Morgunblaðið - 04.09.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 65V
í DAG
BRIDS
Umsjón Giiómundiir
l'áll Arnarsnn
SUÐUR tekur sjálfviljugur
að sér það verkefni að spila
sjö spaða, svo það er eins
gott að hann standi sig.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
* AD3
V Á76
* Á842
* ÁDG
Suður
* KG987654
v D8
♦ D3
*9
Vestur Norður Aushu’ Suður
— — — 4 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 lauf
Pass 5 grönd Pass 7 spaðar
Pass Pass Pass
Utspil vesturs er tromp.
Hvernig myndi lesandinn
spila og hvernig þarf legan
að vera ef slemman á að
vinnast?
Atta slagir á tromp og
þrír ásar gera ellefu.
Laufsvíning gæti gefið þann
tólfta, en úrslitaslagurinn
verður að koma með kast-
þröng. Besti möguleikinn er
sá að vestur sé með lauf-
kóng og annan rauða kóng-
inn a.m.k. til viðbótar. Rétta
úrvinnslan er þá sú að taka
á rauðu ásana stax og spiia
síðan öllum spöðunum. I
þriggja spila_ lokastöðu á
suður eftir ÁDG í laufi í
blindum, en heima tvær
rauðar drottiningar og eitt
lauf. Hafi vestur byijað með
laufkóng og hjarta- eða tíg-
ulkóng, verður hann að fara
niður á kónginn annan í
laufinu, sem þýðir að litur-
inn gefur þrjá slagi með
svíningu.
Norður
* AD3 V Á76 * Á842 * ÁDG
Vestur Austur
♦ 10 A 2
*G94 V K10532
♦ G765 ♦ K109
* 76543 * K1082
Suður A KG987654 VD8 ♦ D3 + 9
Svona var legan hins veg-
ar í reynd. Austur átti alla
kóngana og varð að fara
niður á þrennuna í lokastöð-
unni. Ef sagnhafi spilar
samkvæmt áðurrakinni
áætlun og svínar, fer
slemman þrjá niður, en því
miður fyrir vörnina hafði
vestur hent öllum laufum
sínum til að standa vörð um
gosana sína tvo. Þegar
sagnhafi spilaði iaufi í lokin
og vestur fylgdi ekki lit, var
einfalt að stinga upp ás og
fella kónginn fyrir aftan.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrii’vara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunlilaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Q ÁRA afmæli. í dag,
övl laugardaginn 4. sept-
ember, verður áttræður Ás-
mundur Friðrik Daníels-
son, flugvélstjóri. Eigin-
kona Ásmundar er Elsa
Magnúsdóttir. Hann er að
heiman.
H' f \ ÁRA afmæii. Næst-
I vl komandi miðvikudag,
8. september, verður sjö-
tugur_ Paul D.B. Jóhanns:
son, Ásgarði 2, Garðabæ. I
tilefni þess mun hann,
ásamt eiginkonu sinni,
Elínu Ellertsdóttur, taka á
móti ættingjum og vinum í
dag, laugardaginn 4. sept-
ember, í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ, kl.
15-18.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Noregi 29. maí sl.
Tone Lise Ommedal og Sig-
urður Svavar Skúlason.
Heimili þeirra er í Bryne,
Noregi.
Ljósmynd: Hugskot.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman í Árbæjarkirkju af
sr. Guðmundi Þorsteinssyni
Helga Pálína Sigurðardótt-
ir og Bjarni Haraldsson.
Heimili þeirra er að Fýls-
hólum 3, Reykjavík.
SKÁK
Unisjón Margcir
l'ótiirsson
STAÐAN kom upp
á Skákþingi Is-
lands sem nú
stendur yfir í skák-
miðstöðinni Faxa-
feni 12. Helgi Áss
Grétarsson (2.495)
var með hvítt og
átti leik, en Sigur-
björn Björnsson
(2.315) hafði svart.
25. Dh4! - Bxf2 26.
Rfd5+ - Kf8 27.
Dh6+ - Ke8? (27. -
Dg7 var betri vörn,
en þá stendur hvít-
ur einnig til vinn-
ings eftir 28. Dd6+ - Kg8
29. Re7+ og hvort sem
svarti kóngurinn fer á h7
eða h8 þá leikur hvítur
30. Df4 og vinnur) 28.
Dxc6+ og svartur gafst
upp.
Hvítur leikur og vinnur.
LJOÐABROT
HRÓLFUR STERKI
í ELLI
G rímur
Thomsen
(1820/1896)
Brot úr
Ijóðinu
Hrólfur
sterki í elli
Hrólfur sat með sjómanns vetti,
sár af elli, á köldum höndum,
er um sonu frækna hann frétti,
að fjötraðir syðra lægju í böndum,
leiknir hart af liði Dana. -
Lítt hann sagði og allt með stilli,
en - saman vafði hann vettlingana,
og vatt þá sundur handa á milli.
Ei er að sjá, að elli hann saki,
öldungur reið hart úr tröðum.
Eigi fór hann oft af baki
áður hann kom að Bessastöðum.
I varðhaldi þar voru niðjar,
var hann snar að brjóta upp klefann,
af þeim sleit hann vopnlaus viðjar,
varðmönnum leizt ekki á hnefann.
Hrútur —
(21. mars -19. apríl)
Gerðu ekki meira úr hlutun-
um en nauðsynlegt er. Vilj-
irðu ná athygli annarra fer
best á því að setja mál sitt ró-
lega fram en ákveðið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú væri upplagt að gera sér
glaðan dag með félögunum
iví margt hefur á dagana
drifið síðan þið hittust síðast
svo af nógu er að taka.
Krabbi
(21. júní - 22. júll)
Þú hefur lengi haft á tilfinn-
ingunni hvað vakir fyrir þeim
sem í kringum þig eru og
nægan styrk til þess að fylgja
brjóstviti þínu eftir.
STJÖRIVUSPA
eftir Frances Drake
A*
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú
ieggur krafta þína til liðs
við þá sem minna mega sín
og berst fyrir því að allir
hafíjafnan rétt.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) oA
Eitthvað gerir það að verk-
um að þú dregur þig inn í
skelina. Brynjaðu þig fyrir
umhverfinu og skoðaðu vand-
lega hvað er þér fyrir bestu í
stöðunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) S®
Þú getur leyst málin á farsæl-
an hátt ef þú bregst rétt við í
erfiðum aðstæðum. Þú hefur
lengi haldið aftur af þér en
verður að fá útrás á einhvern
hátt.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (Du>
Þú hefur nú gengið frá öllum
lausum endum varðandi verk-
efni þitt svo þér er ekkert að
vanbúnaði að opinbera það
fyrir þeim sem hafa áhuga á
því.
Vog rn
(23. sept. - 22. október) Ö
Þú ert glöggur á litlu atriðin
sem skipta svo miklu máli í
lífinu og þú ferð létt með það
að setja gráan hversdagsleik-
ann í blómlegan búning.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ert nú tilbúinn að dusta
rykið af verkefni sem þú lagð-
ir á hilluna og taka upp þráð-
inn á nýjan leik og nú á öðr-
um forsendum en áður.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) KLf
Þú hefur alit sem þarf til að
takast á við erfiðleikana.
Reyndu ekki að skilja alla
hluti, aðalatriðið er að standa
styrkum fótum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) «1
Veltu þér ekki upp úr vanda-
málunum heldur skaltu bara
leysa þau. Gleymdu því ekki
hvað margt jákvætt er í
kringum þig sem má þakka
fyrir.
Vatnsberi f
(20. janúar -18. febrúar) CSní
Þú ert í skapi til að láta gott
af þér leiða og þar sem þú átt
auðvelt með að fá aðra í lið
með þér skaltu notfæra þér
það núna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það er gott og blessað að hafa
áhrif á fólk með framkomu
sinni. Gættu þess bara að þú
fælir það ekki frá við nánari
kynni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
S(wla- Cþ^éttotöð
Öll tískumerkin; Fudu, Tommy, Flla, Tlmberland, og fl„
Einnig lesgleraugu í miklu úrvali. Grænu básunum
u m 2 Aðeine þeeea
LLinCII einuhefei!
rfár Tilbúnir rétlir
^J^^^Sultflskbollur ■ Fiskibollur ■ Fiskpate
Silungapate • Marineraður saltfiskur ■ Frosinýsa
Marineraðar fisksteikur • Fiskbúðingar
Ýsaíraspi • Rúgbrauðssúpa • Kindakæfa
Rabbarbaragrautur • Plokkfiskur
KCXAPORTIÐ
..kostaboð í hverjum bás
Fréttir á Netinu v^mbl.is
/\LLTAf= GITTH\SA£> A/ÝT7
10 rósjr kr. 990
Mikið úrval af nýrri gjafavöru.
Blómavasar í öllum stærðum,
gerðum og litum. Gott verð.
Opið til kl. 10 öll kvöld
Fákafeni 11, sími 568 9120.
Teg. ECCO 1014
Verð: Aður kr.
nú kr. 3.995,-
Litur: Svartur
Stærðir: 41-46
00MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
Nýjar vörur
Pelsjakkar
Kápur
Úlpur
Ullarjakkar — stórar stærðir
Hattar og hú£ur
\i#FM5ID
Mörkinni 6
Sími 588 5518
TILBOÐ Á
LÖNGUM LAUGARDEGI
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN