Morgunblaðið - 04.09.1999, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Norrænir bygginga-
dagar í Reykjavík
RÁÐSTEFNA undir heitinu Nor-
rænir byggingardagar í Reykjavík
verður haldin dagana 5.-8. septem-
ber nk. Þekktir fyrirlesarar munu
koma fram og farið verður í vett-
vangsferðir. Skyggnst verður inn í
næstu öld með hönnun, byggingar-
iðnað og skipulag í huga. Forseti ís-
lands, Olafur Ragnar Grímsson, er
vemdari ráðstefnunnar og frú Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrum forseti
Islands, er heiðursfyrirlesari.
Samtökin Norrænn byggingar-
dagur eru fjölmennustu samtök á
Norðurlöndunum sem hafa starfað
sjálfstætt í anda norrænnar sam-
vinnu frá árinu 1927. Það ár var
einmitt haldin ráðstefna í Stokk-
hólmi þar sem Nordisk byggdag var
stofnað. Þeir sem geta orðið aðilar
að NBD eru sveitarfélög, opinberar
stofnanir, landssamtök fagmanna,
félagasamtök og verktakar. Auk
þeirra geta aðrir sótt um aðild svo
framarlega sem þeir hafa áhuga á
norrænni samvinnu á sviði húsnæð-
is-, skipulags- og byggingamála,
bættum byggingarháttum, meiri
framleiðni, hagvexti og framfómm í
byggingariðnaði.
Fyrsta ráðstefna Norræna bygg-
ingardagsins NBD 10 var haldin í
Reykjavík 1968 og komu þá yfir 700
gestir frá hinum Norðurlöndunum
en nálguðust þúsund árið 1983 þeg-
ar NBD 15 var haldin í Reykjavík,
þessar ráðstefnur vom á sínum
tíma þær fjölmennustu sem haldnar
höfðu verið á íslandi, segir í frétta-
tilkynningu.
Efling mótmælir
bensínhækkun
EFLING - stéttarfélag skorar á
stjómvöld að lækka sinn hlut í
bensínhækkuninni sem skellt
var á bifreiðaeigendur 1. sept-
ember sl.
„Sá alvarlegi hlutur sem er að
gerast með þessum hækkunum
snertir allt launafólk í landinu
þar sem áhrif hækkunarinnar
munu hafa áhrif á lánskjaravísi-
tölu og þar með leiða til hækk-
unar á skuldum heimilanna.
Aætlað er að sú hækkun muni
nema 4-5 milljörðum vegna
hækkana bensíns frá áramótum.
Stór hluti félagsmanna í Efl-
ingu - stéttarfélagi er á föstum
launatöxtum og hefur ekki feng-
ið hluta þess launaskriðs sem átt
hefur sér stað í samfélaginu.
Þeir hópar standa verst gagn-
vart slíkum hækkunum.
Efling - stéttarfélag skorar
jafnframt á stjórnvöld að endur-
skoða allan verðlagsgmndvöll
bensíns þar sem mikil fjölgun
bifreiða er að skila verulega
auknu fjármagni í ríkissjóð.
SkatÚagning ríkisins á alla
liði er varða bifreiðar eru alltof
miklar þar sem bifreið í íslensku
samfélagi er fyrir löngu orðin al-
menningseign.
Almenningssamgöngur á Is-
landi eru með þeim hætti að fólk
verður að hafa bifreið. Almenn-
ingur mun því bregðast við þess-
ari hækkun m.a. við gerð kom-
andi kjarasamninga þar sem
þessi mál munu vega þungt.
Efling - stéttarfélag skorar
því á stjórnvöld að bregðast
fljótt við,“ segir í ályktun Efl-
ingar.
Námskeið í leiklist
og talsetningu
HLJÓÐSETNING ehf. býður
upp á leiklistar- og talsetningar-
námskeið fyrir alla aldurshópa.
Þátttakendur fá að kynnast leik-
rænni tjáningu, spuna, söng, tal-
setningu teiknimynda, upptöku í
hljóðveri og upptöku tónlistar-
myndbanda.
í lok hvers námskeiðs fá þátttak-
endur viðurkenningarskjal ásamt
myndbandsspólu sem á er stutt
teiknimynd talsett af hópnum sem
og tónlistarmyndband þar sem
þátttakendur leika og flytja þekkt
lag. Miðað er við að ekki séu fleiri
en 10 í hverjum hópi.
Helstu kennarar á námskeiðun-
um eru Jakob Þór Einarsson, Guð-
finna Rúnarsdóttir, Ingrid Jóns-
dóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir og
Pálmi Sigurhjartarson. Námskeið-
in standa yfír í 8 vikur en þátttak-
endur mæta einu sinni í viku og
eru þá í 2 klst. hverju sinni. Nám-
skeiðin hefjast 20. september nk. í
húsnæði Hljóðsetningar, Lauga-
vegi 163. Skráning fer fram dagana
6.-10. september kl. 10-17.
TILBOÐ A
LÖNGUM LAUGARDEGI
Teg. SHOOX 3351 j
Verð: Áður kr.
995,-
D0MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reyfcjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
':ýf? -.:
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Varnaðarorð
NU þegar Austfirðingar
hafa stofnað félag, sem
hefur það eitt að markmiði
að koma Eyjabökkum und-
ir vatn, er þá ekki ráð að
minnast varnaðarorða eins
merkasta Austfirðings
þessarar aldar, Vopnfirð-
ingsins, dr. Sigurðar heit-
ins Þórarinssonar, er hann
segir: „Því er nú mjög á
lofti haldið og vissulega
með veigamiklum rökum,
að í fossum landsins búi
nokkuð af framtíð okkar
þjóðar er byggist á þeim
verðmætum sem mældar
eru í kílóvattstundum en
þar við liggur einnig brot
af framtíðarhamingju
þjóðarinnar að hún gleymi
því ekki að í fossum lands-
ins búa einnig varðmæti
sem ekki verða metin til
fjár en mælast í unaðs-
stundum."
Hvað skyldu margir
austfirskir foreidrar ala þá
von í brjósti að böm þeirra
menntí sig til starfa í
kerskála álvers?
Grétar Eiríksson,
tæknifræðingur.
Sérkennilegt samtal
ÞAÐ var býsna sérkenni-
legt samtal Kolbrúnar við
Thor Vilhjálmsson sl.
sunnudag þar sem
handapatið lék stórt hlut-
verk. Hvers vegna gleymdi
hún að fræðast um áratuga
trúboð rithöfundarins í
þágu Stah'ns á íslandi? Var
nokkur ástæða tii að fela
þennan rauða og róttæka
þátt í hfshlaupi skáldsins?
Forvitinn.
Um rúgbrauð
UM daginn var umræða
um að rúgbrauð í verslun-
um væru orðin svo sæt að
þau líktust helst sæta-
brauði. Eg hef lent í því að
kaupa svoleiðis rúgbrauð
en ef fólk vill ekki sætt
rúgbrauð fást rúgbrauð
sem eru ekki sæt hjá
Sandholt á Laugavegi.
Svo vildi ég gjaman fá
að vita hvort einhver tekur
að sér að brýna skæri og
hnífa. íslendingar em ekki
nógu duglegir láta brýna
áhöldin sín.
Stella.
Hávaði við Kringluna
ÍBÚI í nágrenni Kringl-
unnar hafði samband við
Velvakanda og var hann
óánægður með þann há-
vaða sem skapast af fram-
kvæmdunum við Kringl-
una. Sagði hann að íbúum
hefði verið sagt að eftir 1.
september yrði þessum
hávaðasömu framkvæmd-
um lokið en það bólar ekk-
ert á þögninni.
Slæm þjónusta
ÁSLAUG Bima hafði sam-
band við Velvakanda og
sagðist hún óánægð með
þjónustu sem hún hefði
fengið hjá Naglastofu Kol-
brúnar í Hafnarfirði. Sagði
hún að gervineglur sem
hún fékk sér hefðu dottið
fljótlega af og hefði henni
verið sýnt leiðinlegt við-
mót af starfsmanni þegar
hún kvartaði.
Tapað/fundið
Gullhringur í óskilum
GULLHRINGUR fannst í
bíl frá Hópbflum miðviku-
daginn 29. ágúst. Upplýs-
ingar í síma 555 4119 eða
560 7245.
Úr í óskilum
ÚR fannst í Seljahverfi
fyrir u.þ.b. mánuði. Upp-
lýsingar í síma 557 6843.
Bolti týndist í Atlavík
BOLTI, appelsínugulur
merktur Sara, týndist í
Atlavík fyrir nokkmm vik-
um. Þeir sem kannast við
að hafa séð boltann hafi
samband í síma 487 5118.
Dýrahald
Springer Spaniel-tík
týndist á Suðurlandi
SJÖ MÁNAÐA tík af
Springer Spaniel-kyni
týndist í Landsveit á
sunnudag. Sama dag sást
til hennar á Rangárvöllum
og í Fljótshlíð um kvöldið
þannig að hún getur verið
komin langt frá upphafs-
stað. Hún er dökkbrún og
hvít með síð lafandi eyru
og græna ól. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar
vinsamlega hafið samband
í síma 554 0162, 698 8244
eða 855 0462. Fundarlaun.
Kettlingar fást gefins
ÓMÓTSTÆÐILEGIR
kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma
564 1348 um helgina og
eftír kl. 16 næstu daga.
Köttur í óskilum
GRÁBRÖNDÓTTUR
kettlingur, 5-6 mánaða,
með hvítar loppur, hvíta
bringu og hvítan maga, er í
óskilum í austurbæ Kópa-
vogs. Upplýsingar í síma
554 6126.
Páfagaukar og búr fást
gefins
PÁFAGAUKAR og tvö
búr fást gefins. Upplýsing-
ar í síma 5861206 eða
586 1158.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu kr.
3.633 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna. Þær heita Lilja Guðmundsdóttir, ísey Jökuls-
dóttir, Heiða Guðmundsdóttir og Karen Knútsdóttir.
Morgunblaðið/Þorkell.
Þessir duglegu krakkar söfnuðu með tombólu kr.
2.450 til styrktar Rauða krossi íslands. Þau heita
Margrét Daðadóttir, Dagný Yrsa Eyþórsdóttir, Ingi-
björg Sólrún Ágústsdóttir og Ægir Eyþórsson.
Víkveiji skrifar...
YÍKVERJI er, eins og sjálfsagt
flestir bifreiðaeigendur, fjúk-
andi vondur út af bensínhækkuninni
sem varð nú í vikunni. Neytendur
virðast gjörsamlega varnarlausir
gegn þessu bensínokri, sem við-
gengst hér á landi og hefur gert ára-
tugum saman. Og alltaf eru rökin
þau að um sé að kenna hækkun á
heimsmarkaðsverði. Þegar heims-
markaðsverð á bensíni hins vegar
lækkar skilar það sér yfirleitt seint
og illa út í verðlagið, og jafnvel alls
ekki. Þá eru alltaf „til svo miklar
birgðir af bensíni í landinu", ef Vík-
verji man frasann rétt.
Víkverji biðst forláts ef hann fer
hér með fleipur, en hann man bara
ekki eftir því að bensínverð hafi
nokkru sinni lækkað, svo orð sé á
gerandi. Nú hækkar það hins vegar
um rúmlega fimm krónur á lítrann
og munar um minna. Látum vera
þótt olíufélögin þurfi örlitla hækkun
vegna hækkunar á heimsmarkaðs-
verði. En hafa menn gert sér grein
fyrir því að af þessum fimm krónum
tekur ríkið þrjár krónur. Af himin-
háu bensínverði sem íslendingar
hafa löngum þurft að greiða tekur
ríkið 70% í skatta. Þetta er svívirða
sem bifreiðaeigendur eiga ekki að
láta bjóða sér lengur. Tökum hönd-
um saman, leggjum einkabflunum í
nokkrar vikur, tökum strætó í vinn-
una, göngum eða hjólum. Ef það
dugir ekki þá tökum við þetta mál
upp í næstu kosningum. Kannski það
sé eina ráðið til að koma við kaunin á
þessum kónum.
XXX
ÓFLEGA drukkið vín gleður
mannsins hjarta, segir gamalt
grískt spakmæli, líklega komið frá
einum af spekingunum sem gengu
um torg Aþenu hinnar fornu og jusu
úr brunnum visku sinnar. Víkverji
vill síst af öllu hvetja til aukinnar
áfengisneyslu með skírskotun til
þessara spakmæla og leggur áherslu
á að þarna segir: „Hóflega drukkið
vín...“ En þessi orð rifjuðust upp fyr-
ir Víkverja er hann las nýverið grein
í erlendu tímariti þar sem því er gert
skóna að hófleg bjórneysla sé af hinu
góða og jafnvel heilsubætandi.
Á undanfómum árum hafa margar
lærðar greinar verið skrifaðar um
léttvín og heilsubætandi áhrif þeirra,
sé þeirra neytt í hófí. Er því jafnvel
haldið fram að tvö rauðvínsglös að
kveldi, fyrir svefn, séu allra meina
bót. I áðurnefndri blaðagrein um
bjórinn er svipuðum skoðunum hald-
ið á lofti og enn skal undirstrikað að
hér er miðað við hófdrykkju. Það em
hins vegar mörg sorgleg dæmi um
að mörgum hefur reynst erfítt að
feta hinn gullna meðalveg í þeim efn-
um og þá er verr af stað farið en
heima setið.
Við lestur bjórgreinarinnar títt-
nefndu rifjaðist upp fyrir Víkverja
að Halldór Laxness skrifaði grein
árið 1977, á þeim tíma þegar bjór var
enn „krímínaliséraður" hjá okkur ís-
lendingum, um hollustu bjórdrykkju.
Nóbelskáldið vitnaði þar í ritgerð
sem birst hafði í blaðinu „Sudd-
eutsche Zeitung" og fjallaði um bjór
í heilsubótarskyni. I grein sinni segir
Halldór meðal annars:
„Bjór hefur sérstöku hlutverki að
gegna hjá taugaveikluðu fólki sem
þjáist af hugaræsíngu og of miklu
vinnuálagi samfara tilhneigíngu til
svefnleysis. I þessu falli kemur
sterkur bjór einfaldlega til greina
sem lyf. Meðal fólks sem hart er
leikið af svefnleysi, svo nauðsynlegt
hefur þótt að fyrirskipa því róandi
lyf eða jafnvel svefnmeðul, má draga
úr meðalagjöf, alt niðrí örsmáa
skamta, ef bjór er drukkinn jafn-
framt (sé um líffæralegan sjúkdóm í
taugakerfinu að ræða gilda að vísu
ekki almennar reglur).“
Svo mörg voru þau orð Halldórs
Laxness og eru þau birt hér mönn-
um til umhugsunar og án ábyrgðar.
Og enn og aftur skal undirstrikað að
fari bjórdrykkjan úr böndunum er
viðbúið að hollusta mjaðarins snúist
upp í andhverfu sína.