Morgunblaðið - 04.09.1999, Page 28
28 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Franskir dómarar skila lokaskýrslu sinni um rannsóknma á láti Díönu prinsessu
Ákærum á hendur ljós-
myndurum vísað frá
Lögreglumenn draga bifreið Díönu burt af slysstað.
París. AFP. AP. Reuters.
FRANSKIR dómarar skiluðu í gær
lokaskýrslu sinni um rannsóknina á
láti Díönu prinsessu í bílslysi í París
fyrir tveimur árum. Var öllum
ákærum á hendur ljósmyndurum,
sem eltu bifreið prinsessunnar, vís-
að frá, og ályktuðu dómaramir að
orsök slyssins mætti rekja til þess
að bflstjórinn hefði verið undir
áhrifum áfengis og lyfja, auk þess
sem bifreiðinni hefði verið ekið á
allt of miklum hraða.
I skýrslu rannsóknardómaranna
Herve Stephan og Marie-Christine
Devidal kemur fram að Dodi Fayed,
ástmaður Díönu, hafi kallað örygg-
isvörðinn Henri Paul af frívakt til
að aka þeim frá Ritz-hótelinu kvöld-
ið sem slysið átti sér stað, 31. ágúst
1997. Dómaramir árétta að ekki sé
hægt að áfellast Dodi fyrir þessa
ákvörðun. Paul lét lífið í slysinu, og
við krafningu kom í ljós að áfengis-
magnið í blóði hans var meira en
þrisvar sinnum hærra en leyfilegt
er. Hann hafði einnig tekið inn lyf-
seðilsskyld lyf, þar á meðal þung-
lyndislyfið Prozae.
í skýrslunni segir að „orsök
slyssins, sem var óviljaverk, hafi
verið sú að bflstjórinn var ölvaður
og undir áhrifum lyfja sem sam-
ræmast ekki neyslu áfengis, en það
gerði hann ófæran til að hafa stjóm
á bifreiðinni, sem var á miklum
hraða.“
Talið er að bifreiðinni hafi verið
ekið á 95-118 kílómetra hraða er
hún rakst á stólpa í umferðargöng-
um við Alma-brúna yfir Signu.
Dómaramir segja að vegurinn hafi
verið „viðsjáll" og bæta við að öku-
maðurinn hafi þurft að forðast
Skuldinni skellt
á bilstjórann
árekstur við bfl sem ferðaðist í
sömu átt á minni hraða. Díana, Dodi
og Henri Paul biðu bana, en örygg-
isvörðurinn Trevor Rees-Jones
komst einn lífs af.
Ljósmyndarar
lausir allra mála
Margir hafa kennt ljósmynduran-
um, sem eltu bifreið Díönu á mikl-
um hraða kvöldið örlagaríka, um að
hafa orðið valdir að slysinu, og ýms-
ir hafa viljað draga þá fyrir dóm.
Frönsku rannsóknardómaramir
vísa því eindregið á bug að ljós-
myndaramir hafi átt sökina. I
skýrslunni segir að rannsóknin
„hafi ekki leitt í ljós neitt það athæfi
sem með óyggjandi hætti væri hægt
að tengja slysinu, og væri hægt að
herma upp á þá sem verið hafa und-
ir rannsókn.“
Dómaramir taka íram að vitni
hafi harðlega gagnrýnt ljósmyndar-
ana níu fyrir að hafa tekið myndir á
slysstaðnum. En þó hegðun þeirra
kunni að hafa verið ósiðleg, hafi þeir
ekki brotið í bága við lög.
Ljósmyndaramir hafa alltaf vísað
því í bug að þeir hafi borið ábyrgð á
slysinu, og segjast hafa verið gerðir
að blórabögglum. „Sú ákvörðun að
vísa ákæranum frá er mér gífurleg-
ur léttir, og bindur enda á tveggja
ára taugastríð," sagði Romuald Rat,
einn ijósmyndaranna, sem hafði
reynt að taka púls Díönu á slys-
staðnum. Sagði hann að óhlutdræg
rannsókn dómaranna hafi leitt í ljós
að hann og starfsbræður hans hafi
einungis verið að sinna starfi sínu.
Mohamed al Fayed
hyggst áfrýja
Auðjöfurinn Mohamed al Fayed,
faðir Dodis og eigandi Ritz-hótels-
ins í París, hyggst áfrýja úrskurði
frönsku rannsóknardómaranna, að
því er lögmaður hans sagði í gær.
Pað er engin furða að al Fayed hafi
ekki fallið niðurstaða dómaranna
vel, því Ritz-hótelið var með
Mercedes-bifreiðina á leigu og bfl-
stjórinn Henri Paul var starfsmað-
ur þess. Fullyrti lögmaður al Fa-
yeds að ljósmyndaramir bæra
nokkra ábyrgð á slysinu, ásamt
ökumanninum.
A1 Fayed hefur lýst þeirri skoðun
sinni að um morðsamsæri hafi verið
að ræða, skipulagt af aðflum sem
hafi mislíkað samband Díönu við
Dodi, sem er af egypskum ættum
og múslimi. Hefur hann meðal ann-
ars gefið í skyn að breska leyniþjón-
ustan og konungsfjölskyldan hafi
átt hlut að máli. Talsmaður al Fa-
yeds sagði í gær að hann myndi
halda áfram að „leita sannleikans í
málinu", og til þess hefði hann næg-
an vilja og úrræði.
Lögmaður öryggisvarðarins
Trevors Rees-Jones lýsti í gær yfir
ánægju með niðurstöðu dómaranna,
en Rees-Jones hefur höfðað mál á
hendur Ritz-hótelinu og bflaleigunni
Etoile-limousine, sem útvegaði
Mercedes-bifreiðina, fyrh- að
„stefna lífi manna í hættu“. Kvaðst
lögmaðurinn ánægður með áherslu
dómaranna á ábyrð hótelsins og
bflaleigunnar. Hann sagði óvíst
hvort Rees-Jones myndi áfrýja, en
fjölskylda Henris Pauls íhugar að
gera það.
Konungsfjölskyldan fáorð
Breska konungsfjölskyldan tjáði
sig ekki um skýrslu rannsóknar-
dómaranna í gær. Spencer jarl,
bróðir Díönu þakkaði frönskum
stjórnvöldum fyrir þann tíma og
fyrirhöfn sem rannsóknin hefði
kostað, og sagðist hann virða niður-
stöðu dómaranna. Jarlinn hafði áð-
ur farið hörðum orðum um ljós-
myndarana, og sagt þá bera ábyrgð
á dauða systur sinnar.
Aukin spenna á
Kóreuskaga
Kosningar til tveggja þýzkra sambandslandsþinga á morgun
„Rauðu prinsarnir“
gagnrýna Schröder
Seoul. AFP.
AUKIN spenna er nú í samskiptum
Suður- og Norður-Kóreu eftir að
stjómvöld í S-Kóreu sögðu að þau
myndu verja með öllum tiltækum
ráðum núverandi línu sem skilur á
milli ríkjanna í hafi. N-Kóreumenn
höfðu áður lýst því yfir að þeir við-
urkenndu ekki lengur línuna.
Eftir neyðarfund öryggisráðs
landsins hétu S-Kóreumenn því að
verja núverandi lögsagnarlínu „af
krafti og staðfestu". „Vanvirði N-
Kórea línuna munum við líta á það
sem ögran og undir engum kring-
umstæðum sætta okkur við það,“
sagði í yfirlýsingu öryggisráðsins.
Akvörðun N-Kóreumanna að við-
urkenna ekki lengur lögsagnarlín-
una kom eftir að viðræður ríkjanna
um málið fóra út um þúfur.
Línan var dregin af Sameinuðu
þjóðunum eftir lok Kóreustríðsins
árið 1953 og liggur skammt undan
ströndum N-Kóreu. N-Kóreumenn
hafa aldrei viðurkennt línuna og
vflja færa hana talsvert í suðvestur.
Fréttaskýrendur efuðust hins
vegar í gær um að stjómvöld í
Pyongyang, höfuðborg N-Kóreu,
myndu vanvirða línuna og töldu lík-
legt að yfirlýsing þeirra á fimmtu-
dag stafaði af því að þeir vildu
styrkja samningsstöðu sína fyrir
viðræður við Bandaríkjamenn, sem
hefjast eiga í næstu viku, þar sem
vonast er til að hægt verði að bæta
samskipti ríkjanna.
í júní sökkti floti S-Kóreumanna
a.m.k. einu n-kóresku skipi í bar-
daga eftir að her- og fiskiskip N-
Kóreumanna fóra ítrekað yfir á yf-
irráðasvæði S-Kóreumanna.
Átta
fórust í
Skotlandi
Glasgow. Reuters.
ÁTTA manns fórast í gær þeg-
ar tveggja hreyfla flugvél hrap-
aði skömmu eftir flugtak frá
flugvellinum í Glasgow. Þrír
eru alvarlega slasaðir. Vélin var
af gerðinni Cessna 404 og var
förinni heitið til Aberdeen.
Slysið varð um tuttugu mínút-
um fyrir klukkan 13 að staðar-
tíma, eða um klukkan 11.40 að
íslenskum tíma.
Berlín. Reuters.
LEIÐTOGAR tveggja þýzkra sam-
bandslanda af vinstri væng Jafnað-
armannaflokksins (SPD), sem eiga
harða endurkjörsbaráttu fyrir hönd-
um, bættu í gær í gagnrýni sína á
flokksleiðtogann, Gerhard Schröder
kanzlara, og sparnaðaráform ríkis-
stjórnarinnar.
Rheinhard Klimmt, forsætisráð-
herra Saarlands, og Manfred Stolpe,
forsætisráðherra austur-þýzka sam-
bandslandsins Brandenburg, - sem í
þýzkum fjölmiðlum hafa verið nefnd-
ir „rauðu prinsarnir" - hótuðu því að
setja sig upp á móti miðjustefnu
Schröders með því að hindra að laga-
framvörp niðurskurðaráforma
stjómarinnar komist í haust í gegn-
um Sambandsráðið, efri deild þýzka
þingsins, þar sem fulltrúar stjórna
sambandslandanna 16 eiga sæti.
„Verði ekki umbætur gerðar [á
framvörpunum] get ég ekki séð að
okkur sé nokkur kostur að styðja
þau,“ sagði Stolpe í sjónvarpsviðtali.
Klimmt ítrekaði á kosningafundi í
Saarlandi, þar sem efnahagsörðug-
leikar eru töluverðir, þann ásetning
sinn að gera sitt til að hindra fram-
gang spamaðaráformanna, sem
ganga út á að skera ríkisútgjöld nið-
ur um sem svarar um 1.200 milljörð-
um króna á næsta fjárlagaári.
Kosningar til þinga beggja sam-
bandslanda fara fram á morgun,
sunnudag. Hróp vora gerð að
Schröder, sem hélt ávarp á sama
kosningafundi og Klimmt í fyrra-
kvöld, er hann varði áform stjórnar-
innar, svo sem um tveggja ára fryst-
ingu ríkistryggðra eftirlauna og
samdrátt í niðurgreiðslum til iðnfyr-
irtækja.
Hann vísaði því á bug að aðgerðirn-
ar væra félagslega óréttlátar. Fast-
lega er reiknað með því að SPD tapi
stórt í báðum kosningunum, vegna
óvinsælda sem ríkisstjórn Schröders
hefur bakað sér með þvi að hafa
ekki enn, ellefu mánuðum eftir að
hún tók við völdum, tekizt að draga
úr atvinnuleysi og vegna innbyrðis
deilna stjórnarliða um stjórnar-
stefnuna.
Rússneskur full-
trúi til starfa hjá
NATO á ný
Moskvu. Rcuters.
TALSMAÐUR rússneska varn-
armálaráðuneytisins sagði í
gær að hermálafulltrúi Rúss-
landsstjórnar hefði á ný hafið
störf hjá Atlantshafsbandalag-
inu (NATO), sex mánuðum eftir
að rússnesk stjómvöld slitu
formlegum samskiptum við
bandalagið vegna loftárása þess
á Júgóslavíu.
Endurkoma Viktors Za-
varzins hershöfðingja til höfu-
stöðva bandalagsins í Brassel
er frekari vísbending um að rík-
isstjóm Rússlands reyni nú að
bæta samskipti sín við NATO
eftir átökin á Balkanskaga. Za-
varzin fundaði með embættis-
mönnum NATO í Brussel í vik-
unni en Leonid ívashov, yfir-
maður alþjóðadeildar rússneska
varnarmálaráðuneytisins, sagði
í gær að samskipti Rússa við
NATO væra enn stirð.
Rússar undirrituðu tímamóta-
samning við Atlantshafsbanda-
lagið árið 1997 en hann kveður
á um samstarf með það að
markmiði að stuðla að öryggi í
Evrópu.