Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samráðsfundur Evrópuráðsins og Evrópusambandsins
Lýðræði og
mannréttindi
treyst í
A-Evrópu
EVRÓPURÁÐIÐ og Evrópusam-
bandið (ESB) hafa á liðnum misser-
um starfað saman að því að treysta í
sessi mannréttindi, lýðræði og regl-
ur réttarríkis í löndum Mið- og Aust-
ur-Evrópu. A samráðsfundi stofnan-
anna tveggja, Evrópm'áðsins og
ESB, sem haldinn var í Strassborg í
gær undir stjórn Halldórs Asgríms-
sonai' utanríkisráðherra var ákveðið
að leggja aukna áherzlu á þessi sam-
starfsverkefni.
Halldór sat samráðsfundinn og
stjórnaði honum sem formaður ráð-
herranefndar Evrópuráðsins, en
fundinn sátu jafnframt Chris Patten,
sem fer með utanríkismál í fram-
kvæmdastjórn ESB, Kimmo Sasi,
utanríkisviðskiptaráðherra Finn-
lands, en Finnland gegnir þetta
misserið formennsku í ESB, og
Walter Schwimmer, framkvæmda-
stjóri Evrópuráðsins.
Meðal þess sem rætt var á fundin-
um var áframhald samstarfsverk-
efna stofnananna í Mið- og Austur-
Evrópu, en tíu ríki í þeim hluta álf-
unnar hafa fram að þessu notið góðs
af þessum samstarfsverkefnum.
Verkefnin hafa fyrst og fremst verið
á sviði lagasamvinnu, uppbyggingar
á réttarkerfum ríkjanna, eflingar
mannréttinda og stuðnings við
aukna samvinnu milli sveitarstjórna.
Var samþykkt að fimm milljónum
evra, um 383 millj. króna, skyldi var-
ið á næstu tveimur árum til verkefna
á þessu sviði, aðallega í Rússlandi.
Kostnaðurinn deilist til helminga á
stofnanirnar tvær. Um er að ræða
fyrst og fremst starfsþjálfunarnám-
skeið fyrir embættismenn og dóm-
ara, menntunarstyrki fyi'ir lögfræð-
inga og fleira í þeim dúr, sem þykir
til þess fallið að styrkja stoðir réttar-
ríkisins.
Náið samráð um nýja
mannréttindasamþykkt
I umræðum um drög að fyrirhug-
aðri mannréttindasamþykkt ESB
(EU Charter of Fundamental
Rights) ítrekaði utanríkisráðherra
mikilvægi Mannréttindadómstólsins
Ljósmynd/Evrópuráðið
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra stjórnaði samráðsfundi Evrópuráðsins og ESB í Strassborg í gær.
Lengst til vinstri, Halldóri á hægri hönd, sést Walter Schwimmer, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, og
næstlengst til hægri er Chris Patten, sem fer með utanrflusmál í framkvæmdastjórn ESB.
í Strassborg fyrir varðveizlu mann-
réttinda í aðildarríkjum Evrópuráðs-
ins. „Þessi samþykkt var boðuð á
leiðtogafundi ESB í Köln [í maí sl.]
og við höfum óttast að það muni
valda tvíverknaði sem gæti síðar orð-
ið til þess að veikja Evrópuráðið,"
sagði Halldór í samtali við Morgun-
blaðið eftir fundinn. „Við vorum full-
vissaðir um að haft yrði mjög náið
samráð við Evrópuráðið í þessu efni
til að koma í veg fyrir að nokkuð
slíkt gæti gerzt.“
Stjórnmálaástandið i Suðaustur-
Evrópu var einnig rætt og lýsti Hall-
dór ánægju sinni með þátttöku Evr-
ópuráðsins í stöðugleikasáttmála
fyrir Suðaustur-Evrópu, sem Evr-
ópusambandið átti frumkvæði að.
Evrópuráðið hefði að hans mati mik-
ilvægu hlutverki að gegna í upp-
byggingarstarfinu í Kosovo við að
efla mannréttinda- og lýðræðisþróun
í nánu samstarfi við aðrar fjölþjóða-
stofnanir á borð við ESB og ÓSE,
Öryggis- og samvinnustofnun Evi'-
ópu.
Þá sagði Halldór einnig hafa verið
rætt um aðild ESB að Viðreisnar-
sjóði Evrópuráðsins. „Það eru allar
líkur á því að af þessu geti orðið og
mun það styrkja Viðreisnarsjóðinn
verulega og jafnframt þar með
styrkja samstarf ESB og Evrópu-
ráðsins," sagði Halldór.
Einnig var fjallað um fjölgun að-
ildarríkja Evrópuráðsins og yfir-
standandi viðræður Evrópusam-
bandsins við væntanleg ný aðildar-
ríki. Fyrir liggja umsóknir um aðild
að Evrópuráðinu frá sex ríkjum, sem
vilja bætast í hóp þeirra 41, sem fyr-
ir eru í ráðinu. Umsóknir Armeníu,
Aserbaídsjan, Bosníu-Herzegovínu
og Mónakó eru nú í athugun hjá
þingmannasamkomu Evrópuráðsins.
Umsóknir Hvíta-Rússlands og Sam-
bandslýðveldisins Júgóslavíu hafa
hins vegar verið lagðar til hliðar
vegna þess stjórnmálaástands sem
ríkir í þessum löndum um þessar
mundir.
Loks var rætt um ástandið í Tjset-
sjníu, en Chris Patten, fyrrverandi
ríkisstjóri Hong Kong, sem nýseztur
er í framkvæmdastjórn ESB, fór
beint af fundinum í Strassborg til
Moskvu, þar sem Tsjetsjníumálið er
efst á dagskrá „þríeykisfundar" ut-
anríkisráðherra Rússlands, for-
mennskuríkis ráðherraráðs ESB og
utanríkismálafulltrúa framkvæmda-
stjómarinnar.
Héraðsdómur í máli SS gegn
fyrrverandi starfsmanni
Oljósir hagsmun-
ir af lög’banni
Stefán
ráðinn
þjóðleik-
hússtjóri
Menntamálaráðherra hefur að
fenginni umsögn þjóðleikhús-
ráðs skipað Stefán Baldursson
þjóðleikhús-
stjóra til
fimm ára
frá 1. janúar
2000 en
hann hefur
gegnt emb-
ættinu und-
anfarin ár.
Umsókn-
arfrestur
Stcfán rann út um
Baidursson manaðamot
og bárust
fimm umsóknir. Aðrir umsækj-
endur voru Arni Blandon Ein-
arsson, Guðjón Pedersen,
Hafliði Arngrímsson og Viðar
Eggertsson.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur staðfest synjun sýslumannsins í
Reykjavík á kröfu Sláturfélags Suðm’-
lands um lögbann við sölu fyrrverandi
starfsmanns síns á sælgæti eða öðrum
sambærilegum störfum hjá öðru fyr-
irtæki. Maðurinn hóf störf hjá Slátur-
félagi Suðurlands 1994 og undirritaði
ráðningarsamning og seinna sama ár
yfirlýsingu um trúnað við fyrirtækið.
Á þeim grundvelli gerði Sláturfélagið
kröfu um lögbann við störfum manns-
ins hjá sýslumanni sem féllst ekki á
kröfuna. Sláturfélagið leitaði þá úr-
lausnar Héraðsdóms Reykjavíkur.
í yfirlýsingu sem maðurinn undir-
ritaði um trúnað við fyrirtækið skuld-
batt hann sig m.a. til þess að starfa
Morgunblaðið/Sverrir
Bílar Landssímans í innanbæj-
arakstri á harðkornadekk
ekki hjá samkeppnisaðila atvinnurek-
anda í 12 mánuði eftir að hann lét af
störfum. Maðurinn sagði upp starfi
sínu hjá Sláturfélaginu 12. mars 1999
og samdi um að hefja störf hjá öðru
fyrirtæki um mánaðamótin mars-apríl
sama ár. Hann sinnti störfum í
þriggja mánaða uppsagnarfesti en
hluta þess tíma var hann frá vegna
veikinda auk þess sem hann tók orlof
sitt. Störfum hjá Sláturfélaginu lauk
því í júnílok. Maðurinn hélt því fram
fyrir dómi að trúnaðarheitið sem hann
undirritaði væri ekki bindandi fyrir
hann þar sem það hefði orðið til undir
þvingunum atvinnuveitanda og það
fæli í sér skerðingu á atvinnufrelsi
sínu.
Sláturfélagið hélt því fram að mað-
urinn hafi hafið sambærileg störf hjá
samkeppnisaðila og geti því notfært
sér þá aðstöðu sem hann öðlaðist í
starfi hjá sér til hagsbóta fyrir hinn
nýja vinnuveitanda en tjóns fyrir sig.
Um ótvírætt brot sé að ræða á trún-
aðarheitinu.
í úrskurði Héraðsdóms segir að
ekki verði talið að maðurinn hafi verið
þvingaður til að undirrita trúnaðar-
heitið né að það feli í sér brot á at-
vinnufrelsi. Hins vegar verði að líta
svo á að hagsmunir mannsins, af því
að halda áfram nýju starfi sínu sem
færi honum betri tekjur en áður var
og væntanlega betri vinnuaðstöðu,
séu stórum meiri en óljósir hagsmunir
Sláturfélagsins.
TÆPLEGA 90 af 190 bflum
Landssfmans, sem allir eru í
innanbæjarakstri verða settir á
harðkornadekk fyrir veturinn
og hér er Árni Jónsson, starfs-
maður bifreiðaverkstæðis
Landssímans, að búa bfl undir
vetraraksturinn. Að sögn Ólafs
Stephensen, forstöðumanns
upplýsinga- og kynningarmála,
er þetta liður í umhverfisstefnu
Landssímans en stefnan er að
gera bflaflota fyrirtækisins sem
umhverfísvænstan. Heild-
arakstur bflanna yfír veturinn
frá 1. n<5v.-15. aprfl er tæplega
700 þúsund km. „Samkvæmt
sænskum rannsóknum rífur
venjulegur fólksbfll á nagla-
dekkjum upp um 27 g af mal-
biki á livern ekinn km,“ sagði
Ólafur. „Þannig að með því að
setja þessa bfla á harðkorna-
dekk sparast í sliti tæplega 20
tonn af malbiki auk þess sem
loftmengun minnkar sem því
nemur. Þetta kom okkur á
óvart en sýnir hvaða árangri er
hægt að ná með tiltölulega ein-
faldri aðgerð eins og að setja
bfla á harðkornadekk."
Lýsir eftir vitnum
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Hafnarfirði lýsir eftir vitn-
um að hörðum árekstri við gatna-
mót Lækjarkinnar og Hringbraut-
ar í Hafnarfirði hinn 12. septem-
ber síðastliðinn. Þar rákust saman
rauð Hyundai Pony-fólksbifreið
og ljósblá Toyota Corolla-fólksbif-
reið. Biður rannsóknarlögreglan
þá sem gætu hafa orðið vitni að
árekstrinum að hafa samband við
sig.
Sendið mér nýja
vetrarlistann:
Nafn:____________
Heimilisfang:
Sendið úrklippu til:
Útivistarbúðin,
Laugavegi 25,101 Reykjavík.
S?07J
ÚT|V1 STAR BÚfj IM
|Við Umferðarmiðstöðina k