sviði en ekki
leyfi til að skoða neinn búnað
eða rannsóknarstofur: Þeir gætu
verið varasamir gestir, gætu
tekið eftir einhverju sem keppi-
nautamir myndu greiða vel fyrir
að fá vitneskju um. Og víða
reyna fyrirtæki að takmarka að-
gang að innanbúðampplýsingum
við þá sem þurfa nauðsynlega á
þeim að halda.
Höfundarrétturinn er ná-
skyldur sérleyfi og einkaleyfi.
Nýtt dæmi er í skilyrðum Is-
lenskrar erfðagreiningar fyrir
því að vilja búa til gagnagmnn-
inn um heilsufar þjóðarinnar.
Reyndar heitir það sérleyfi til 12
ára en málið er að fyi-irtækið vill
ekki verja milljörðum króna í að
vinna verkefni sem aðrir geta
síðan notað endurgjaldslaust
sem grunn að rannsóknum -
sem gætu síðan orðið gullnáma
fyrir aðra en IE. Án tillits til
þess hvaða aðferðum fyrirtækið
beitti í gagnagrunnsmálinu er
sanngimin í þessu skilyrði nokk-
uð ljós. Menn vilja eitthvað fyrir
sinn snúð.
Það finnst líka bandaríska líf-
tæknifyrirtækinu Monsanto
sanngjamt. Það framleiðir
erfðabreytt útsæði fyrir repjuol-
íunæpur og annan jarðargróður
sem gefur meiri uppskem en
náttúmlega varan. Fyrirtækið
selur bændunum útsæðið og þeir
borga síðan ákveðið gjald á ekm
fyi-ir að nota það og mega ekki
halda neinu eftir fyrir næsta ár,
verða að kaupa útsæði á hverju
ári. Annars fengi Monsanto ekk-
ert upp í hugvitið, rannsóknar-
kostnaðinn sem skiptir milljörð-
um dollara.
Roskinn bóndi í Kanada,
Percy Schmeiser, varð fyrir því
að útsæði fauk inn á jörðina
hans árið 1997, segir hann. Sch-
meiser hélt eftir hluta af upp-
skeranni til að sá næsta ár og án
þess að hann vissi var hann far-
inn að rækta erfðabreytta repju-
olíu. Monsanto hefur komið upp
kerfi uppljóstrara meðal bænda
sem láta fyrirtækið vita af
starfsbræðram sem svíkja lit,
einnig er það sakað um að senda
njósnara inn á akrana til að
safna sýnum. Helst minnir þetta
á „þefarana" á bannámnum fyrr
á öldinni.
Monsanto hefur höfðað mál
gegn bóndanum og heimtar að
hann borgi eða láti útsæðið af
hendi. Nú veltur allt á því hvort
Schmeiser getur sannað að vind-
urinn sé sekur en ekki hann
sjálfur og niðurstaðan getur orð-
ið mikilvægt fordæmi.
Við verðum að vita hver á
hvað en Skaparinn á þó enn
vindinn.
Forritið tók frá hálft annað gíga-
bæti á disknum eins og því var sagt
að gera til að geta sett upp
Windows og einhvern hugbúnað.
Eftir uppsetningu var ekki annað
en smella á hnapp sem „kveikti á
tölvunni", en viti menn, í gluggan-
um var sem ræst hefði verið tölva
með BlOS-lestri, minnisprófun og
þar fram eftir götunum. Eftir að
búið var að „forsníða" rýmið á
disknum var Windows 98 geisla-
disk smellt í drifið og tekið til við
að setja stýrikerfið upp.
Það tók drjúgan tíma, enda var
vélin í fullri vinnslu við ýmislegt
annað á meðan og keyrði nokkra
vafraglugga, nokkra WordPerfect
8 glugga, póstforrit og Gimp-
myndvinnsluforritið. Uppsetningin
var í engu frábmgðin því að setja
stýrikerfið upp á venjulegri tölvu,
utan að það sá ekki Zip-drif og uta-
náliggjandi brennara í uppsetning-
unni.
Inn með Offíce 2000
Eftir að hafa ræst Windows 98
upp í glugga á skjáborðinu var
komið að því að setja einhvem
hugbúnað inn, Office 2000 varð fyr-
ir valinu og gekk greiðlega að setja
inn Word, Excel og Outlook. Ekki
þótti ástæða til að þræla öllum
Office 2000-pakkanum inn að svo
stöddu, en reyna fleiri fonit við
betra tækifæri. Allt gekk eins og í
sögu og þegar tónlistardiski var
skellt í drifið kom í ljós að hljóð-
kortið var í fínu sambandi.
Eins og getið er má setja fleiri
stýrikerfí upp á þennan hátt, til að
mynda hefði maður betur sett bet-
una af Windows 2000 upp á þennan
hátt og skoðað hana þar en láta
hana eyðileggja uppsetningu á
Windows 98 á annarri vél. Einnig
er hægt að setja upp FreeBSD,
eins og getið er, sem er verulega
álitlegt stýrikerfi, og Solaris, svo
dæmi séu tekin. Hægt er að tengj-
ast út á netið í gegnum VMware
með svonefndri brúartengingu og
til að mynda er hægt að gefa hverri
vél sína IP-tölu. Sett er upp á vél-
inni sýndametkort sem síðan „tal-
ar“ við stýrikerfið sem glugginn er
keyrður undir. Það getur verið
snúið að setja það upp, en framúr-
skarandi leiðbeiningar er að finna
á vefsetri VMware.
Þess má svo geta að lokum að til
er NT-útgáfa af VMware, þó ekki
sé hún eins mikið prófuð og Linux-
útgáfan. Með hana uppsetta ættu
Windows NT-notendur því að geta
keyrt Linux á vélum sínum, eða til
að mynda Windows 95/98 í glugga,
svo dæmi séu tekin, gluggakerfi í
glugga í gluggakerfi.
Úr þriðja hluta
Crash Bandicoot
sem þótti einkar
vel heppnaður.
Crash-sagan öll?
CRASH Bandicoot er einn helsti leikur
sem fram hefur komið fyrir PlaySta-
tion og átti snaran þátt í vinsæld-
um tölvunnar. Þrír kaflar eru
komnir út í sögunni um
Crash, en ekki er ljóst hvort
þeir verði fleiri eftir að
slitnaði upp úr samstarfi
útgefanda og hönnuða.
Crash Bandicoot var úr
smiðju Naughty Dog, sem
gerðu sitt í að gera leikinn
jafn fjölskrúðugan og
geggjaðan og hann vissu-
lega var. Universal gaf
leikinn aftur á móti út og
átti höfundarréttinn. Nú er
slitnað upp úr samstarfi
Universal og Naughty Dog
og í fréttatilkynningu kemur fram
að það sé vegna ágreinings fyrirtækj-
anna um framtíð Crash. Ekki er þó
rakið hver sá ágreiningur er.
Naughty Dog-menn stefna ótrauðir
á þróun fleiri leikja, en Universal hef-
ur fengið annað fyrirtæki til að taka
við Crash Bandicoot, Eurocom. í yfír-
lýsingunni kemur fram að væntanlegur
sé nýr leikur sem fjalli um Crash en ekki
endilega fjórði kafli af framhaldssög-
unni.
Gluggakerfí
í glugga
Aldrei er maður með of mikið af
stýrikerfum uppsettum, að mati Árna
Matthíassonar, sem rakst á bráðsnjalla
leið til að fjölga þeim enn frekar.
ÞAÐ GETUR verið hægara sagt en
gert að setja upp nýtt stýrikerfi,
ekki síst ef um er að ræða vinnuvél-
ina sem aldrei má stoppa, hvað þá
að hægt sé að leggja hana í til-
raunamennsku. Við þessu er þó
bráðsnjallt svar sem gerir mönnum
kleift að prófa ólík stýrikerfi án
þess að þurfa að skipta hörðum
disk sínum í ótal hluta með tilheyr-
andi ógn við gögnin sem á disknum
em íyrir. Flestir þekkja hermihug-
búnað á við Windows-hermi Conn-
ectix, en enn magnaðra íyrirbæri
er til í Pésaheimum og kallast
VMware.
VMware er upp mnnið í Linux,
enda hafa Linuxvinir þar kannski
einna helst rekið sig á að þægilegt
væri að geta keyrt upp Windows til
að ná gögnum úr skjali frá
Windowsnotanda eða keyra eitt-
hvert forrit sem aðeins þarf að
keyra einu sinni á löngum tíma.
VMware er þeim kostum búið að
hægt er að setja
upp á tölvu
annað stýrikerfi og reyndar mörg
önnur stýrikerfi, til að mynda
FreeBSD, Windows og Solaris,
kjósi menn svo. Þá er sett upp á
viðkomandi tölvu sýndarvél, ef svo
má segja, því forritið býr til um-
hverfi sem stýrikerfið sem sett er
upp heldur að sé eins og hver önnur
tölva með sín jaðartæki og rekla.
Inn með Windows 98
Pmfuútgáfu af VMware má
sækja á heimasíðu framleiðandans,
www.vmware.com, en þegar búið
er að sækja hugbúnaðinn þarf að
skrá hann til að hægt sé að keyra
hann. VMware var reynt á 400
MHz Pentium II með 128 MB
minni, Riva 128 og Voodoo 2 skjá-
kortum, CS hljóðkorti og tveimur
hörðum diskum, öðrum 6,5 GB en
hinum um 600 MB. Á minni diskn-
um er Linux, en Windows 98 og
BeOS 4 á hinum stærri. Ætlunin
var að setja upp á vélinni annað
eintak af Windows 98 til reynslu og
í uppsetningu var VMware sagt að
nota stærri diskinn fyrir stýrikerf-
ið, enda lítið pláss á þeim minni.