Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Stjörnugrís ehf.
Umhverfís-
ráðherra
stefnt
AÐSTANDENDUR Stjörnu-
gríss ehf. í Melasveit hafa
stefnt umhverfísráðherra
vegna úrskurðar ráðherra um
að fram skuli fara mat á um-
hverfisáhrifum búsins.
Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra segir að stefnan
komi sér ekki á óvart þar sem
aðstandendur búsins hafi fyrir
nokkru boðað í fjölmiðlum að
þessi leið yrði farin. „Nú fer
þetta eftir hefðbundnum far-
vegi,“ sagði hún.
Að sögn Guðjóns Ólafs Jóns-
sonar, lögfræðings búsins, hef-
ur dómstjórinn í Reykjavík
fallist á að málið sæti flýtimeð-
ferð fyrir héraðsdómi vegna
þeirra hagsmuna sem í húfi eru
og þýðingar málsins. Sagðist
hann gera ráð fyrir að dómur
gæti gengið innan tveggja
mánaða.
Morðmál
sent ríkissak-
sóknara
LÖGREGLAN í Reykjavik
hefur lokið rannsókn sinni á
morðmálinu sem kom upp við
Leifsgötu í miðjum júlímánuði
og mun málið verða sent ríkis-
saksóknara í dag, fimmtudag,
þar sem það verður tekið til
ákærumeðferðar.
Þórhallur Ölver Gunnlaugs-
son, sem setið hefur í gæslu-
varðhaldi vegna rannsóknar
málsins, hefur lokið um helm-
ingi gæsluvarðhaldsvistar
sinnar, en hann var úrskurðað-
ur í varðhald til 21. desember í
héraði, en Hæstiréttur stytti
gæsluvarðhaldsvist hans um 20
daga.
Stal veski
af konu
HÁLFÞRÍTUGUR karlmaður
þreif handtösku af konu á
Grensásvegi snemma á þriðju-
dagsmorgun nálægt Fells-
múla. Reyndi þjófurinn að
komast undan á hlaupum en
nálægir leigubifreiðastjórar á
Hreyfli brugðust hins vegar
skjótt við og gripu þjófinn á
hlaupum og heftu för hans
þangað til lögregla kom á vett-
vang og handtók hann. Konan
meiddist ekki og fékk veskið
sitt aftur.
Maðurinn hefur áður fengið
dóma fyrir auðgunarbrot, en á
ekki önnur mál óafgreidd hjá
lögreglu. Að sögn lögreglunnar
var tilgangur ránsins að ná í
peninga til að fjármagna fíkni-
efnaneyslu.
Stunginn
með hnífí
TÆPLEGA þrítugur karlmað-
ur var stunginn í brjóstið með
hnífi í fyrrakvöld í íbúð í
Reykjavík. Hlaut maðurinn
einnig áverka á baki og fór
sjálfur á slysadeild til að láta
huga að sárum sínum.
Að lokinni aðgerð var mað-
urinn færður til þriggja mán-
aða refsiafplánunar í Hegning-
arhúsinu vegna dóms, sem
hann hafði áður hlotið.
Árásarmaðurinn er tæplega
fertugur og hefur lítið komið
við sögu lögreglu og var einnig
færður í fangelsi vegna áður-
gengins dóms.
Að sögn lögreglu mun tilefni
hnífstunguárásarinnar hafa
vera áætluð viðskipti mann-
anna með fíkniefni.
FRÉTTIR
Efasemdir um málsmeðferð skýrslu Landsvirkjunar á Alþingi
Verið að forðast
aðalágreiningsefnið
Leið til sátta, segir ráðherrra
Veruleg gagnrýni hefur komið fram um
fyrirhugaða meðferð skýrslu Landsvirkjun-
ar um umhverfisáhrif Fljótsdalsvirkjunar á
Alþingi. Iðnaðarráðherra hefur boðað að
hann muni leggja fram þingsályktunartil-
lögu um að framkvæmdum verði framhald-
ið við virkjunina. Ragna Sara Jónsdóttir
kannaði viðhorf alþingismanna til málsins.
Finnur
Ingólfsson
Steingrímur
J. Sigfússon
Ólafur Örn
Haraldsson
Skýrsla
Landsvirkj-
unar verður
grundvöllur
þingsálykt-
unartillögu
sem lögð
verður fyrir
Alþingi
Margrét
Frímannsdóttir
Hjálmar
Árnason
Morgunblaðið/RAX
Séð yfir hið umdeilda svæði við Eyjabakka.
OLAFUR Öm Haraldsson,
formaður umhverfis-
nefndar, segir að með til-
lögunni sé ráðherra að
forðast aðalágreiningsefnið, það er
að kanna vilja Alþingis fyrir því að
fram fari formlegt mat á umhverfis-
áhrifum virkjunarinnar. Hann segir
að með tillögunni sé búið að útiloka
umhverfisnefnd frá því að hafa eitt-
hvað um málið að segja, en formað-
ur iðnaðamefndar segist ætla að
leggja til að málið verði sent um-
hverfisnefnd til umsagnar.
Viðbrögð Ólafs Arnar Haraldssonar
við þingsályktunartillögu Finns
Ingólfssonar um að framkvæmdum
verði framhaldið við Fljótsdals-
virkjun era mjög afdráttarlaus.
Hann segist ekki skilja af hverju
ráðherra sé „að ónáða Alþingi með
slíkum tillöguflutningi," þar sem
þegar liggi fyrir samkvæmt mati
sama aðila ótvíræður lagagrandvöll-
ur fyrir því að hefja framkvæmdir
við virkjunina. „Einhver efi hlýtur
því að vera í loftinu fyrst leggja þarf
þetta fyrir þingið aftur,“ segir Ólaf-
ur.
Leið til sátta
Finnur gerði grein fyrir þessu
sjónarmiði sínu á fundi Samtaka
iðnaðarins í gærmorgun. „Skýrsla
Landsvirkjunar verður grandvöllur
þingsályktunartillögu sem verður
lögð fyrir þingið. Þar gefst 63 þing-
mönnum kostur á að hafa allar
skoðanir á því máli sem þeir vilja.
Þá fáum við úr því skorið, hvort
þingmeirihluti sé fyrir þessu máli.
Alþingi íslendinga, í staðinn fyrir
einn embættismann, mun fjalla um
mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals-
virkjunar og fær öll þau tæki og tól
sem það þarf til þess. [...] Þetta er
sú leið sem er farin þannig að um
málið skapist sátt,“ sagði Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra.
Ölafur Örn er ekki sammála
Finni og kveðst hins vegar telja
réttara, fyrst málið fer fyrir Alþingi
en ekki til Skipulagsstofnunar, að
ríkisstjómin leggi fram framvarp
um þær breytingar sem þarf að
gera til þess að framkvæma mat á
umhverfisáhrifum virkjunarinnar.
Hann sé þó ekki vongóður um það.
„Fyrst ákveðið var að fara með
þetta inn í þingið tel ég að þinglega
meðferðin eigi að snúa að aðalá-
greiningsefninu, það er að segja,
matinu á umhverfisáhrifunum. Eg
tel aðalatriðið að kannaður verði
þingviljinn fyrir því að fram fari
umferfismat á vii’kjuninni. Það er
að beina sjónum að undanþágunni
frá lögunum um mat á umhverfisá-
hrifum," segir Ólafur og kveðst
telja eðlilegra ef umhverfisráðherra
hefði flutt tillögu um það.
Ólafur segist hafa búist við því að
skýrsla Landsvirkjunar fengi öðra-
vísi málsmeðferð í þinginu þegar
Halldór Ásgrímsson tilkynnti að
farið yrði með skýrsluna fyrir þing.
„Eg bjóst við að kannaður yrði
þingviljinn fyrir því sem er aðalá-
greiningsefnið og auðvitað varð ég
fyrir veralegum vonbrigðum. Það
er enginn að efast um að þeir hafi
ekki virkjunarleyfið."
Verið að flýja með málið
til iðnaðarnefndar
Ólafur segist telja að verið sé að
flýja með málið til iðnaðarnefndar
þar sem ríkisstjórnin sé viss um að
málið hljóti eindreginn stuðning.
Verið sé að flýja með málið í fyrsta
lagi frá almenningi með því að láta
ekki framkvæmda umhverfismat,
og í öðra lagi frá umhverfisnefnd.
Einnig virðist sem ríkisstjómin vilji
ekki breyta tilhögun virkjunarinn-
ar, þar sem hún yrði umhverfis-
matsskyld ef breytingar væra gerð-
ar á henni. Þá segist hann óttast að
iðnaðamefnd muni ein fjalla um
málið og umhverfisnefnd fái málið
eingöngu til umsagnar.
Umhverfísnefnd veitt
tækifæri til að gefa umsögn
Formaður iðnaðarnefndar er
Hjálmar Ámason. Aðspurður segist
hann telja eðlilegt að tillagan komi
frá iðnaðarráðherra en ekki frá um-
hverfisráðherra þar sem málið hafi
verið afgreitt á sínum tíma út úr
þinginu sem iðnaðarmál. Hann
kveðst jafnframt telja eðlilegt að
iðnaðamefnd leiti eftir umsögn um-
hverfisnefndar um málið.
Aðspurður hvort hann telji þing-
menn færa um að leggja mat á inni-
hald skýrslu Landsvirkjunar, þar
sem upplýsingarnar sem þar era
settar fram séu mjög tæknilegar og
sértækar, kveðst Hjálmar telja að
þeir séu vel færir um það.
„Alþingismenn hafa alla mögu-
leika til þess. Það er styrkur Al-
þingis að geta kallað til sérfræðinga
á öllum sviðum og því er ekki að
leyna að felstir ef ekki allir þing-
menn era búnir að setja sig betur
inn í þetta mál en flest önnur mál,“
sagði Hjálmar Amason.
Stjómarandstaðan vill umræðu
um mat á umhverfisáhrifum
Stjórnarandstöðuflokkarnir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
og Samfylkingin hafa lýst því yfir
ítrekað að þeir telji að gera eigi
mat á umhverfisáhrifum Fljóts-
dalsvirkjunar. Vinstrihreyfingin
hefur lagt fram þingsályktunartil-
lögu í fjögur skipti þar sem skorað
er á ríkisstjórnina að láta fara fram
mat á umhverfisáhrifum virkjunar-
innar.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs segist ekkert hafa
nema gott að segja um það að
skýrsla Landsvirkjunar komi til
umfjöllunar í þinginu. „Hitt er allt
annað og alvarlegra mál ef á að láta
þar við sitja að fjalla um hana hér
og flytja svo einhverja tillögu í
gegnum iðnaðamefnd og þar með
sé umfjöllun Alþingis um málið lok-
ið. Við teljum að hér eigi að taka
grandvallarafstöðu til þess hvort
Fljótsdalsvirkjun eigi að fara í um-
hverfismat og við höfum verið með
tillögu um það,“ segir Steingrímur.
Steingrímur segist treysta þing-
mönnum til að átta sig á því á hvaða
grundvelli skýrsla Landsvirkjunar
sé gerð og að þeir ragla því ekki
saman við lögformlegt umhverfis-
mat. Það sé hins vegar ljóst að
stjómvöld séu að reyna að stytta sér
leið með þessari meðferð á málinu.
Margrét Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, segir að-
spurð að sér hefði þótt eðlilegt í
ljósi yfirlýsinga stjórnvalda um að
Alþingi eigi að taka ákvörðun í mál-
inu, að lögð hefði verið fram tillaga
um hvort gera skyldi mat á um-
hverfisáhrifum virkjunarinnar og
tillögunni vísað til umhverfisnefnd-
ar.
Finnur Ingólfsson sagði aðspurð-
ur um þá gagnrýni sem fram hefur
komið á fyi-irhugaða meðferð máls-
ins á Alþingi að þingsályktunartil-
lagan væri lögð fram með þessum
hætti vegna þess að menn hefðu
efasemdir um að enn væri þing-
meirihluti fyrir leyfi Landsvirkjun-
ar til að virkja Jökulsá í Fljótdal,
sem leyfið væri orðið mjög gamalt,
en það var veitt 1981. „Þá þykir mér
vera rétt að það verði kannað með
þingsályktunartillögu með ótvíræð-
um hætti hvort það sé ekki öragg-
lega þingmeirihluti fyrir þessu,“
sagði Finnur í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagði jafnframt að um-
hverfisáhrif virkjunar Jökulsár í
Fljótsdal hefðu verið í mati í áratug
eða meira en rannsóknir hefðu farið
fram í allan þann tíma. Aðspurður
hvort iðnaðarnefnd ein myndi fá
málið til umfjöllunar sagðist hann
munu mæla með því við iðnaðar-
nefnd að senda málið til umhverfis-
nefndar til umsagnar.
Ólafur Örn Haraldsson segist að
lokum hafa fundið fyrir gríðarlegum
stuðningi bæði í Framsóknarflokkn-
um og í samfélaginu almennt við
sjónarmið sín í málinu. „Það sem ég
finn að fer í taugarnar á fólki er
þessi vanvirða við eðlileg vinnu-
brögð, burtséð frá skoðunum fólks-
ins,“ segir Ólafur. Hann segist ekki
hafa hugleitt að segja sig úr Fram-
sóknarflokknum, að minnsta kosti
ekki ennþá.