Morgunblaðið - 07.10.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
227. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Manntjón í lestarslysinu í Lundúnum meira en talið var
Herlög gengin í gildi í Tsjetsjníu
Sjötíu
fórust
og fleiri
saknað
Lundúnum. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti sjötíu manns
fórust í lestarslysinu í Lundúnum í
fyrradag og allt að 100 manns til við-
bótar er saknað. Frá þessu greindu
talsmenn lögreglunnar í gær. Ljóst
er að þetta er eitt mannskæðasta
lestarslys sem orðið hefur í Bret-
landi.
Tony Blair forsætisráðherra hét
þjóðinni ítarlegri rannsókn og sagði
að ríkisstjóm Verkamannaflokksins,
sem „erfði“ að mestu einkavætt jám-
brautakerfi frá fyrri stjórnum
íhaldsmanna, væri staðráðin í að
gera það sem í hennar valdi stæði til
að byggja á ný upp traust almenn-
ings á lestakerfinu.
„Þetta er augljóslega yfirþyrm-
andi hrikalegur harmleikur," sagði
Blair.
Brezkur almenningur var sleginn
óhug við tilkynninguna um hina snar-
hækkuðu tölu yfir látna í slysinu, en
slysið, sem varð þegar tvær fullar
farþegalestir skullu saman snemma á
þriðjudagsmorgun skammt frá Padd-
ington-lestarstöðinni í Lundúnum,
hefur orðið til að rýra mjög traust
fólks á öryggi lestakerfisins.
Fór yfir á rauðu
Yfirvöld jámbrautarmála greindu
frá því í gær að önnur lestanna hefði
farið yfir á rauðu ljósi rétt áður en
slysið varð í fyrradag. Lýstu tals-
menn fyrirtækjanna sem reka bæði
lestirnar og jámbrautirnar sjálfar
því yfir í gær, að ekkert hefði verið
að umferðarljósakerfinu á slysstað.
■ Athyglin beinist/24
Áfram var unnið sleitulaust í gær að björgunarstörfum á
nærri Paddington-lestarstöðinni í Lundúnum.
Reuters
slysstað
Sókn Rússa
heldur áfram
Grosní, Moskvu. AP, Reuters, AFP.
RÚSSNESKAR hersveitir héldu í
gær áfram hernaðaraðgerðum í
Tsjetsjníu, með loft- og stórskota-
Iiðsárásum í norðvestur- og austur-
hluta sjálfstjómarlýðveldisins, sem
ekki hefur lotið Moskvustjóminni
frá því rússneski herinn beið auð-
mýkjandi ósigur fyrir skæmliðum
árið 1996.
Igor Sergejev, vamarmálaráð-
herra Rússlands, sagði hugsanlegt
að herinn réðist í nýja sókn gegn
Grosní og öðram helztu stöðvum
skæruliða Tsjetsjena. Rússar hafa
hingað til lítið láti uppi um fyrirætl-
anir sínar og komið vopnuðum sveit-
um Tsjetsjena þannig á óvart og
neytt þær til að dreifa sér á undan-
haldi.
Fullyrti Sergejev að Rússar yrðu
aðeins varir við vopnaða mótspymu
á afmörkuðum svæðum. Talsmenn
Tsjetsjena halda öðra fram og segja
harða bardaga í gangi til að stöðva
framrás Rússa.
Herlög virðast hafa
Iítið að segja
Aslan Maskhadov, forseti
Tsjetsjena, lýsti yfir herlögum sem
gengu í gildi á miðnætti á þriðju-
dagskvöld en að sögn erlendra
fréttastofa vora þess fá merki á göt-
um höfuðstaðarins, Grosní. Götu-
markaðir vora enn opnir þrátt fyrir
dranurnar frá bardögum í nágrenn-
inu. Traflanir hafa verið á rafmagn-
inu og ekkert jarðgas berst lengur
um gasleiðslur borgarinnar.
Yfirlýsing Maskhadovs er enda
frekar táknræns eðlis í landi þar
sem skæraliðaleiðtogar hafa ráðið
meira en forsetinn. Hann hvatti trú-
arleiðtoga múslíma til að hvetja íbú-
ana til „heilags stríðs“ gegn Rúss-
um.
Pinochet ekki við
dómsuppkvaðningu
Thatcher segir róttarhöldin „hefnd vinstrimanna“
London, Madríd. AP, Reuters.
BRESKUR dómari kvað í gær upp þann úr-
skurð að Augusto Pinoehet, sem ákærður hefur
verið fyiir að bera ábyrgð á pyntingum, þurfi
ekki að vera viðstaddur þegar niðurstaða réttar-
ins vegna kröfu um framsal hans til Spánar verð-
ur tilkynnt á föstudag. Úrskurðurinn er byggður
á vitnisburði læknis sem í gær bar fyrir réttinum
að Pinochet hefði fengið tvö væg hjartaáföll í síð-
asta mánuði. Breskir lögfræðingar hafa dregið
vitnisburð læknisins í efa.
Spænsk stjórnvöld vænd um afskipti
Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, lýsti því yfir í ávarpi á flokks-
þingi breska Ihaldsflokksins í gær að verið væri
að draga Pinochet fyrir rétt „fyrir að hafa sigr-
ast á kommúnismanum“. „Það er enginn vafi,
það er hefnd vinstrimanna en ekki réttlæti fyrir
fómarlambið sem mál Pinochets snýst um,“ tjáði
„Járnfrúin" fullum sal þingfulltrúa í fyrsta form-
lega ávarpinu sem hún flutti á flokksþingi flokks
síns frá því hún fór frá völdum fyiir níu árum.
Spænska blaðið E1 Pais birti í gær frétt um að
spænska ríkisstjómin hefði hvatt breskan lög-
fræðing, sem annast hefur málareksturinn gegn
Pinochet í London, til að áfrýja ekki dóminum
verði framsalskröfunni vísað frá. Spænsk stjórn-
völd lýstu því þegar í stað yfir að fréttirnar væra
ekki á rökum reistar en staða þeirra í mála-
ferlunum gegn Pinochet hefur frá upphafi verið
erfið. I aðra röndina hafa þau sagt að þau geti
ekki haft afskipti af því sem formlega er lagaleg
málsókn, en á hinn bóginn getur engum dulist að
spænska stjórnin hefur þungar áhyggjur af því
að málið geti skaðað tengsl Spánar við Chile og
önnur lönd Rómönsku Ameríku.
Hópar andstæðinga og stuðningsmanna ein-
ræðisherrans fyrrverandi í Chile hyggjast safn-
ast saman í höfuðborginni Santiago í kvöld og
bíða úrskurðar dómstólsins í London, sem er
áætlað að verði kveðinn upp kl. 10 að brezkum
tíma, eða kl. 6 að morgni að staðartíma í Chile.
Reuters
Súkkulaðimúr
í Berlín
í TILEFNI af því að í dag eru liðin 50 ár frá
því austur-þýzka alþýðulýðveldið var stofnað,
reis í gær nýr Berlínarmúr - í þetta sinn úr
súkkulaði. Kökugerðarmenn ættaðir frá Italiu
unnu í gær hörðum höndum að því að hlaða
upp súkkulaði-„múrsteinum“ sem hver vegur
21 kíló í 12 m langan múr á torgi nokkru í
miðborginni, þar sem Berlinarmúrinn lá áður,
þekktasta mannvirkið sem varð til á þeim fjór-
um áratugum sem kommúnistaríkið í austur-
hluta Þýzkalands lifði.
Rússar segjast hafa hertekið um
þriðjung landsvæðis Tsjetsjníu. Um
125.000 manns hafa flúið heimili sín í
Tsjetsjníu eftir tveggja vikna
sprengjuárásir rússneska hersins,
flestir til nágrannahéraðsins Ingús-
hetíu en um tíundi hluti til Dag-
estans. Flóttamenn tjáðu frétta-
manni AFP á þessum slóðum að
Rússar vörpuðu nú sprengjum á
tsjetsjensk þorp án þess að vera
vissir um að þar væru skæruliðar.
Vladimír Pútín forsætisráðherra
sagði aðgerðimar í Tsjetsjníu langt
frá því búnar. í sjónvarpsávarpi
sagði hann nauðsynlegt að auka út-
gjöld til hermála.
---------------
Friðargæsluliði gerð
fyrirsát á A-Tfmor
Tveir
vígamenn
felldir
Dili. AP, Reuters.
TVEIR liðsmenn vigahópa and-
stæðinga sjálfstæðis Austur-Tímors
vora í gær felldii’ af friðargæslulið-
um eftir að vígamenn gerðu hersveit
Ástrala, Nýsjálendinga og Breta
fyrirsát nærri þorpinu Suai, sem
liggur við landamæri Austur- og
Vestur-Tímors, á suðvesturhomi
Tímor-eyju. Tveir Astralar særðust
í bardaganum en ekki alvarlega, að
sögn Peters Cosgroves, yfirmanns
friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna
í A-Tímor.
Er þetta í fyrsta sinn frá því frið-
argæsluliðar héldu innreið sína til
A-Tímors að þeir fella vígamenn,
þrátt fyrir ítrekaðar ögranir af
þeirra hálfu. Cosgrove sagði að eftir
að mennh’nir vora felldir hefðu fé-
lagar þeirra flúið í burtu og lýsti
hann fyrirsátinni sem vel skipu-
lagðri. Kom árásin í kjölfar þess að
friðargæsluliðar leystu nokkra víga-
menn úr haldi og leyfðu þeim að
halda yfir landamærin til Vestur-
Tímors.
„Það sem hæst ber nú er að víga-
hóparnir hafa tekið þann kostinn að
beita ofbeldi, þrátt fyrir yfirlýstan
vilja okkar til að leysa mál með frið-
samlegum hætti,“ sagði Cosgrove.
„INTERFET [Friðargæsluliðið]
mun ekki líða þetta.“
Nokkru áður en árásin var gerð
reyndi hópur vígamanna að fara yfir
landamærin við Suai í vörabifreið en
áströlsk hersveit stöðvaði ferð
þeirra með því að skjóta á hjólbarða
bifreiðarinnar. Nokkrir þeirra sem í
henni vora særðust og vora þeir
fluttir á sjúkrahús. Félagar þeÚTa
voru afvopnaðir, færðir til yfir-
heyrslu, og að henni lokinni vai-
þeim ekið til landamæranna.
Fyrirsátin var gerð er friðar-
gæsluliðarnir sneru til baka frá
landamæranum.
■ Belo biskup/28