Morgunblaðið - 24.07.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999
MINNINGAR
GUÐRÚN
GÍSLADÓTTIR
+ Guðrún Gísla-
dóttir fæddist á
Hóli á Bíldudal 29.
mars 1928. Hún
andaðist á Sjúkra-
húsi Suðurlands 18.
júlí síðastliðinn.
Guðrún var dóttir
hjónanna Gísla
Finnssonar, f. 17.6.
1882, d. 28.10. 1958
og Maríu Petrínu
Finnbogadóttur, f.
28.11. 1898, d. 6.8.
1974. Systkini: Guð-
finnur Kristberg, f.
2.10.1925, Ólafur, f.
8.3. 1931, Guðbjörg Júlíana
Esther, f. 6.7. 1936.
Guðrún giftist 12.10. 1956 eftir-
lifandi eiginmanni, Einari Kr.
Einarssyni, f. 30.11. 1918,
bónda á Laugum í Hruna-
mannahreppi. Foreldrar hans
voru Einar Jónsson, f. 12.3.
1878, d. 3.12. 1918 og Guðrún
Einarsdóttir, f. 30.1.
1886, d. 30.11. 1974.
Guðrún fluttist á
Foss í Arnarfirði
1929 og að Laugum
1956 og bjó þar til
dauðadags. Börn
Guðrúnar og Ein-
ars: 1) Gísli Þor-
geir, f. 30.11. 1962,
maki Björk Einars-
dóttir; börn þeirra
Einar Víðir, Daði
Leo og Guðrún
Margrét. 2) Ingi-
björg Guðrún, f.
11.1. 1965, maki
Sebastian Becker; börn þeirra
James Einar og Dana Heiða.
Uppeldissonur: Sólberg Viðars-
son, f. 11.10. 1957, maki Júlía
Valsdóttir; börn þeirra Júlía
Rós og Sara Dís.
Utför Guðrúnar fer fram frá
Hrunakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ég var sjö ára þegar ég kom
fyrst í sauðburðinn á Laugum vor-
ið 1961. Kaupstaðarstrákur að
sunnan, áhugasamur og sjálfsagt
dálítið frakkur, en samt bara sjö
ára. Og það var hún Gunna á Laug-
um sem tók mig inn á heimilið
þetta sumar og næstu sex. Laugar
urðu mitt annað heimili, sumar-
heimilið þessi ár og þangað var
stefnt með Ólafi Ketilssyni strax að
loknum vorprófum og ekki haldið
heim á ný íýrr en við upphaf skóla.
Þó voru þessi sumur ekki síðri
skóli. Mér lærðist að vinna og
skilja samhengi heyanna og fjölda í
fjósi, hvernig erfðir hafa áhrif á af-
rakstur og hvernig hringrás lífsins
birtist í búskapnum. Þetta vora af-
ar góð sumur hjá þeim hjónunum
Guðrúnu Gísladóttur og Einari Kr.
Einarssyni. Sumur sem skilja eftir
s'g ljúfar minningar, ánægjuleg
kynni og mikilvæga reynslu, sem
allt of fá börn eiga nú kost á.
Guðrún var náttúrubarn og
áhugi á búskapnum var henni í
blóð borin. Hún stýrði stóru heimili
með reglu og rausn og hafði bæði
lag á að láta fólki og fénaði líða vel.
Hún tók virkan þátt í búskapnum,
var fjárglögg og natin við allan
búsmala. Hún var frá Fossi í Arn-
arfirði en kom ung á Laugar, gift-
ist Einari og tók við búforráðum af
tengdamóður sinni Guðrúnu Ein-
arsdóttur.
Heimilið var lengstum mann-
margt því þessi árin tíðkaðist ekki
að eldra fólk færi af heimilinu á
elliheimili heldur var því sinnt
heima eins lengi og heilsan framast
leyfði. Og ekki bara heimafólki
heldur komu þar fleiri til sem Guð-
rún og Einar tóku inn á heimilið af
rausn og ræktarsemi. Við þetta
bættust stundum tveir, þrír krakk-
ar að sunnan, líkt og ég sem sum-
arlangt voru hluti heimilisfólks og
gengu verka eins og aðrir. Það þarf
stórt hjarta til að láta öllum þess-
um hóp, skyldum og vandalausum,
ungum og gömlum líða eins og
væru þeir hluti fjölskyldunnar. Og
þetta gat hún Gunna og gerði með
þessari hlýju og árvekni sem ein-
kenna oft þá sem láta sig vellíðan
annarra varða meiru en eigin að-
stæður. Hún hélt því ekki á hólun-
um sem hún gerði öðrum til þægð-
ar.
Guðrún var trúuð og velktist
ekki í vafa um líf að loknu þessu.
Hún skilur eftir sig hlýjar minn-
ingar sem ég veit að milda söknuð
Einars, barnanna og barnabam-
anna sem henni voru svo kær.
Þórarinn V. Þórarinsson.
Heyskapur
á Arbæjar-
túni
MÖRG undanfarin ár hefur Árbæj-
arsafn staðið fyrir heyskap á Ar-
bæjartúninu að gömlum sið og
sunnudaginn 25. júlí verður þessari
hefð fram haldið.
Þá mun Páll Pálsson frá Borg í
Miklaholtshreppi ásamt þeim Guð-
mundi Ama Asmundssyni og Bene-
dikt Þorvaldssyni sýna gestum
hvemig á að slá með orfi og Ijá.
Hópur kvenna undir forystu Þór-
unnar Pálsdóttur leikkonu rakar
ljána. Gestir fá að vanda að taka
þátt í heyskapnum og þeir sem vilja
FRÁ slætti á Árbæjarsafni.
bragða á spenvolgri nýmjólk að
slætti loknum geta íýlgst með
mjöltum við Árbæinn um kl. 17.
Handverksfólk verður að störfum
í ýmsum húsum og í nýrri hand-
verksverslun safnsins sýnir Sigrún
Kristjánsdóttir frá versluninni Fóu
feykirófu útskoma fugla og þjóð-
sagnadýr.
Gilwell-nám-
skeið á
Ulfljótsvatni
GILWELL-NÁMSKEIÐ verður
haldið á Úlfljótsvatni 14.-22. ágúst.
Gilwell-þjálfunin tekur u.þ.b. 9
mánuði og skiptist í bóklegt og
verldegt námskeið og verklegt og
bóklegt nám í fjarkennslu að nám-
skeiði loknu.
Meðal atriða sem fjallað er um á
námskeiðinu em siðir og venjur
skátahreyfingarinnar, skyndihjálp,
útilíf, náttúruskoðun, náttúru-
vemd, áætlanagerð, frambyggja-
störf, vímu- og fíknivarnir, útield-
un, hækferðir, stjómun sveita,
menntastefnu skátahreyfingarinn'1
ar, verkefnagrann skátahreyfing-
arinnar og foreldrasamstarf.
Skólastjóri Gilwell-skólans er j
Sigurður Júlíus Grétarsson dósent.
Skráning á námskeiðið er á skrif- í
stofu BIS fyrir 1. ágúst.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Ólafsvegi 3,
Olafsfirði, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Ólafsvegur 36, þingl. eig. Davíð Hinrik Gígja og Sveinína Ingimarsdótt-
lr> gerðarbeiðendur Kaupfélag Eyfirðinga og Ríkisútvarpið, fimmtu-
daginn 29, júli 1999 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði,
14. júlí 1999.
Björn Rögnvaldsson.
HÚ5NÆÐI í BOO
Húsnæði til leigu
frá 1. september til 1. júní
Herbergi með húsgögnum og sjónvarpi.
Aðgangur að eldhúsi og baði. Tilboð sendist
til afgr. Mbl. merkt: „Fyrirfrgr." fyrir 27. júlí.
5UMARHÚ5/LÓÐIR
Leigulóðir í Skorradal
Nokkrar góðar kjarrivaxnar lóðir til leigu í landi
Indriðastaða í Skorradal.
Upplýsingar í símum 437 0066 og 854 3566.
ÝMISLEGT
Lagerútsala
í dag, laugardaginn 24. júlí 1999, verður lager-
útsala haldin í Vatnagörðum 26,104 Reykjavík
frá kl. 13—16 síðdegis.
Fjölbreytt vöruúrval verður á boðstólum, svo
sem raftæki: Hárþurrkur, rafmagnsofnar, tvö-
faldar kaffivélar á frábæru verði, rafmagns-
tannburstar og rakvélar ásamt sýnishornum
af ýmsum raftækjum. Leikföng: Dúkkur, lita-
bækur, pússluspil, Disneylest, hjólaskautar
fyrir 3ja—6 ára á frábæru verði, Billiard- og
poolborð fyrir unga menn og margtfleira.
Veidarfæri: Sjóstangir, stangir, hjól, spúnar,
flugulínur, flugubox, spúnabox, veiðitöskur,
önglar, hnýtingaönglar, nælur, ódýrar vöðlur
og stígvél.
Garðljós með spennubreyti og tveimur Ijósum
í setti, hagstætt verð. Servíettur, borðdúkar,
plasthnífapör, vínkælar, kaffibrúsar og nestist-
öskur með hitabrúsa fyrir unga fólkið í skólann
og útileguna. Tungumálatölva. Vogir. Ódýrir
verkfærakassar. Þó nokkuð af sýnishornum
af ýmsum vörum, svo sem útvörpum o.fl. o.fl.
Missið ekki af þessu tækifæri og komið og
gerið góð kaup. Við tökum EURO og VISA
kredit- og debetkort.
ATVINNA ÓSKAST
Ferðamálafræðingur
með mastersgráðu í stjómun og markaðs-
setningu á ferðaþjónustu frá Bretlandi,
óskar eftir starfi. Ýmis störf eða verkefni á sviði
ferðaþjónustu koma til greina. Heffjölþætta
starfsreynslu af ýmsum sviðum.
Allar nánari upplýsingar í síma 698 2216.
augl@mhl.is
Sparaðu þér umstang og tíma með því að
senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar
í Morgunblaðinu með tölvupósti.
Notfærðu þér tæknina næst.