Morgunblaðið - 07.10.1999, Side 40
*40 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hverju
svara sið-
fræðingar?
„Sidferði breytist. Eftir 10 ársegjum við
kannski: „Ja, þetta hljómar nú ekki svo
illa. “En núna finnst okkurflestum
þetta hljóma fremur undarlega. “
Cliff Librach, yfirmaður Sunnybrook-frjósemismiðstöðvarinnar í Toronto.
Hverju og hvernig
geta siðfræðingar
svarað? Stundum
dettur manni í hug,
að eina eiginlega
svarið sem siðfræðingur hafi
nokkurntíma veitt sé það, að
siðferði sé afstætt og ráðist af
sögulegum aðstæðum og félags-
legu hlut-
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
skipti
manna. Það
sem einum
finnist rétt
fínnist öðrum rangt og það sé
ekki til neinn algildur mælik-
varði sem nota megi til að skera
úr um hvort annar hafi rétt fyr-
ir sér og hinn rangt.
I fréttum nýlega, um að vís-
indamenn hefðu þróað aðferð til
að græða vef úr eggjastokkum í
konur, sagði að þessi uppgötvun
hefði valdið „vangaveltum um
siðferðileg álitamál“ (Morgun-
blaðið 24. sept., erlendar frétt-
ir). Aðrir fjölmiðlar tóku í sama
streng. Og hverjar voru svo
þessar siðferðislegu spurning-
ar?
Óljósar, svo ekki verði meira
sagt. Manni sýndist helst að
fréttirnar snerust um það að
hin nýja vísindauppgötvun vekti
siðferðisspurningar. Ekki um
það hvaða siðferðisspurningar
það væru, eða hvernig kynni að
vera möguleiki á að svara þeim.
Breska dagblaðið The Daily
Telegraph sagði að upp-
götvunin „gæti leitt til nýrrar
siðfræðirökræðu um getu
lækna til að breyta gangi nátt-
úrunnar".
Einnig væru menn meðal
annars að velta fyrir sér þáttum
á borð við upplýst samþykki,
hvaða sjúklingar kæmu til
greina og hver væru viðhorf
siðfræðinga. „Við vitum í raun-
inni ekki út í hvað við erum að
fara,“ hafði kanadíska blaðið
The Toronto Star eftir sérfræð-
ingi í erfðavísindum.
En hvers vegna eru siðferðis-
leg álitamál svona loðin og ólj-
ós? Vegna þess að í siðfræði er
ekki fjallað um „staðreyndir" í
sömu merkingu og í til dæmis
líffræði, eða öðrum raunvísind-
um. Raunvísindi fást við það
sem er, en siðfræðin við það
sem á að vera. Raunvísindin
geta (í mörgum tilvikum) veitt
algild svör, það er að segja,
svör sem eru óháð því hvað
mönnum finnst, og breytast
ekki frá einum tíma til annars. I
því skyni að finna algild svör,
það er að segja, siðferðislegar
staðreyndir, hafa siðfræðingar
aðallega reynt að fara tvær leið-
ir. Annars vegar hafa þeir sagt
að afleiðingar athafna ráði því
hvort þær séu réttar eða rang-
ar. Hins vegar segja þeir að
hugarfarið, sem að baki búi, það
er að segja hvort maður vill vel,
skeri úr um hvort athöfn sé sið-
leg eða siðlaus. Hvorug þessara
kenninga virðist þó virka, þegar
á hólminn er komið.
í fyrsta lagi er ógerningur að
reikna nákvæmlega út hverjar
afieiðingar einhverrar tiltekinn-
ar athafnar verða, því að maður
getur aldrei vitað um alla hugs-
anlega áhrifaþætti. Því er óm-
ögulegt að vita hvort það sem
maður gerir er rétt eða rangt
fyrr en maður er búinn að gera
það og þá getur það verið of
seint.
I öðni lagi er það óhjákvæmi-
lega túlkunaratriði hvenær
maður vill vel og hvenær maður
er einfaldlega að hugsa um að
græða sjálfur. Fer þetta ekki
þar að auki oft saman? Og til að
vita hvort athafnir annarra eru
réttar eða rangar, samkvæmt
þessari kenningu, þyrfti maður
eiginlega að geta lesið hugsanir
þeirra.
Ófærurnar sem þessar til-
raunir til algildiskenninga hafa
ratað í eru þó ekki bein ávísun á
að engin svör séu betri en önn-
ur í siðferðisefnum. Sú stað-
reynd að spurningar um rétt-
mæti athafna vakna í
samskiptum fólks bendir til
þess að siðferðið sé raunveruleg
vídd sem maður getur ekki virt
að vettugi. Spurningin er því
sú, hvernig best verði fengist
við þessar spurningar.
Þegar hefur komið í ljós að
þeim verður ekki svarað með
staðreyndum sem sérfræðingar
í siðfræði geta fundið með rann-
sóknum, líkt og raunvísinda-
menn hafa fundið svör með
rannsóknarstörfum. Siðferðis-
legum spurningum verður ein-
ungis svarað með því, að maður
færi rök fyrir máli sínu og út-
skýri forsendur skoðunar sinn-
ar. Um leið þarf maður að íhuga
þau rök sem aðrir færa fram.
Þannig mótast svarið í sam-
ræðunni, en er ekki einungis
manns sjálfs. Það er þar að auki
ekki endanlegt, því það er opið
fyrir frekari rökum. En það er
engu að síður svar. Er þá sið-
ferðislegur sannleikur bara
samkomulagsatriði? Já, en ekki
í eitt skipti fyrir öll, og enginn
getur tekið sér einræðisvald.
Og þótt maður viti að eftir tíu
ár verði svarið kannski annað
útilokar það ekki möguleikann
á að finna svar hér og nú.
Hvernig rök má færa fram í
umræðu um siðferðismál? Það
má til dæmis vísa til afleiðinga
athafna; það má benda á hugar-
farið; nú eða tala um það sem
„fólki almennt“ finnist. En í
rauninni eru engin takmörk
fyrir því sem hægt er að leiða
fram sem rök, nema þá helst
skilningur og ímyndunarafl við-
mælandans. Þessu viðhorfi fylg-
ir að vísu sú krafa, að menn séu
til í að ræða málin og leggi sig
fram um að vera skiljanlegir.
En þetta felur líka í sér að það
er tilgangslaust að kalla til sið-
fræðing og krefja hann svara
um siðferðislegar „staðreyndir"
málsins sem til umræðu er. Það
væri í mesta lagi hægt að
spyrja hann hverjar hann teldi
hinar siðferðislegu spurningar
vera, og hvernig hann teldi að
fara mætti að því að ræða þær.
SÍÐASTA dag
októbermánaðar
verða haldnar forseta-
kosningar í Úkraínu.
Kosningabaráttan er
hafin og af fréttum af
dæma er slagurinn
harður. Hálfum mán-
uði fyrir kjördag
hyggst Halldór Ás-
grímsson, utanríkiráð-
herra, sem nú gegnir
formennsku í
ráðherraráði Evróp-
uráðsins, fara í
tveggja daga opinbera
heimsókn til Úkraínu
ásamt Walter
Schwimmer nýjum
framkvæmdastjóra Evrópuráðsins.
Sú för er farin þrátt fyrir eindregin
tilmæli sendinefndar Úkraínu hjá
Evrópuráðinu um að henni verði
frestað fram yfir kosningar.
Leoníd Kuchma, forseti Úkra-
ínu, er umdeildur í heimalandi sínu
og hefur á undanförnum misserum
oftsinnis verið sakaður um einræð-
istilburði og óstjórn. Nú síðast, 23.
september sl., samþykkti úkra-
ínska þingið ályktun þar sem for-
setinn var sakaður um tilraunir til
þess að koma á einræði í landinu j
aðdraganda forsetakosninganna. í
ályktuninni segir að forsetinn noti
sér vald sitt til þess að klekkja á
mótframbjóðendum sínum og því
haldið fram að ríkisstjómin sé orð-
in að höfuðstöðvum kosningabar-
áttu Leoníds Kuchma.
Vert er að minna á að frjáls
fjölmiðlun þrífst ekki
nú um stundir í Úkra-
ínu. Alkunna er að for-
setinn hefm’ beinan
aðgang að stærstu
fjölmiðlum og nýtir þá
óspart í kosningabar-
áttunni. Opinber
heimsókn Walters
Schwimmers og Hall-
dórs Ásgrímssonar er
því hvalreki á fjörur
Leoníds Kuchma, sem
hyggst ná endurkjöri
hálfum mánuði síðar.
Forsetinn mun vafalít-
ið taka vel á móti góð-
um gestum og engin
ástæða er til þess að
ætla annað en að heimsóknin verði
þeim fróðleg og gagnleg. Hún gæti
hins vegar ekki átt sér stað á
óheppilegri stundu. Það er miður
að forystumenn Evrópuráðsins
skuli hafa skellt skollaeyrum við
óskum úkraínskra þingmanna um
að hinni opinberu heimsókn verði
frestað fram yfir kosningar.
Líkt og mörg önnur nýfrjáls ríki í
austurvegi kljást Úkraínumenn við
gífurlega spillingu á öllum sviðum
þjóðlífsins. Gamla yfirstéttin -
nomenklatura hins sovéska kerfis -
hefur sölsað undir sig ríkiseignir og
auðlindir þjóðarinnar. Ásakanir um
að stjórnvöld beiti sveitum öryggis-
lögreglunnar til árása á kosninga-
skrifstofur andstæðinga forsetans
hafa heyrst á liðnum vikum. Nýlega
stöðvaði Leoníd Kuchma sjón-
varpsútsendingar frá fundum úkra-
Evrópuráðið
Það er ábyrgðarlaust af
utanríkisráðherra og
framkvæmdastj óra
Evrópuráðsins, segir
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, að hætta ekki við
opinbera heimsókn til
Ukraínu.
ínska þingsins með þeim orðum að
slíkar útsendingar væru of dýrar
og þekktust hvergi á byggðu bóli.
Ef til vill getur Halldór Ásgrímsson
frætt Kuchma um tilhögun útsend-
inga frá fundum Alþingis.
Haft er eftir utanríkisráðherra
að þessi ferð hafi verið ákveðin með
löngum fyrirvara og ef hætt verði
við hana geti það verið túlkað sem
afskipti af stjórnmálum í Úkraínu.
Þykir mér utanríkisráðherrann
seilast langt í röksemdafærslunni,
enda hefur hann ekki skýrt þessi
orð nánar. I fyrsta lagi er engin
ferðaáætlun þannig úr garði gerð
að ekki megi breyta henni. I annan
stað má styðja frestun heimsóknar-
innar góðum og gildum rökum. Það
er fjarstæðukennt að halda því
fram að frestun hennar megi túlka
sem afskipti af kosningabaráttunni
í Úkraínu.
Af framansögðu má ljóst vera að
það er ábyrgðarlaust af utanríkis-
ráðheiTa og framkvæmdastjóra
Evrópuráðsins að aflýsa ekki opin-
beiri heimsókn til Úkraínu hálfum
mánuði fyrir forsetakosningarnar
þar.
Höfundur er þingkona Samfylking-
arinnar í Reykjaneskjördæmi.
UMRÆÐAN________
Ohepj)ileg för
til Ukraínu
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Þjóðarátak
gegn fátækt
UM HVER mán-
aðamót snýr hópur
fólks sér til prestanna
sinna um allt land til
þess að biðja um hjálp
og aðstoð vegna þess
að ekki er til peningur
á heimilinu fyrir mat.
Um hver mánaðamót
kemur sívaxandi hóp-
ur fólks til Rauða
krossins í sömu er-
indagjörðum, margir
með börn á sínu fram-
færi. Um hver mán-
aðamót reynir Hjálp-
arstarf
þjóðkirkjunnai’ að
mæta hjálparbeiði
fjölmargra um mat. Og þannig
mætti halda áfram að rekja hinar
ýmsu stofnanir og félagasamtök
sem reyna að hjálpa fólki með mat
síðustu 5-10 dagana fyrir hver
mánaðamót. Allir þekkja af fréttum
hvernig ástandið er í kringum jólin
þegar sérstakar safnanir fara í
gang til þess að hægt sé að halda jól
á fátækum heimilum þessa lands.
En þessi sókn í mataraðstoð um
hver mánaðamót árið um kring er
minna þekkt, minna um töluð. í
hópnum sem þarf að leita til hjálp-
arstofnanna um hver mánaðamót
til að fá mat handa sér
og sínum eru margar
barnafjölskyldur,
mæður sem í örvænt-
ingu eru að reyna að
gefa börnunum sínum
að borða síðustu viku
mánaðarins. Þar er
líka að finna öryrkja,
sjúklinga og aðra sem
vegna eigin veikinda
eða veikinda sinna
nánustu geta ekki
staðið á eigin fótum.
Það eru ekki auðveld
skref að þurfa að biðja
sér matar í miðju góð-
ærinu, þegar fréttir
berast af vaxandi auð-
legð, stækkandi sjóðum, aukinni
bifreiðasölu, aukinni sölu á verslun-
arferðum til útlanda. Þau sem eiga
ekki fyrir mat láta sig ekki dreyma
um annað og þvílíkt, þakka fyrir ef
hægt er að klæða börnin fyrir vet-
urinn. Hér á Islandi, við lok tuttug-
ustu aldar, ríkir fátækt hjá stórum
hópi fólks, raunveruleg fátækt, svo
sár að ef ekki kæmi til starf hjálp-
arstofnana myndi sultur sverfa að
mörgum heimilum í lok hvers mán-
aðar.
Eg vil ekki nefna ástæðurnar
fyrir því að svo margar fjölskyldur
Þórhallur
Heimisson
]$nn Afi itró
Sérverslun með
& silkiblóm
Laugavegi 63, Vita&tíg&megin &ími 551 2040
Góðgerðarstarfsemi
*
Egvil leyfamér að
hvetja til þess að menn
snúi bökum saman, seg-
ir Þórhallur Heimisson,
gegn þeirri fátæk sem
hér ríkir í leynum.
eiga í þetta miklum erfiðleikum um
hver mánaðamót. Ástæðurnar eru
margar, en þvi miður er það svo, að
um leið og ástæður eru nefndar
skipa menn sér í pólitískar sveitir
og kenna hver öðrum um í stað þess
að leita sameiginlega að lausn á
vandanum.
Vandinn er raunverulegur. Til að
leysa hann þarf sameiginlegt átak
en ekki pólitískar deilur.
Nú er það svo að á næsta ári
fögnum við 1.000 ára afmæli krist-
innar trúar í landinu eins og alþjóð
veit. Með kristinni trú fylgdi sú
hugmyndafræði að sérhver maður
væri jafn fyrir Guði, og að hver og
einn og samfélagið ætti að annast
um náungann, annast um þann sem
væri minni máttar, yrði undir í bar-
áttunni. Mikil hátíðahöld eru fyrir-
huguð um land allt af tilefni afmæl-
isins. Ég vil leyfa mér að hvetja til
þess að í tilefni hátíðarinnar snúi
menn bökum saman hvar í flokki
sem þeir standa, gegn þeirri fátæk
sem hér ríkir í leynum. Þjóðarátak
gegn fátækt, þar sem allir samein-
ast um að vinna bug á þeirri övænt-
ingu sem ríkir, slíkt þjóðarátak
væri sæmandi afmælisgjöf á 1.000
ára afmæli kristinnar trúar í land-
inu.
Höfundur er prestur
í H:it'n:ui'j:irð:u-kirkju.
herbalife.is
lyrir þig