Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 51* siðdekri öllu æðri, af öðrum sem lærist. Braga og börnunum er vottuð innileg samúð. Ásgeir Sigurðsson. Kveðja frá gildisfélögum í Hafnarfirði: Eftir sumar kemui- haust. Nætur verða myrkar og kuldinn byrjai’ að bíta. Laufin falla og blómin fólna. En fegui’ðin í litrófi haustsins seytlar inn í sálir okkar og skrifai' með eftir- minnilegum hætti minningarorð sum- arsins sem er að líða. Litadýrðin gleður augað og fangar hjartað. Þess vegna höfum við gildisskátarnir í Hafnarfirði hlakkað til haustferðanna okkar. Þær eru fastmótaður hluti af lífi okkai’, því að fegurð haustsins slær í takt við yndisleika sumarsins. Nú hefur ein systir okkar í St. Ge- orgsgildinu, Rakel Sólborg Arna- dóttir, lagt upp í sína haustferð, langferðina yfir landamæri lífs og dauða. Hún kemur ekki oftar á fund- ina okkar eða í ferðimar, svo glöð og gefandi, traust og trú, einlæg og verkagóð. Hljóðlát og hógvær, sönn og smekkvís, myndarleg til allra verka, stuðlaði hún að því að láta hinn sanna skátaanda ríkja í öllum samskiptum okkar. Hún sparaði aldrei að ganga til liðs við góð mál- efni eða rétta út hendi, þegar verk var að vinna. Það vai’ gott að eiga hana að, þegar St. Georgsgildið í Hafnarfirði kallaði til starfa. Missir okkar er mikill, en minn- ingarnar eru góð eign sem endist. Svo er um alla samferðamenn Ra- kelar. Þar eru auðvitað fremst í flokki eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn. Þeirra missir er mest- ur. En jafnframt eiga þau stærsta og dýrasta minningasjóðinn. Það er huggun harmi gegn. St. Georgsgildið í Hafnarfirði sendir þeim hjartahlýjar samúðar- kveðjur. Við biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorginni. Við gildisfélagarnir í Hafnarfirði söknum vinar í stað. Við kveðjum hana Rakel okkar með eftirsjá og trega. En um leið fögnum við því að sár og hatrömm barátta við erfiðan sjúkdóm er nú á enda runnin. ISumarævintýri jarðlífsins er að baki kærri skátasystur og litaflóra haustsins skrifar eftirmælin. Þau eru fögur og hlý, enda þótt haust sé. Við skátasystkin hennar í St. Ge- orgsgildinu í Hafnarfirði þökkum henni samfylgdina í mörg og góð ár. Þau kynni færðu okkur sumarblíðu og sólskin og minningarnar eru merlaðar ævintýralitum haustsins. Rakel Arnadóttir. Tíminn líður, sorgin dvínar, skuggar hverfa. En minningin um þig og ævintýrin, sem við áttum saman í leik og starfi, lifa og lýsa framtíðina. Hafðu þökk fyrir allt. Guð blessi þig. Hörður Zóphaníasson. Um langt árabil hefur samhentur hópur góðra vina notið samvista í gönguferðum í fallegu umhverfi Hafnarfjarðar og víðai’. Við köllum hópinn okkar „Séð og heyrt“. Það er skrafað og skeggrætt um allt milli j himins og jarðar í þessum ferðum og 1 árlegum samverustundum, sem eru fastur liður, á heimilum okkar á að- ventunni og þorranum. Þá er mikið sungið að þjóðlegum sið þó ekki séu allir með burðuga söngrödd. Nokkr- ir félaganna eru gæddir þeim hæfi; leika að fara vel með lag og texta. I þeim hópi var Rakel sem við horfum nú á eftir með trega. Hún er nú horf- in til austurheimsins eilífa þar sem 1 söngur hennar og hláturinn hvelli mun hljóma í hásölum hins hæsta. j Við vinirnir sem hér stöndum minn- umst ótal glaðra stunda með Rakel og Braga. Hún sem nú hefur kvatt okkur um stund verður á ströndinni handan við hafið mikla og mun taka á móti félögum sínum og vinum í fyllingu tímans. Vertu sæl að sinni, kæra Rakel. Minningin um einlægan og góðan vin lifir. Við vottum Braga og fjölskyldunni allri innilega samúð. Félagarnir í gönguhópnum „Séð og heyrt“. + Magnús Ólafur Valdimarsson fæddist í Reykjavík 6. janúar 1925. Hann Iést á Land- spítalanum 30. sept- ember sfðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Herdís Maja Brynjólfsdótt- ir, húsmóðir, og Valdimar Svein- björnsson, íþrótta- kennari við Mennta- skólann í Reylga- vík. Magnús átti fjögur systkini. Þau eru: Sveinn Haukur, f. 1928; Hrafn, f. 1932, d. 1998; Guð- björg Kolbrún, f. 1938; og Grím- ur, f. 1943. Magnús ólst upp víða í höfúð- staðnum því foreldrar hans fluttust oft búferlum. Árið 1948 kvæntist Magnús Eddu Þórz, f. 1920, d. 1999, og áttu þau tvö börn, Sigurð Gunn- ar, f. 1948, d. 1969; og Katrínu Eddu, f. 1956. Fyrir átti Magnús soninn, Má, f. 1943. Katrín Edda er gift Birni Péturssyni, f. 1953, og eiga þau þijár dætur. Þær eru: Agústa Edda, f. 1977, Eva, Elsku tengdapabbi. Ekki held ég að þér hafi litist vel á blikuna þegar Kata, augasteinninn þinn, fór að hafa með sér ungan síð- hærðan pilt inn á heimilið ykkar Eddu fyrir tæplega þrjátíu árum. Síða hárið mátti kannski sætta sig við, enda tíska þess tíma. Verra var að þessi ungi maður var KR- ingur og vinstri sinnaður í þokka- bót. Þú sem varst svo hrifinn af bláa litnum, hvort sem það var á knatt- spymuvellinum eða í pólitfidnni. Þú lést samt ekki á neinu bera og frá fyrstu stundu tókuð þið Edda mér opnum örmum. Ég held líka að mér hafi tekist að sannfæra þig um það að undir svart/hvíta búningnum hafi leynst maður sem væri þess virði að eignast hana Kötu þína og eiga síðar með henni þrjár dætur sem þú unnir svo heitt. Mikið varstu nú góður við okk- ur. Alltaf reiðubúinn að rétta okk- ur hjálparhönd og styðja okkur. Þau voru ófá skiptin sem ég bað þig um aðstoð sem þú fúslega veittir. Fyrir það verð ég þér æv- inlega þakklátur. Glaðlyndi þitt og sögumar þínar mörgu yljuðu okk- ur sem og öðrum er nutu samvista við þig. Nú fáum við ekki fleiri slíkar yfir sunnudagsmatnum. En þær lifa í hugum okkar. Minning mín um bros þitt er lék um varir þínar á heimili okkar, kvöldið áður en þú þurftir að leggjast á spítalann, mun ávallt lifa í huga mínum. A sama tíma og bláklæddu drengirnir þínir úr Safamýrinni börðust fyrir lífi sínu í úrvalsdeild knattspyrnunnar og höfðu sigur barðist þú við erfiðan sjúkdóm. Og þú barðist hetjulega. Vannst hverja orrustuna á fætur annarri. Þegar öll von virtist úti barðist þú áfram. Afram. Eins lengi og hægt var. Þar til yfir lauk. Nú ertu farinn og Guð gætir þín - einnig Kötu og stelpnanna okk- ar. Það lofa ég þér líka að gera. Björn. Elsku afi. Ekki bjuggumst við systurnar við að þurfa að skrifa minningargrein um þig fyrr en eft- ir mörg, mörg ár. Þú sem varst í fullu fjöri. Gekkst langar leiðir og syntir á hverjum morgni. Við vorum sannfærðar um að þú ættir mörg ár eftir. Það er á svona stundu sem maður verður minntur á hvað lífið getur verið óréttlátt. Okkur fannst alls ekki tímabært fyrir þig að fara frá okkur, en við verðum að reyna að sættá okkur f. 1978, og Hugrún, f. 1988. Már er kvæntur Sigríði Soffíu Gunnarsdótt- ur og eiga þau tvo syni. Þeir eru: Gunnar Karel, f. 1984, og Mímir, f. 1988. Á yngri árum fékkst Magnús við ýmis verslunarstörf en fór til náms til Bandaríkjanna seint á fjórða ára- tugnum. Fljótlega eftir dvölina í Bandaríkjunum, eða 1953, varð Magnús einn af eigendum í Pól- um hf. Þar vann hann síðan fram á þetta ár. Magnús sinnti mjög félags- störfum og var m.a. félagi í Lions-hreyfingunni og Rotary. Hann var einn af stofnendum Sjóstangaveiðifélags Reykjavík- ur og Golfklúbbsins Ness. Þá sinnti hann störfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, ekki síst í heimabæ sínum, Seltjarnarnesi. Utför Magnúsar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. við það. Þegar við hugsum til baka kemur í ljós að við eigum eingöngu góðar minningar um þig. Þú varst alltaf svo góður við okkur og vildir allt fyrir okkur gera. Þú kenndir okkur, barnung- um, á skíði. Keyptir handa okkur allan útbúnað og fórst með okkur til Austurríkis. Fórst tvisvar með okkur elstu systurnar til sólar- landa og eru allar þessar ferðir ógleymanlegar. Við gleymum ekki heldur þeim árum sem þú bauðst allri fjölskyld- unni út að borða á hverjum sunnu- degi. Var það alltaf mikið tilhlökk- unarefni. Afi, þú varst svo góðhjartaður maður, jákvæður og brosmildur, það var alltaf stutt í grínið. Enda varstu alls staðar vel liðinn og áttir óteljandi vini og kunningja. Ég held að fáir hafi fylgst jafn vel með bamabörnum sínum og þú fylgdist með okkur systrunum. Þú fylgdist náið með skólagöngunni og mættir ósjaldan á íþróttaviðburði sem við tókum þátt í. Og þú varst manna stoltastur þegar vel gekk. Við voram líka stoltar að eiga afa eins og þig. „Bisness-maður- inn“ með meiru. Og ekki vorum við síður montn- ar af því að eiga afa sem var þekktur málari og að okkar mati alveg framúrskarandi listamaður. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst þér svona vel, þú áttir jú heima í sama húsi og við allt okkar líf, og allar skemmtilegu sögurnar sem þú sagðir okkur eiga eftir að fylgja okkur um ókomna tíð. Aii, við eigum eftir að sakna þín ofboðslega mikið, en við vitum að þú ert kominn á góðan stað. Nú ertu kominn til ömmu og nú getið þið aftur verið saman. Minning- arnar um þig eiga eftir að ylja okk- ur jiað sem eftir er. Guð geymi þig. Agústa Edda, Eva og Hugrún. Mikill öðlingur er kvaddur þegai’ fóðurbróðir minn Mói verður jarð- aður. Sem krakki kynntist ég Móa ekki mikið, hann var þessi virðulegi gi’áhærði stóri bróðir pabba. Þetta breyttist ekki fyn- en ég fluttist í Vesturbæinn, en þá hittumst við oft og alltaf tókum við spjall saman. Ég held að jafnoft og við ræddum málin saman höfum við aldrei verið á önd- verðri skoðun. Til slíks var heldur ekki tilefni, því Mói var íhaldsmaður af gamla skólanum og gegnheiO Framari. Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnamesi missir traustan flokksmann og Knattspymufélagið Fram saknar öflugs stuðnings- manns í stúkunni. Sama má reynd- ar segja um fjölda félagasamtaka og klúbba, enda kom Mói ótrúlega víða við í félags- og tómstundastarfi. Hann hafði fyrir nokkru komið sér upp vinnustofu til að geta sinnt sínu helsta áhugamáU, listmálun. Mói hætti nýlega að vinna og var fjarri því að hann sæti auðum höndum, enda hafði hann uppi mikil plön að njóta ellinnar, sem gerir fráfaU hans þeim mun erfiðara fyiár eftirUfend- ur að sætta sig við. Mói var húmoristi sem ekki lá á skoðunum sínum, jafnvel þótt vera kynni að þær féllu ekki í kramið hjá fjöldanum eða ekki þætti við hæfi, af einhverjum ástæðum, að viðra þær. Góð dæmi um „spont- ant“ svör Móa og hreinskilni voru þegar ónefnd dagblöð lögðu fyrir hann spurningar á fömum vegi. I fyrra skiptið var spurt hvort hann teldi að lögleiðing bjórsins myndi auka áfengisneyslu Islendinga. Mói svaraði um hæl að hjá sér yrði hann hrein viðbót. Einhvern tíma þegar stjórnarmyndunarviðræður stóðu sem hæst og einhverjum stjórnmálaleiðtoganum datt í hug að biðla til Kvennalistans voru vegfarendur spurðir hvort þeir gætu séð fyrir sér konu í stól for- sætisráðherra. Allir sem svöruðu töldu það geta vel komið til greina, hversu mikið sem þeir meintu það, nema Mói sem svaraði: „Nei, alls ekki, það sem þessi þjóð þarfnast er sterkur karlmaður." En jafnvel sterkustu karlmenn brotna þegar lífsförunauturinn hverfur. Þegar Edda dó eftir langvarandi veikindi hefðu sumir haldið að Mói væri hvfldinni feg- inn, jafnötullega og hann sinnti Eddu í hennar erfiðu veikindum. Annað var upp á teningnum, hann fann sig engan veginn án hennar og tímaklukkan hans fór skyndi- lega að snúast hraðar. Sjálfsagt er hægt að halda því fram að veikindi Móa svo skömmu eftir lát Eddu hafi verið tilviljun, en mig grunar að viljinn til að lifa hafi ekki verið mjög sterkur. Þær vikur sem læknar börðust við þann sjúkdóm sem dró Móa til dauða var hann meðvitundarlaus. A þessum mörk- um lífs og dauða hefur hann sjálf- sagt hitt Eddu sína aftur hressa og káta og Sigurð Gunnar son sinn sem lést af slysförum í blóma lífs- ins. Af hverju þá að snúa við? Með þetta í huga held ég að Kata og aðrir eftirlifendur sætti sig við andlát Móa. Sveinn Andri Sveinsson. Stundum dregur snögglega ský fyrir sólu, en þetta er nú einu sinni gangur lífsins. Það haustar og sól- argeislunum fækkar. Við hefðum kosið að hafa sumarið lengra með vini okkar Magnúsi, en tíminn er svo óútreiknanlegur og enginn fær honum breytt. Þú hefur kvatt okk- ur of snemma, Mói minn, og komið okkur vinum þínum í opna skjöldu. Hver hefði trúað því að komið væri að kveðjustund, eftir að þú hafðir, eins og svo oft áður í tím- ans rás, fengið þér kaffisopa með nokkrum gömlum félögum þínum, aðeins þrem dögum áður en þú veiktist skyndilega. Kunningsskapur og vinátta okk- ar Magnúsar spannar nú næstum hálfa öld, og höfum við átt margar ógleymanlegar stundir saman í gegnum árin. Mikill vinskapur var með okkur hjónunum og Magnúsi og Eddu konu hans, en hún lést í febrúar sl. eftir langa vanheilsu. Attum við saman margar gleði- stundir, bæði heima og heiman, og verður þeirra ætíð minnst með þakklæti í huga. Magnús var mikill félagshyggju- maður. Það fór ekki framhjá nein- um, að hann var sannur Framari. Hann var mikill áhugamaður um knattspyrnu og missti sjaldan af leik, þegar Fram átti að spila. Magnús átti ekki langt að sækja áhuga sinn fyrir íþróttum, því Valdimar, faðir hans, var kunnur íþróttakennari á árum áður og frumkvöðull handboltaleiks á Is- landi. Við Mói fórum ósjaldan sam- an á völlinn, þegar áhugaverðir leikir voru framundan, og misstum i- sjaldan af leik landsliðsins. Einu sinni varð Móa að orði, þegar við gengum út af Laugardalsvellinum eftir landsleik, að enginn vafi væri á því að okkar menn stæðu sig oft- ast betur, þegar við færum saman á völlinn. Magnús fékk snemma áhuga á sjóstangaveiði og var einn af stofn- endum Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur, sem stofnað var 1961. Fórum við saman á ófá sjóstangaveiðimót víðsvegar um landið, sem gleymast seint. Spánn, og þá sérstaklega Mall- orca, heillaði Magnús mikið. Þau hjónin, Edda og Magnús, gerðu tíðreist á Spánarstrendur í fjölda ára. Síðasta ferð þeirra saman var sumarið 1998 til Mallorca, og síð- astliðið vor fór hann svo einn eftir að Edda lést. Magnús var mikill Spánarvinur, mat mikils spænska list og sótti tungumálanámskeið á Spáni til að komast betur inn í málið. Hann fylgdist vel með því helsta, sem var að gerast þar syðra, m.a. með því að verða sér úti um spánska dagblaðið E1 País til að seðja fróðleiksfýsn sína. Segja má að tónlistin hafi Móa. verið í blóð borin, og þá sér í lagi jazztónlist. Hann heillaðist mjög af gömlu meisturunum Louis Arm- strong, Duke Ellington og Lionel Hampton, en sérstakt uppáhald hans var söngkonan Sarah Vaug- hn. Þegar hann kom í heimsókn til okkar hjónanna varð ekki hjá því komist að sett yrði plata á fóninn með uppáhaldssöngkonunni. Þá ljómaði vinur okkar allur. Eitt sinn fórum við saman í Há- skólabíó og hlýddum á Lionel r Hampton og hljómsveit hans leika af fingrum fram. Uppselt var á tónleikana, og þar sem við mætt- um seint til leiks urðum við að standa á tveimur jafnfljótum allan tímann en létum það ekki aftra okkur frá því að hlusta á góða tón- list. Þetta var eitt af mörgum ógleymanlegum kvöldstundum, sem við Mói áttum saman. Uppáhaldstómstundaiðja Magn- úsar var án nokkurs efa myndlist, sem átti hug hans allan, sérstak- lega hin síðari ár. Hann varð sér úti um ágætis aðstöðu til að stunda vinnu sína við að mála myndir á sínum heimahögum á Seltjarnar- nesi. Magnúsi fórst sérlega vel úr hendi að mála mannamyndir, enda skipta þær sennilega tugum, sem hann festi á léreft af ýmsum góð- borgurum. Hann málaði líka mynd- ir af gömlum húsum og landslagi, og gerði oft skissur á ferðalögum sínum erlendis og lauk við að full- gera þær, þegar heim kom. Það er leitt til þess að hugsa, að Móa skyldi ekki gefast lengri tími til að stunda þessa uppáhaldsiðju sína. Hann átti þar mikið verk óunnið. Magnús var vinmargur, enda átti hann sérlega gott með að kynnast fólM. Hann var hrókur alls fagnaðar á góðra vina fundum, glettinn og spaugsamur og hafði - gaman af að segja frá skondnum uppákomum, þegar svo bar undir. Hann var prúðmenni í allri fram- komu og traustur vinur vina sinna. Þegar að leiðarlokum kemur og kveðjustund hrannast upp minn- ingar frá liðnum árum. Þær falla ekM í gleymsku, þótt skilji með okkur um stundarsakir. Leið Magnúsar liggur nú á nýjar slóðir og inn í nýja öld, þar sem hann mun halda áfram að stunda sína eftirlætis iðju, myndlistina, að ógleymdum ferðum á sólarstrend- ^ ur, sem bíða hans fyrir handan. Það er skarð fyrir skildi í vina- hópnum. Hasta la vista, mi amigo - hittumst síðar, góði vinur. Við hjónin og félagar hans fær- um börnum hans, Katrínu Eddu og Má, tengdabömum og barnabörn- um hugheilar samúðarkveðjm’. } Njáll Símonarson. MAGNÚS Ó. VALDIMARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.