Morgunblaðið - 07.10.1999, Side 37
36 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 37'
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgríraur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
REYKINGA-
FORDÆMI
ALÞINGIS
HALLDOR Blöndal, forseti Alþingis, hefur sent öllum
alþingismönnum og starfsmönnum þingsins tölvupóst
og tilkynnt þeim að frá og með deginum í dag séu reyking-
ar í Alþingishúsinu stranglega bannaðar. I tilkynningu
þingforsetans segir, að bannað sé að reykja í Alþingishús-
inu og öðrum húsakynnum þingsins, sem opin séu almenn-
ingi.
Þessa ákvörðun sína kynnti forseti Alþingis forsætis-
nefnd þingsins og þingflokksformönnum og óskaði eftir því
að hún yrði einnig kynnt starfsmönnum þingsins. Þessi
ákvörðun er samhljóða þeim reglum, sem heilbrigðisráðu-
neytið hefur gefið út og ætlazt er til að allur almenningur
virði. Því er þetta fordæmi þingsins af hinu góða. Reyk-
ingareglur sem þessar eru byggðar á lögum frá þinginu
sjálfu og því ekkert sjálfsagðara en þingmenn virði þau lög
og þær reglur, sem þeir eiga hlut að að setja.
Það fer vel á því að ákvörðun forseta Alþingis kemur á
þeim tíma, sem evrópsk átaksvika gegn tóbaki stendur yf-
ir. Sú átaksvika er á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar og miðast að því að sýna fólki fram á að tóbak sé
banvæn neyzluvara, þótt lögleg sé. Aætlað er að um 100
milljónir núlifandi manna muni deyja af völdum tó-
baksneyzlu í Evrópu einni, verði ekki dregið úr neyzlu tó-
baks. Um þrjár milljónir Evrópubúa deyja árlega af völd-
um tóbaksnotkunar. Talið er að tóbak valdi um 20% allra
dauðsfalla.
Að framkvæmd átaksvikunnar gegn tóbaksneyzlu hér-
lendis standa heilbrigðisráðuneytið, Krabbameinsfélagið
og tóbaksvarnarnefnd, en Samfés, samtök félagsmið-
stöðva, hafa aðstoðað við dreifíngu gagna til félagsmið-
stöðva landsins. Átakið felst einkum í dreifingu upplýsinga
eftir ýmsum leiðum, þar á meðal um Netið. Ákvörðun Hall-
dórs Blöndals er mikilsvert framlag til baráttunnar gegn
tóbaksreykingum.
RÖDD LISTARINNAR
NOKKUÐ hefur verið rætt og ritað um það á undan-
förnum árum hvort listamenn nú á dögum taki nægi-
lega mikinn þátt í samfélagslegri umræðu. Sumir hafa bent
á að list lýsi ávallt einhvers konar afstöðu til umhverfis
síns, hvort sem hún kallar sig samfélagsádeilu eða ekki.
Því verður hins vegar vart á móti mælt að virk þátttaka
listamanna í þjóðfélagsumræðu hefur minnkað mjög frá
því sem áður var þegar myndlistarmenn, tónlistarmenn og
kannski ekki síst rithöfundar tjáðu sig daglega um málefni
líðandi stundar á síðum blaðanna. Vafalaust helst þessi
þróun að einhverju leyti í hendur við breytingar á hinu
pólitíska landslagi þar sem skýrar andstæður hafa leyst
upp, en hún kann líka að tengjast breyttri og stóraukinni
fjölmiðlun þar sem hver röddin reynir að yfírgnæfa aðra.
En hver sem skýringin er vilja sumir halda því fram að
listin og listamenn þurfi að verða virkari þátttakendur í
samræðunni um þau mál sem eru efst á baugi í samfélag-
inu en nú er, sú rödd þurfí og verði að heyrast.
I þessu samhengi vekur sýning sem nú stendur yfir í
Listasafni íslands sérstaka athygli en þema hennar er ör-
æfin í sjálfsmynd íslenskrar þjóðar. Eins og fram kemur í
fréttabréfí safnsins er sýningunni ætlað að vera innlegg í
þá umræðu sem farið hefur fram um verndun hálendisins á
undanförnum misserum. I íslenskri myndlist eru varðveitt
ólík sjónarhorn á náttúru landsins. Á sýningunni eru meðal
annars verk eftir Þorlák B. Þórarinsson sem opnaði mönn-
um nýja sýn á þennan heim með verkum sínum upp úr síð-
ustu aldamótum. Einnig eru sýnd verk eftir sporgöngu-
menn Þorláks, Ásgrím, Kjarval og Finn Jónsson, og svo
verk sem lýsa sýn listamanna samtímans á öræfalandslag-
ið.
Þetta framtak Listasafns Islands er áhugavert. Það er
ein rödd í þeim skoðanaskiptum sem fram fara um hálend-
ismálið. Hún hefur ekki verið hávær hingað til en þarf að
heyrast.
/
Reynslan af fyrirtækjasamningum rædd á kjaramálaráðstefnu ASI
Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur taldi raunhæft að stefna að 4%
kauphækkun á ári á næsta samningstíniabili.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjaramálaráðstefna ASI var nijög fjölmenn. Fremst sitja (f.h.) Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, Rannveig Sigurðardóttir hagfræðingur, Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri ASI, og Magnús Norðdalh lögfræðingur.
Vinnuveitendur áhugalitlir
um gerð fyrirtækjasamninga
Reynsla VR og félaga innan Samiðnar af fyr-
irtækjasamningum er almennt góð. Stéttar-
félögin innan Verkamannasambandsins hafa
hins vegar ekki haft frumkvæði að því að
gera nýja fyrirtækjasamninga og talsverðrar
tortryggni gætir meðal forystumanna þeirra
gagnvart því að fara út á þessa braut.
Kaupmáttaraukning nokkurra
hópa launafólks 1997-1999
Samningsbundnar %-hækkanir—|
I
Opinb. starfsm. og bankamenn
Iðnaðarmenn
Verkakarlar
Verkakonur
Afgreiðslukarlar
Afgreiðslukonur
Félagar í Sókn hjá Reykjav.borg
Sóknarfélagar hjá ríkinu
Dagsbrún/Frams. hjá Reykjav.borg
Dagsbrún/Framsókn hjá ríkinu
0 5 10 15 20% í
VIÐ gerð síðustu kjarasamn-
inga var talsvert um það rætt
að breyta fyrirkomulagi
kjarasamninga með þeim
hætti að færa ákveðna þætti í aðal-
kjarasamningi inn í samninga sem
gerðir væru í hverju fyrirtæki fyrir
sig. Vinnuveitendur hvöttu til þess að
farið yrði út á þessa braut og bentu
m.a. á reynslu Dana af svona samning-
um. Niðurstaðan varð sú að setja inn í
aðalkjarasamning ákvæði þar sem
stéttarfélögum er heimilað að gera fyr-
irtækjasamninga sem tæki til vinnu-
tíma, vaktavinnufyrirkomulags, orlofs,
kaffitíma og afkastahvetjandi launa-
kerfa. Hugmyndin var sú að semja um
hagræðingu í slíkum samningum sem
skipt yrði jafnt á milli fyrirtækisins og
starfsmanna. Á kjaramálaráðstefnu
ASI var fjallað um reynslu af þessu
fyrirkomulagi.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
hefur lagt mikla áhersiu á að gera fyr-
irtækjasamninga og hafa forystumenn
félagsins ekki síst horft til reynslu
Dana. Guðmundur B. Ólafsson sagði
að reynsla VR væri almennt góð af
þessu fyrirkomulagi. Fyi-irtækjasamn-
ingar félagsins væru af ýmsum toga,
en þeir fjölluðu um vinnutíma, orlof og
rétt launþega til þess að krefjast ár-
legrar endurskoðunar launa. Dæmi um
fyrirtækjasamninga væri samningur
við verslunarkeðjuna 10-11 þar sem
samið hefði verið um jafnaðarlaun fyr-
ir 170 tíma vinnuviku. Samningur við
Flugleiðir og Flugfélag íslands hefðu
falið í sér vetrarorlof gegn hærra
grunnkaupi. Samningar við Hagkaup
hefðu falið í sér mismunandi samninga
milli einstakra verslana. Einn samn-
ingurinn hefði falið í sér sömu laun til
fastráðinna starfsmanna fyrir 170 tíma
vinnuviku og fyrir 210 tíma. Um var að
ræða vaktavinnu, en markmiðið hefði
verið að fjölga fastráðnu starfsfólki.
Samskip og Elko hefðu samið um
ábatavinnu í fyrirtækjasamningum.
Stéttarfélagið alltaf
þátttakandi í viðræðum
Akvæðið um fyrirtækjasamning
tryggir ekki stéttarfélögunum beina
aðkomu að viðræðunum. Þetta hefur
hins vegar ekki komið í veg fyrir að
VR taki þátt í kjaraviðræðum á ein-
stökum vinnustöðum.
„Vinnustaðasamningarnir hafa verið
gerðir milli fyrirtækis og starfsmanna,
sem hafa kosið samninganefnd, en í
henni á trúnaðarmaður m.a. sæti. VR
hefur komið að þessum samningum
sem ráðgjafi. Það sem heí'ur vakið at-
hygli okkar er að fyrirtækin vilja
gjarnan að við komum að málinu.
Þetta fyrirkomulag er nýtt fyrir fyrir-
tækin, en þau hafa hins vegar ekki í
öllum tilvikum kallað eftir aðstoð frá
Vinnuveitendasambandinu til að mæta
okkur. Ég man ekki eftir að VR hafi
gert vinnustaðasamning án þess að við
væru ráðgefandi aðilar og í sumum til-
vikum hafa fyrirtæki beinlínis leitað til
okkar með fyrirspurnir um hvernig
þetta hafi verið gert,“ sagði Guðmund-
ur.
Guðmundur sagði að kosturinn við
þessa samninga væri sá að starfsmenn
yrðu meira þátttakendur í kjaraum-
ræðunni. Þeir fengju upplýsingar um
stöðu fyiártækjanna og gerðu sér því
betur grein fyrir möguleikum til að
sækja á um launabætur. Hann tók þó
fram að upplýsingagjöfin mætti vera
meiri. Einnig hefði tekist að fá upp á
borðið svokallaða skúffusamninga, þ.e.
samninga, sem oft væru munnlegir,
um aukagreiðslur. Með því að fá slíka
samninga upp á borðið yrði erfiðara
fyrir vinnuveitanda að breyta einhliða
slíkum samningum. Guðmundur sagði
hins vegar fyrirsjáanlegt að mikil
vinna fylgdi því að endurskoða þessa
samninga og passa að þeim væri haldið
við. Til að bregðast við þessu hefði fé-
lagið breytt starfsemi kjaramáladeild-
ar og aukið heimsóknir starfsmanna
hennar út í fyi’irtækin.
„Gallinn við þessa samninga er að
starfsmönnum finnst að nálægðin við
sinn vinnuveitanda sé mikil, sem valdi
erfiðleikum í samskiptum. Þetta leiðir
til þess að starfsmenn treysta á styrk
félagsins því þeir treysta því að félagið
taki slaginn fyrir þá,“ sagði Guðmund-
ur.
VMSÍ hefur engan
fyrirtækjasamning gert
Við nokkurn annan tón kvað hjá Sig-
ríði Ólafsdóttur frá Eflingu, en hún
ræddi um reynslu Verkamannasam-
bandsins af fyrirtækjasamningum.
Hún sagði VMSI-félögin gerðu fjöld-
ann allan af sérkjarasamningum, sem
m.a. tækju á atriðum eins og vinnutíma
og kaffitímum. Efling gerði t.d. 50-60
sérkjarasamninga. Sumir þeirra væru
gerð við einstök fyrirtæki eins og t.d.
Eimskip, en aðrir næðu til fleiri fyrh-
tækja, en dæmi um slíkan samning
væri sérkjarasamningur við olíufélögin
þrjú.
„Það umhverfi sem við erum að
vinna í einkennist af fonnlegum sér-
kjarasamningum, sem gerðir eru sam-
hliða aðalkjarasamningi. Auk þess
hafa stéttarfélögin gert samkomulag
út á vinnustöðunum vegna tiltekinna
þátta kjarasamninga, en það er gert
með beinni aðild félaganna. Stéttarfé-
lögin og fulltrúar starfsmanna koma
að viðræðum við fyrirtækin. Við höfum
yfir 30 ára reynslu af slíkum viðræðum
og hefur hún verið góð. Slíkh- samn-
ingar skipta hundniðum innan Verka-
mannasambandsins.
Fyrirtækjaþáttur samninga, sem
samið var um 1997, hefur ekkert
breytt því umhverfi sem við erum í. Ég
veit ekki til þess að neinn slíkur samn-
ingur hafi verið gerður innan VMSI.
Fyrh'tækin hafa ekki leitað efth' að
gera slíka samninga," sagði Sigríður.
Sigríður sagði að forsenda fyinr því
að hægt væri að nýta sér ákvæði
kjarasamninga um fyrirtækjasamn-
inga væri sú að menntun trúnaðar-
manna yrði stórbætt. Árið 1997 hefði
nefnd verið skipuð til að fara yfir
menntun trúnaðarmanna, en hún hefði
ekki skilað áliti. Það væri einnig for-
senda fyrir gerð fyrirtækjasamninga
að aðkoma stéttarfélaganna að samn-
ingaborðinu væri tryggð.
„Það hefur komið okkur á óvart
hvað áhugi fyrirtækja á að gera fyrir-
tækjasamninga hefur verið lítill.
Frumkvæðið hefur yfirleitt komið írá
okkur og hugmyndafræðin líka. Við
höfum stundum verið í hlutverki sölu-
manna, þ.e.a.s. við höfúm farið inn í
fyrirtækin og selt þeim samning.
Stundum kaupa þeir hann og stundum
ekki. Það hefur líka komið okkur á
óvart að þó að við höfum komið beint
að viðræðum þá hefur VSÍ ekki gert
það,“ sagði Haukur Harðarson, en
hann talaði á ráðstefnunni fyrir hönd
Félags blikksmiða - Bíliðnafélagsins
og Samiðnar.
Hörður sagði að iðnaðarmenn væru
ekki óvanir því að semja um bónus-
kerfi og sú reynsla hefði nýst þeim.
Hann tók eins og aðrir undir mikilvægi
trúnaðarmanna og sagði að reynslan
hefði verið sú að aðeins reyndir trún-
aðarmenn hefðu skilað hlutverki sínu í
samningunum. Eins væri reynslan sú
að einungis væri hægt að koma þess-
um samningum á í stærri fyrirtækjum.
Ailar launabreytingar spyrðust hins
vegar fljótt út í bíliðnaðinum og þær
hefðu því einnig áhrif í smærri fyrir-
tækjum.
Hörður nefndi eins og Guðmundur
að í sumum þessum samningum hefði
verið samið um rétt starfsmanna til að
launagreiðandi skoðaði persónubundin
laun á 6 eða 12 mánaða fresti. Þar með
yrði tekið tillit til breytinga á hæfni í
starfi sem skipti miklu máli fyrir iðn-
aðarmenn. Hörður benti á að sam-
kvæmt kjarasamningunum ættu
starfsmenn ekki rétt á að við þá væri
gerður kjarasamningur. Ennfremur
væri staða þeirra veik ef fyrirtæki
segði upp fyrirtækjasamningi og neit-
aði að gera annan samning. Ávinning-
urinn af samningnum færi þá væntan-
lega allui- til fyrii'tækisins, en yrði ekki
skipt jafnt á milli starfsmanna og fyr-
irtækisins eins aðalkjarasamningurinn
gerir ráð fyrir.
Draga fyrirtækjasamningar
úr samtakamættinum?
I umræðum á ráðstefnunni kom
fram ^ ákveðinn ótti meðal fulltrúa
VMSI við að fyrirtækjasamningar
væru fallnir til að draga úr samtaka-
mætti launþega. Magnús Norðdahl,
lögfræðingur ASI, sagði að þetta
þyrfti ekki endilega að gerast og sagði
mikilvægt í þessu sambandi að laun-
þegahreyfingin hefði fulla stjórn á um
hvaða þættir kjaramála mætti semja
um á fyrirtækjagrunni. Það væri nokk-
uð skýrt í dag. Hann vakti hins vegar
athygli á ákvæði laga sem sett voru í
síðasta verkfalli sjómanna, en í 10 gr.
laganna segir: „Heimilt er með sam-
komulagi milli vélstjóra og útgerðar-
innai' að aðlaga ákvæði samningsins
þörfum vinnustaðarins með frávikum
frá ákvæðum kjarasamningsins, enda
náist samkomulag um endurgjald til
vélstjóra."
Magnús sagði að í þessari grein væri
í reynd búið að leyfa að semja mætti
um alla þætti kjarasamnings vélstjóra
á hverjum og einum vinnustað. Utilok-
að væri fyrir almenna vinnumarkaðinn
að byggja kjarasamninga á svona opnu
ákvæði.
Grétar Þorsteinsson forseti ASI
Verðum að varð-
veita þann árangur
sem náðst hefur
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti
ASÍ, sagði á kjaramálaráðstefnu
ASI að í næstu kjarasamningum
yrði að varðveita þann almenna
árangur sem náðst hefði á síð-
asta sanmingstímabili og áfram-
haldandi efnahagslegan stöðug-
leika.
„Framundan eru erfiðir kjara-
samningar. Verkalýðshreyfing-
arinnar bíður það verkefni að
tryggja þann aukna kaupmátt
sem henni tókst að ná fram með
síðustu kjarasamningum og
áframhaldandi þróun í þá átt.
Þetta verður erfitt verkefni.
Það verður erfitt vegna þess að
blikur eru á lofti í verðlagsmál-
um og þeim stöðugleika sem
kaupmáttur byggist á er ógnað.
Það verður einnig erfitt vegna
þess að kaupmáttaraukningunni
hefur ekki verið réttlálega skipt.
Við verðum að tryggja í komandi
kjarasamningum hag þeirra
hópa sem í reynd hafa ekki notið
sömu kjarabóta og aðrir á und-
anförnum misserum. Um leið
verðum við að varðveita þann al-
menna árangur sem náðst hefur
og áframhaldandi efnahagslegan
stöðugleika," sagði forseti ASI
við upphaf ráðstefnunnar.
Grétar sagði að hagfræðin
kenndi okkur að til lengri tíma
litið væri farsælast fyrir alla að-
ila að sýna ábyrgð og semja á
grundvelli áframhaldandi stöð-
ugleika.
„En í síðustu samningum
samdi verkalýðshreyfin án
trygginga fyrir því að geta haft
áhrif á það sem gerðist í efna-
hagslífinu í kjölfar kjarasamn-
inga á almennum vinnumarkaði.
Við þekkjum eftirleikinn og þurf-
um nú að draga lærdóm af hon-
um. Á borðinu liggur að ekki
hafa allir notið árangursins í
jafnríkum mæli.“
Láglaunahópar hjá ríkinu
hafa setið eftir
Rannveig Sigurðardóttir, hag-
fræðingur ASI, lagði fram á ráð-
stefnunni tölur sem studdu þessa
fullyrðingu forseta ASI. Kaup-
máttur opinberra starfsmanna
og bankamanna hefur hækkað
um 22,7% frá febrúar 1997 til
febrúar 1999. Kaupmáttur fé-
lagsmanna ASÍ sem vinna hjá
ríki og borg hefur hins vegar
hækkað á sama tímabili um 11-
14%. Rannveig sagði að stærsta
úrlausnarcfni næstu samninga
væri að skipta því sem væri til
skiptanna með réttlátari hætti.
Rannveig sagði að til lang-
frama væri ekki raunhæft að
gera ráð fyrir meira en 3% hag-
vexti á ári, en hann hefur verið
um 6% á síðustu fjórum árum.
Svo mikill hagvöxtur hlyti á end-
anum að hafa í fór með sér of-
þenslu. Hún sagði að virkjanir,
stóriðja og Hvalfjarðargöng
hefðu átt mikinn þátt í að koma
hagvextinum af stað og enginn
vafi léki á að virkjun og álver á
Austurlandi myndi hafa mikil
áhrif á efnahagslífið.
Rannveig sagði að hættumerk-
in í efnahagslífinu væru ótvíræð.
Viðskiptahallinn væri mikill og
langvarandi, verðbólga væri að
aukast, sparnaður væri lítill og
skuldir heimilanna hefðu aukist
mikið. Mikil bjartsýni hjá al-
menningi ætti sinn þátt í þensl-
unni. Spyrja mætti hvort mat al-
mennings og markaðarins á
áhættu og framtíðarhorfum væri
rétt.
ASÍ fái 80% af launaskriði
opinberra starfsmanna?
Edda Rós Karlsdóttir, hag-
fræðingur ASÍ, sagði á ráðstefn-
unni að raunhæft væri að gera
ráð fyrir 4% launahækkun á ári
á næsta samningstímabili. Þetta
væru þær hækkanir sem væru að
verða að meðaltali í nágranna-
löndum okkar. Hún sagði að það
kostaði atvinnulífið ekki mikla
fjárnnini að hækka lægstu laun-
in. Lágmarkslaun ásamt launa-
tengdum gjöldum hér á landi
væru 97% lægri en í Danmörku.
Hún sagði að mörg Evrópulönd
litu til danska vinnumarkaðar-
ins. Það gerðu m.a. vinnuveit-
endur hér á landi. Þeir yrðu því
að taka tillit til þessarar stað-
reyndar. Hún sagði að það fyrir-
komulag sem Danir byggðu á
gerði ráð fyrir að allir semdu á
sama grunni. I síðustu sanming-
um hefði verið samið um 7,55%
launahækkun á tveimur árum,
þar af hefði 1% farið í að greiða
fleiri orlofsdaga.
Edda Rós sagði að lifeyrismál
myndu skipta miklu máli í næstu
kjarasamningum í Danmörku.
Ef Islendingar hefðu samið eftir
danska kerfinu hefði verið tekið
tillit til þeirra miklu hækkana á
lífeyri sem opinberir starfsmenn
fengu við gerð siðustu samn-
inga.
Edda Rós sagði að í Dan-
mörku væri reglan sú að kjara-
samningar á almenna vinnu-
markaðinum gæfu tóninn fyrir
sanminga opinberra starfs-
manna. I samningum opinberra
starfsmanna væru tryggingará-
kvæði sem tryggði þeim 80% af
því launaskriði sem yrði á al-
menna markaðinum. Hún sagði
koma vel til greina að ASÍ-félög-
in settu slíkt ákvæði inn í kjara-
samninga sína sem gerðir yrðu á
næsta ári. Slíkt ákvæði myndi
stuðla að því að allir tækju sam-
eiginlega þátt í að tryggja stöð-
ugleika og lága verðbólgu, sem í
reynd væri eina tryggingin sem
launþegar gætu fengið fyrir
kaupmáttaraukningu.
Umdeild heimild til að
skoða 30 sjúkraskrár
Efast um að
leyfisveiting
standist lög
HEIMILD sem Tölvunefnd
veitti starfsmönnum ís-
lenskrar erfðagreiningar
til að skoða 30 sjúkraskrár
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefur vak-
ið hörð viðbrögð. Sigurður Guð-
mundsson, landlæknir, fór bréflega
fram á við heilbrigðisyfirvöld í fyrra-
dag, að hætt yrði við könnunina og
Ögmundur Jónasson, þingmaður
vinstri-grænna, hefur dregið í efa að
heimildin standist lög. I fyrradag
ályktaði svo stjórn Læknafélags ís-
lands í þá veru að umrædd skoðun
„samrýmdist hvorki landslögum né
siðareglum lækna“.
Sigurður Guðmundsson, land-
læknir, gerir athugasemdir við leyf-
isveitinguna og fyrirhugað vinnulag.
Að farið sé inn á vafasama braut
með því að heimila öðrum en starfs-
fólki heilbrigðistofnana að fara í
gegnum sjúkraskýrslur. „Það er
óvenjulegt að opinber aðili gefi form-
legt leyfi til þess að sjúkraskrár séu
meðhöndlaðar á þennan hátt. Það
má minna á að í gagnagrunnslögun-
um er tekið fram að öll úrvinnsla í
gagnagrunninn, þegar að því kemur,
skuli gerð af starfsfólki heilbrigðis-
stofnana sjálfra en ekki starfsfólki
rekstrarleyfishafans," segir land-
læknir.
Leggur til að leitað verði
beint til fólks
Þá telur landlæknir óviðunandi
þann möguleika að einhverjir þeirra
12.700 einstaklinga sem hafi sagt sig
úr gagnagrunninum lendi í 30 manna
úrtakinu. „Við höfum litið svo á að
úrsögn þeirra taki til hvers konar
skoðunar rekstrarleyfishafa á
sjúkragögnum þeirra. Þó svo það
standi nú ekki beinlínis í lögunum,"
segir landlæknir.
Vegna þessarar hættu hefur land-
læknir lagt til, fari skoðunin fram, að
hún verði gerð á eins gagnsæjan
hátt og unnt er að koma við. Hann
leggur til að annaðhvort verði notast
við sýndar-sjúkraskrár, eins og not-
aðar eru í kennslu, eða þá að leitað
verði beint til nafngreindra einstak-
linga um að þeir láti sjúkraskrár sín-
ar í té. „Það mætti hugsa sér að aug-
lýsa eftir fólki. Stór hluti fólks er
hlynntur þessu framtaki og ég er
sannfærður um að það kæmu jákvæð
svör.“
Komið hefur fram hugmynd frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur um að land-
lækni verði sendur listi með kenni-
tölum 1.000 manns, hann verði lesinn
saman við úrsagnarlistann, sem er í
vörslu landlæknis, og síðan sendi
landlæknir spítalanum til baka lista
með nöfnum 300-400 manns sem síð-
an mætti velja úr. Nöfn þeirra sem
hefðu sagt sig úr grunninum væru
falin meðal þeirra 700 nafna sem eft-
ir stæðu. Þessi hugmynd er nú til
skoðunar hjá landlæknisembættinu.
„Þetta er í sjálfu sér ágæt hugmynd
og alveg þess virði að líta á hana,“
segir landlæknir.
Stjórn Læknafélags íslands fund-
aði um málið í fyrradag og styður
málaleitan landlæknis um að horfið
verði frá fyrirhugaðri skoðun.
Stjórnin „átelur harðlega leyfisveit-
ingu Tölvunefndar", umrædd skoðun
á sjúkraskýrslum samrýmist hvorki
landslögum né siðareglum lækna.
Veiting heimildarinnar óeðlileg
Ögmundur Jónasson telur um-
rædda heimild óeðlilega, sérstaklega
í ljósi þess að ekki sé búið að semja
við IE um rekstur gagnagrunns. Ut-
andagskrárumræður um málið fór
fram á alþingi í gær að beiðni Ög- _
mundar sem telur að rannsaka þurfí
lagalega hlið málsins. „Um hitt efast
ég ekki, að siðferðileg rök skortir
fyrir því að veita Islenskri erfða-
gi-einingu aðgang að sjúkraskrám á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur."
Hann segir það áhyggjuefni að
Tölvunefnd hafi, eins og fram hafi
komið í fréttum, heimilað aðgang að
gögnunum, án dulkóðunar. „Mér
finnst þetta ámælisvert og undar-
legt. Hins vegar hef ég fregnir af því
að það hafi verið heilbrigðisráðherra
sem setti fram þessa ósk og þess
vegna hef ég farið fram á utandag-
skrárumræðu um málið á Alþingi."
Málið sé ekki síður undarlegt þar
sem ekki sé búið að ganga frá sam-
komulagi við fyrirtækið.
Ögmundur lýsti yfir áhyggjum
sínum af þeim aðilum sem hafi það
hlutverk að standa vörð um al-
mannahagsmuni í þjóðfélaginu, eins
og Tölvunefnd og Vísindasiðanefnd.
„Sér í lagi í þessu tilviki þar sem ver-
ið er að versla með upplýsingar um
heilsufar þjóðarinnar. Hvað er eigin-
lega að gerast? Vísindasiðanefnd var
lögð af vegna þess að hún var stjórn-
völdum ekki nógu auðsveip. Þar
nýtti ráðherra sér gloppu í lögum til'
að beita reglugerðarvaldi. Og hvað
með læknastéttina? Ætlar hún að
láta þetta yfir sig ganga? Hver er
ábyrgð lækna gagnvart sjúkhng-
um?“
Gengu lengra en Tölvunefnd
kvað á um
Kristján Erlendsson, yfirmaður
samstarfsverkefna fyrir hönd ÍE,
sem komið hefur að samningum við
skrifstofu Sjúkrahúsana og Tölvu-
nefnd, segir það alrangt, eins og
fram hafi komið, að með heimild tO
að skoða sjúkraskrár hafi verið að
stíga fyrsta skrefið í því að smíða
gagnagrunn. Með fyrirhugaðri skoð-
un sjúkragagna sé verið að undirbúa'
leyfisveitingu og ekki verið að fjalla
um gögn eða safna þeim.
„Það er verið að undirbúa veitingu
rekstrarleyfis og þar á heilbrigðis-
ráðuneytið í viðræðum við Islenska
erfðagreiningu. Sem þáttur í þeim
undirbúningi fór heilbrigðisráðu-
neytið þess á leit við Tölvunefnd að
hún vejtti leyfi fyrir tiltekna starfs-
menn íslenskrar erfðagreiningar til
þess að kanna 30 sjúkraskrár á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur með tilliti til
þess hvernig þær eru skráðar, og
hvað þyrfti að gera til þess að mark-
miðum með gerð gagnagrunnsins
yrði best náð.“ Leyfið sé skilyrt og
engin afrit ætti að taka og könnunin
færi fram innan veggja sjúkrahúss-
ins. Með skoðuninni væri því ekki
verið að vinna gagnagrunn.
Kristján segir að það hafi orðið að
samkomulagi milli IE og forstjóra
Sjúkrahúss Reykjavíkur að persónu-
einkenni verði máð af öllum sjúkra-
skrám sem til stendur að skoða. „Við
gengum lengi'a en Tölvunefnd fór
fram á,“ segir Kristján. Þetta sam-
komulag hafi átt sér stað í síðustu
viku, áður en umræða um heirmldina
fór í gang.
Leyfi til að skoða skrárnar var^-
veitt fyrir tæpum hálfum mánuði, að"t*'
sögn Ki-istjáns. Síðan hafi verið unn-
ið að gerð vinnureglna til að standa
sem best að skoðuninni þannig að
ekki yrði brotið í bága við persónu-
verndarsjónarmið.
Kristján sagðist ekki geta sagt ná-
kvæmlega til um hvenær af skoðun-
inni yrði en kvaðst reikna með að'
þess yrði ekki langt að bíða.