Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Niðurstaða Verðbréfaþings um málefni Skagstrendings
Brýtur ekki gegn regl-
um um skráningu
Þrír stjórnarmenn óhæfír að mati
framkvæmdastjóra Samherja
ÞORSTEINN Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja, álít-
ur stjórn Verðbréfaþings hafa ver-
ið vanhæfa til að fjalla um tengsl
Skagstrendings og Höfðahrepps
en stjóm VÞI telur að sérstæð
staða Höfðahrepps til tilnefningar
tveggja stjómarmanna í Skag-
strendingi hf., án tillits til eigna-
hlutar, brjóti ekki í bága við reglur
um skráningu verðbréfa í kauphöll.
í frétt frá VÞÍ kemur fram að í
kjölfar rannsóknar á hvort nýjar
reglur þingsins um skráningu
verðbréfa í kauphöll hafí í för með
sér að einhver hlutafélög, sem þeg-
ar em þar skráð með hlutabréf sín
uppfylli ekki lengur skilyrði skrán-
ingar á þinginu. Rannsóknin hefur
einkum beinst að hlutabréfum
Skagstrendings hf. en í stofnsamn-
ingi og samþykktum félagsins er
gert ráð fyrir að Höfðahreppur eigi
tvo menn af fímm í stjórn á hverj-
um tíma og því spuming hvort slíkt
fyrirkomulag brjóti í bága við 6.
grein reglna um skráningu verð-
bréfa þar sem fram kemur að í
flokki hlutabréfa skuli allir hluthaf-
ar njóta sömu réttinda. Með flokki
hlutabréfa er átt við einsleit hluta-
bréf þar sem réttindi eigenda og
HEILDARTEKJUR OZ.COM
vora rúmlega 214 milljónir á fyrstu
sex mánuðum þessar árs en vora
rúmar 294 milljónir allt árið í fyrra.
Rekstrargjöld á tímabilinu nema
rúmlega 251 milljón og er tapið 47
milljónir króna.
Tekjuaukning félagsins á fyrri
hluta þessa árs, miðað við sama
tímabil í fyrra, nemur 46% á árs-
grandvelli. Hins vegar gerir endur-
skoðuð rekstraráætlun félagsins
ráð fyrir nokkuð minni tekjum á
árinu 1999 en gert var í upphaf-
legri áætlun. Nú er reiknað með að
heildartekjur verði rúmlega 395
milljónir króna á árinu en áður var
gert ráð fyrir tekjum upp á rúm-
Tölvur og tækni
á Netinu
mbl.is
__ALL.TAf= £/TTH\SAO NÝTT
skilmálar hlutabréfa og samþykkta
eru að öllu leyti hin sömu.
Fram kemur í áliti þingsins að
réttur Höfðahrepps til tilnefningar
tveggja manna af fimm í stjórn
Skagstrendings, byggir á heimild í
hlutafélagalögum, sbr. 3. tl. 1. mgr.
5. gr. Tilnefningarrétturinn er ekki
háður hlutafjáreign hreppsins í fé-
laginu þvf í stofnsamningi og sam-
þykktum íyrirtækisins era ákvæði
sem mæla íyrir um jöfn réttindi
hluta og að engum hlutum fylgi
sérréttindi. „Stofnsamningurinn og
samþykktimar verða ekki skýrðar
öðravísi en svo, að Höfðahreppur
héldi tilnefningarrétti sínum, þótt
hreppurinn seldi öll hlutabréf sín í
félaginu. Af þessu leiðir að þessum
sérstaka rétti Höfðahrepps verður
vart breytt og hann tekinn af
hreppnum, a.m.k. ekki nema með
samþykki allra hluthafa,“ segir í
niðurstöðu stjórnar VÞÍ.
Eins og kunnugt er fjárfesti
Samherji umtalsvert í Skagstrend-
ingi í sumar og á nú um 37% hlut í
lega 588 milljónir.
Endurskoðuð tekjuáætlun tekur
mið af breytingum í rekstri, dregið
hefur verið úr þrívíddarþróun og
aukin áhersla er nú lögð á sam-
skiptalausnir og samstarfið við
sænska fjarskiptarisann Ericsson.
Það samstarf efldist mjög í kjölfar
þess að Ericsson keypti hlutafé í
OZ.COM fyrir tæplega einn millj-
arð íslenskra króna í maí á þessu
ári. Ericsson á eftir kaupin um 19%
hlut í OZ.COM.
Sterk eiginfjárstaða
Skúli Mogensen, forstjóri
OZ.COM, segir að samstarfíð við
Ericsson hafí gengið mjög vel.
„Með aukinni hlutdeild Ericsson í
félaginu hefur eiginfjárstaða þess
batnað til muna. Um síðustu ára-
mót voram við með neikvætt eigið
fé upp á 65 milljónir, en nú er eigið
fé fyrirtækisins orðið tæpar 800
milljónir. I ljósi þessarar sterku
stöðu teljum við skynsamlegt að
huga að langtímavexti og mark-
miðum félagsins. A síðasta árs-
fjórðungi hafa átt sér stað tölu-
verðar áherslubreytingar í starf-
seminni í kjölfar þess að samstarfið
við Ericsson hefur eflst. Þessar
breytingar felast í því að við höfum
farið að einbeita okkur meira að
samskiptalausnum á borð við iPul-
se,“ segir Skúli.
Hann segir að í upphaflegri
rekstraráætlun hafí verið gert ráð
fyrir þjónustuverkefnum sem
byggjast á þrívíddartækni en þeim
hafí nú verið vikið til hliðar með
breyttum áherslum í rekstri. „Við
félaginu. Ljóst þykir að Samherja-
menn hafí ætlað sér að hafa áhrif á
rekstur Skagstrendings með kaup-
unum. Það gekk hins vegar ekki
eftir í kjölfar þess að Höfðahrepp-
ur lét Burðarási í té hlutabréf sem
nægðu til að tryggja Burðarási
einn mann í stjórn og þar með
meirihluta í stjórn Skagstrendings
ásamt tveimur fulltrúum Höfða-
hrepps.
Undrast að stjómarmenn
skuli ekki hafa vikið sæti
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja,
sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki hafa skoðað niðurstöður
VÞI ítarlega. Hann sagði fyrirtæk-
ið hafa farið fram á það að Verð-
bréfaþing skoðaði málið sem hlut-
laus aðili og án þess að leggja neitt
lögfræðilegt mat á niðurstöðu
þeirrar rannsóknar veki það undr-
un sína að stjórnarmenn VÞÍ sem
hafa greinilega hagsmuna að gæta
í málinu, skuli ekki hafa vikið sæti.
munum að sjálfsögðu ljúka þeim
verkefnum sem við höfum skuld-
bundið okkur til að vinna en hætt-
um að taka að okkur ný verkefni á
þessu sviði,“ segir Skúli. Markaðs-
setning á iPulse erlendis fer að
mestu fram í gegnum Ericsson en
Skúli segir að OZ.COM muni hefj-
ast handa um að kynna búnaðinn
fyrir almenningi hér á landi í októ-
ber á þessu ári. Nú þegar liggja
fyrir samningar við tvö erlend
símafélög um að hefja prófanir á
iPulse en Skúli vildi að svo stöddu
ekki greina frá því hver þessi fyrir-
tæki væra. „Við höfum verið að ná
mjög góðum árangri við sölu iPulse
og búnaðurinn er þegar farinn að
skila tekjum inn í fyrirtækið.
Markmið okkar er að tryggja iPul-
se í sessi sem samskiptalausn. Við
höfum forskot í samkeppninni og
teljum því möguleika okkar góða.“
Kjölfestu vantar
Hjá Matthíasi H. Johannessen, í
greiningadeild Kaupþings, fengust
þær upplýsingar að sökum þess að
„Hér er ég að tala um þá Tryggva
Pálsson frá Islandsbanka, Þorkel
Sigurlaugsson frá Eimskipafélag-
inu og Einar Sigurðsson frá Flug-
leiðum. Þegar litið er til þess að
málið í heild sinni er til komið eftir
að Höfðahreppur seldi Burðarási
hlutabréf til að hafa áhrif á sam-
setningu stjómar Skagstrendings,
þá liggur það í augum uppi að ofan-
greindir aðilar sem eiga sæti í
stjóm Verðbréfaþings hefðu eðli-
lega átt að víkja sæti þar sem þau
fyrirtæki sem þeir era fulltrúar
fyrir tengjast öll verulega Eim-
skipafélagi Islands."
Þorsteinn vildi ekki tjá sig um
viðbrögð Samherja við þessari nið-
urstöðu en sagði að málið yrði
skoðað í rólegheitum. Hann sagði
engar hugmyndir uppi um að félag-
ið seldi eignarhlut sinn í Skag-
strendingi enda félagið alveg jafn-
gott eftir sem áður.
Adolf. H. Berndsen, stjómar-
maður í Skagstrendingi og oddviti
Höfðahrepps, vildi lítið tjá sig um
málið í gær en sagði niðurstöðu
Verðbréfaþings ekki koma á óvart
enda í fullu samræmi við þá grein-
argerð sem send hafí verið til
þingsins.
kjölfestu hafi að nokkru leyti skort
í rekstri OZ.COM hingað til séu
fjárfestar eðlilega varkárir þegar
komi að fyrirtækinu. „Það er auð-
vitað almenn óvissa í rekstri á
þessum markaði en fyrirtækið þarf
vissulega að sýna meiri vöxt til að
standa undir þeim væntingum sem
til þess era gerðar. Markaðsverð-
mæti er metið á í kringum 9 millj-
arða, sem er margföld velta fyrir-
tækisins, og það hlýtur að vekja
spumingar. Samvinnan við Erics-
son lofar þó góðu og fróðlegt verð-
ur að sjá hvað samningar um próf-
anir á iPulse leiða af sér,“ segir
Matthías.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur gengi hlutabréfa í
OZ.COM farið lækkandi að undan-
fömu og lítil sem engin viðskipti
átt sér stað með bréf félagsins, en
félagið er ekki skráð á markaði.
Gengið mun hæst hafa farið í 4,8
dollara fyrr á árinu en hefur farið
allt niður í 2,4 í viðskiptum síðustu
vikur, að því er heimildir blaðsins
herma.
Viðskipti á VÞÍ
Plastprent
hækkar ura
93,5%
VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi íslands námu 248 millj-
ónum króna í gær. Mest viðskipti
vora með hlutabréf í Eimskipafélagi
Islands eða fyrh-172 milljónir króna
og hækkaði gengi þeirra um 0,7%,
úr 9,65 í 9,72. Mest hækkun varð á
verði hlutabréfa í Plastprenti eða
um 93,5%, úr 1,55 í 3,0. Alls námu
viðskipti með félagið tæpum 3,8
milljónum króna en fremur lítil við-
skipti hafa verið með bréf félagsins
það sem af er árinu.
22 milljóna króna viðskipti vora
með hlutabréf í Samherja og lækk-
aði gengi þeirra um 1,5%, úr 10,15 í
10,0. Níu milljóna króna viðskipti
vora með hlutabréf í Landsbanka
Islands og hækkaði verð þeirra um
5,3%, úr 3,23 í 3,40.
Verð hlutabréfa í Vinnslustöðinni
hækkaði um 18,5% í gær, úr 2,32 í
2,75. Tæplega 2,2 milljóna króna
viðskipti vora með bréf félagsins á
Verðbréfaþingi í gær.
Úrvalsvísitala Aðallista
í 1.310 stigum
Úrvalsvísitala Aðallista hækkaði
um 0,93% og er nú 1.310 stig og er
það hæsta gildi sem hún hefur farið
í. Alls hefur vísitalan hækkað um
19,34% frá áramótum.
Heildarvísitala Aðallista hefur
hækkað um 20,67% frá áramótum
en Heildarvísitala Vaxtarlista um
5,74%.
Sú atvinnugreinavísitala sem hef-
ur hækkað mest frá áramótum er
Vísitala upplýsingatækni en hún
hefur hækkað um 52,14%, Vísitala
olíudreifingar hefur hækkað um
38,72% og Vísitala fjármála og
trygginga hefur hækkað um 38,72%.
-----------------
Framkvæmdastj óri
verðbréfasviðs Búnað-
arbankans um ÚA
Besti fjár-
festingar-
kosturinn
BÚNAÐARBANKINN keypti í
fyijadag hlutabréf Akureyrarbæjar
í Útgerðarfélagi Akureyringa fyrir
rúmar 1.246 milljónir. Þorsteinn
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
verðbréfasviðs Búnaðarbankans,
telur Útgerðarfélag Akureyringa
besta fjárfestingarkostinn meðal
sjávarútvegsfyrirtækja í dag.
„Miðað við afkomu ÚA fyrstu sex
mánuði ársins teljum við mark-
aðsvirði fyrirtækisins tiltölulega
lágt. Við teljum þetta hagstætt verð
og seljandinn er líka sáttur. Við er-
um ánægð með að hafa fengið tæki-
færi til að kaupa þessi bréf og erum
sannfærð um að það verði til hags-
bóta fyrir bankann þegar fram líða
stundir,“ segir Þorsteinn.
„Markmið bankans er að hagnast
á kaupunum. Hluti af bréfunum er
ætlaður IS-15, fjárfestingarsjóði
Búnaðarbankans," segir Þorsteinn.
Fram hefur komið að IS-15 hefur þá
stefnu að fjárfesta í fáum sterkum
félögum. Nú hefur Útgerðarfélag
Akureyringa orðið fyrir valinu sem
eitt þeirra. „Hluta ætlum við að
selja öðram stofnanafjárfestum og
hluti verður einhvern tíma í bókum
bankans.
Búnaðarbankinn var eini aðilinn
sem bauð í öll hlutabréf Akureyrar-
bæjar í ÚA og skýrir Þorsteinn það
með því að IS-15 hafí verið sá inn-
lendi hlutabréfasjóður sem hefur
vaxið hvað hraðast hér á landi. „Við
höfum því ef til vill meiri þörf fyi-ir j
að fínna hlutabréf en aðrir. Það er
ekki mikið af stærri eignarhlutum í
umferð og þess vegna höfðum við
mikinn áhuga á þessum bréfum,"
segir Þorsteinn.
Tap OZ.COM á fyrri hluta ársins nam 47 milljónum
Tekjur aukast
um 46% á árs-
grundvelli
OZ
Ur milliuppgjöri 1999
| Rekstrarreikningur JAN.-JÚNl 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Fjármagnagjöld 214,6 251,5 -10,0 294,1 405,5 -12,1
Hagnaður (tap) tímabilsins -46,9 -123,5
30/06 '99 31/12 '98 Breyting
| Efnahagsreikningur
EIGNIR
Veltufjármunir Fastafjármunir 731.5 136.6 109,2 107,4 +570% +27%
EIGNIR SAMTALS 868.1 216.6 +301%
SKULDIR og EIGIÐ FÉ Breyting
Ejgið fé 784.1 -65.9 +1.290%
Breytanleg skuldabréf 173,3 -
Langtímaskuldir 38,6 37,9 +2%
Skammtímaskuldir 45,4 71,3 -36%
Skuldir alls 84,0 282,5 -70%
SKULDIR OG EIGIÐ FÉ SAMT. 868,1 216,6 +301%