Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 29
ERLENT
Dyggða-
flokkurinn
lagður af?
AÐALSAKSÓKNARI tyrk-
neska ríkisins lagði í gær til að
Dyggðaflokkurinn, stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn á
tyrkneska þinginu, yrði lagður
af. Er flokknum gefíð að sök að
vilja stuðla að því að koma á
ströngum iagabókstaf Kórans-
ins og kollvarpa þannig því
samfélagskerfi, er komið var á
fyrir tilstuðlan Mustafa Kemals
Atatiirks, og gerbreytti tyrk-
nesku þjóðfélagi á fyrri hluta
aldarinnar.
Kona í
Evrópu-
dómstólinn
EVRÓPUDÓMSTÓLLINN til-
kynnti í gær að kona hefði í
fyrsta sinn verið skipuð í sæti
dómara við réttinn. Fidelma
Macken, írskur hæstaréttar-
dómari, mun senn taka sæti sitt
meðal fjórtán annarra dómara
Evrópudómstólsins og gegna
stöðunni til ársins 2003.
Lúkasjenkó
deilir á Rússa
STJÓRNVÖLD í Rússlandi
reyndu í gær að gera lítið úr
ágreiningi við stjórnvöld í
Hvíta-Rússlandi vegna upp-
kasts að samningi um samein-
ingu ríkjanna, sem hefur verið
harðlega gagnrýnt af Alexand-
er Lúkasjenkó, forseta Hvíta-
Rússlands. Lúkasjenkó hefur
viljað fara hraðar í sameining-
una en Rússar og sagði að upp-
kastið breytti engu um núver-
andi stöðu mála. Borís Jeltsín
Rússlandsforseti hefur sam-
þykkt uppkastið.
Stefnur vegna
peningaþvætt-
ismálsins
SAKSÓKNARAR í Bandaríkj-
unum hafa gefið út ákærur á
hendur þremur einstaklingum
vegna peningaþvættismálsins
svonefnda sem tengist fjárreið-
um rússnesku mafíunnar hjá
hinum virta New York banka.
Akærur voru gefnar út á hend-
ur Lucy Edwards, fyrrum
framkvæmdastjóra bankans, og
eiginmanni hennar, Peter Berl-
in. Þriðji maðurinn sem ákærð-
ur hefur verið er Aleksí Volkov.
Eru þau kærð fyrir ólöglega til-
færslu peninga og ólöglegar
innstæður.
óbilandi
Verð á fjórhjóladrifnum
Subaru Legacy station:
beinskiptur 2.198.000,-
sjáifskiptur 2.298.000,-
trú á Subaru
Samkvæmt könnun á bilanatíðni bíla eftir tveggja
ára notkun, sem framkvæmd var af hinu virta breska
fyrirtæki j. D. Power, kom í Ijós að Subaru er í efsta
sæti með lægstu bilanatíðni:
Subaru
Nissan
Mazda
Daihatsu
Honda
Toyota
Skoda
Mitsubishi
0 100 200
Ingvar
- Helgason hf.
1-- ' ~ Sími 525 8000
www.ih.is
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
WE5LO
CADENCE 935EX
Rafdrifin göngu- og hlaupabraut
Hraöi 0-13 km/klst.
Fjaörandi bretti sem minnkar álag á liöamót.
Einfaldur hæðarstillir, vandaöur tölvumælir,
statíf fyrir vatnsbrúsa og handklæöi.
Hægt aö leggja saman og því hentug
fyrir heimili og vinnustaöi.
Stgr. 108.370,
kr. 114.073.
Stærð: L 144 x br. 70 x h. 133 cm.
RAOGRmSLUR
l'WI______
LEMrárrnti
ÖRNINNP*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588 9890