Morgunblaðið - 04.09.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
LM
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 35
Reuters
Nýra grætt í sjúkling á Tohoku-háskólasjúkrahúsinu í Sendai
í norðurhluta Japans.
Bylting'arkennd
aðferð við líf-
færaflutninga
Associated Press.
NÝ aðferð við líffæraflutninga,
sem þróuð hefur verið fram í
Bandaríkjunum, vekur vonir um að
í framtíðinni muni líffæraþegar
geta lifað eðlilegu lífi án þess að
taka inn lyf til að berja niður höfn-
unarviðbrögð líkamans. Aðferð
þessi var reynd á konu sem fékk
nýtt nýra og segja læknar að hún
eigi ekki að þurfa að taka inn slík
lyf það sem hún eigi eftir ólifað.
Fékk nýra og beinmerg
Fram til þessa hafa flestir líf-
færaþegar þurft að treysta á um-
talsverða lyfjagjöf til að koma í veg
fýrir að líkami þeirra hafni nýja líf-
færinu. Lyfjagjöfinni fylgja oft
aukaverkanir auk þess sem líffæra-
þegum er oft hættara við alvarleg-
um sýkingum vegna lyfjanna sem
þeir verða að nota. Nýja aðferðin
gerir slíka lyfjanotkun óþarfa að
sögn lækna sem hana hafa þróað
en þeir starfa við Massachusetts
General Hospital í Boston í Banda-
ríkjunum.
Aðferðin nýja felst í því að
ónæmiskerfum líffæragjafans og -
þegans er „blandað saman“. I
þessu tilfelli fékk konan, sem er á
fimmtugsaldri, nýra úr systur
sinni. Jafnframt þáði hún úr henni
beinmerg vegna krabbameins sem
einnig þjakaði hana. Beinmergur-
inn gerði ónæmiskerfi hennar
kleift „að sætta sig við“ nýja líffær-
ið.
Dr. Thomas Spitzer, sem tók
þátt í aðgerðinni, gerir grein fyrir
henni í nýjasta hefti tímaritsins
Transplantation. Konan greindist
með alvarlega nýmabilun fyrir ári
og jafhframt kom þá í Ijós að hún
þjáðist af hvítblæði.
Nýrnastarfsemin eðlileg
Konan tók inn lyf til að vinna
gegn höfnunarviðbrögðum líkam-
ans í 73 daga eftir aðgerðina. Að
sögn dr. Spitzer er nýmastarfsemi
hennai- nú fullkomnlega eðlileg og
og hvítblæðið er á undanhaldi. Tel-
ur hann ástæðu til að vona að að-
ferðin nýja geti gagnast fjölmörg-
um sjúkhngum.
Reuters
Afar auðvelt er að mcðhöndla
skjaldvakabrest.
í því að teknar em skjaldkirtils-
hormónatöflur. Haddow segir
rannsóknina leiða í ljós hversu
mikilvægt sé að greina skjaldvaka-
brest í konum og meðhöndla hann
strax á fyrstu mánuðum með-
göngu.
Skortur á
skjaldkirtilshormóni
Ekki er ljóst hvernig skjald-
vakabrestur móður kann að hefta
andlegan þroska barns, að sögn
Haddows. Ástandið skapast þegar
ekki er nóg af skjaldkirtilshorm-
óni í líkamanum. Þetta hormón
hefur áhrif á svo að segja alla vefi
líkamans og stýrir mörgum þátt-
um starfsemi hans, til dæmis nið-
urbroti prótína, niðurbroti fitu-
vefja, hjartsláttartakti og tíða-
hringnum.
Vegna þess hve hormónið hefur
áhrif víða í líkamanum eru ein-
kenni skorts á því margvísleg.
Meðal þeirra eru breytingar á húð,
hári, nöglum og rödd; vökvajafn-
vægi og hægðatregðu; hitabreyt-
ingaóþoli; vöðva- og liðaverkjum og
breytingar á tíðahring.
Erfitt er að greina skjaldvaka-
brest í Ijósi einkennanna, að sögn
Haddows, en ástandið er greinan-
legt með einfaldri blóðrannsókn
þar sem mælt er magn skjaldvaka-
kveikju, eða hormónahvata. Niður-
stöður rannsóknar Haddows og
samstarfsmanna hans birtust í The
New England Joumal of Medicine
18. ágúst.
List oggeðveiki
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Margir frægir lista-
menn hafa orðið geðveikir og oft
er litið á sérkenni sumra lista-
manna sem merki um að þeir séu
ekki heilir á sönsum. Eiga listræn-
ir hæfileikar eitthvað skylt við
geðveiki? Er geðveiki af einhverju
tagi algengari meðal listamanna
en annarra þjóðfélagshópa?
Svar: Mér er ekki kunnugt um
rannsóknir sem benda til þess að
listamenn yfir höfuð séu haldnir
geðsjúkdómum umfram annað
fólk. Þó kann svo að vera, þar eð
listrænir hæfileikar felast í því að
listamaðurinn er gjarnan næmari
á umhverfi sitt og sinn innri mann.
Hann hefur oft óvenjulegar skoð-
anir og sér hlutina í öðru ljósi en
flestir aðrir. Hann fer sínar eigin
leiðir og sker sig úr fjöldanum. Því
ætlar fólk stundum að hann sé
ekki í eðlilegum veruleikatengsl-
um og sé að einhverju leyti geð-
veikur. Það var viðtekin skoðun
marga lækna sem fengust við geð-
lækningar fyrr á öldinni að list-
rænir eiginleikar væru áhættu-
þáttur fyrir geðveiki og að þeir
gengju í ættir. Þegar upplýsingar
voru fengnar frá nýjum sjúklingi
var ein af stöðluðum spumingum
sem lagðar voru fyrir hann: Eru
listamenn í ættinni? I dag þykir
lítið á slíkum upplýsingum að
byggja.
Geðveiki og aðrir geðsjúkdómar,
einkum þunglyndi, endurspeglast
glöggt í verkum sumra lista-
manna. Einkum má sjá þetta hjá
sumum frægum listmálurum. Ed-
vard Munk var um tíma haldinn
djúpu þunglyndi, sem kemur fram
í mörgum mynda hans, þar sem
angist hans birtist m.a. í efnisvali,
örvæntingarfullri tjáningu og
dökkum litum. I myndum Van
Goghs má sjá hvernig hann fjar-
lægðist raunveruleikann smám
saman og hvarf inní geðklofa.
Engu að síður eru myndir þessara
tveggja málara meðal mestu lista-
verka sem gerð hafa verið. Það
byggist á næmi þeirra og innsæi í
sjálfa sig og hæfileika til að tjá sig
um það sem inni fyrir býr. Upplif-
un þeirra í geðveikinni er sú upp-
spretta sem getur fætt af sér mikil
listaverk svo fremi sem geðveikin
lamar ekki skapandi hæfileika
þeirra. Oft getur tjáning lista-
mannsins orðið til þess að hann
vinnur sig út úr sálrænum vanda-
málum sínum, kannski á ekki
ósvipaðan hátt og gerist í sálkönn-
un.
Allt fólk býr yfir skapandi
hæfileikum, en aðeins fáum er
gefið að skapa listaverk. Það eru
oftast þeir sem ekki eru fastir í
viðjum hversdagslífsins og hins
hlutbundna veruleika, hafa opinn
huga fyrir nýjum hugmyndum og
næmi fyrir sjálfum sér. Á þann
hátt hafa þeir til að bera andlega
heilbrigði, en eru að sama skapi
oft opnari og viðkvæmari fyrir
sálrænum áhrifum sem leiða af
sér innri átök og vanlíðan. Aðrir,
kannski allur fjöldi fólks, eru lok-
aðir fyrir sínum innra manni.
Vandamál þeirra fá að krauma
undir niðri, án þess að viðkom-
andi einstaklingur skilji hvað er
að gerast innra með honum. Hann
getur því ekki með tjáningu eða á
skapandi hátt tekist á við tilfinn-
ingar sínar og unnið úr þeim. Sál-
ræn meðferð felst því oft í því að
hjálpa honum til innsæis í sjálfan
sig og opna honum leiðir til tján-
ingar og virkja skapandi hæfi-
leika hans og koma honum í
snertingu við þá eiginleika sem
listamönnum eru gefnir.
Listmeðferð er ung grein innan
geðlækninga. Þá er sjúklingurinn
látinn tjá sig í listsköpun, oftast
málverki. Það getur verið heillandi
að fylgjast með því hvemig hans
innri maður birtist smátt og smátt
í verkum hans og hann fær vax-
andi innsæi í það sem hann er að
tjá. Þá má oft sjá skýr merki í
framvindu meðferðarinnar og
tímaröð verkanna hvemig hann
nær smám saman tökum á vanda-
málum sínum og öðlast skýrari
sjálfsmynd.
Af framansögðu má sjá að list-
rænir eiginleikar em að mörgu
leyti merki um andlega heilbrigði,
en innsæi listamannsins og opinn
hugur geta jafnframt valdið hon-
um meiri sálrænum átökum en
gerist hjá þeim sem ekki ná til
skapandi hæfileika sinna.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálf ræðinginn um það sem
þeim liggur á hjarta. Tekið er á
moti spurningum á virkum dögum
milli klukkan 10 og 17 í síma
5691100 og bréfum eða símbréf-
um merkt: Vikulok, Fax: 5691222.
Ennfremur simbréf merkt: Gylfi
Ásmundsson, Fax: 5601720.
Opið í dag
kL 10:00-16:00
Stóraukinn afsláttur
af fjölmörgum vörutegundum
HREYSTI
Tilboð á bakpokum!
ÆFINGAR - UTIVIST - BOMULL
— Skeifunni 19 - S. 5681717-
Russell Athletic bómull/fleece - Better Bodies - Columbia fatnaður - Tyr sundfatnaður - Fæðubótarefni o.fl.