Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 48
M. 48 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ALÞJÓÐLEG HUNDASÝNING í REIÐHÖLLINNI í KÓPAVOGI: M * * -1 % Víðtækari kröfur fyrir- hugaðar Litli silkiterrier-hundurinn Erró var valinn besti hundurinn á alþjóðlegri ræktunar- sýningu sem haldin var í reiðhöll Gusts í Kópavogi um síðustu helgi. Brynja Tomer fylgdist með og ræddi við dómara og sýningarstjóra, sem voru sammála um að hér væru margir mjög fallegir hundar. TVEIR dómarar, Marit Sunde frá Noregi og Paul Stanton frá Sví- þjóð, skoðuðu nærri 300 hunda af 46 tegundum á alþjóðlegri hunda- sýningu um síðustu helgi. Á hunda- sýningum af þessu tagi eru hundar skoðaðir og dæmdir út frá ræktun- arstaðli, sem hundaræktarfélög í upprunalöndum tegundanna gefa út. Að sögn Emilíu Sigursteins- dóttur, sýningarstjóra, er meðal annars tekið mið af almennri lík- amsbyggingu eins og hæð og þyngd, höfuðlagi og feldi. „Einnig skipta hreyfíngar hundanna máli, skapferli og almennt yfirbragð.“ Emilía segir að helsta markmið hundasýninga sé að fá upplýsingar um hvemig hundarækt miðar og hvaða hundar eru æskilegir í rækt- un. „Við leggjum metnað í að fá hingað til lands góða og virta dóm- ara með langa reynslu,“ segir Emilía og kveðst ekki í nokkrum vafa um að sýningar af þessu tagi skili sér í metnaðarfyllri hunda- rækt. Þrjár tegundir á fyrstu sýningunni Að lokinni síðustu hundasýningu þessa árþúsunds er ekki úr vegi að biðja Emilíu um að líta yfir farinn veg og spyrja jafnframt hvað sé framundan í hundarækt og starf- semi Hundaræktarfélags Islands. „I fyrsta lagi hefur hreinræktuð- um hundategundum fjölgað veru- lega. Á fyrstu sýningum félagsins fyrir 30 árum voru aðeins hundar af þremur tegundum, en nú af nærri 50. Hundastofnar okkar fara batnandi og sýnendum fer veru- lega fram. Þeir eru nær undan- tekningalaust snyrtilegir til fara, kurteisir og tilbúnir að taka um- sögn dómara af æðruleysi. Áður kom fyrir að menn rifu umsagnir dómara í snepla ef hundur hafði fengið lélega dóma, skelltu hurðum eða jafnvel spörkuðu í hundinn sinn. Þetta sést ekki núna og allt yfirbragð sýninganna er mjög fal- legt.“ Emilía segir að framundan sé enn metnaðarfyllra ræktunarstarf. „Við þurfum að vanda val á undan- eldishundum og vera okkur með- vitandi um algenga sjúkdóma í hin- um ýmsu tegundum. Ætlunin er að gera kröfur um tilskyldar rann- sóknir á undaneldisdýrum með til- liti til algengra sjúkdóma. Auk þess verða hertar kröfur um gott geðslag undaneldisdýra og eðlis- læga eiginleika þeirra. Veiðihundar munu til dæmis gangast undir veiðipróf og vinnuhundar undir vinnupróf sem reynir á eiginleika tegundarinnar. Við teljum að til að bæta hundarækt enn frekar sé nauðsynlegt að taka tillit til allra þessara þátta; árangurs á ræktun- arsýningum, heilsufars, skapgerð- ar og eðlislægra eiginleika.“ Þessi myndarlegi hópur golden retriever-hunda var valinn besti rækt- Þýski fjárhundurinn ís.m.Gildewangen’s Aramis, sem er fjögurra ára ,var unarhópurinn, en hundarnir bera allir ættarnafnið Íslands-Nollar. stigahæsti hundur ársins, enda hefur hann náð mjög góðum árangri á ár- Ræktandinn, Súsanna Poulsen, er önnur frá vinstri á myndinni. inu. Eigandi Aramis, Hjördís H. Ágústsdóttir, er með honum á myndinni. legan aðbúnað þeirra. „Þeir sem kaupa hreinræktaðan hund ættu undantekningalaust að leita upp- lýsinga hjá Hundaræktarfélaginu, sem vísar á fulltrúa viðkomandi sérdeildar. Með því móti aukast líkur á að inn á heimilið komi hund- ur sem hentar lífsstíl fjölskyldunn- ar og verður henni til gleði og ynd- isauka næstu 10-20 árin.“ Hundar í háum gæðaflokki Marit Sunde, hundaræktandi og dómari frá Noregi, sagði að lokinni sýningu að almennt væru hundarn- ir sem hún hefði dæmt mjög góðir. „Hér eru hundar í háum gæða- flokki og sumir einstaklega falleg- ir. Ég væri alveg til í að taka nokkra með mér heim, til dæmis Tíbet spaniel-hundinn Tinda Tam- ino.“ Marit Sunde fékk dómara- réttindi árið 1971 og hefur dæmt á hundasýningum víða um heim í nær 30 ár. Hún ræktar boxer- og Boston terrier-hunda og dæmdi nokkra boxer-hunda á sýningunni um helgina. „Ég er mun strangari þegar ég dæmi hunda af þeim teg- undum sem ég rækta sjálf og bendi miskunnalaust á alla galla sem ég verð vör við. Ég held að allir hundadómarar séu strangari þegar þeir dæma hunda af sömu tegund og þeir rækta sjálfir." Hinn dómari sýningarinnar, Paul Stanton, tekur undir þetta. Hann hefur ræktað Lhasa apso-hunda síðan 1966 og segist einmitt vera sérlega kröfu- harður þegar hann skoðar slíka hunda. Þetta er í þriðja sinn sem Paul Stanton dæmir á íslenskri hunda- sýningu. „Ég kom hingað fyrst fyr- ir fimm árum og sé miklar framfar- ir. Ræktunin er almennt betri og einnig hefur eigendum farið mikið fram í að sýna hunda sína og undir- búa feld þeirra fyrir sýningar." Skemmtilegir áhorfendur Paul Stanton segist hvergi hafa dæmt á jafn vel skipulögðum og góðum sýningum og á Islandi og þess vegna þyki honum mikill heið- ur að fá að dæma hér. „Auk þess eru íslenskir áhorfendur einstakir. Þeir klappa fyrir hundum sem fá góða dóma og samgleðjast eigend- um þeirra. Erlendis er þessi al- menni áhugi að hverfa og menn hugsa eingöngu um eigin hunda og árangur þeirra á sýningum. Mér finnst þessi framkoma íslenskra áhorfenda einstök og vil endilega að þið viðhaldið henni.“ Paul Stanton er í hópi vinsæl- ustu hundadómara í heimi og dæmdi til dæmis á yfir 40 sýning- um um allan heim á síðasta ári. Hann hefur réttindi til að dæma hunda af öllum tegundum, sem eru nærri 400, og segist hafa gaman af öllum hundum. „Enginn hundur var á æskuheimili mínu, en ég hafði mikinn áhuga og fór að vinna hjá hundaræktanda 16 ára gamall. Foreldrar mínir voru ósáttir við þessa ákvörðun, en vonuðust til að starfið yrði til þess áhuginn hyrfi. Þeim varð ekki að ósk sinni, því áhuginn jókst og varð að ástríðu." Hann brosir í kampinn, sennilega af tilhugsuninni um brostnar vonir foreldra sinna, um leið og hann segir. „Ég fór í hundanna sem ung- lingur og er sáttur við það.“ Hann dæmdi íslenska fjárhund- inn nú í fyrsta sinn á íslandi og segir það bæði hafa verið spenn- andi og erfitt. „Ég er afar hrifinn af gömlum hundakynjum, sem hafa Ennfremur segir Emilía áhuga á því innan félagsins að setja skýrar reglur um umönnun á tíkum og hvolpum, en örfá dæmi séu um lé- Morgunblaðið/Jón Svavarsson Erró, sem er tæplega tveggja ára silkiterrier-hundur, var valinn bestur úr hópi 290 hunda. Hann er hér með eiganda sínum, Önnu H. Gunnlaugsdóttur, og Paul Stanton dómara. ,Enski springer spaniel-hundurinn Is.m. Larbreck As Promised var besti öldungur sýningar og keppti í flokki 7 ára og eldri. Eigandi hans, Ásta Arnardóttir er með honum á myndinni ásamt Paul Stanton dómara. Besti hvolpur sýningar var þýski fjárhundurinn Gunnarsholts-Count, sem er 7 mánaða. Hann er hér ásamt eiganda sínum, Guðmundi Brynj- ólfssyni, og Marit Sunde dómara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.