Morgunblaðið - 07.10.1999, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Hvað kostar kílóið af ávöxtum og grænmeti?
borg Reykjavík Ósló Kaupm.höfn Berlín Barcelona Minneapolis Melbourne I
land ísland Noregur Danmörk Þýskaland Spánn Bandaríkin Ástralía
verslun Hagkaup ICA ISO Kaiser's Caprabo Rainbow Coles
Græn paprika 649 kr. 567 kr. 409 kr. 195 kr. 129 kr. 156 kr. 139 kr.
Agúrka 379 kr. 431 kr. 167 kr. 66 kr. 44 kr. 185 kr. 179 kr.
Jöklasalat 284 kr. 366 kr. 233 kr. 56 kr. 57 kr. 86 kr. 75 kr.
Bananar 184 kr. 111 kr. 153 kr. 117 kr. 73 kr. 61 kr. 92 kr.
Græn vínber 579 kr. - 267 kr. 195 kr. - 234 kr. -
Rauð vínber 579 kr. - - - - 234 kr. -
Lárpera 349 kr. 438 kr. 386 kr. 219 kr. 359 kr. 623 kr. 351 kr.
Spergilkál 484 kr. 252 kr. - 113 kr. - 227 kr. 88 kr.
Bláber - - - - 1.417 kr. 1.250 kr. 1.550 kr.
Rófur 279 kr. 92 kr. - 58 kr. - 77 kr. 69 kr.
Sítrónur 174 kr. 250 kr. 175 kr. 154 kr. 114 kr. 202 kr. 130 kr.
Verðkönnun á grænmeti og ávöxtum í sjö borgum
Græn paprika er dýrust
á Islandi.
þ.e. rófur, spergilkál, agúrkur og
paprikur, séu á mun lægra verði er-
lendis. Hann segir að ef hann fengi
að flytja grænmetið inn án ofurtolla
gæti hann boðið mun lægra verð á
þessum tegundum grænmetis.
„Þótt ég fengi grænmetið gefins
núna þá væri það ekki samkeppnis-
hæft við íslenska grænmetið sökum
tolla sem á það eru lagðir. Forráða-
menn hjá Hagkaupi segja að ef þeir
gætu keypt sveppi frá Hollandi í
stað þess að kaupa þá af eina ís-
GRÆN paprika er 403% dýrari í
Reykjavík en hún er í Barcelona á
Spáni en einungis 14,5% dýrari en í
Osló. Paprikurnar sem til voni
stórmarkaðnum í Osló voru
komnar frá Hollandi en í
Barcelona voru þær spænsk-
ar. Grænu paprikurnar sem
fengust í Hagkaupi eru ís-
lenskar.
Þetta kemur fram í verð-
könnun sem gerð var sl.
þriðjudag í borgunum
Reykjavík, Osló, Kaup-
mannahöfn, Berlín, Minnea-
polis, Barcelona og Melbour-
ne.
Fimm vörutegundir af þeim
tíu sem fengust í Hagkaupi eru
dýrastar á Islandi, græn paprika,
bananar, vínber, spergilkál og róf
ur. Rófumar kosta á íslandi 279
krónur kílóið og þær eru því 381%
dýrari en þar sem þær eru ódýra-
star í Berlín á 58 krónur kílóið. Róf-
urnar eru næstdýrastar í Noregi,
kílóið kostar 92 krónur þar. Is-
lensku rófurnar eru engu að síður
203% dýrari en þær næstdýrustu.
Rófurnar, spergilkálið og paprikan
eru allt íslensk framleiðsla svo og
agúrkurnar, en í verðkönnuninni
voru þær næstdýrastar á Islandi.
Ódýrara grænmeti
án ofurtolla
Viktor Kieman, sem sér um inn-
kaup á grænmeti fyrir Hagkaup,
segir að það komi sér ekki á óvart
að þessar tegundir af grænmeti,
Spergilkál er dýrast á íslandi.
lenska sveppabóndanum væri
hvert kíló 350 krónum ódýrara. “
- En hver er skýringin á því að
verð á bönunum og vínberjum er
hæst hér á landi?
„Ég held að það hljóti að vera
viðbótarflutningurinn frá megin-
landi Evrópu og hingað til lands
sem skýrir þennan verðmun á bön-
unum, en vörumar berast til meg-
inlandsins beint frá framleiðanda.
Það sama hlýtur að gilda um vín-
berin."
Það vekur athygli að lárperur
eru víðast hvar dýrari en á Islandi
og sítrónur eru dýrari í Osló,
Bandaríkjunum og verðið svipað á
þeim í Danmörku og á íslandi. Ein-
ungis er um verðsamanburð að
ræða og ekkert tillit tekið til gæða
eða þjónustu.
Fimm tegundir af tíu
dýrastar á Islandi
Jöklasalat
í N D Þ S B Á
Sítrónur
í: ísland N: Noregur D: Danmörk Þ: Þýskaland S: Spánn B: Bandaríkin Á: Ástralía
Sítrónur eru dýrastar í Ósld.
S
Astralía, Melbourne
Verðið breytilegl
eftir árstíðum
ÁSTRALIR eru
sjálfum sér nógir
hvað varðar rækt-
un á grænmeti og
ávöxtum. Könnun
þessi var gerð hjá
einum af stór-
mörkuðum Coles í
Melbourne. Þar er mikið og gott
úrval af fersku grænmeti og ávöxt-
um. Sumum finnst þó skemmti-
legra að versla hjá ávaxtasalanum
eða á markaðinum.
Verðið er mjög breytilegt eftir
árstíðum. Sumt þarf að flytja að
um langan veg þótt ekki sé það
innflutt og ekki tollað. Bananar
koma norðan úr Queenslandi. Hér
í Melbourne er vor og bláberin
ekki sprottin. Þau þarf því að
sækja til hlýrri svæða. Steinlaus
vínber eru ekki
komin í búðir en
væntanleg í næstu
viku og munu þá
kosta 15 AUD kí-
lóið eða 700 krón-
ur. Ráðlegt er að
bíða með berja-
kaup því verðið lækkar fljótt. Vín-
berin eru hvað best í febrúar-mars.
Þá eru þau stökk, sæt, safarík og
hulin svalandi móðu. Þá er verðið
líka í lágmarki, um 1 AUD kílóið
þegar best lætur eða um 47 krón-
ur.
Lárperan er flutt um 3.000 km
vegalengd frá Townsville. Sítrón-
utréð ber ávöxt tvisvar á ári og
þeir sem eiga eitt slíkt þurfa sjald-
an að kaupa sítrónur. _
Sigríður Ólafsdóttir
Danmörk, Kaupmannahöfn
s
Norefflir, Osló
Merkingar til fyrirmyndar
VÖRURNAR eru keyptar í
Iso á Austurbrú, næsta hverfi
við miðbæ Kaupmannahafn-
ar. Iso er kjörbúðakeðja, sem
leggur áherslu á gott úrval,
býður bæði upp á lostæti eins
og góða franska osta og ófryst
íslenskt lambakjöt, en leggur
einnig áherslu á að hafa ódýr-
ar tegundir af öllum nauðsynjavörum.
Það er gaman að kaupa inn í Iso, því úr-
valið er gott og alltaf einhver tilboð, líka á
því sem flokkast undir munað. f dag var
hægt að fá þar nýtt gurkemeje, austur-
lenskt krydd, sem ég hef ekki áður séð hér.
Allar merkingar í Iso eru til fyrirmyndar
og í grænmetis- og ávaxtadeildinni er alls
staðar merkt hvaðan vörurnar koma.
Græna paprikan er t.d. frá Hollandi og
agúrkurnar frá Spáni, lárperur frá ísrael
og sítrónurnar frá Spáni.
Margar tegundir ávaxta og grænmetis
eru til vistvænt ræktaðar og úr hefðbund-
inni ræktun og vistvæna úrvalið er gott.
Eitt það allra besta, sem
hægt er að fá í Iso, er vist-
væna mjólkin frá einum
ákveðnum bóndabæ. Hún
kemur í búðina ekki síðar en
tíu tímum frá því hún kom úr
kúnum, hún er gerilsneydd
en ekki fitusprengd og er
besta mjólk sem ég fæ.
En ég kaupi þó sjaldnast grænmeti og
ávexti í kjörbúðum, heldur versla hjá tyrk-
neskum og arabískum grænmetissölum,
sem bjóða upp á besta grænmetið. Það er
töluverður verðmunur eftir hverfum.
Ávexta- og grænmetisverðið í Kaupmanna-
höfn er í samræmi við fasteignaverðið. Því
hærra sem fasteignaverðið er því hærra er
vöruverðið og því miður hefur fasteigna-
verð á Austurbrú hækkað undanfarin ár.
Það getur því borgað sig að leggja leið sína
yfir á Norður- eða Vesturbrú og kaupa inn
þar, því verðmunurinn er á bilinu 10-25
prósent.
Sigrún Davíðsdóttir
Innflutt grænmeti dýrara
ÉG VALDI verslun sem
heitir ICA og er ekki ós-
vipuð Hagkaup. Græn-
metisborðið var snyrti-
legt og allt vel merkt,
m.a. með upplýsingum
um hvaðan varan væri
og hvemig ætti að
geyma hana. Norsku epl-
in og perumar em áber-
andi, góð uppskerap ár. Einnig sveppir af
mörgum gerðum. Ég taldi 6 mismunandi
tegundir af tómötum, allt frá pínulitlum
cherry-tómötum til risastórra buff-tómata.
Urvalið er gott en þegar ég fór að skoða það
betur sá ég að sérstaklega grænmetið var
ekki eins stinnt og ferskt og það var fyrir
nokkrum vikum.
Grænmeti og ávextir er gjarnan selt í
stykkjatali hér í Noregi og ef svo er reyni ég
að velja meðalstór stykki. Ég spurði kaup-
manninn út í tolla. Hann sagði að tollarnir
væru leyndarmál og að þeir fengju ekki að
vita hversu háir þeir væru. Versl-
unin er hlekkur í stórri keðju,
sem hefur gert samninga við
ákveðna grænmetisheildsala um
að þeir útvegi vömna á hagstæðu
verði. Hann sagði að innflutt
grænmeti væri töluvert dýrara
en það norska og að um leið segði
fólk að gæði þess innflutta væru
betri.
Það færist sífellt í vöxt að fólk kaupi í mat-
inn í sérhæfðum, dýmm búðum. Þar fær
maður besta og ferskasta grænmetið í bæn-
um, spyr kaupmanninn ráða um hvað maður
eigi að hafa, í matinn og hvað sé nýtt og
spennandi. Ég og aðrir auralitlir íslenskir
námsmenn förum aftur á móti á grænmetis-
markað á Grönland. Þar er ódýrt og
skemmtilegt að versla en maður þarf að hafa
fyrir því að plokka úr það besta. Við erum
ílest sammála um að við borðum mun meira
af grænmeti og ávöxtum hér en heima.
Unnur Gígja Gunnarsdóttir