Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tölvunefnd seg’ir heim- ild í samræmi við lög TÖLVUNEFND, sem veitti starfsmönnum ís- lenskrar erfðagreiningar heimild til könnunar á 30 sjúkraskrám á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, vísar á bug fullyrðingum stjórnar Læknafélags íslands í þá veru að fyrirhuguð skoðun „samrýmist hvorki landslögum né siðareglum lækna,“ eins og segir í ályktun félagsins sem send var fjölmiðlum í gær. Þar lýsir stjórnin jafnframt yfír stuðningi við framkomna kröfu landlæknis um að horfið verði frá fyrirhugaðri könnun. Páll Hreinsson, formaður Tölvunefndar, segir að Tölvunefnd hafi ekki séð ástæðu til að gera at- hugasemd við beiðni heObrigðisráðuneytis sem barst nefndinni 23. ágúst sl. Fyrirhuguð forkönn- un þyki nauðsynleg til að væntanlegur rekstrar- leyfisaðili geti mótað endanlegar óskir sínar um hvaða heilsufarsupplýsingar verði skráðar í gagnagrunn. Könnunin sé þar með liður í undir- búningi að veitingu rekstrarleyfis. Páll áréttar að leyfið sem óskað var efth- af hálfu ráðuneytis hafi eingöngu náð til forkönnun- ar, ekki sé um að ræða að færa neins konar upp- lýsingar í gagnagrunn, né feli heimildin í sér leyfi til rekstrar gagnagrunns. Skýra afmörkun vantar í lögunum Páll bendir á að í lögunum um miðlægan gagnagrunn sé, því miður, ekki afmarkað ná- kvæmlega hvaða heilsufarsupplýsingar eigi að fara í gagnagrunninn. I almennum athugasemd- um við frumvarpið sé tekið fram að eðlilegt sé að láta frekari útfærslu bíða samninga við ein- staka sjúkrastofnanir. „Þannig ýta lögin þessu á undan sér,“ segir Páll. „I ljósi þess hvernig lög- in um gagnagrunninn eru úr garði gerð og svo þeirra krafna sem bæði Tölvunefnd og ráðu- neytið hafa gert um skýra afmörkun, sem vænt- anlegt leyfi á að taka til, varð hreinlega ekki komist hjá því að verða við beiðni ráðuneytis- ins.“ Hann bendir á að ekki fáist aðgangur að sjúkraskrám nema tvö leyfi liggi fyrir. I fyrsta lagi þurfi að liggja fyrir leyfi bærs aðila hjá sjúkrastofnun. „Þetta leyfi fékkst hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. En til þess að slíkur aðgangui’ sé leyfður þarf líka leyfi Tölvunefndar sem nefndin veitti á grundvelli 2. mgr. 5. gr. laga 121/1989,“ segir Páll. Hann bendir á að Tölvunefnd hafi bundið leyfið ströngum skilyrðum, þ.á m. að sjúkraskrárnar verði einvörðungu skoðaðar inn- an veggja sjúkrahússins, engin afrit verði tekin og skoðunin fari fram undir eftirliti læknis. Páll segir að afmörkun ráðuneytis á því leyfi sem það sótti um hafi verið í samræmi við þá vinnslu sem gagnagrunnslögin byggjast á og ít- rekar að fyrirhuguð könnun sé einungis forkönn- un. „Það er raunar athyglisvert að slík kerfis- bundin könnun skuli ekki hafa verið gerð miklu fyrr og það jafnvel við undirbúning að setningu laga um gagnagrunninn.“ ■ Hlutur Tölvunefndar/16 ■ Umdeild/37 Tilboð í hluta fast- eigna Básafells á Isafirði Vilja opna fiskrétta- verk- smiðju HÓPUR fjárfesta undir stjóm Sam- Oeinaðra útflytjenda hf. hefur gert tilboð í hluta fasteigna Básafells hf. á Isafirði með það meðal annars í huga að koma á fót fiskréttaverk- smiðju. Stefnt er að stofnfundi eign- arhaldsfélags um viðkomandi fast- eignir og stofnun fiskréttafyrirtæk- is fyrir helgi, jafnvel á morgun. Fasteignirnar sem um ræðir á Isafirði eru við Sindragötu 5, 7 og 11, samtals tæplega 6.000 fermetr- ar að grunnfleti. Ivar Pálsson, stjórnarformaður Sameinaðra út- flytjenda, segir að húsnæðið hafi í æ ríkari mæli verið notað sem geymsla og því hafi menn viljað spoma við. Hann hefði því fengið menn, meðal annars fjársterka heimamenn, til að sameinast um kaupin og síðan kæmu fleiri að stofnun fiskréttaverksmiðjunnar. „Verðið verður ekki gefið upp að svo stöddu en að mati kaupenda og seljenda er tilboðið sanngjarnt," segir hann. Sameinaðir útflytjendur eiga hlut í rækjuvinnslunni Pólar hf. á Siglu- firði og hafa selt fyrir rækjuvinnsl- ur, meðal annars fyrir Básafell, og segir ívar að þar sem fyrirtækið að- stoði aðra við sölu á rækjuafurðum verði ekki farið út í rækjuvinnslu. Hins vegar hafi vantað vettvang fyrir sushi-framleiðslu og hugmynd- in sé að opna fiskréttaverksmiðju á efri hæðinni í húsinu við Sindragötu 7, þar sem Básafell hafi verið með rækjuverksmiðju. Skilorðsbund- ið fangelsi fyrir afritun Windows FRAMKVÆMDAST J ÓRI tölvu- fyrirtækis var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í 2 mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að afrita Windows-stýrikerfið án heim- ildar og setja það upp á tölvur sem hann seldi síðan án samþykkis Microsoft Corp. og án þess að greiða því en það á höfundarrétt að stýrikerfinu. Þá var fyrirtæki mannsins dæmt til að greiða 300 þúsunda króna sekt. í dómi Héraðsdóms segir að um hafi verið að ræða gróft brot á höf- undarrétti Microsoft Corporation og ljóst að með háttsemi sinni hafí maðurinn valdið Microsoft tjóni, þótt ekki sé upplýst hversu miklu. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins. -----♦-♦-♦---- Fannst lát- inn í Reykja- víkurhöfn KARLMAÐUR á þrítugsaldri fannst látinn í Reykjavíkurhöfn síð- astliðinn sunnudag. Tilkynntu sjó- menn af erlendu skipi lögreglunni í Reykjavík um líkfundinn. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík bendir athugun hennar á tildrögum að láti mannsins til þess að um slys hafi verið að ræða. ------------------- Bifreið for- setafrúar NOKKRIR úr fömneyti Hillary Clinton, forsetafrúar Bandaríkj- anna, komu á Hótel Sögu í gær. Þangað kom einnig brynvarin og sprengjuheld sex tonna glæsibif- reið sem forsetafrúin mun ferðast í og tveir bflar fyrir lífverði sem fylgja munu forsetafrúnni hvert fótmál. Hillary Clinton kemur til lands- ins á morgun og verður viðstödd ráðstefnuna um konur og lýðræði, sem stendur til sunnudags. Fjarvinnslufyrirtæki Islenskrar miðlunar og heimamanna stofnað í Fjarðabyggð Eitt stærsta fyrir tækið á staðnum UNNIÐ er að stofnun fjarvinnslu- fyrirtækis á vegum íslenskrar miðlunar hf. og heimamanna í Fjarðabyggð. Starfsstöðvar verða í Neskaupstað, á Eskifirði og Reyðarfírði, samtals 36 starfs- menn og verður fyrirtækið í hópi stærri fyrirtækja í sveitarfélag- inu. Bæjaryfirvöld settu sig í sam- band við eigendur Islenskrar miðlunar hf. í sumar til að spyrj- ast fyrir um möguleika á að koma upp útibúi í Fjarðabyggð og kom í ljós að fyrirtækið hafði þörf fyrir það til að anna verkefnum sínum. Rafn Jónsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Islenskrar miðlun- ar, reiknar með að starfsemi hefj- ist í Fjarðabyggð í upphafi næsta árs. Bæjarfélagið hefur annast und- irbúning fyrir austan, útvegun hús- næðis og stofnun fyrirtækis. Hlut- verk íslenskrar miðlunar er að setja upp aðstöðuna, þjálfa starfs- fólk og útvega verkefni. Islensk miðlun mun eiga 30% hlutafjár í félaginu í Fjarðabyggð. Ekki hefur verið gengið frá því hverjir leggi til hlutafé af hálfu heimaaðila en rætt hefur verið um að bæjarfélagið, hugsanlega Eign- arhaldsfélag Austurlands, lífeyris- sjóðir, sjávarútvegsfyrirtæki og fleiri aðilar verði eigendur. Heild- arhlutafé verður 30 milljónir og dugar það fyrir öllum stofnkostn- aði og vel það. Tíu almennir starfsmenn verða í hverri starfsstöð ásamt verkstjóra, auk eins framkvæmdastjóra og tæknimanna. Fyrirtækið verður eitt af stærri fyrirtækjum í Fjarða- byggð. „Við höfum áhuga á að auka fjölbreytni í atvinnulífi sveitarfé- lagsins. Þetta fyrirtæki er mikil- vægur þáttur í því,“ segir Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Viðræður á Norðurlandi íslensk miðlun hf. hefur verið að setja upp starfsstöðvar víða um landið. Auk viðræðna um stofnun fyrirtækis í Fjarðabyggð standa yfir viðræður um stofnun starfs- stöðva á Ólafsfirði, Sauðárkróki, Blönduósi, Hvammstanga og Húsavík, að sögn Rafns Jónssonar. lorgunblaðsins Ásgeir Elíasson ráðinn þjálfari Þróttara C/t ú 11 e r a Sérblad um viðskipti/atvinnulíf '***• í úrivitf Knattspyrnulandsliðið komið saman í París C/2 www.mbi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.