Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 43 I I i m H gi ■ i UMRÆÐAN og stóriðjuframkvæmdir getum við aðeins treyst á að þjóðin vakni og sýni samstöðu svo vilji hennar nái fram að ganga. A meðan við bíðum eftir sönnunargögnum og samstöðu getum við reynt að kalla stjórn- málamenn og embættismenn öllum illum nöfnum. Við getum kallað þá landeyður eða þjófa, en orðin hljóta samt að missa marks því múr sam- tryggingarinnar er svo rammger að yfir hann fer ekkert nema með leyfi valdhafa. Við getum sjálfum okkur um kennt, það vorum við sjálf sem kus- um yfir okkur þann ófögnuð sem nú hyggst hundsa þær kröfur sem 80% landsmanna styðja. Við eigum sök- ina - við köstuðum perlum fyrir svín. Og hver á nú að verja landið? Hér um árið þutu menn út og suður og söfnuðu um fimmtíu þús- und undirskriftum til að óska eftir því að ameríski herinn yrði um kyrrt og sæi um að verja landið. Þáverandi ríkisstjórn íslands tók tillit til þeirra krafna, þrátt fyi’h- að í stjórnarsáttmála meirihlutans væri að finna klausur þess efnis að vinna ætti að því að herinn færi. Nú eru aðrir tímai', nú þarf virki- lega að verja landið fyrir ágangi peningaveldisins og nú er ríkis- stjórn Islands með amerískan her í viðbragðsstöðu til að verjast ágangi þeirra sem vernda vilja ósnortið landi. Og ekki ætlar þessi stjórn að taka tillit til óska þeirra manna sem vilja landið verja, en ítrekar þess í stað að leyfi fyrh’ eyðingu lands hafi verið gefið út áður en menn fóru alvarlega að hugleiða þann möguleika að láta náttúruna njóta vafans þegar meta þarf áhrif stór- framkvæmda á umhverfi. Þetta er eins og að framfylgja dauðarefsingu um leið og fanginn sannar sakleysi sitt. Stjórnin ætlar einfaldlega að virkja og reisa álver, sama hvað það kostar. Menn velta ekki fyrir sér afleiðingunum, þeir hugsa ekki um náttúruspjöllin og hugleiða ekki einu sinni hvar á að finna vinnuaflið þegar álver er risið fyrir austan. Allt er þetta framkvæmanlegt vegna þess að almenningur í land- inu er söfnuður þvílíkra rænulausra hengilmæna, að ef litið er yfir hóp- inn verður manni illt. Svefngengl- arnh þumbast áfram vitandi það að aðgerðarieysi þeirra kostar það eitt að stjórnvöld drita niður hverri virkjuninni á fætur annarri og reisi álver í löngum runum svo skapa megi atvinnutækifæri fyrir ódýrt, innflutt vinnuafl. Ef sá þankagangur sem segir að stóriðja sé hið eina rétta og fær að verða að þráhyggju manna á meðal, þá mun forkastanleg fásinna kaf- færa alla vitræna hugsun í þessu landi. Ef sofandaháttur íslenski-ar alþýðu ræður för verður hálendið innan fárra ára eitthvað sem fólk mun vilja forðast fyrir alla muni. Þá verður kannski spurt að því, hverjir áttu að verja þetta land. Höfundur er skáld. Lækning fyrir samkynhneigða ALLSNÖRP greina- skrif um samkyn- hneigð hafa átt sér stað undanfarið og er það tilefni ski’ifa minna hér. Það sem hefur vakið sérstaka athygli mína er að mjög ófag- lega er fai’ið með stað- reyndir í umræðunni. Fullyrðing í þá veru að samkynhneigð sé lík- amlega meðfædd hefur oft komið fram. Þessi fullyrðing á engan veg- inn rétt á sér þar sem „hommagenið" svo kallaða hefur aldrei fundist þrátt fyrir tals- verðar rannsóknir. Kenningunni hefur lengi verið haldið á lofti en engin vísindaleg rök eru fyrir því að samkynhneigð sé meðfædd. Þær örfáu rannsóknir sem virtust benda til þess hafa aldrei fengið viður- kenningu vegna þess að almennar rannsóknarreglur voru ekki virtai’. Þrátt fyrh’ ýmsar getgátur hafa læknar og vísindasamtök aftur og aftur sent frá sér yfirlýsingar um að engar sannanh- séu fyrir með- fæddri samkynhneigð. 22. apríl á þessu ári kom yfirlýsing frá kanadískum vísindamönnum þar sem fram kom að samkynhneigð væri ekki tengd genum á neinn hátt og því ekki meðfædd. Yfirlýsingin birtist á CNN, NBC, The Was- hington Post, USA Today og víðar. Engin virt lækna- og vísindasamtök í heiminum í dag halda því fram að sannað sé að samkynhneigð sé meðfædd. Það er því algjörlega óviðunandi að menn sem vilja láta taka sig alvarlega slái fram svona órökstuddum fullyi’ðingum. Þó að menn hafi ýmsar kenning- ar varðandi ástæður samkyn- hneigðar verður að virða þær stað- reyndir sem liggja fyrir. Það sem hefur komið í ljós er að margir samkynhneigðir vilja hefta og helst banna alla umræðu um að samkyn- hneigðir einstaklingar geti breytt um lífsstíl og snúist algjörlega til gagnkynhneigðar. Samt eru til ótal dæmi um slíkt. Aiþjóðlegu meðferðarsamtökin Exodus Intemational hafa aðstoðað tugi þúsunda einstaklinga við breyta um lífsstfl og sýnt varanleg- an árangur. Langanir og lífsstíll fólks hafa breyst og margir hafa nú verið í löngu hamingjuríku hjóna- bandi með maka af gagnstæðu kyni. Síðastliðið ár var viðtal við ein slík hjón í „Séð og heyrt“. Margir sálfræðingar og geðlæknar hafa náð miklum árangri með skjólstæð- inga sína. Einn slíkur, dr. Joseph Nicolosi, hefur náð miklum sannan- legum árangri með 200 karlmenn sem hafa gjörbreytt um lífsstíl eftir meðferð sem að hann kallar „Reparati- ve therapy". Staðreyndin er sú að þótt að stór hópur samkynhneigðra vilji ekki breyta um lífsstfl, og þeir eru vitaskuld frjálsir tfl að gera það sem þeir vilja, er líka stór hópur sem vill breyta lífi sínu. Sá hóp- ur á í baráttu við eigin kenndir, hugsanir og samvisku en skilur ekki eigið ástand og vill aðstoð. Það er vegið að mannréttindum þessa fólks með því að vilja hylma yfir og jafnvel banna með lögum alla umræðu um breyttan lífsstfl og lækningu sálarlífs þess. Það hafa talsmenn samkynhneigðra viljað gera á þeim forsendum að þeir sem eru ósammála þeiri’a sjónarmiðum séu að ærumeiða fólk og beri ábyi’gð á hái-ri sjálfsmorðstíðni og slæmu sálarástandi samkyn- hneigðra. Svona stoðlausar, alvar- legar ásakanir eru mjög ómálefna- legai’ og engum tfl góðs, allra síst samkynhneigðum. Þær firra menn Eigum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiskonar stoð- og hjálpartxki sem létta störfin, auka öryggi og afköst. Leitið upplýsinga ^ UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Straigœnrehf SUNDABORG 1 • SlMI 568-3300 Steingrímur Ómar Lúðvíksson Samkynhneigð Engin virt lækna- og vísindasamtök í heimin- um í dag halda því fram, segir Steingrím- ur Omar Lúðvíksson, að sannað sé að sam- kynhneigð sé meðfædd. ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörð- um og geta þar af leiðandi verið mjög hættulegar. Ég vona að tján- ingarfrelsi Islendinga verði ekki stefnt í hættu og að umræðan verði héðan í frá málefnalegri heldur en hingað til og jafnframt að borin verði sönn virðing fyrir öllum ein- staklingum. Höfundur starfar við ferðaþjónustu. ABS3000 Hrað-þunnflotefni Alvöru flotefni fyrir „dúkara/y 8miéjuv«0Uf Ti, 800 KépvhöUf lifflii 1W§-Kam issími Lod'fód'rucí barnastí gvél Hlý Vatnshela Má þvo á 30 í vél Fástí U litum Rauð st. 21-35 Grá st. 27-35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.