Morgunblaðið - 04.09.1999, Page 56
“56 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
,Geta 3% þjóðarinnar ráðstaf-
að hálendisperlum okkar?
í FJÖLMIÐLA-
UMRÆÐU undanfar-
inna daga hefur komið
fram að skv. skoðana-
könnunum eru 70%
Austfirðinga og nær
allir sveitarstjómar-
menn þeirra hlynntir
«É)frkjun og stóriðju í
fjórðungnum. Ibúar á
Austurlandi 1. des. sl.
voru 12.285, en á land-
inu öllu 275.264. Skv.
þessu búa 4,5% þjóðar-
innar á Austurlandi og
umræddur meirihluti
virkjunarsinna þar er
3% þjóðarinnar.
Pegar ráðstafa á
tveimur náttúruperlum á hálendi
Austurlands þannig að þær verða
skemmdar um ókomna framtíð
vegna virkjanaframkvæmda er von
að fleiri en Austfirðingar og kjömir
fulltrúar þeirra láti sig málið varða.
Sameign þjóðarinnar
Fram til þessa hefur íslenska
þjóðin talið sig eiga miðhálendi Is-
lands og náttúruperlur þess, en
þeim eignarétti er greinilega ógnað
um þessar mundir. Enginn sem
kynnir sér áform stjómvalda í
virkjunamálum þarf að velkjast í
vafa um það, að nái þau fram að
ganga mun Kárahnúkavirkjun
koma í kjölfar Fljótsdalsvirkjunar,
vegna kröfunnar um hagkvæmni og
stækkunarmöguleika fyrirhugaðs
álvers í Reyðarfirði. Þetta þýðir, að
^Eyjabökkum yrði sökkt og land-
spjöll unnin við rætur Snæfells. Síð-
an yrðu Dimmugljúfur eyðilögð
með gerð risastíflu
sem þaggaði niður í ár-
þúsunda söng þessara
fögm gljúfra.
Hörðustu virkjunar-
sinnar kalla þá sem
andmæla þessu öfga-
fólk. En ég spyr á móti
hvað skuli kalla þá sem
virðast fúsir tO að
fóma dýrmætustu
perlum íslenskrar
náttúra fyrir peninga?
Kemur einhverjum á
óvart, að leiðtogi ís-
lensku þjóðkirkjunnar
skuli velta fyrir sér
þeim andlegu verð-
mætum, sem í húfi
era? Hvað um rétt komandi kyn-
slóða og þjóðarvitund okkar?
Reiðir Austfirðingar
Þeir íbúar Austurlands sem berj-
ast fyrir áðumefndum virkjana-
framkvæmdum í landshlutanum
segjast reiðir þeim íbúum suðvest-
urhomsins, sem standa gegn þess-
um aðgerðum. Þeir telja sig eiga
rétt á virkjun og stóriðju og þeirri
efnahagslegu búbót, sem því fýlgir í
nánustu framtíð, þrátt fyrir fómar-
kostnaðinn.
En ég spyr á móti: Eiga 3% þjóð-
arinnar rétt á því að slíkar fórnir
séu færðar til að styrkja atvinnulíf
þeirra og fjárhag á næstu áram og
til að draga úr fólksflótta til höfuð-
borgarsvæðisins. Má þá fóma
hverri hálendisperlunni á fætur
annarri, ef nokkur þúsund manns
krefjast þess í nafni byggðastefnu?
Hafa ekki dæmin í öðram löndum
sýnt það, að stóriðja sem félagsleg
lausn til að stöðva fólksflótta úr
dreifbýli misheppnast oft gjörsam-
lega? Væri ekki skynsamlegra að
auka atvinnusköpun og efla sam-
göngur í landshlutanum með um-
fangsmildum framkvæmdum í
vegamálum, þ.á m. jarðgangagerð?
Væri ekki nær að verja litlu broti
af fjármögnunarkostnaði vegna
virkjana og stóriðju til bættrar
menntunaraðstöðu og heilbrigðis-
þjónustu?
Virkjanir
Þegar ráðstafa á tveim-
ur náttúruperlum á há-
-------7-------------------
lendi Islands þannig að
þær verða skemmdar,
segir Olafur F. Magn-
ússon, er von að fleiri
en Austfírðingar og
kjörnir fulltrúar þeirra
láti sig málið varða.
Samanlagður stofnkostnaður
vegna 120 þúsund tonna álvers á
Reyðarfirði og Fljótsdalsvirkjunar
er talinn 60 milljarðar króna eða 5
milljónir króna á hvern íbúa á öllu
Austuriandi. Stofnkostnaðurinn
verður miklu hærri þegar stækkun
álversins og Kárahnúkavirkjun
kemur til sögunnar.
Talað er um að annar áfangi
Noral-verkefnisins kosti 110 millj-
arða króna og þriðji áfangi 60 milij-
arða, en hann kallar á ýmsar
smærri virkjanir. Heildarkostnaður
verður þannig 230 milljarðar króna.
Þá nálgast stofnkostnaðurinn 20
milljónir króna á hvem íbúa Aust-
urlands. Oskandi væri að þessar
fjárhæðir nýttust Austfirðingum án
þess að valda jafnframt svo miklu
tjóni.
Fjölmargir íbúar höfuðborgar-
svæðisins, sem era á móti fyrirhug-
uðum virkjunum á Austurlandi, era
hvorki á móti virkjunum sem slíkum
eða stóriðju. Fyrirhugaðar virkjanir
stóra Jökulsánna tveggja á Austur-
landi fela hins vegar í sér margfalt
meiri náttúraspjöll en virkjanir á
Þjórsársvæðinu hafa gert. Það er
auðvitað Austfirðinga sjálfra að
ákveða hvort þeir vilji stóriðju í
landshlutann, en þá verður að finna
aðra og umhverfisvænni virkjunar-
kosti en nú era til umræðu. Jón Kri-
stjánsson, þingmaður Austfirðinga,
virðist ekki koma auga á þetta í
grein í Degi 31. ágúst sl.
Fyrirgreiðslupólitik
landsbyggðarþingmanna
Innlendir og erlendir aðilar með
hagsmuni tengda virkjunum og stór-
iðjuáformum hljóta að stuðla að því,
að áðumefnd virkjunaráform á Aust-
urlandi nái fram að ganga. En þessir
aðilar, sem og meirihluti Austfirð-
inga taka hagnaðinn af þessum
framkvæmdum fram yfir fómar-
kostnaðinn, sem felst aðallega í stór-
spilltri náttúra Islands og særðu
hjarta meirihluta þjóðarinnar.
Um árabil hafa sumir þingmenn
Ólafur F.
Magnússon
landsbyggðarinnar notað fjárveit-
ingar Alþingis sem nokkurs konar
kosningasjóði til að tryggja sér end-
urkjör. Miðað við þær fjárhæðir,
sem um er að tefla vegna fyrirhug-
aðra stóriðju- og virkjanafram-
kvæmda á Áusturlandi, verða fyrri
dæmi að hreinu lítilræði. Þingmenn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks á Austurlandi geta því farið
að hlakka til næstu kosninga.
Verstur finnst mér hlutur Hall-
dórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins, í málinu.
Sem fyrsti þingmaður Austurlands
og annar oddvita ríkisstjórnarinnar
beitir hann sér af vægðarlausri
hörku fyrir framgangi þessara
virkjanaframkvæmda. Hann býður
að Dettifossi og Þjórsárveram skuli
hlíft en vill í staðinn fá að virkja í
friði við Eyjabakka og Kárahnúka.
Fyrir nokkram áram töldu lands-
menn fiskinn í sjónum kringum Is-
land sameign sína. Sú sameign
þjóðarinnar hefur verið tekin frá
henni. Miðhálendi Islands er enn
sameign þjóðarinnar í huga lands-
manna. Sú tilfinning glatast ef svo
fer fram sem horfir í virkjanamál-
um. Er nema von að landsmenn
bregðist hart við, þegar taka á af
þeim bæði landið og miðin?
Undirskriftasöfnun nauðsynleg
En landsfeðumir virðast ekki
ætla að hlusta á mótmæli þjóðarinn-
ar.
Slegið er á útrétta sáttahönd
hennar, þegar hún býður stjóm-
völdum þá málamiðlun, að fram fari
umhverfismat vegna fyrirhugaðra
virkjunarframkvæmda skv. lögum
sem tóku gildi 1. maí 1994. Því er
eina úrræði hennar að skjalfesta
mótmæli sín með undirskriftasöfn-
un. Slíka óformlega atkvæða-
greiðslu getur ríkisstjómin ekki
virt að vettugi.
Höfundur er læknir og borgurfull-
trúi f Reykjavfk.
Óvænt úrslit
í landsliðs-
flokki
8KAK
lteykjavík
SKÁKÞING ÍSLANDS
31.8-11.9 1999
AHORFENDUR geta ekki
kvartað yfir lognmollunni í lands-
liðsflokki á Skákþingi Islands sem
hófst á þriðjudaginn. Einungis fjór-
um skákum hefur lokið með jafn-
tefli í fyrstu þremur umferðunum.
Taflmennskan hefur verið afar líf-
leg og margar stuttar og snarpar
f vinningsskákir hafa litið dagsins
ljós. Þá er einnig töluvert um
óvænt úrslit.
í fyrstu umferð vakti skák þeirra
Sævars Bjamasonar og Þrastar
Þórhallssonar mesta athygli. Sæv-
ar sótti að kóngi Þrastar án þess þó
að veraleg hætta virtist á ferðum.
Þá lék Þröstur illa af sér í 36. leik
og Sævar átti þvingað mát í fimm
leikjum. Tímahrakið hefur þó lík-
lega leitt til þess að hann missti af
vinningsleiðinni. Þröstur slapp því
með skrekkinn og skákinni lyktaði
með jafntefli eftir 58 leiki.
I annarri umferð var Þröstur
ekki eins heppinn þegar hann
mætti Róberti Harðarsyni eins og
sjá má í skákskýringum Braga Kri-
stjánssonar hér í þættinum.
I þriðju umferð urðu óvæntustu
úrslitin þegar Bjöm Þorfinnsson
sigraði Jón Viktor Gunnarsson.
Teflt er í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur að Faxafeni 12. Á
virkum dögum hefjast umferðir
klukkan 17, en um helgar klukkan
14. Ekki verður teflt mánudaginn
6. september.
Góð aðstaða er fyrir áhorfendur
og miðað við þær umferðir sem lok-
ið er má búast við spennandi skák-
um í hverri umferð. Skáksamband
íslands hefur fengið styktaraðila
fyrir hveija umferð, þannig að að-
gangur er ókeypis. Fyrsta umferð-
in var í boði VISA Island. Önnur
umferðin var síðan í boði Hreyfils,
en Taflfélag Hreyfils var stofnað
1954 og var lengi einn af máttar-
stólpum skáklistar í Reykjavík.
Þriðja umferðin var í boði Esso.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Róbert Harðarson
Petrovsvöm
I. e4 - e5 2. Rf3 - Rf6 3. Rxe5 - d6
Svartur má ekki flýta sér of mikið:
3.----Rxe4? 4. De2 og hvítur vinn-
ur a.m.k. peð. 4. Rf3 - Rxe4 5. d4 -
d5 6. Bd3 - Be7 7. 0-0 - Bg4 8. Hel
- Rc6 9. c3 - f5 10. Db3 - 0-0 11.
Rfd2? - -
Sjá stöðumynd.
Þresti verður illa á í messunni í
þekktri stöðu. Hann má varla eyða
tíma í að drepa á b7, t.d. 11. Dxb7 -
Hf6 12. Db3 - Hb8 13. Dc2 - Hg6
14. Be2 - Bd6 15. Rbd2 - Df6 og
hvítur á mjög erfitt að losa um sig,
t.d. 16. c4? - Rxd4 17. Dd3 - Bc5
18. Rxd4 - Rxf2! 19. Kxf2 - Bxd4 +
20. Kfl - Dh4 með vinningsstöðu
fyrir svart. Hvítur hefði best leikið
II. Rbd2 í stöðunni.
11.---Rxf2! 12. Bfl----Ljubomir
Siv Friðleifsdóttir leikur fyrsta leiknum í landsliðsflokki.
Dxd5+ - Dxd5 20. Bxd5+ - Kh8
og svartur vann 8 leikjum síðar.
12. - - Bd6! 13. Dxd5+ - - Hvítur
má heldur ekki drepa riddarann í
þessari stöðu, 13. Kxf2 - Dh4+ 14.
g3 - Dxh2+ 15. Bg2 - f4! og hvítur
er vamarlaus. 13.----Kh8 14. Bc4
- Bxh2+! Róbert teflir skákina af
mildum krafti og gefur Þresti eng-
in færi á að bjarga sér úr klípunni.
15. Kfl----
Hvítur má hvoragan manninn taka:
15. Kxh2 - Dh4+ 16. Kgl - Rh3+
17. gxh3 - Dxel+ eða 15. Kxf2 -
Dh4+ 16. Kfl - Bg3 17. Rf3 -
Dhl+ 18. Rgl - Bxel o.s.frv. 15. —
- Dh4 16. Rf3 - Bxf3 17. Dxf3 -
Bg3 18. Be3 - Rg4! 19. Bgl - Bxel
20. Ra3 - Hae8 21. Rc2 - Bg3
og hvítur gafst upp, því að hann á
heilum hrók minna en andstæðing-
urinn.
Skákæfingar barna
og unglinga að hefjast
Eins og venja er til fer unglinga-
starf taflfélaganna af stað í septem-
ber. Taflfélag Reykjavíkur verður
Ljubojevie, sterkasti skákmeistari
Júgóslava um langt árabil, lenti í
þessari stöðu í skák við Makar-
ítsjev í Amsterdam 1975. Ljúbó tók
riddarann og tapaði öragglega: 12.
Kxf2 - Bh4+ 13. g3 - f4! 14. Kg2
(14. gxh4 - Dxh4+ 15. Kfl - Bh3+
16. Ke2 - Hae8+ með sterkri sókn)
14.----fxg3 15. Be4 (15. hxg3 -
Bxg3 16. Kxg3 - Dg5) 15.-------
Bh3+! 16. Kgl (16. Kxh3 - Dd7+
17. Kg2 - Hf2+) 16.--gxh2+ 17.
Kxh2 - Dd6+ 18. Khl - Bxel 19.
með æfingar á laugardögum klukk-
an 14 að Faxafeni 12. Æfingamar
era opnar öllum 14 ára og yngri og
þátttaka er ókeypis.
Bama- og unglingaæfingar Tafl-
félagsins Hellis hefjast svo á mánu-
daginn klukkan 17:15 og verða
haldnar vikulega í vetur. Þátttaka
er einnig ókeypis, en æfingarnar
era opnar öllum bömum og ung-
lingum á grannskólaaldri. Nánari
upplýsingar má finna á heimasíðu
Hellis: www.simnet.is/hellir.
Verðlaun verða veitt fyrir besta
ástundun og mestar framfarir auk
annarra verðlauna.
Atkvöld hjá Helli á mánudag
Taflfélagið Hellir heldur atkvöld
mánudaginn 6. september og hefst
mótið kl. 20. Mótið er haldið í Hell-
isheimilinu, Þönglabakka 1 í
Mjódd.
Fyrst era tefldar 3 hraðskákir
þar sem hvor keppandi hefur 5
mínútur til að ljúka skákinni og síð-
an þrjár atskákir, með tuttugu
mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá er
einnig happdrætti í lok mótsins þar
sem verðlaunin era máltíð fyrir tvo
hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir
jafna möguleika, án tillits til árang-
urs á mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn Hellis (kr. 200 fyrir 15
ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra
(kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Allir
eru velkomnir.
Síðasta atkvöld Hellis var haldið
í ágúst. Þá sigraði Sigurður Daði
Sigfússon, en Björn Freyr Björns-
son varð í öðra sæti.
Vinsældir atkvöldanna hafa vax-
ið mikið á þessu ári og sérstaka at-
hygli vekur hversu vel þau era sótt
af sterkum skákmönnum.
Skákmót á næstunni
12.9. Hellir. Kvennamót kl. 13
13.9. Hellir. Þemamót kl. 20
Daði Orn Jónsson
Róbert Harðarson