Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
„Dragðu fjögur spil, væni!“ Árni Hafstein (Bjarni Haukur Þórsson)
mætir örlögum sínum hjá spákonunni (Guðbjörg Thoroddsen).
I kossinum
liggur ástin
Nýtt leikhús, Bíóleikhúsið, frumsýnir
Kossinn, gamanleikrit með rómantísku
ívafi, í Bíóborginni við Snorrabraut í kvöld
kl. 20. Fjallar það um einmana mann
í konuleit. Orri Páll Ormarsson leit inn
á æfíngu og hafði tal af höfundinum,
Hallgrími Helgasyni, og aðalleikaran-
um, Bjarna Hauki Þórssyni.
„EF LÍF mitt væri bíómynd færi
ég út í hléi,“ segir aumingja Árni
Hafstein og dæsir. Hann er þrítug-
ur, á íbúð og er ígóðri vinnu, en eitt
vantar - ástina. Ami er orðinn lang-
þreyttur á lífí piparsveinsins, nán-
ast á þröm taugaáfalls og þegar
honum er ráðlagt að fara til spá-
konu lætur hann slag standa. Fyrir
spákonunni er líf hans eins og opin
bók, hún veit allt um hann, mömmu
hans, ömmu og jafnvel David Sea-
man. Ami fer allur að iða og það
kastar tólfunum þegar hún kveðst
sjá konuna hans. Hann þekkir hana
- og hefur gert lengi. Það vantar að-
eins eitt - kossinn. I kossinum ligg-
ur ástin. Þar með hefst leitin.
„Eg hef gengið ansi lengi með
þessa hugmynd í maganum," segir
Bjami Haukur Þórsson, sem fer
með aðalhlutverkið í sýningunni, en
Kossinn er skrifaður eftir hans hug-
mynd. „Sjálfur var ég búinn að
reyna að púsla henni saman en
komst að þeirri niðurstöðu eftir að
Hallgrímur Helgason þýddi og stað-
færði fyrir mig Hellisbúann að hann
væri rétti maðurinn í verkið."
Hallgrímur styður þessa frásögn.
„Það er rétt, Bjami pantaði þetta
verk hjá mér. Það er alltaf gaman
að fá pantanir. Leikskáld og rithöf-
undar em stöðugt að leita að plotti
og það er því ekki verra að fá út-
gangspunktinn upp í hendumar. Ég
hef svo spunnið við þetta.“
Óútreiknanlegur höfundur
Bjami segir hugmyndina um ráð-
villtan mann í konuleit og spákon-
una hafa haldið sér vel í meðförum
Hallgríms, sem unnið hafi af list út
frá henni. „Þegar Hallgrímur er
annars vegar veit maður aldrei á
hverju er von. Ég beið því spenntur.
Það er óhætt að segja að ég hafi
ekki orðið fyrir vonbrigðum. Leik-
ritið hefur vissulega tekið breyting-
um á æfingatímanum, eins og gerist
með öll ný verk, en þegar öllu er á
botninn hvolft er það kraftaverki
líkast hversu vel hefur gengið að
breyta þessari hugmynd í leiksýn-
ingu.“
Hallgrímur hefur unnið náið með
leikhópnum á æfingatímanum og
kveðst hafa haft gaman af að endur-
skoða verkið jafnt og þétt í takt við
framvindu uppfærslunnar. „Það
hefur verið skemmtilegt að vinna
með leikurunum og leikstjóranum á
daginn og fara svo heim og endur-
skrifa á kvöldin. Þannig verður leik-
sýning til. Mér sýnist uppfærslan
ætla að verða nokkuð nærri því sem
ég átti von á.“
Handrit taka oft breytingum með
tilkomu leikenda. „Handritið tók
töluverðum breytingum, ekki síst
„Eigum við ekki bara að taka þessar tvær?“ Starri (Steinn Ármann
Magnússon) bregður á leik á myndbandaleigunni.
„Ertu að segja að það merkilegasta sem ég hef gert sé að eiga af-
mæli?“ Árni í mat hjá vinum sinum, Sigga (Davíð Þór Jónsson) og
Hönnu Möggu (Laufey Brá Jónsdóttir).
Skyldi það vera hún? Árni býr sig undir að kyssa gömlu kærustuna,
Sillu (Nanna Kristín Magnúsdóttir) þótt aðstæður séu gjörbreyttar.
eftir að Laddi gekk til liðs við okk-
ur. Það var mikill heiður að skrifa
fyrir Ladda sem ég hef dáð allt frá
barnæsku. Sérstaklega vatt einn
karakterinn upp á sig með tilkomu
Ladda. Hafði aðeins tvær, þrjár lín-
ur áður en flytur nú langa ræðu.“
Skrautlegt persónugallerí
Fjölmargar persónur, af öllum
stærðum og gerðum, koma við sögu
í Kossinum sem Hallgrímur skýrir
með því að hann hafi alltaf verið
hrifinn af mannmörgum leikritum,
skrautlegu persónugalleríi. „Ég hef
aldrei kunnað að meta kammeríeik-
rit, þar sem fjórar persónur sitja í
stofu fyrir hlé og fara svo fram í
eldhús eftir hlé.“
Kossinn er fyrsta leikrit Hall-
gríms í fullri lengd en áður hefur
hann skrifað einleiki fyrir Gunnai'
Leikendur
og listrænir
stjórnendur
KOSSINN eftir Hallgrím
Helgason.
Leikendur: Bjarni Haukur
Þórsson, Steinn Ármann
Magnússon, Þórhallur Sig-
urðsson (Laddi), Nanna Krist-
ín Magnúsdóttir, Laufey Brá
Jónsdóttir, Davíð Þór Jónsson,
Guðbjörg Thoroddsen og Sig-
urveig Jónsdóttir.
Dansendur: Berglind Peter-
sen, Brynhildur Tinna Birgis-
dóttir, Brynjar Öm Þorleifs-
son og Jóhann Öm Ólafsson,
sem jafnframt semur dansa.
Leiksljóri: Jóhann Sigurðar-
son.
Leikmynd: Vignir Jóhannsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Búningar: Ásta Guðmunds-
dóttir.
Leikgervi: Kolfinna Rnúts-
dóttir
Tónlistarumsjón: Þorsteinn
Gauti Sigurðsson.
Helgason, bróður sinn, og Stefán
Karl Stefánsson. Endaði sá síðar-
nefndi í Hádegisleikhúsi Iðnó. En
hyggur hann á frekari leikritun?
„Ég hef komið víða við á mínum
ferli. Byrjaði sem myndlistarmaður,
síðan hef ég verið rithöfundur, uppi-
standari og skopmyndateiknari. En
það var allt óttalegt fikt, bara svona
æfing. Ég hef fundið fjölina mína - í
leikhúsinu.“
Afdráttarlaust svar! Er Hall-
grímur ef til vill farinn að leggja
drög að næsta verki?
„Já, ég er með tvö leikrit í smíð-
um um þessar mundir. Búið er að
bóka annað hjá Borgarleikhúsinu
næsta haust og hitt er til skoðunar í
Þjóðleikhúsinu. Hæ, Stefán!“
Höfundurinn vill lítið gefa upp
um efni þessara verka en segir þau
bæði úr samtímanum, eins og Koss-
inn. „Söguleg skrif em ekki mín
sterka hlið, sjálfsagt vegna þess að
ég les aldrei neitt.“
Glæsilegur salur
Kossinn er fyrsta leikritið sem
Bíóleikhúsið setur á svið en það er í
eigu leikaranna Jóhanns Sigurðar-
sonar, Arnar Amasonar og Sigurð-
ar Sigurjónssonar, Stefáns Hjör-
leifssonar hljómlistarmanns og
Árna Samúelssonar athafnamanns.
Bjami Haukur fagnar þessu
framtaki og bindur vonir við Bíó-
leikhúsið. „Hér er verið að vekja
upp gamalt og vinsælt leikhús,
Austurbæjarbíó sem nú heitir Bíó-
borgin, og hefur heilmikið verið
gert fyrir salinn og húsnæðið al-
mennt af því tilefni. Sviðið hefur
verið stækkað, fullkominn ljósabún-
aður settur upp, ljósabrýr, hljóð-
búnaður, búningaaðstaða og fleira.
Menn hafa lagt mikið á sig til að
gera þetta sem best úr garði og
vonandi stuðlar þessi sýning að því
að þessi frábæri salur, einn sá
glæsilegasti á landinu, festi sig á ný
í sessi sem leikhús."
Lífæðar 1999
til Keflavíkur
Ljósmyndasýning á Blönduósi
Magdalena sýnir
myndir úr réttunum
Blönduósi. Morgunblaðið.
MYNDLISTAR- og ljóðasýningin
Lífæðar verður opnuð á Sjúkrahúsi
Keflavíkur á morgun, föstudag, kl.
18 og er þetta 10. og næstsíðasti
viðkomustaður sýningarinnar.
Sýningunni var hleypt af stokk-
unum á Landspítalanum og kemur
nú frá Heilbrigðisstofnun Selfoss.
Tólf myndlistarmenn sýna samtals
þrjátíu og fjögur myndverk og tólf
ljóðskáld birta átján ljóð. Lista-
mennirnir eru Bragi Ásgeirsson,
Eggert Pétursson, Georg Guðni,
Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Hreinn Friðfinnsson,
Hulda Hákon, Ivar Brynjólfsson,
Kristján Davíðsson, Ósk Vilhjálms-
dóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og
Tumi Magnússon. Ljóðskáldin eru:
Bragi Ólafsson, Gyrðir Elíasson,
Hannes Pétursson, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Isak Harðarson, Kristín
Ómarsdóttir, Sigurður Pálsson,
Sjón, Matthías Johannessen, Meg-
as, Vilborg Dagbjartsdóttir og Þor-
steinn frá Hamri.
Sýningunni í Keflavík lýkur 6.
nóvember, en þaðan heldur hún til
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Það er
íslenska menningarsamsteypan
art.is sem gengst fyrir sýningunni í
boði Glaxo Welleome á Islandi.
Verk eftir Eggert Pétursson er
meðal verka á sýningunni Líf-
æðar.
MAGDALENA M. Hermannsdóttir
sýnir ljósmyndir í kaffihúsinu Við
árbakkann og er viðfangsefnið
réttir og réttarstemmning í Austur-
Húnavatnssýslu.
Magdalena M. Hermannsdóttir
er fædd á Blönduósi árið 1958. Hún
stundaði nám við Vrije Academie í
Den Haag í Hollandi frá 1990 til
1995 og stúdíóljósmyndun við
Academie Voor Fotografie í
Haarlem frá 1992-1995. Magdalena
hefur tekið þátt í ýmsum
samsýningum í Hollandi, t.d
Fotofestival í Naarden og víðar. Á
íslandi og í Amsterdam hefur hún
sýnt myndir ásamt manni sínum,
Ivari Török. Sína fyrstu
einkasýningu hélt Magdalena í
Galleríi Horninu árið 1997 og í júlí á
þessu ári sýndi hún í listhúsi Ófeigs
í Reykjavík „portrettmyndir" og
myndir af skartgripum. Eins og
fyrr greinir þá eru allar myndir
Magdalenu á þessari sýningu
teknar í austur-húnvetnskum
réttum í haust og kennir þar
margra grasa. Allar myndirnar,
sem eru svart-hvítar, eru til sölu.
Sýningunni lýkur 23. október.