Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Fundaröð Landsbanka íslands og Landsbréfa um nýja vinda í íslenskum sjávarútvegi
BJÖRGÓLFUR Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Sfldarvinnslunnar hf.
í Neskaupstað, riíjaði upp gang
mála frá óheftum veiðum til kvóta,
upphaf samþjöppunar aflaheimilda,
og bar saman við stöðuna eins og
hún er nú. Hann greindi frá breyt-
ingu á sölusamtökum og vakti at-
hygli á því að fyrirtækin eru stærri
og færri, fjárhagslega sjálfstæðari,
með fleiri menntaða starfsmenn og
aukna þekkingu innan sinna raða.
Þegar til framtíðar væri litið sagði
hann að samþjöppunin ætti eftir að
verða enn meiri og benti á að fyrir-
tæki með um 70% þorskkvóta væru
utan verðbréfaþings og fyrirtæki
með um tvo þriðju hluta alls bolfisks
væru það einnig. Hann sagði að al-
menn þekking innan fyrirtækja á
ytra umhverfi myndi enn aukast og
taldi óhjákvæmilegt að erlend eign-
araðild kæmi til. Hann vísaði til Is-
lensku sjávarútvegssýningarinnar
og sagði ljóst að sérfræðiþekking
yrði útflutningsvara í auknum mæli.
Þegar Björgólfur hugleiddi fram-
tíðina sagði hann, að fjárfesting í
sjávarútvegi yrði góður valkostur
fyrir fjárfesta og spurði hver hefði
trúað því fyrir 15 árum, að Bæjarút-
gerð Reykjavíkur og ísbjörninn
yrðu saman öflugt fyrirtæki, að
Samherji yrði stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins, að Þormóður
rammi næði árangri í Ólafsfirði, að
Miðnes gengi inn í HB, að á Isafirði
yrðu tvö stór sjávarútvegsfyrirtæki,
að sjávarútvegsfyrirtæki hæfu fjár-
festingar í erlendum sjávarútvegs-
fyrirtækjum og að mikil sameining
sjávarútvegsfyrii'tækja yrði í Vest-
mannaeyjum. A sama hátt spurði
hann hver tryði því að á árinu 2010
yrðu fimm til sex mjög stór sjávar-
útvegsfyrirtæki í landinu, að þau
yrðu öflug í úrvinnslu afurða, áber-
andi í sjávarútvegi erlendis og með
öflugustu fyrirtækjum landsins með
um átta til 10 milljarða veltu á ári.
Aðlögunarhæfni
lykilorðið
Guðbrandur __ Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., benti á breytingar sem
hefðu orðið í sjávarútvegi frá 1996.
Þá hefði hreinn hagnaður sjávarút-
vegs í heild í hlutfalli af tekjum verið
2%; 6% tap hefði verið á veiðum og
vinnslu botnfisks, 0,5% hagnaður af
veiðum og vinnslu rækju og 21%
hagnaður af loðnuveiðum og
bræðslu. Botnfiskur væri um 64%
útflutnings sjávarafurða, sfld og
loðna um 17% og skelfiskur um 15%.
Á umræddum tíma hefði botnfiskur
hækkað í verði jafnt og þétt, hagur
bolfiskvinnslu hefði batnað og bjart-
Spáð fáum en öfl-
ugum fyrirtækjum
Landsbanki íslands og Landsbréf hafa undanfarna þrjá
morgna staðið fyrir fundaröð um sjávarútvegsmál. I gærmorgun
hlustaði Steinþór Guðbjartsson á Björgólf Jóhannsson,
Guðbrand Sigurðsson og Guðmund Kristjánsson, sem sögðu
m.a., að sameining sjávarútvegsfyrirtækja héldi áfram og innan
skamms yrðu tvö til sjö sjávarútvegsfyrirtæki á meðal stærstu
fyrirtækja landsins. Reyndar taldi Guðmundur að þau yrðu tvö
eða þrjú og eitt þeirra yrði með um 60% aflaheimilda.
ir tímar væru framundan. Rækju-
vinnslan væri í jafnvægi miðað við
fyrir þremur árum en spurning væri
hvernig veiðin þróaðist. Verð á mjöli
og lýsi hefði verið í hámarki í lok lið-
ins árs en í apríl í ár hefði það verið
35% lægra. Miklar sveiflur væru í
uppsjávartegundunum en lykilorðið
væri aðlögunarhæfni og það væri
eitt af megineinkennum íslensks
sjávarútvegs.
Guðbrandur sagði að miklir hag-
ræðingarmöguleikar væru í núver-
andi kvótakerfi en mikil og neikvæð
áhrif hefðu orðið vegna Kvótaþings
og veiðiskyldu. Þá varaði hann við
byggðakvótanum og sagði að Islend-
ingar mættu ekki lenda í þeirri
stöðu að niðurgreiða sjávarútveg til
þess að halda uppi óarðbærum fyrir-
tækjum eða störfum. Hann sagði
mikla hagræðingarmöguleika fyrir
hendi í útgerðinni og þeir endur-
spegluðu þá miklu fjárfestingu sem
væri í henni. Stærri og sérhæfðari
einingar skiluðu hlutfallslega betri
árangri í landvinnslu og breytt við-
horf ríktu varðandi kjarasamninga
samfara fjárfestingu og aukinni
vinnslu. Hann sagði að flest íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki væru lítil eða
meðalstór fyrirtæki miðað við er-
lenda mælikvarða en sennilega færi
stærðarhagkvæmnin að skila sér að
fullu þegar veltan væri átta til tólf
milljarðar króna. Varðandi tækni-
þróunina sagði hann ekki miklar
breytingar í útgerðinni í sjónmáli.
Þróunin væri jöfn og stöðug í veið-
arfæratækni, fískileitartælgum,
upplýsingakerfum, meðhöndlun afla
og svo framvegis og líklegt væri að
þróunin í botnfiskvinnslu héldi
áfram en þar hefðu orðið miklar
breytingar.
Markaðirnir hafa breyst mikið og
sagði Guðbrandur að mikil sam-
þjöppun hefði orðið hjá kaupendum
auk þess sem mildl áhersla væri
lögð á einfalt og skilvirkt skipulag.
Smásöluaðilar í Bretlandi væru að
fækka birgjum en veittu þeim jafn-
framt meira frelsi til að stýra mark-
aðsfærslunni. Þá myndi heilnæmi
afurða skipta æ meira máli og Ijóst
að menn vildu ekki lenda í málum
eins og Bretar í kúariðunni eða
Belgar í díoxíninu. Sjávarútvegur-
inn yrði að taka meira framkvæði í
umhverfismálum samfara ábyrgri
og skilvirkri fiskveiðistjómun. Hann
komst að þeirri niðurstöðu að miklar
og örar breytingar væra að verða í
umhverfi sjávarútvegsins. Mikil-
vægt væri að iðnaðurinn tæki tillit
til þeirra þátta og hagræddi starf-
seminni í takt við breytingarnar en
samþjöppunin héldi áfram og eftir
nokkur ár yrðu hugsanlega fimm til
sjö fyrirtæki með 60 til 70% hlut-
deild í sjávarútveginum.
Ekki félagsmálapakki
Guðmundur Kristjánsson, útgerð-
armaður og stjórnarformaður Bása-
fells hf. á ísafirði, sagði að til að
tryggja hagkvæma nýtingu auðlind-
ar væri nauðsynlegt að skilgreina
eignaréttinn og það væri grunnur
fiskveiðistjómunarkerfisins. Þó deilt
hefði verið um hver ætti að eiga
veiðiréttinn væri ljóst að þeir sem
eiga skipin ættu atvinnuréttindin
sem veiðirétturinn myndaði. Það
hefði verið ákveðið með lögum 1983
þegar veiðiréttinum hefði verið út-
hlutað á skip. Hann sagði að verð-
gildi veiðiréttar væri misjafnt eftir
tegundum og miklar sveiflur hefðu
verið á verðgildinu. I því sambandi
benti hann á að verðgildi 1% af
veiðirétti þorsks hefði kostað 300
milljónir 1991 en nú kostaði hann
meira en 1.400 milljónir og hefði
verðið hækkað mikið frá 1995.
Ástæða þessarar miklu sveiflu væri
sú að fiskveiðistjórnunarkerfið hefði
leitt af sér margföldun í framleiðni
sjávarútvegs. Aukin verðmætasköp-
un í greininni auki verðgildi fram-
leiðsluþáttanna sem endurspeglist í
hæma verði á veiðirétti. I öðra lagi
hefðu aðilar í sjávarútvegi öðlast
meiri trú á að kerfið verði varanlegt.
í þriðja lagi hefði kerfið sýnt að út-
gerðarmaður, sem veit hvað hann
má fiska, veiði á besta veiði- og sölu-
tíma og lækki rekstrarkostnaðinn.
Efnahagsumhverfið hefði leitt af sér
virkari fjármagnsmarkað sem ein-
faldaði fjármögnun sjávarútvegsfyr-
irtækja. Þannig yrðu kaup á veiði-
rétti einfaldari og ódýrari og mikið
lægri vextir réttlættu hærra verð á
veiðirétti. í fimmta lagi endurspegl-
uðust framtíðarvæntingar um veiði í
verðþróun á veiðirétti. Guðmundur
sýndi fram á að annað væri uppi á
teningnum varðandi verðþróun á út-
hafsrækju. Verðgildi á 1% af veiði-
rétti hefði lækkað úr 330 milljónum í
ársbyrjun 1998 í 100 milljónir. Þetta
sýndi hvað markaðslögmálin væru
virk á kvótamarkaðnum. Framtíðar-
væntingar um veiði væra litlar og
því væri eftirspurn minni og verðið
lægra.
Guðmundur sagði að umrædd
verðþróun hefði aðeins ákveðið gildi
fyrir flest fyrirtæki í sjávarútvegi,
því fyrir fyrirtæki sem ættu veiði-
rétt, skipti meira máli hvað kostaði
að veiða og hver ai’ðsemin væri.
Hins vegar skipti þetta töluverðu
máli fyrir lánardrottna sjávarútvegs-
ins. Hann sagðist sannfærður um að
þegar lög um fiskveiðistjórnun voru
sett 1983 hafi ráðamenn ekki gert
sér grein fyrir hvað væri hægt að
skapa mikil verðmæti í íslenskum
sjávarútvegi með góðri stjómun og
skipulagi. Sjávarútvegur væri eins
og stóriðja og keppt væri á frjálsum
markaði við aðrar greinar atvinnu-
lífsins. Sjávarútvegsfyrirtæki yrðu
að standa sig í samkeppni við t.d.
fjármálafyrh'tæki, tryggingafélög og
tölvufyrirtæki á opnum hlutabréfa-
markaði. Til að geta keppt við þessar
greinar yrði sjávarútvegurinn að
vera vel rekinn og ekki mætti líta á
sjávarútveg sem félagsmálapakka
eða atvinnuveg sem hefði það að
markmiði að halda uppi dreifðri
byggð í landinu.
Guðmundur sagði að deilt hefði
verið um hvort skattleggja ætti
sjávarútveg umfram aðrar greinar
atvinnulífsins og hvort ætti að út-
deila veiðiréttinum árlega en rangt
væri að þjóðin ætti veiðiréttinn eins
og heyrðist hjá litlum en háværam
hluta þjóðarinnar. Þeir sem störfuðu
í greininni byggju til verðmætin og
útgerðarmenn sem hefðu sett pen-
inga sína í að kaupa veiðirétt væru
miklu betur til þess fallnir að hugsa
vel um fiskistofna en stjórnmála-
menn en það hjálpaði að hafa skýrar
og góðar leikreglur til langs tima og
stjómvöld mættu ekki brjóta þær
því sjávarútvegurinn yrði að geta
treyst stjórnvöldum. Hins vegar
hefðu stjórnvöld verið iðin við að
brjóta leikreglurnar og það væri al-
varlegasta ógnunin við efnahaginn.
Búi stjórnvöld til nýtt millifærslu-
kerfi og millifæri veiðiréttinn milli
skipaflokka og landsvæða missi
sjávarútvegurinn og lánardrottnar
traustið á stjómkerfinu. Höft hefðu
verið sett á stærð sjávarútvegsfyrir-
tækja en á sama tíma hefðu fyrir-
tæki eins og bankar, flutningsfyrir-
tæki og olíusalar, sem þjónustuðu
sjávarátveginn, stækkað mikið.
Þetta gæti veikt samkeppnisaðstöðu
sjávarátvegsins en stjómvöld og
þjóðfélagið yrðu að skilja að sjávar-
útvegur væri eins og hver önnur at-
vinnugrein sem lyti almennum lög-
málum sem giltu á hverjum tíma.
Fjarlækningarbúnaður vekur athygli á sjávarútvegssýnmgunm
„Flestir hafa
sögu að segja“
„VIÐ höfum fengið mjög góð við-
brögð. Hingað hafa komið fjölmarg-
1 ir og sérstaklega hafa sjómenn sýnt
þessum búnaði mikinn áhuga og
flestir þeirra hafa einhverja sögu að
segja af slysum eða tilfellum þar
sem slíkur búnaður hefði komið að
► góðum notum,“ segir Sigurður Á.
Kristinsson, læknir og einn af eig-
endum TeleMedlce, en fyrirtækið
kynnir svokallaðan fjarlækninga-
• búnað á Islensku sjávarátvegssýn-
ingunni. Hann segir samskiptatæk-
ini fleygja hratt fram og því geti
búnaðurinn verið kominn fyrr í al-
menna notkun en menn hafi gert
sér grein fyrir. „Við höfum einnig
orðið varir við mikinn áhuga fjár-
festa og framleiðenda á tæknisviði
sem bjóða þjónustu sem nýtast
þessum búnaði mjög vel. Það er
geysilega ör þróun í gervihnatta-
samskiptum og flutningsgetan er
orðin mun meiri en við kannski
gerðum okkur grein fyrir.“
„Við gerum okkur vonir um að
geta boðið þennan búnað á fyrsta
ársfjórðungi næsta árs. Búnaðurinn
á að duga fyrir þau samskipti sem
era í boði núna. Tækninni fleygir
hinsvegar hratt fram og fjarlækn-
ingabúnaðurinn gæti verið kominn í
almenna notkun mun fyrr en við átt-
um von á.“
Sjúkrahús Reykjavíkur er fjar-
lækningamiðstöð íslands og á slysa-
og bráðamóttökunni höfum við þró-
að búnað til að taka á móti slíkum
tilfellum og meðal annars fengið til
þess styrk úr ríkissjóði. „Þar er vakt
allan sólarhringinn og þrátt fyrir að
kerfið sé einkum hugsað fyrir ís-
lensk skip þá er það hannað með það
í huga að geta einnig þjónustað er-
lend skáp þannig að ekki eiga að
koma upp tungumálaöragleikar,“
segir Sigurður.
Ami Geir Sigurðsson, verkfræð-
ingur hjá Gagnamiðlun hf. sem
einnig stendur að þróun búnaðarins,
segir miklar hræringar í þróun
gervihnattasamskipta og ótal mögu-
leika í boði. „Þannig er hægt að
koma á tengingu við skip sem er
Morgunblaðið/Golii
Frá sýningarbás TeleMedlce á Islensku sjávarútvegssýningunni,
langt umfram það sem þekkst hefur
hingað til. Bandvíddin hefur aukist
gríðarlega, meðal annars til að flytja
sjónvarpsefni til skipanna. Enn-
fremur er nú hægt að senda efni frá
skipunum á tíu sinnum meiri hraða
en áður. Á sama tíma hefur kostnað-
urinn við slíkar sendingar lækkað
mikið. Það má því reikna með slíkur
búnaður verði orðinn algengur áður
en langt um líður. Hvað fjarlækn-
ingabúnaðinn snertir þá hafa mögu-
leikar á að koma upplýsingum frá
skipi til lands á skömmum tíma auk-
ist gríðarlega."
L
'wmspr------------------------------------------~ mmmw*— ~ -------------------------------------w------------------------------------------------------------------------------mmeaw---------------------------------------------------------------------------■■HBn--------------------------------------------------------------------------■■■HF---------------------------------------------------------------------------■anmr----------------------------------------------— — mmmmw -rnrnmmm ....................................... "■■■«