Morgunblaðið - 04.09.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 51 '
MINNINGAR
SIGRÍÐUR
HALLDÓRSDÓTTIR
+ Sigríður Hall-
dórsdóttir
fæddist __ í Hraun-
gerði í Alftaveri 15.
janúar 1916. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 18. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar frara
frá Borgarnes-
kirkju 27. ágúst.
Jarðsett var í
kirkjugarðinum á
Borg á Mýrum.
Látin er Sigríður
Halldórsdóttir húsfrú að Ferju-
bakka II Borgarfirði. Við undirrit-
aðar voru svo lánsamar að fá að
dvelja í uppvexti okkar
hjá þeim sæmdarhjón-
um Sigríði og Ki-istjáni
(sem lést fyrir nokkr-
um árum). Þegar við
systurnar komum í
sveitina aðeins sex ára
gamlar gerðum við
okkur ekki grein fyrir
því hvað þessi sumar-
dvöl fram á unglingsár
mundi hafa mikil og
góð áhrif á uppeldi
okkar. Sigga var ein-
staklega réttsýn kona,
með sterka réttlætis-
kennd. Þrátt fyrir að
hún væri með nokkra krakka í
sveit, sín eigin böm og vinnufólk,
þá gerði hún aldrei upp á milli. Hún
sá alltaf til þess að allir fengju jafnt
og engum væri mismunað.
Við systurnar lærðum margt
ómetanlegt á þeim 10 sumrum sem
við dvöldum í sveitinni. Til að byrja
með fengum við aðeins að halda í
hala, reka kýmar og aðstoða við
létt heimilisstörf. Síðar lærðum við
að taka fullan þátt í verkum full-
orðna fólksins svo sem að mjólka,
moka flórinn, gefa kúnum, rýja,
smala, heyja, setja niður og taka
upp kartöflur. Af Siggu lærðum við
einnig flest heimilisstörf svo vel að
ætla mætti að við hefðum verið í
húsmæðraskóla. Hún kenndi okkur
að taka slátur, baka hjónabands-
sælu, hengja upp þvott, prjóna og
fl. Við systumar áttum það til að
vera óþekkar og uppátektarsamar
og reyndi þá verulega á þolinmæð-
ina hjá Siggu sem alltaf gerði gott
úr öllu. Hún mætti oft í
drullukökuveislur hjá okkur upp á
kletta og sá til þess að hitt heimilis-
fólkið mætti líka. Hún vakti yfir
velferð okkar og gætti þess að við
fengjum það sama og strákarnir
hjá honum Kristjáni. Þó við eydd-
um mestum okkar tíma með Siggu
fengum við einnig stundum að fara
í kaupstaðinn með Kristjáni og að
vitja um netin með honum. Við
minnumst Siggu af miklum hlýhug
og gleymum aldrei þeim dýrmætu
stundum sem við áttum með henni
í eldhúsinu við að spjalla um heima
og geyma. Hún sagði okkur frá
uppvexti sínum undir Eyjafjöllum
og við henni frá okkar lífi í Reykja-
vík.
Við erum Siggu og hennar fólki
óendanlega þakklátar fyrir að hafa
fengið að dvelja svo mörg sumur á
Ferjubakka. Þar sem alltaf ríkti
samheldni, samvinna og vinnusemi.
Megi Guð styrkja þessa góðu
fjölskyldu, sem opnaði heimili sitt
fyrir okkur systrunum og bömun-
um okkar síðar meir.
Birna, Hrafnhildur og Elín
Rafnsdætur.
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
ÝMISLEGT
Lagerútsala
í dag, laugardaginn 4. september 1999, verður
lagerútsala haldin í Vatnagörðum 26,104
Reykjavíkfrá kl. 13—16 síðdegis.
Fjölbreytt vöruúrval verður á boðstólum, svo
sem raftæki: Hárþurrkur, rafmagnsofnar, tvö-
faldar kaffivélar á frábæru verði, rafmagns-
tannburstar og rakvélar, hraðsuðukönnur á
mjög góðu verði. Leikföng: Dúkkur, litabækur,
pússluspil, Disneylest, hjólaskautarfyrir3ja—6
ára á frábæru verði, Billiard- og poolborð og
margt fleira í leikföngum, boltar og sanddót...
Veiðarfæri: Sjóstangir, stangir, nokkrar flugu-
stangir, hjól, spúnar, flugulínur, flugubox,
spúnabox, veiðitöskur, önglar, hnýtingaönglar,
nælur, ódýrar vöðlur og stígvél.
Garðljós með spennubreyti örfá eintökeftir.
Servíettur, borðdúkar, plasthnífapör, vínkælar,
kaffibrúsar, nestistöskur með hitabrúsa fyrir
unga fólkið í skólann, leikskólann og útileguna.
Tungumálatölva. Vogir. Ódýrir verkfærakassar.
Nokkrar grillgrindur og grillgafflar. Þó nokkuð
af sýnishornum af ýmsum vörum, svo sem
útvörpum og ódýrir verkfærakassar af ýmsum
stærðum.
Missið ekki af þessu tækifæri og komið og
gerið góð kaup. Við tökum EURO og VISA
kredit- og debetkort.
KENNSLA
SJÓMANNASKÓLIÍSLANDS
STÝRIMANNASKÓLINN
í REYKJAVÍK
Verið velkomin
í sýningarbás Stýrimannaskólans í Reykjavík
á Sjávarútvegssýningunni, bás 12 í skála G.
Upplýsingar um námskeið og skipstjórnarnám
í Stýrimannaskólanum.
Sjávarútvegur og siglingar
eru íslendingum naudsyn.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík.
TILBOÐ / ÚTBQÐ
Tilboð óskast í 4 trésmíða-
vélar af Kamro-gerð
40 sm afréttari.
50 sm þykktarhefill.
Fræsari með áföstum tappaskurðarsleða.
Plötusög með hallandi blaði og fyrirskurði.
Auk þess ertil sölu Schleicher-dílaborvél með
6 borum.
Söngskólinn í Reykjavík
Skólasetning
Söngskólinn í Reykjavík
verður settur sunnudaginn 5. september kl.
15.00 í Tónleikasal skólans — SMÁRA — Veg-
húsastíg 7. Kennsla hefst mánudaginn 6. sept.
Kvöldnámskeið
hefjast 14. september. Innritun stenduryfir.
Upplýsingar á skrifstofu skólans, Hverfisgötu
45, daglega frá kl. 10.00 til 17.00, sími 552 7366.
Skólastjóri.
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast á ný 13. september og
verður kennt í Odda, Háskóla íslands. Boðið
er upp á byrjendahóp, þrjá framhaldshópa
og tvo talhópa. Innritað verður á kynningar-
fundi í Odda, Háskóla íslands, stofu 202, fimmtu-
daginn 9. september kl. 20.30. Upplýsingar eru
einnig veittar í síma 551 0705 kl. 17—19 á virkum
dögum. Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
Vélarnar verða til sýnis í húsnæði Verkmennta-
skólans á Akureyri í Þingvallastræti (í kjallara
byggingar háskólans) eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veita kennarar Byggingadeildar VMA
í síma 461 1720-214.
Tilboð óskast
Oskað er eftir tilboði í mótorhjól, Yamaha XVS
1100 Drag Star '99, skemmt eftir umferðar-
óhapp. Hjólið ertil sýnis í tjónaskoðunarstöð
Sjóvá á Draghálsi 14—16frá kl. 9—18 á mánu-
dag. Einnig er hægt að skoða myndir og gera
tilboð í hjólið á heimasíðu sjal.www.sjova.is.
TIL SÖLU
Fiskvinnsluvél
Til sölu Baader 51 roðflettivél.
Upplýsingar hjá fiskbúðinni Sæbjörgu,
Eyjarslóð 7.
Lagerútsala — barnavara
Dagana 2. til 5. september verður haldin lager- <
útsala á barnavöru í Smiðsbúð 8, Garðabæ.
Til sölu verða m.a. barnarúm, kerrur, kerru-
vagnar, bílstólar o.m.fl. Einnig verður mikið
úrval af barnafatnaði og leikföngum og skóla-
töskum.
Ath.: Allt að 50% afsláttur frá heildsöluverði I
Opið fimmtud. og föstud. frá kl. 11.00—17.00,
laugard. og sunnud. frá kl. 10.00 — 16.00.
Lagerútsalan, Smiðsbúð 8, Garðabæ.
-f
KENNSLA
BRIAN TRACY áfpllNTERNATIONAL
PHOENIX-námskeiðin
HÁMARKS ÁRANGUR
Kynningarfundur á
Hótel Loftleiðum
þriðjudag kl. 20:00.
Leiðbeinandi er
Sigurður Guðmundsson.
Sfmar: 557-2450 / 896-2450
Heimasíða: www.sigur.is
Netfang: sigurdur@sigur.is
í samvinnu við Innsýn
FÉLAGSLÍF
7=
ar
Haust á Þingvöilum
I september mun þjóðgarðurinn á
Þingvöllum bjóða upp á göngu-
ferðir með leiðsögn hvern laugar-
dag kl. 13.00. Hugað verður að
undirbúningi nátturunnar fyrir
komandi vetur, gengnar gamlar
smalagötur og rifjaðar upp sögur
af búsetu og mannlífi í Þingvalla-
hrauni. Gönguleiðirnar eru valdar
með það fyrir augum að hæfi
sem flestum en ætíð er þó nauð-
synlegt að vera vel skóaður og
gott er að hafa nestisbita með-
ferðis.
Laugardaginn 4. sept. verður
gengið í Skógarkot um Sand-
hólastíg. Gangan hefst við þjón-
ustumiðstöð þjóðgarðsins kl.
13.00 og tekur 2—3 klst. Þátttaka
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar í síma
482 2660.
Dalvegi 24,
Kópavogi.
Almenn samkoma í dag kl. 14.
Ræðumaður Helga R. Armanns-
dóttir. Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð laugard. 4. sept.
Frá BSÍ kl. 10.30 Bakaleiðin 7.
áfangi. Gengið frá Hveragerði að
Kolviðarhóli. Verð 1.600/1.700.
Helgarferðir
18.—19. sept. Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógarfossi á laugar-
degi, upp með Skógá og í Fimm- *
vörðuskála. Gengið i Bása næsta
dag.
16.—19. sept. Laugavegurinn,
hraðferð. Ekið í Landmanna-
laugar og gist þar. Á föstudegi er
gengið í Hvanngil og á laugar-
degi í Bása þar sem þátttakendur
taka þátt í uppskeruhátíð og
grillveislu.
Grill- og uppskeruhátíð í Bás-
um
Miðasala stendur yfir i hina ár-
legu Grill- og uppskeruhátíð í
Básum helgina 17.—18. sept-
ember. Grillveisla, gönguferðir,
varðeldur, sveitaball. Gist í skál-
um. Þátttaka tilkynnist á skrif-
stofu Útivistar.
Jeppadeild — dagsferð
Laugardaginn 11. sept. Stóra-
Laxá — Stöng. Ekið frá Flúðum _
inn Tungudal. Skoðuð Laxár- *
gljúfur o.fl.
Heimasíða: www.utivist.is
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferð 5. sept. kl.
13.00
Vindáshlið — Seljadalur — Foss-
árdalur. Um 3—4 klst. ganga um
skemmtilega þjóðleið úr Kjós í
Hvalfjörð. Verð 1.400 kr„ frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför frá
BSf, austanmegin og Mörkinni 6.
Spennandi haustferðir: Óvissu-
ferðin verður 10. —12. sept.
Haustlita- og grillveisluferð í
Þórsmörk 17.—19. sept. Pantið
og takið farmiða tímanlega.
Sjá ferðir á textavarpi bls. 619.