Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ J Skemmtun og árangur Guðjón er svo sannfœrandi að freistandi vœri að spyrjast fyrir urn það hvort margir hafi bókað sumarfrí til Belgíu og Hollands næsta sumar, eftir að Morgunblaðið var borið út í gærmorgun! Þegar dregið var í riðla fyrir undankeppni yf- irstandandi Evrópu- móts landsliða voru líklega ekki margir sem töldu ísland eiga einhverja möguleika á að komast í úrslita- keppnina, sem fram fer í Belgíu og Hollandi næsta sumar. A því eru auðvitað ósköp eðlilegar skýringar; t.d. dróst íslenska lið- ið í riðil með þremur feikilega erfiðum andstæðingum: Frökk- um, sem skömmu síðar urðu heimsmeistarar, Ukraínumönn- um og Rússum sem hvort tveggja eru mjög sterkar knatt- spymuþjóðir. Þá hefur íslenska liðið einfald- VIÐHORF lesa lenP verið ----- talið heldur Eftir Skapta slakt og þrátt Hallgrímsson fynr að það hafi náð frá- bærum úrslitum í einum og ein- um leik hafði stöðugleika vantað. En segja má að nú sé öldin önnur. Eg hef haldið því fram áður og geri það enn að liðið hefur tekið stakkaskiptum eftir að Guðjón Þórðarson var ráðinn landsliðsþjálfari og þegar ís- lenska liðið á þremur leikjum ólokið í riðlinum á það enn möguleika á að komast í úrslita- keppnina. Mismunandi verkefni bíða; í dag mæta íslendingar liði Andorra á Laugardalsvelli, þar sem þeir verða í hlutverki Golí- ats, en reikna má með að þeir fari aftur inn á völlinn í líki Da- víðs þegar Úkraínumenn koma í heimsókn næstkomandi mið- vikudag - hvað þá gegn Frökk- um í París í síðasta leik riðilsins. Til að möguleikar Islands á að komast áfram verði enn fyrir hendi í kvöld verður leikurinn í dag einfaldlega að vinnast. Ann- að kemur ekki til greina, enda á liðið ekki skilið að ná lengra ef það sigrar ekki Andorra á heimavelli. Þar með er ég ekki að segja að verkefnið í dag sé auðvelt - minna má á að Frakk- ar sigruðu Andorra mjög naum- lega fyrir skemmstu. Guðjón segir í samtali við Morgunblaðið í gær að menn hafí talið hann léttgeggjaðan fyrir um ári þegar hann lýsti því yfir að ísland þyrfti ekki að tapa fyrir Frökkum, sem þá voru nýorðnir heimsmeistarar. „Menn töldu þetta nálgast bilun, en það gekk eftir. Við töpuðum ekki fyrir Frökkum og hefðum hæglega getað unnið þá. Síðan höfum við verið mjög einbeittir í leik okkar og til marks um það sem hefur breyst í leik liðsins og hugarfar strákanna er að þegar við töpuðum í Moskvu, 1:0, fyrir framan fullan völl af fólki gengu þeir af velli hundóánægðir. Þeir voru ósáttir við að tapa fyrir Rússum á útivelli. Hví skyldum við þá ekki geta náð sex stigum úr þessum tveimur leikjum, gegn Andorra og Úkraínu, og tekið þátt í keppninni um sætin sem í boði eru af fullri hörku? Annars vegar er það fyrsta sæti riðilsins, sem tryggir okkur áframhaldandi keppni, eða ann- að sætið og fá þannig að taka þátt í keppni átta liða um fjögur sæti í úrslitamótinu. Við eigum enn möguleika á þessu og við missum ekki sjónar á þeim.“ Guðjón er spurður í Morgun- blaðinu í gær hvort hann hafi skoðað möguleika í tengslum við úrslit úr leikjum annarra liða og hann gefur sér að sjálfsögðu þær forsendur að úrslit úr leikj- um Islands og viðureignum hinna þjóðanna geti orðið þannig að Island verði í öðru hvoru sætanna sem slegist er um. Og hann er svo sannfærandi að freistandi væri að spyrjast fyrir um það í ferðaþjónustunni hvort margir hafi bókað sumar- frí til Belgíu og Hollands næsta sumar, eftir að Morgunblaðið var borið út í gærmorgun! Guð- jón trúir sem sagt á liðið sitt og vonandi nær hann að smita leik- menn sína af þeirri bjartsýni fyrir þau erfiðu verkefni sem framundan eru. Smekkur manna er misjafn og því má endalaust deila um það hvað er góð knattspyrna og hvað ekki góð. Auðvitað væri of- mælt að halda því fram að lands- liðið hafi alltaf leikið skemmti- lega knattspyrnu undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Hins veg- ar má fullyrða að liðið hafi nán- ast alltaf leikið agað, og það er lykilatriði þegar við andstæðing er að etja sem fyrirfram er vitað að er betri á ákveðnum sviðum íþróttarinnar. Það er staðreynd sem íslendingar verða að sætta sig við að fáir þeirra leikmanna, sem nú skipa landsliðið, leika sem atvinnumenn í liðum í efstu deild í þeim útlöndum þar sem deildarkeppnin er verulega sterk. Þegar leikið er gegn lið- um eins og því franska, rúss- neska og því úkraínska eiga flestir andstæðingamir því að hafa betri knatttækni, betra auga fyrir samspili, eiga að vera fljótari og jafnvel reyndari. Eðli málsins samkvæmt eiga þessi lið því að vera betri - og eru það á pappírunum - en það er ekki þar með sagt að þau vinni leik- ina gegn íslandi. Eins og komið hefur í Ijós. Aðal íslenskra knattspyrnumanna hefur löng- um verið kraftur, vilji og barátta og þeir eiginleikar eru ákaflega mikilvægir. Þegar slíkir íþrótta- menn koma saman og samstaða næst í hópi þeirra; þegar einn vinnur fyrir alla og allir fyrir einn, geta ævintýrin gerst. Guð- jón hefur náð að gera mönnum góða grein fyrir styrk sínum, en einnig veikleikum, sem er auð- vitað ekki síður mikilvægt. Menn ofmetnast því ekki; reyna ekki að gera hluti sem ólíklegt er að gangi upp. En því má þó ekki gleyma að margur mjög frambærilegur knattspyrnumað- ur stendur Guðjóni til boða í landsliðið. Þegar upp verður staðið að lokinni riðlakeppninni verður ekki spurt að því hvort íslenska liðið lék vel í tilteknum leikjum heldur hvort það náði í nógu mörg stig. Auðvitað skiptir máli hvort lið spila góða eða vonda knattspymu, þegar til lengri tíma er litið. En þegar barist er um stig í keppni sem þessari eru stigin einfaldlega mikilvægari en gæði knattspymunnar. Og má ekki segja að það sé ákveðin skemmtun að ná árangri? MARGMIÐLUN VINSÆLASTA lófaleikjatölva heims er Game Boy frá Nintendo sem gekk í endurnýjun lífdaganna með litaskjá fyrir tveimur árum. Síðan má segja að Game Boy hafi átt markaðinn og enginn framleið- andi virtist þess umkominn að etja kappi við risann, fyrr en japanska fyrirtækið SNK tók sig til og setti á markað lófatölvu sem fyrirtækið kallar Neo Geo Pocket Color. Neo Geo Pocket Color er nánast jafn stór og Game Boy Color er fer öðmvísi í hendi, henni er haldið á þverveginn miðað við Game Boy Color og fer mjög vel í hendi. Vinstra megin á tölvunni er stýripinni sem er vel úr garði gerð- ur og mun betri til að stýra en „krossinn" á Game Boy-tölvunum. Hægra megin era síðan tveir stýri- hnappar og einum betur reyndar. Á vélinni er tengi fyrir heymartól, straumbreyti og raðtengi. Neo Geo Pocket Color leysir af hólmi álíka leikjatölvu sem var svart/hvít. Fjölmargir leikir era þegar komnir út fyrir tölvuna, tíu leikir komu hingað til lands í fyrsta skammti og mun meira á eftir að berast. Sumir leikjanna era frá gömlu Neo Geo-leikjatölvunni, nokkuð breyttir til að falla betur að minni skjá og einfaldari stýringu, en aðrir era sérsamdir íyrir tölv- una. Ymislegt nýstárlegt er við vél- Gefur augaleið að Neo Geo er verðugur keppinautur Game Boy Color í tæknilegum atriðum og verði. Hvað leikina varðar er annað upp á teningnum; það verður að segjast eins og er að Game Boy er með gríðarlega gott safn leikja, sem margir era h'tið síðri fyrir það að vera í fáum eða engum litum. Gott dæmi um það er Donkey Kong-leikjasyrpan sem er með bestu leikjum sem gerðir hafa ver- ið fyrir lófatölvur, nýútkominn leikur fyrir litatölvuna um pípar- ann Mario sem byggir á frábæram leikjum fyrir Nintendo-leikjatölv- urnar, Warioland 2 DX, sem er lík- lega besti leikurinn íyrir slíkar tölvur sem stendur og svo má telja. Þeir Neo Geo-menn verða því að sér nýjan keppinaut sem hann segir geta ógnað Game Boy. ina, meðal annars að hægt er að tengja við hana sérstakt senditæki og geta þá fleiri en einn leikið saman í leik. Annað sem vakið hefur mikla athygh er að hægt er að tengja vélina við Dr- eamcast-leikjatölvu Sega og leikinn King of Fighters, sem gefur auka- persónu og ýmislegar viðbætur. Einnig er í burðarliðnum að tengja saman Dreamcast-leikinn Cool Bo- arders þegar sá leikur kemur út. Á Netinu ganga svo fjöhunum hærra sögur um að hægt verði að tengja tölvuna Play Station II þegar sú vél kemur á markað að ári. Ýmislegt fram yfir Game Boy Color Neo Geo tölvan hefur ýmislegt fram yfir Game Boy Color og ekki minnst um vert að hún er talsvert ódýrari. Litapalettan í Game Boy Color er 32.000 litir og getur tölvan sýnt 56 Uti í einu. Neo Geo er aftur á móti með minni palettu, 4.096 liti, en getur sýnt fleiri í einu, 146 liti. Skjárinn á Neo Geo er líka aðeins breiðari, 152 punktar en Game Boy 144. Neo Geo notar AAA-rafhlöður samanborið við AA-rafhlöður Game Boy og nýtir þær talsvert betur, því samkvæmt mælingum endist hún tvöfalt lengur á rafhlöð- unum en Game Boy, ríflega fjöra- tíu tíma samanborið við tuttugu. V erðugiir keppinautur Game Boy-leikjatölva Nintendo hefur yfírburðastöðu á markaði fyrir lófa- leikjatölvur. Árni Matthíasson kynnti 700 MHz PentiumlII mennt var búist við að fyrstu gerðir hans yrðu 600 til 650 MHz og kom því tals- vert á óvart að Intel hefði náð 700 MHz hraða í fyrstu atrennu. Ekki vakti minni at- hygli að ör- gjörvinn skyldi kynntur í ágústlok, því Intel hafði nýverið frestað kynn- ing- unni frá sept- ember fram í nóvem- ber vegna erfiðleika við fjölda- framleiðslu. Meðal þess sem ger- ir örgjörvann harðvirkari er að hann er á 0,18 míkrona flögu í stað 0,25 míkrona flögu hefð- bundins Pentium III örgjörva. Að auki er samþætt 256 KB biðminni á örgjörvanum sem eykur enn vinnslugetu hans. Samkvæmt heimildum frá Intel er 800 MHz Pentium in örgjörvi nánast tilbúinn í framlciðslu, en skammt er svo síðan fyrstu ein- tökin af Merced bárust þróunar- aðilum. Intel óvænt á undan áætlun Talsvert kom á óvart að Intel hefði náð 700 MHz hraða í fyrstu atrennu. Athlon skilaði sama reikniafli og 700 MHz Pentium III, en Intel kynnti einmitt slikan örgjörva. Ný gerð Pentium örgjörvans kallast Pentium III Coppermine og er, eins og nafnið gefur til kynna, með koparrásum. Al- nýja gerð af Penti- um III örgjörva sfnum sem er talsvert fyrr á ferð en áður var ætlað. AMD, helsti, og reyndar nán- ast eini, keppinautur Intel á ör- gjörvamarkaði, kynnti á dögun- um K7 örgjörva sinn, sem kallast Athlon, en hann slær við öllum þeim örgjörvum sem Intel fram- leiðir. Nýr örgjörvi Intel er svar við þeirri samkeppni, en fram- reiknað mátti ætla að 650 MHz EKKI ER langt síðan Pentium IH örgjörvi Intel kom á almennan markað, en þó hefúr Intel spýtt í lófana og hert á gjörvanum svo um munar. Fyrir skemmstu kynnti fyrirtækið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.