Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 55 VALGERÐUR PÁLSDÓTTIR Ef maður er staddur um morgunstund, einmitt þegar loftið er tærast, á neðstu fjalla- brúnunum austur af Kálfafellsbæjunum í Fljótshverfi, austur á Brúnum eins og það heitir þar eystra, þá gefur að líta mjög sér- stætt svæði. Það nær allt austan frá Öræfajökh og vestur í Skaftáreldahraun og er svæði sem er í mót- un. Það er ekki mótað á neinum sérstökum tíma, það er að mótast í dag og hef- ur verið að mótast síðustu áratugi og aldir. Ekkert er gamalt og fast- mótað í jarðfræðilegum skilningi. Eins og annars staðar þar sem land er í mótun eru þarna gjarnan mikl- ar hamfarir. Rauðir hraunstraumar renna og ár belja stjórnlaust yfir land eins og þær viti ekki almenni- lega hvert halda skuli. Jörð fýkur og gróður kemur og fer. Meira að segja gróskumiklar sveitir hafa horfið undir hraun á þessu undir- lendi eða orðið að sandi sem fýkur og berst um með stórfljótunum. Það eru aðeins rúmar tvær aldir síðan allir íbúar sveitarinnar yfir- gáfu hana í náttúruhamförum. Það var í Skaftáreldum og þá rann hraunið meðal annars framan við Seljaland. En fljótlega fór fólk að tínast til baka yfii- vegleysur og óbrúaðar ár, yfir uppbólgin hraun og fjúkandi sanda, til einnar af af- skekktari sveitum landsins til skamms tíma, Fljótshverfísins. Svo fóru börn að fæðast á ný í þessari sveit. Fram á þessa öld voru árnar enn óbrúaðar og erfiðar og náttúr- an óviss í háttarlagi sínu. Tæknin sem við þekkjum í dag var ekki far- in að styðja við bök fólksins sem ennþá bjó í torfhúsunum í frost- hörðum vetrarveðrum. Bólusetn- ingar voru ekki byrjaðar og orðið sjúkrabíll fannst ekki í íslenskri tungu. En fólkið var sterkt, enda lífsskilyrðin þau að manneskjan varð að vera huguð og sterk til að lifa af. Hinum tókst það ekld. Mamma! Þú ert eitt af þeim börnum sem fæddust inn í þessi skilyrði fyrir 90 árum, eða svo sem tveimur manns- öldrum eftir að hraunið rann yfir Eystri-Dal og niður með Dalsfjall- inu. Það var aflt að tuttugu árum áður en fyrsti bíllinn kom í sýsluna og fáeinum ár- um áður en Hverfis- fljót og Brunná voru brúaðar. Ef maður hugsar til baka og er sanngjarn, þá verður ekki annað sagt en að það var reg- inmunur að koma í heiminn árið 1942 þeg- ar ég leit dagsins ljós í fyrsta sinn, en það var fyrir aldamótakynslóð- ina. Svo þegar komið er til dagsins í dag og við ætlum að velja okkur búsetu, þá veltum við því fyrir okkur hvað það taki lang- an tíma fyi-ir sjúkrabílinn að koma og hvað það er langt í næstu stór- verslun. En Seljalandssystkinin 16 komust öll til fullorðinsára þrátt fyrir að þetta öryggi og önnur nú- tímaþægindi vantaði. Þrátt fyrir Kötlugos 1918 og mesta frostavetur aldarinnar, og þrátt fyrir að pabbi þeirra dæi þegar enn voru átta þeirra ófermd. Fyrir allnokkrum árum var ég staddur á Seljalandi þegar þið vor- uð þar saman komnar fjórar af systrunum ef ég man rétt. Þið töl- uðuð um gamla daga á Seljalandi og fram kom að þegar nýtt systkin kom í heiminn, þá hefði það alltaf verið þú, mamma, sem var látin taka við því barninu sem þá var næstyngst. Ung hefur þú því byrj- að að annast börn því að þú varst aðeins tíu ára þegar síðasta systk- ini þitt fæddist, hún Pálína. Hún hefur sagt mér að hún muni í fyrsta skipti eftir sér á handleggn- um á þér. Pálína sagði einnig að einhvern tíma þegar hún var lítil og í leiðu skapi, þá hafir þú spurt hana hvort þið ættuð ekki að fara og skoða hreiðrið í eystra gilinu. Svo fóruð þið og skoðuðuð hreiðrið með litlu dröfnóttu eggjunum. Pá- lína komst í gott skap og gerði vísu um ferðina seinna meir. „Mikið var faðmurinn hennar mömmu þinnar mjúkur", sagði hún Pálína í fram- haldi af frásögninni um þessa ferð. Svo eignaðist þú sjö börn sjálf og öll komust þau á legg. Við systkin- in, en alveg sérstaklega þau eldri, vorum snemma látin taka til hend- inni. En samt er það undur hvern- ig þú komst fram úr því sem hús- tiskuverslun, v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Smii 561 1680. \ n g C II t’ II III , Anarwca.; Yfírhafnír Nýjar endingar Opið dagiega kl. 10-18, laugardaga 10 — 14. móðir á sjö barna heimili þurfti að gera. Við vorurn líka lengst af látin vinna meira úti við. Húsverkin skyldir þú sjá um. Eg man vel hve sjálfsagt mér þótti að það fyndust þurr og hrein föt þegar ég var blautur og skítugur og að það væri til matur þegar ég var svangur. Svo þegar við vorum flest flutt að heiman, þá kom sjálfvirka þvotta- vélin. Nú varst þú búin að annast yngstu systkini þín og því næst börnin þín. Þá var kannski mál að þú færir að taka því rólega. Nei. Þá tókst þú þér fyrir hendur að taka til þín barnabörn og fleiri börn. Það er mér í dag ráðgáta hvernig þú hafðir atorku til að gera það. Þá varst þú nefnilega á þeim aldri sem ég er nú og líklega hafðir þú annarra börn á heimilinu fram að sjötugu. Ég get engan veginn séð hvernig ég yfir höfuð kæmist af við skara af börnum í dag. En sumum virðist vera til lista lagt dagsverk sem öðrum er mecl öllu ómögulegt. Áður fyrr var mikill gestagangur á Kálfafelli og það var eitt af hlut- verkum mömmu að taka á móti mörgum gestum. Séra Gísli Brynj- ólfsson sem messaði á Kálfafelli í áratugi sagði í blaðagrein árið 1973, að það hefði eiginlega verið alveg sama hvernig á stóð. Hvort sem komið var í önnum og blíðu sumars- ins eða fásinni dimmra vetrardaga, að alltaf hefði mætt sama alúð gest- risninnar. Það var nefnilega siður að bjóða kirkjugestunum á Kálfa- felli í kaffi. Endastöð rútunnar frá Reykjavík var á Kálfafelli. Þar áður var pabbi póstur austur í Öræfi. Þetta hvort tveggja jók líka á gestaganginn. Sem krakka þótti mér þetta vissulega spennandi. í dag er ég farinn að átta mig á því hversu mikil vinna hefur legið að baki þessu fyrir mömmu, gi’íðarleg vinna sem ég man ekki eftir að hafa heyrt hana kvarta yfir. Oft hefur þú talað um það, mamma, að þú sért svo gleymin. Þegar þú varst hjá okkur Valdísi í Svíþjóð árið 1994 sagði ég þér sögu tengdri gamalli námu í sænsku Döl- unum. Svo þegar Fríða systir var hjá okkur í sumar ætlaði ég að segja henni sömu sögu á sama stað. Ég þurfti þess ekki því að þú hafðir þá þegar sagt henni söguna. Þú ert sem sagt ekki eins gleymin og sljó og þú varst búin að fá mig til að trúa. Það hef ég einnig rekið mig á í símtölum að undanförnu. Til dæmis þegar þú hefir verið að segja mér fréttir að heiman. Einnig þegar þú hefur verið að ræða aðstæður okk- ar hér úti og staði sem við skoðuð- um í sameiningu í Svíþjóð fyrir rámum fimm árum. Ég er kominn hátt á sextugsaldurinn. Svo gamall þurfti ég að verða til að fara að átta mig á hverju þú hefur áorkað. Ef ég svo hugsa til aðstæðnanna sem þú bjóst við, þá veit ég í sanngirni sagt að ég hefði aldrei staðið undir okinu. Þú ert einn þeirra hljóðu ís- lensku einstaklinga sem með lífs- vilja og þrautseigju brúuðu bilið milli Islands fyn’i alda og Islands nútímans. Þess íslands torfhús- anna sem svo sáralítið breyttist um aldaraðir og þess Islands sem til- heyrir lokum tuttugustu aldarinnar með öllum sínum undrum og mögu- leikum. Þú ólst mig upp, mamma. Ég sem persóna er að hluta til eitthvað meðfætt, að hluta til lífsreynsla mín og að hluta tfl uppeldið sem ég fékk. Ég vil ekki vera neinn annar en ég er í dag. Uppeldið þitt hefur nægt mér til að ná því takmarki mínu. Þakka þér fyrir, mamma. Guðjón Björnsson. með Resilience Lift fyrir andlit og háls SPF 15 frá ESTEE LAUDER Hér er komin lyftingin sem húð þín þarfnast til þess að líða sem best þegar þú ert komin yfir fertugt. Yndisleg áferð, afar virk rakagjöf og öflug orkuvæðing fyrir þreytta húð. Athyglisverð formúla með einstöku „lift complex" veitir húð þinni nýjan þrótt til að takast á við tilveruna. Innan fárra vikna geturðu glaðst yfir sléttara og fastmótaðra andliti geislandi af nýju lífi. ^ltí. LAUP^,. Clara Kringlunni Lyfja Setbergi, Gullbrá Nóatúni, Sara Bankastræti, Lyfja Hamraborg, Amaró, Akureyri, Lyfja Lágmúla, Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Apótek Keflavíkur. ( Éger 156 Ég er að léttast og læt það fréttast! -1- ) Mörkinni 6, s. 588 5518. hattar, húfur, alpahúfur, 2 STÆRÐiR. \(#Ffl/l5IÐ Undir tungnna Milli fhigranna ■ I HMjj " - 1 Sms iiiii | PœpRETTeamB n»nc ***** >«***», czssBnniH m ev Ma\íð ^egarþúViættir 1 Súrefnisvömr Karin Herzog Vita-A-Kombi •>
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.