Morgunblaðið - 04.09.1999, Side 62
62 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
Smáfólk
NO, I CAN'T COME YOU TRY TO 00 T00 MAYBE YOU'RE SEE7IFYOU RELAX NOOO
OUT,SIR..I MAVE TO MUCH.MARCIE..SOMEDAY RI6MT.. l'LL 0 AND THEN,YOURHEAD
PRACTICE THE VIOLIN.. YOUR MEAP15 60IN0 CÖME OUT FOR § WON'T FALL OFF..
«| j/ 1— TO FALL OFF.. A WHILE.. iF ■——. __—
~r iu 1 1 1 § f) & I 3 _œ í 7-23
Nei, ég get ekki komið út Þú reynir að komast yfír of Ef til vill er þetta Sjáðu? Ef þú slappar af öðru
herra... ég þarf að æfa margt, Magga... Fyrr en varir rétt hjá þér.. hvoru þá mun hausinn á þér
mig á fiðluna... á hausinn á þér eftir Ég kem út ekki detta af...
að detta af.. í smástund..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vanþekking eða
vesalmennska
Frá Árna Helgasyni:
FYRIR nokkrum vikum birtist í
Morgunblaðinu grein sem nefndist
Afgreiðslutími og öngþveiti, höfund-
ur sagður vera framkvæmdastjóri
Afengis- og vímuvamaráðs. Með
nokkurri forvitni hóf ég að lesa
greinina og bjóst við að þama kæmi
fram skýr andstæða við vesaldóm
og undirlægjuhátt borgarstjómar
gagnvart áfengisgróðalýðnum.
En því miður. Ekkert í greininni
bar því vitni að hún væri skrifuð af
persónu með meiri þekkingu á
áfengismálastefnu og af dýpri sið-
ferðilegri alvöra en kemur fram hjá
vitsmunavemnum Helga Hjörvari
og Guðlaugi Þórðarsyni. En sem
kunnugt er leitast minnihluti borg-
arstjómar við að komast fram úr
meirihlutanum í tilraunum hans til
að breyta sem stærstum hluta mið-
bæjarins í allsherjar bjórsjoppu-
hverfi með tilheyrandi sóðaskap
viðskiptavina bjórgreifanna og
svefnleysi íbúa.
Framkvæmdastjórinn nýi leggur
tO að við bíðum róleg og látum
rannsaka afleiðingamar. Mér er
spum: Veit framkvæmdastjórinn
ekki að slíkar rannsóknir á af-
greiðslutíma hafa þegar verið gerð-
ar? Niðurstöðurnar birtast í hnot-
skurn í bók 17 þekktustu vísinda-
manna heims á sviði áfengisrann-
sókna. Bókina gaf Hedbrigðisstofn-
un Sameinuðu þjóðanna út fyrir
nokkmm áram og hefur látið end-
urprenta hana. Þar er stytting af-
greiðslutíma talin meðal hinna
raunhæfustu áfengisvama. Því er
óþarfi að gera tilraunir á Reykvík-
ingum.
Ekki virðist framkvæmdastjórinn
hafa lesið ritgerðir Tómasar Helga-
sonar prófessors. Ef hún hefur hins
vegar lesið þær hefur hún annað-
hvort ekkert skdið eða talið sig vita
betur en dr. Tómas.
Framkvæmdastjórinn segir að
það ætti „að koma fram í innflutn-
ingi, framleiðslu og sölu á áfengi ef
áfengisneysla breytist svo einhverju
nemi“. Veit framkvæmdastjórinn
ekki að löggjafinn breytti áfengis-
lögum á þann veg fyrir nokkram
misseram að nú er löglega innflutt
áfengi ekki lengur merkt? Gróða-
pungamir geta því auðveldlega selt
smyglvaming án þess að upp kom-
ist. Kannski treystir framkvæmda-
stjórinn heiðarleika og siðferðis-
þreki þeirra jafnvel og þeir alþing-
ismenn sem samþykktu að breyta
lögum á þennan veg.
„Það verður að spyrja að leikslok-
um,“ segir framkvæmdastjórinn.
Hvaða leikslokum? Lýkur hrá-
skinnsleik áfengisframleiðenda með
lífi og heOsu fólks nokkumtíma? Er
ekki besta sönnunin fyrir því að
stuttur afgreiðslutími og fáir sölu-
staðir era af hinu góða að áfengis-
salarnir viija sem lengstan af-
greiðslutíma og sem flesta sölu-
staði? Markmið þeirra er aukinn
gróði. Þarf frekari vitna eða rann-
sókna við?
Mér varð á að hugsa eftir lestur
greinarinnar að raunar væri lík-
legra að hún væri samin á skrifstofu
veitingahúsaeigenda en í höfuð-
stöðvum Afengis- og vímuvarna-
ráðs. Kannski stefna heilbrigðisráð-
herra sé sú að sameina þetta
tvennt? Þá yrði skrattanum
skemmt, jafnvel enn betur en nú.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Hvað er í gangi?
Frá Kristjáni Ragnari Ásgeirssyni:
ÞAÐ SÆRÐI mitt litla lands-
byggðarhjarta að þurfa að keyra
60 km til Akureyrar til að fara á
heimaleik Leifturs frá Ólafsfirði
26.8. 1999. Einhverra annarlegra
manna vegna varð Leiftur að yfir-
gefa völl sinn og fara tO Akureyrar
eða Reykjavíkur skv. tilmælum
KSÍ, þar sem Ólafsfjarðarvöllur
hafði ekki nógu fína stúku fyrir
undankeppni UEFA bikarsins. Ég
sat nú í þessari kuldalegu stein-
steypu ásamt litlum frændsystkin-
um mínum sem sum hver vora ná-
lægt því að stórslasa sig við leik
sinn, því eins og alþjóð veit leika
litlir krakkar sér oft í stúku á með-
an á leik stendur.
í heimsókn forráðamanna And-
erlecht tO Ólafsfjarðar mátti heyra
undranarraddir þeirra yfir að fá
ekki að spila á Ólafsfjarðarvelli.
Þeim fundust aðstæður frábærar
og stúkan flott. Þegar spurning-
unni var varpað fram hvers vegna
þeir spiluðu ekki á vellinum; ypptu
menn öxlum og bentu á KSI. Tveir
fulltráar KSÍ ypptu öxlum og
bentu á eftirlitsdómara UEFA, eft-
irlitsdómari UEFA tók ekki eftir
þessum axlaæfingum, dáleiddur af
vellinum.
Nú spyr ég hvað í ósköpunum
era þeir hjá KSÍ að æfa? Þeir virð-
ast vera búnir að stimpla þennan
völl og FIFA hefur sennilega ekk-
ert á móti honum. Það skal engan
undra að fólk flýi landsbyggðina ef
það á að banna alla afþreyingu þar.
Ég mótmæli þessu harðlega og
krefst þess að þessum flottræfils-
hætti linni. Knattspyma er leikur.
Hamburger SV mátti leika á Ólafs-
fjarðarvelli fyrir 2 áram án nokk-
urra vandkvæða, og mátti heyra
ánægjuraddir þá líka yfir vellinum
og stúkunni. Ég vO endilega fá
skýringu á því hvað sé betra við
steinsteypustalla með aumum
spítubekkjum en grasbrekkustalla
sem víða hafa gagnast lengi við
góðan orðstír.
KRISTJÁN RAGNAR
ÁSGEIRSSON,
Hlíðarvegi 51, Ólafsfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.