Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 17
ISLAND
Sendu okkur myndir
og við sýnum þær heiminum!
Á heimssýningunni í Hannover áriö 2000 verður myndum af íslendingum varpað á vegg í íslenska sýningarskálanum
og gestum þannig gefinn kostur á að kynnast þjóðinni og sýn hennar á sig og umhverfi sitt. Þetta eru myndir
sem eiga að sýna heiminum hver við erum. Við erum því að leita að myndum af öllum íslendingum. Barna-
og fjölskyldumyndum, sumar- og vetrarmyndum, gömlum eða nýjum, uppstilltum eða óvæntum, teknum hér
á landi eða á ferðum okkar um heiminn. Allar myndir af Íslendingum eiga erindi til okkar.
Beint í póstkassann!
Þú einfaldlega setur þær myndir sem þú vilt leggja fram i umslag, sem borið veröur í hvert hús, stingur því i
næsta póstkassa og íslandspóstur sér um aö koma því á áfangastað. Einnig er hægt að nálgast umslög á
afgreiðslustöðum íslandspósts um land allt. Ekki verður mögulegt að skila þeim myndum sem berast til
Expo 2000.
Ókeypis eftirtaka!
Ef þú vilt síður missa myndirnar þínar getur þú fengið afritun af filmunum þínum hjá framköllunarþjónustu
Kodak Express þér að kostnaðarlausu og tryggt þér þannig þátttöku á Expo 2000.
Lukkuleikur!
Allar merktar myndir fara í sérstakan verðlaunapott þar sem sendandinn á kost á því að vinna tvo miða á
Expo 2000 í boöi Flugleiöa.
EXPO 2000
- heimsmynd í aldarlok
FLUGLEIÐIR
<s£px
PÓSTURINN
UMSLÁG ehf