Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 04.09.1999, Blaðsíða 76
✓ NETÞJONAR / > / / _j / ■ ■ — j / /■ / / - - slctir (’illiim vi(i fMtogtmliIftfeffe Er ástæöa til að stofna verknúmerið „123 Frosið'? Það er dýrt að láta starfsfólkið bíða! Tölvukerfi sem virkar 563 3000 MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Verðbólgan síðustu 12 mánuði 4,2% Ekki jafnmikil verðlagshækkun í rúm fímm ár Skúli Arnason fylgist með Erni Arnarsyni bora með ísbor. Morgunblaðið/Hörður Geirsson Skyrtukragi úr einkennisbúningi eins flugliðanna sem fúrust og hluti af sæti vélarinnar. HÖRÐUR Geirsson, safnvörður á Miiyasafninu á Akureyri, hefur sfðastliðin 20 ár leitað að breskri sprengjuflugvél sem fórst 26. maí 1941 með fjórum mönnum innanborðs. Hörður hafði erindi sem erfiði fyrir hálfúm mánuði er hann fann flak vélarinnar í jökli á hálendinu milli Öxnadals og EyjaQarðar. I gær var farinn leiðangur undir leiðsögn Harðar til að sækja jarðneskar leifar mann- anna sem komnar voru upp úr ■^klinum. TF-LÍF, þyrla Land- helgisgæslunnar, flutti leiðang- ursmenn á staðinn í gærmorgun og sótti þá aftur síðdegis. „Það er 10-20 sentímetra snjó- lag á svæðinu, þannig að ekki var hægt að leita eins nákvæm- lega og skipulagt hafði verið, en þrátt fyrir það fundust þau bein sem ég hafði áður fundið fyrir hálfum mánuði. Einnig var öllu braki úr vélinni, áli, fataleifum og fleiru, safnað saman, gengið var um allt svæðið með málmleit- artæki og fundust stórir hlutar vélarinnar á um 70 sentímetra dýpi í jöklinum," sagði Hörður. Fyrstu réttir verða í dag FYRSTU réttir haustsins fara fram í dag, en þá verður réttað í tveimur réttum í V-Húna- vatnssýslu, þ.e. í Hrútatungu- rétt í Hrútafirði og Miðfjarðar- rétt í Miðfírði. Sauðkindum .^hefur heldur fækkað í réttun- *um síðustu ár, en mannfólkinu hefur hins vegar farið fjölg- andi. Síðustu ár hefur m.a. bor- ið á því að erlendir ferðamenn hafi sóst eftir að komast í ís- lenskar fjárréttir. Réttað verður víða um land um næstu helgi, en réttum vegna fyrstu leitar lýkur al- mennt um þarnæstu helgi. „Það var mikil upplifun fyrir mig að finna flakið fyrir hálfum mánuði, enda leitin staðið yfir í þetta Iangan tima, eða frá 1980, þegar ég gekk dalina og fjöllin f tæpa viku. Eftir það hef ég farið alls um 10 ferðir þarna upp á fjöllin en án árangurs." Flugferð sú sem endaði á þess- um stað var farin á Fairy Battle- flugvél breska flughersins og hafði hún farið frá Kaldaðarnes- flugvelli á Suðurlandi um morg- uninn og lent á Melgerðismelum um kl. 12 á hádegi. Tilgangur ferðarinnar var að ná í tvo með- limi flugsveitarinnar sem höfðu verið á spitalaskipinu HS Leinst- er, sem Iá við bryggju á Akureyri veturinn 1940-41. Mikil leit á sinum tíma Flugvélin flaug frá Melgerðis- melum, út Eyjafjörð og yfir Akureyri, þar sem hún hnitaði hringi til að hækka flugið og hvarf hún mönnum sjónum þar í ský. Vegagerðarmenn í Öxnadal heyrðu til vélarinnar og einnig heyrðu hermenn á Melgerðismel- um í vélinni skömmu áður en hún fórst. Mikil leit var gerð að vélinni um allt land og fannst hún ekki fyrr en tveimur dögum síðar, er Ieitarflokkur sem hafði aðsetur á Bakka í Öxnadal fann hana. I skýrslu sem gerð var eftir leitar- mönnum og Friðþór Eydal, upp- lýsingafulltrúi varnarliðsins, fann í London nú í vor, kemur fram að leitarmenn töldu ekki mögulegt að safna saman Iikams- leifum þeirra manna sem fórust með vélinni. Þessi skýrsla varð þó til þess að hægt var að stað- sefja fiakið á gömlu korti frá breska hernum á þessum tíma. Hörður hefur verið í sambandi við breska flugherinn og sagði að nú stæði yfir Ieit að ættingjum mannanna sem fórust með vél- inni. Jarðneskar lcifar mannanna verða sendar til breska sendi- ráðsins í Reykjavík, sem mun sjá um greftrun þeirra. VERÐBÓLGUHRAÐINN síðustu tólf mánuði frá ágústmánuði í fyrra til jafnlengdar í ár nemur 4,2% og hefúr ekki verið jafnmikill í meira en fimm ár eða frá því í desember árið 1993 þegar verðbólguhraðinn var 4,7%. Verðbólguhraðinn er enn meiri ef litið er til síðustu mánaða, en hvort sem miðað er við síðustu þijá eða sex mánuði telst verðbólguhraðinn 6,3% umreiknað til árshækkunar. Hækkun á verði húsnæðis veldur mestu um hækkun vísitölunnar und- anfarna mánuði, en að auki vegur hækkun á verði eldsneytis, matvöru og þjónustu þungt. Ef miðað er við hækkun vísitölunnar það sem af er árinu hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,9% frá því í janúar- mánuði. Þriðjung af þeirri hækkun eða 0,95 prósentustig má rekja til hækkunar á verði húsnæðis á þessu tímabili, en það hefur hækkað að meðaltali um 7,9%. 0,65 prósentu- stig til viðbótar má rekja til hækk- unar á bensíni og olíum en verð á þeim hefur hækkað að meðaltali um 17,3% samkvæmt útreikningum Hagstofu íslands á vísitölu neyslu- verðs. Meira en helming hækkunar vísitölunnar á árinu má því rekja til verðhækkunar á þessum tveimur liðum vísitölimnar. Til viðbótar framangreindu hefur verðlag á mat- og drykkjarvöru hækkað um 3,5% að meðaltali á ár- inu sem leitt hefur til hækkunar vísitölunnar um 0,6% og liðurinn önnur þjónusta, þar sem meðal ann- ars lögboðnar bifreiðatryggingar er að finna, hefúr hækkað um 3,8% að meðaltali, sem valdið hefur 0,86% hækkun vísitölunnar. Ef eingöngu er litið á bílatryggingarnar hafa þær hækkað um 13,73% samkvæmt mæl- ingum vísitölu neysluverðs en það eitt og sér hefur hækkað vísitöluna um 0,27%. Þá er rétt að taka fram að liðurinn aðrar innfluttar vörur hafði lækkað að meðaltah um 3,3% frá janúar og var þar fyrst og fremst um að ræða áhrif frá sumarútsölum í síðasta mánuði. Það varð til þess að vísital- an lækkaði um nærfellt 0,5%, en hækkun á verði matvöru í síðasta mánuði og eldsneyti meðal annars gerði meira en að vega upp þá lækk- un, því vísitalan hækkaði um 0,4 prósentustig milli júlí og ágúst. Viðskipti með bréf Eim- skips 621 milljón í ágúst 171,56 milljóna króna viðskipti voru með hlutabréf í Eimsldpafélagi ís- lands á Verðbréfaþingi íslands í gær. Þar voru ein viðskipti upp á 144,75 milljónir króna. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins hefur stór hluti viðskipta, sem átt hafa sér stað með hlutabréf í Eimskip frá byrjun ágúst- mánaðar til dagsins í dag, verið fyrir tilstuðlan Kaupþings hf. Fyrstu þijá daga septembermán- aðar hafa viðskipti með bréf Eim- skips á VÞI numið 208,6 milljónum að markaðsvirði, en í ágústmánuði námu viðskiptin um 621,3 milljónum króna að markaðsvirði. Lokaverð hlutabréfa Eimskips var 9,72 við lokun markaðarins í gær. Verðið hafði því hækkað um 0,73% frá deg- inum áður, um 15,7% frá upphafi ágústmánaðar og um 26,2% frá upp- hafi árs 1999 til dagsins í gær. Allt árið 1998, frá upphafsverði 1. janúar til lokaverðs 31. desember, hækkaði gengi bréfa í Eimskipafélaginu um 8%, en upphafsverð og lokaverð árs- ins 1997 var hið sama og var hækk- unin því engin. ■ 171,6 milIjóna/24 Flak breskrar sprengju- ‘ flugvélar fannst í jökli Framkvæmdastjóri Samherja um málefni Skagstrendings Stjórnarmenn VÞI áttu að víkja sæti ÞORSTEINN Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, álítur stjórn Verðbréfaþings hafa verið vanhæfa að fjalla um tengsl Skag- strendings og Höfðahrepps en stjóm VÞI telur að sérstæð staða Höfðahrepps til tilnefningar tveggja stjómarmanna í Skagstrendingi hf., án tillits til eignarhlutar, bijóti ekki í bága við reglur um skráningu verð- bréfa í kauphöll. Eins og kunnugt er fjárfesti Sam- herji umtalsvert í Skagstrendingi í sumar og á nú um 37% hlut í félag- inu. Ljóst þykir að Samherjamenn hafi ætlað sér að hafa áhrif á rekstur Skagstrendings með kaupunum. Það gekk hins vegar ekki eftir í kjöl- far þess að Höfðahreppur lét Burðarási í té hlutabréf sem nægðu til að tryggja Burðarási einn mann í stjórn og þar með meirihluta í stjórn Skagstrendings ásamt tveimur full- tmum Höfðahrepps. Fulltrúarnir tengjast Eimskip Þorsteinn Már sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki hafa skoðað niðurstöður VÞÍ ítarlega. Hann sagði fyrirtækið hafa farið fram á það að Verðbréfaþing skoð- aði málið sem hlutlaus aðili og án þess að leggja neitt lögfræðilegt mat á niðurstöðu þeirrar rannsóknar veki það undmn sína að stjórnar- menn VÞÍ sem hafa greinilega hags- muna að gæta í málinu, skuli ekki hafa vikið sæti. „Hér er ég að tala um þá Tryggva Pálsson frá Islands- banka, Þorkel Sigurlaugsson frá Eimskipafélaginu og Einar Sigurðs- son frá Flugleiðum. Þegar litið er til þess að málið í heild sinni er til kom- ið eftir að Höfðahreppur seldi Burðarási hlutabréf til að hafa áhrif á samsetningu stjórnar Skagstrend- ings liggur það í augum uppi að of- angreindir aðilar, sem eiga sæti í stjóm Verðbréfaþings, hefðu eðli- lega átt að víkja sæti þar sem þau fyrirtæki sem þeir era fulltrúar fyr- ir tengjast öll verulega Eimskipafé- lagi íslands." Þorsteinn Már segir engar hug- myndir uppi um að Samherji selji eignarhlut sinn í Skagstrendingi enda félagið jafngott eftir sem áður. ■ Brýtur ekki/22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.