Morgunblaðið - 07.10.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Byggðakvóta úthlutað
Erfítt að komast'
hjá óánægju
Það reynist æ erfíðara að krafsa yfir skítinn.
Jóhann Rafnsson veiddi þennan rúmlega 20 punda hæng í Selá í sumar. Laxinn tók Frances-túpu.
Hollið hækkaði um nærri 90%
ÚTLIT er fyrir að verð veiðileyfa
hækki mjög í Miðfjarðará fyrir
komandi sumar ef marka má fyrstu
fregnir sem borist hafa, en þar er
hækkun á opnunarhollinu næiri
90%. Miðfjarðará er nú leigð út til
milliliðs í fyrsta sinn í mörg ár,
Stangaveiðifélagið Lax-á bauð hæst
í útboði og hefur veiðirétt í ánni
næstu árin.
Veiðimaður sem veitt hefur í opn-
unarholli Miðfjarðarár um langt
árabil sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hollið hefði fengið tilboð
frá leigutaka árinnar þar sem þeim
félögum var boðið að halda dögum
sínum og dagstöngin myndi kosta
32.000 krónur. Til samanburðar má
geta þess að þessir menn greiddu
19.000 krónur fyrir dagstöngina á
nýliðnu sumri. Viðmælandi blaðsins
sagði að tilboði Lax-ár hefði verið
svarað með gagntilboði upp á 21.000
króna verð fyrir stöngina, en því
hefði verið hafnað. Hann sagðist
einnig heyra það á fjölmörgum ís-
lendingum sem veitt hafa lengi í
Miðfjarðará að þeir myndu hverfa
af bökkum hennar vegna þess hve
sýnt sé að verðið hækki mikið og út-
lit sé því fyrir að a.m.k. allur júií og
allur ágúst verði seldur á erlendum
markaði.
Fnjóská í útboð
Stangaveiðiréttur í Fnjóská er nú
boðinn út. Þar veiddust hátt í 200
laxar síðasta sumar og nokkur
hundruð sjóbleikjur. Fnjóská þykir
afai’ falleg á, en laxveiði í henni
sveiflast mjög, eða allt frá 60 löxum
árið 1995 og upp í 554 laxa bæði
1978 og 1992. Stangaveiðimenn á
Akureyri hafa haft ána á leigu
seinni árin.
Of margir aðstoðarmenn
Veiðimaður einn sem var í Laxá í
Aðaldal fékk að finna fyrir því að
það getur verið betra að vera einn
við ána og upp á sjálfan sig kominn.
Það vai- lítið af laxi á svæðinu og
veiði rýr, en loks setti hann þó í lax.
Þetta var vænn lax, á að giska 15-16
pund og veiðimaðurinn var ákveð-
inn í að njóta stundarinnar til fulln-
ustu. Veiðifélagi hans var þarna á
næstu grösum og von bráðar bætt-
ust tveir til viðbótar, félagar þeirra
sem höfðu hina stöngina á svæðinu.
Laxinn fór að þreytast, en leikur-
inn barst þangað sem erfitt var að
landa, bakkar háii- að ánni og dýpi
við bakkann upp í klof á fullorðnum
manni. Það rann upp fyrir mönnum
þegar laxinn var að mestu óvígur,
að háfarnir voru allir uppi í bflum
og því stökk einn félaginn í ána og
beið þess að félagi hans renndi lax-
inum í seilingarfjarlægð. Fyrstu til-
raunir mistókust og laxinn vatt sér
þreytulega úr greipum hans. Þá
urðu félagamir á bakkanum óþolin-
móðir og fóru einnig út í og þreifuðu
nú allir eftir laxinum sem sást varla
lengur vegna leirgruggs sem að-
stoðarmennirnir spörkuðu upp. Var
nú senan orðin nánast skopleg, en
einn í hópnum brást þá við og hugð-
ist taka af skarið, laut að línunni og
greip í tauminn. En hann gætti sín
ekki á því að hann var með logandi
vindil af stærri gerðinni á milli vara
sér og glóðin snerti tauminn sem
brann umsvifalaust í sundur. Lax-
inn lét sig væntanlega síga í burtu.
Kannski hefði einhver séð hann og
getað gripið hann ef til hans hefði
sést, en því var ekki að heilsa.
Slakt í Þverá
Síðast er fréttist var enn verið að
veiða í Þverá í Fljótshlíð, en í hana
var sleppt miklu magni gönguseiða.
Er hún hluti af stóra dæminu í
Rangárþingi og hafa menn verið full-
ir bjartsýni um að áin geti orðið
sjálfbær laxveiðiá, gagnstætt
Rangánum báðum sem munu ævin-
lega verða að treysta á hafbeitai’-
sleppingar til viðhalds veiðinni. En
veiði hefur verið lítil í Þverá í sumar
og fyrir skömmu voru innan við
hundrað laxai' komnir á land. Eitt-
hvað hefur þó glæðst að undanfömu
og er það þá sjóbirtingur sem hefur
verið að ganga og veiðast, svona einn
og einn, en góðir fiskar innan um.
Athyglisbrestur með ofvirkni
Nýjustu rann-
sóknir kynntar
Matthías Kristiansen
Fimmta norræna
ráðstefnan um
ADHD/DAMP -
Athyglisbrest með of-
virkni/misþroska, verður
haldin dagana 8. og 9.
október nk. að Hótel
Loftleiðum. Auk þess
verður haldin forráð-
stefna um sama málefni
síðdegis í dag. Matthías
Kristiansen, formaður
norrænu samstarfs-
nefndarinnar
ADHD/DAMP, hefur
ásamt Málfríði Lorange
taugasálfræðingi haft
veg og vanda að undir-
búningi þessarar ráð-
stefnu.
- Hvert er markmið
ráðstefnunnar?
„í fyrsta landi að
kynna sér allt það nýjasta sem
er að koma fram beggja vegna
Atlantshafsins um athyglisbrest
með ofvirkni/misþroska, bæði
rannsóknir og starfsemi og með-
ferð, einkum með tilliti til barna
og unglinga. Þá er einnig komið
inn á aðstæður fullorðinna með
þessi einkenni og við fáum að
kynnast niðurstöðum eltikann-
ana um feril þeirra sem spanna
áratugi."
- Hvað er langt síðan læknar
tóku að greina þessi einkenni?
„Það má segja að hálf öld sé
liðin síðan menn tóku að gera
sér grein fyrir að um væri að
ræða einhverja röskun. Það er
þó ekki fyrr en á áttunda ára-
tugnum sem rannsóknir hófust
fyrir alvöru í Bandaríkjunum og
Svíþjóð. Hluti af vandanum er
sá að það hefur reynst erfitt að
henda reiður á nákvæmri grein-
ingu og því hefur oft gengið illa
að fá vandamálin viðurkennd op-
inberlega. Rannsóknir á þessum
áratug sanna þó svo ekki verður
um villst að ástæður athyglis-
brests með ofvirkni/misþroska
eru líffræðilegar og má rekja til
röskunar á boðefnum í heila og
blóðflæðis til heila.“
- Eru margir hérna á landi
sem eru taldir þjást vegna
þessa?
„Erlendar rannsóknir benda
til að 5 til 8% af hverjum ár-
gangi glími við einhver vanda-
mál á þessu sviði, þar af 1 til 2%
mjög alvarleg vandamál. Við
styðjumst við erlendar rann-
sóknir af því að Islendingar hafa
ekki rannsakað þetta að neinu
gagni, frekar en margt annað
sem varðar börn. Lengi hefur
verið talið að athyglisbrestur
með ofvirni/mis-
þroska sé vandamál
stráka fyrst og
fremst en stöðugt er
að koma betur í ljós
að stúlkur glíma
einnig við þetta. Dr. Jósph
Biederman frá Harvardháskóla
í Bandaríkjunum mun á ráð-
stefnunni fjalla um nýjar rann-
sóknir á athyglisbresti með of-
virkni/misþroska í stúlkum."
- Hvað fleira ætlið þið að
fjalla um á ráðstefnunni?
„Það verður t.d. fjallað um
hugi-æna meðferð barna, um
hreyfivandamál, námsörðug-
leika og ýmsar undirtegundir
misþroskavandamála. Komið
verður inn á ættfylgni og mis-
þroska í tengslum við aðrar and-
legar og líkamlegar fatlanir.
Kynnt verður norrænt greining-
artæki og samþætt greiningar-
mat. Frá Islandi tala Björg Þor-
leifsdóttir lífeðlisfræðingur og
► Matthías Kristiansen fædd-
ist í Reykjavík 1950. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1971 og BA-prófí frá Há-
skóla Islands 1975 í norsku,
ensku og dönsku. Hann fékk
kennararéttindi frá Kennara-
háskólanum í Þrándheimi
1975 og las svo norsku við
þann sama skóla í eitt og hálft
ár eftir það. Einn vetur
kenndi Matthías f norskum
unglingaskóla og tvö ár vann
hann í Danmörku á barna-
bókasafni. Hann kom til Is-
lands aftur 1980 og kenndi í
grunnskólum, lengst af í
Oldutúnsskóla í Hafnarfírði,
til 1997, en starfar nú sem
þýðandi. Matthías er formað-
ur Foreldrafélags misþroska
barna og formaður norrænn-
ar samstarfsnefndar um
ADHD/DAMP. Hann er
kvæntur Heidi Kristiansen
textíllistakonu og eiga þau
þijú börn.
Páll Magnússon sálfræðingur
um svefnmynstur og hegðunar-
greiningu ásamt athyglisbresti í
hópi íslenskra barna.“
- Er talið að þessi röskun í
boðefnum heilans sé ættgeng?
„Allar rannsóknir benda til að
svo sé og að þetta liggi í ættum.
Mjög algengt er að þegar komið
er með börn til greiningar og
þegar farið er að ræða málin í
framhaldi af henni komi í ljós að
í ættinni séu ýmsir náskyldir
eða fjarskyldir með sömu eða
svipuð einkenni."
- Hvernig eru þessi einkenni?
„Einkenni geta verið á ýmsa
lund. Ofvirkni er um það bil í
helmingi þessara
bama. Mjög algengt
er að þau séu eirðar-
laus og hvatvís, þau
eiga erfitt með að
greina á milli aðal-
og aukaatriða og einbeitingin er
mjög oft hvikul. Mörg þeirra
glíma við námsörðugleika af
ýmsu tagi og oft fylgja mismun-
andi alvarlegir hreyfiörðugleik-
ar. Skammtímaminni er oft ærið
götótt. Félagsleg samskipti eru
þessum börnum oft afar erfið
vegna þess að þau skilja ekki hið
óyrta samskiptamunstur sem er
í samskiptum fólks.“
-Hvað sækja margir þessa
ráðstefnu?
„Ráðstefnuna sækja um 330
manns, þar af rúmlega hundrað
íslendingar. Fyrirlesarar eru
rúmlega tuttugu og fyrirlestrar
tuttugu og einn, auk þriggja á
forráðstefnunni sem um 280
manns sækja.“
Félagsleg
samskipti
oft erfið