Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samkeppnisráð bannar miðdegisflug Flugfélags Islands á milli Egilsstaða og Reykjavíkur Engin farþegaQölgun í miðdegisfluginu NÝTT miðdegisflug Flugfélags ís- lands á milli Reykjavíkur og Egils- staða samkvæmt vetraráætlun fé- lagsins brýtur gegn ákvæðum sam- keppnislaga að mati samkeppnis- ráðs og hefur flugfélaginu því verið bannað að fljúga miðdegisflug á milli ákvörðunarstaðanna. Að sögn Jón Karls Ólafssonai', framkvæmdastjóra Flugfélags Is- lands, mun flugfélagið fara með ákvörðun samkeppnisráðs til áfrýj- unarnefndar samkeppnismála og verði ákvörðun samkeppnisráðs staðfest þar, muni félagið fara með málið fyrir dómstóla. Segir Jón Karl, að niðurstaða samkeppnisráðs komi á óvart, því samkvæmt upp- lýsingum frá Flugmálastjórn séu Egilsstaðir annar stærsti áætlunar- staðurinn í innanlandsflugi á eftir Akureyri og hafi þar að auki verið mjög vaxandi ákvörðunarstaður síð- astliðin tvö ár. Hafi farþegafjöldi aukist um 17% á flugleiðinni milli Egilsstaða og Reykjavíkur frá árinu 1997. Forsendur ákvörðunai’ Sam- keppnisráðs eru m.a. þær að athug- un samkeppnisyfirvalda hafi sýnt að farþegafjölgun, sem varð í áætlun- arflugi á fyrstu sex mánuðum ársins hafi aðeins orðið i morgun- og kvöldflugi en farþegum í miðdegis- flugi hafi hins vegar ekki fjölgað. Hafi verið sýnt fram á að miðdegis- flug Flugfélags Islands yrði rekið með miklu tapi miðað við núverandi eftirspum eftir flugi á þeim tíma, jafnvel þótt félaginu tækist að ná til sín öllum farþegum Islandsflugs. Telur samkeppnisráð þannig að miðdegisflug félagsins sé til þess fallið að eyða samkeppni á um- ræddri flugleið samkvæmt vetrará- ætlun og því fari miðdegisflugið gegn ákvæðum samkeppnislaga. Vekur mikla furðu Jón Karl Ólafsson segir að það veki mikla furðu að samkeppnisyfir- völd telji nauðsynlegt að stunda beina framleiðslustýringu gegn einu félagi, sem stundi starfsemi á mark- aði innanlandsflugs, ekki síst í ljósi þess að innanlandsflug hafi verið gefið frjálst um mitt ár 1997. „Við munum að sjálfsögðu fara með málið lengra því við getum ekki lifað við það að vera með ótíma- bundna framleiðslustýringu yfu- okkur. Við munum því áfrýja þess- um úrskurði og væntanlega fara með málið fyrir dómstóla ef allt annað bregst. Við verðum að fá úr því skorið hvort slík framleiðslu- stýring standist lög,“ segir Jón Karl. Ýmir HF sjófær eft- ir mánuð GERT er ráð fyrir að frystitogarinn Ýmir HF verði orðinn sjófær á ný eftir rúman mánuð en skipið lagðist á hliðina í Hafnarfjarðarhöfn í byrj- un ágúst sl. með þeim afleiðingum að sjór flæddi inn í skipið og skemmdi innréttingar og vélar. Að sögn Agústs Sigurðssonar, útgerðarstjóra Stálskipa ehf., er nú unnið hörðum höndum að því að laga skemmdir. „Þetta er mikið verk. Það er verið að innrétta íbúðir upp á nýtt og setja vélarnar niður aftur. Við þurftum að taka upp allar vélar í smá pörtum og hreinsa þær. Það sem ekki er hægt að gera við verður endurnýjað. Tæki í brú sluppu hinsvegar að mestu. Það hefur gengið erfiðlega að fá iðnaðar- menn til að innrétta íbúðir og við þurftum að panta efni í þær að utan. En núna er allt komið á fullt og von- andi verður skipið komið á sjó áður en langt um líður,“ segir Ágúst. ------------- Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingar, segist ánægð með reykingabannið. Morgunblaðið/Ásdís Halldór Blöndal, forseti Alþingis, segist vona að þingmenn noti tækifærið og hætti að reykja. Þingmenn rólegir yfir reyk- ingabanni FRÁ og með deginum í dag verður bannað að reykja í Alþingishúsinu og þeim byggingum Alþingis sem opnar eru almenningi. Morgunblaðið ræddi við nokkra þingmenn í gær sem sögðu að lítið væri rætt um yfirvofandi reykingabann í Alþingishúsinu. Þetta væru bara reglur sem væri búið að setja og sjálfsagt að fólk færi eftir þeim. Þeir áttu þó ekki von á því að þingmenn færu að reykja úti undir húsveggjum. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sagði að nú þegar þessar reglur hefðu verið settar vonaðist hann til að fólk notaði tækifærið og hætti að reykja, en það hafi einmitt gerst á sínum tíma þegar reykingar voru bannaðar í samgönguráðuneytinu. Hann sagði bannið gilda um Alþingishúsið og önnur hús þingsins sem opin væm almenningi, en ekki væm settar reglur um hvað fólk gerði á einkaskrifstofum sínum. Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingar, er í hópi þeirra þingmanna sem reykja og sagðist hún vera ánægð með að fá þetta tækifæri til að hætta að því. Hún sagðist frekar sleppa því að reykja en að fara út undir húsvegg og bætti því við að sér fyndist fullfrísku fólki engin vorkunn að því að vera bannað að reykja. Ók á 121 km hraða ÞRÍR ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í gær og var einn öku- mannanna tekinn á 121 km hraða á Reykjanesbraut við Sæbraut í gær en þar er 60 km hámarkshraði. Óku- maður er fæddur árið 1982. Þá tók lögreglan í Reykjavík tvo aðra ökumenn á yfir 100 km hraða og var annar tekinn á Vesturlands- vegi í Ártúnsbrekku á 104 km hraða og hinn á Sæbraut á 108 km hraða. ------♦-♦-♦----- Hafnaði á ljosastaur TVEGGJA bíla árekstur varð á Bú- staðavegi sunnan við Miklubraut rétt fyrir kl. 22 í gærkvöldi með þeim afleiðingum að annar bílanna hafnaði á ljósastaur. Að sögn lögreglu slasaðist enginn við áreksturinn. Óskar Magnússon, starfandi stjórn- arformaður Baugs hf. Hættir hjá Baugi um áramót ÓSKAR Magnússon mun láta af starfi starfandi stjómarformanns Baugs hf. um næstu áramót. „Þetta er algjörlega að mínu frum- kvæði,“ sagði Óskar Magnússon í samtali við Morgunblaðið. Óskar hefur verið starfandi stjómarformaður frá stofnun Baugs í júní 1998 en áður var hann forstjóri Hagkaups, sem nú er í eigu Baugs. „Þegar þessar breyt- ingar urðu í fyrrasumar þá tók ég að mér ákveðnar skuldbindingar og ég tel mig hafa lokið þeim núna,“ sagði Öskar um ástæður starfslokanna nú. Óskar sagði að á sínum tíma hefði margt kallað á að stjórnar- formaður væri í fullu starfi við Baug. Eigendur Hagkaups seldu hlut sinn til FBA og Kaupþings; Hagkaupi var síðan skipt upp í Nýkaup og Hagkaup, síðan vom fyrirtækin sameinuð Bónusi og þau gerð að almenningshlutafélagi undir naíni Baugs. ,jUlt þetta var mikið verk sem nú er að mestu lok- ið og framundan hefðbundnari störf við að styrkja innviðina og fé- lagið út á við. Það verkefni er rétt að reglulegir stjómendur Baugs og verslanakeðjanna sem Baugur rekur glími við. Því finnst mér eðli- legt að þessi breyting verði nú á næstu mánuðum," sagði Óskar. Hann sagði ekki fullákveðið hvað hann tæki sér fyrir hendur. „En mér hefur staðið til boða að vinna fyrir erlenda verslanakeðju og til að byrja með mun ég sinna verkefnum fyrir þá aðila,“ sagði hann. Borgarstjóri um Fljótsdalsvirkjun Umhverfísmat er skynsamlegt „ÉG hefði talið það skynsamlegt allra hluta vegna að Fljótsdalsvirkj- un færi i umhverfismat,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri en Olafur F. Magnússon, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, mun leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar í kvöld um að borgarstjórn skori á Aþingi að sjá til þess að umhverfis- mat fari fram. Borgarstjóri sagði vit- að að mjög skiptar skoðanir væm í borgarstjórn um hvort fram ætti að fara umhverfismat. „Enda má segja að verið sé að flytja mál af landsmálavettvangi inn í borgarstjórn og skoðanir fólks þar eru mjög skiptar," sagði Ingibjörg. „Þar em ýmsir þeirrar skoðunar að málið eigi ekkert erindi í borgar- stjórn. Þarna er verið að skora á Al- þingi að fram fari umhverfismat og þó að þetta mál varði Reykvíkinga miklu varðar það kannski ekki Reykvíkinga og Reykjavíkurborg með neinum sértækum hætti óháð eignaraðild borgarinnar í Lands- virkjun. Alþingi hlýtur að vega og meta afstöðu sína óháð því hverjir eiga fyrirtækið. Ég hef heyrt það á borgarfulltrúum að þeim finnist að fólk geti haft sínar persónulegu skoðanir á málinu en að þær eigi ekkert erindi í borgarstjórn, þar sem verið sé að skora á Alþingi í máli sem snýr ekki eingöngu að Reykvíkingum heldur landsmönnum öllum. Svo má segja að menn velti því fyrir sér hvaða gagn þessi ályktun geri málstaðnum sem tillagan á að þjóna ef það er eins og mér sýnist að það sé tvísýnt um afdrif hennar í borgarstjórn," sagði borgarstjóri. --------♦-♦-♦-------- NÁMSI lÍNAN A Við hjá Búnaðarbankanum vitum að nám er vinna. Viö vitum líka að námsmenn eru duglegir og metnaðarfullir og þess vegna viljum við veita þeim aðstoð. Oddviti Sjálfstæðisflokks Styð ekki tillöguna „ÉG er þeirrar skoðunar að þessi tillaga eigi ekki heima í borgarstjórn Reykjavíkur," sagði Inga Jóna Þórðardóttir oddviti Sjálfstæðis- flokks um tillögu Ólafs F. Magnús- sonar um að borgarstjórn skori á Al- þingi að láta fara fram umhverfis- mat vegna Fljótsdalsvirkjunar. „Þetta er mál sem Alþingi mun leiða til lykta,“ sagði hún. „Það er til staðar virkjanaleyfi undanþegið um- hverfismati. Ef vilji Alþingins stend- ur til að breyta því þá er það rétti vettvangurinn fyrir þær umræður. Auk þess liggur fyrir að upplýsingar varðandi umhverfisþátt málsins verða lagðar fram mjög fljótlega og ég treysti því að sú umræða verði málefnaleg. Hún á að hafa sinn eðli- lega gang á sínum rétta vettvangi. Þannig að ég styð ekki tillögu Ólafs.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.