Morgunblaðið - 07.10.1999, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 07.10.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FANNY Kristín Tryggvadóttir, nemi í stjórnmálafræði, leggur orð í belg um samkynhneigð í Morgunblaðinu hinn 30. sept. og verður tíðrætt um tjáningar- frelsi í því sambandi. Til eru lög í landinu, sem vernda ýmsa minnihlutahópa gegn níðskrifum á opinber- um vettvangi, og hún verður eins og aðrir landsmenn að hlíta þeim lögum fyrst þau eru í gildi; það ætti nemi í stjórnmála- fræði að vita. Hins vegar hefur hún rétt til að hafa sínar skoðanir á þeim lögum, eins og hverju öðru. Þessi fallega stúlka er á þeirri skoðun, að samkynhneigð sé hvorki meðfædd né rétt eins eðli- leg og gagnkynhneigð. Vissulega hefur hún leyfi til að hafa þá skoð- un, enda segir hún „engar rann- sóknir liggja fyrir sem sýna að samkynhneigð sé meðfæddur eig- inleiki eins og t.d. litarháttur". Raunar liggja engar rannsóknir fyrir sem sanna, að gagnkyn- hneigð sé hin eina meðfædda og eðlilega kynhneigð. Hver sem er hefur m.a.s. leyfi til að hafa með sjálfum sér þá fráleitu skoðun, að það sé óeðli hjá Fannyju Kristínu að eiga þá þrá í hjarta sínu að eiga góðan mann sem hún elskar og ber virðingu fyrir, að maður tali nú ekki um að sofa hjá honum. Ég vona hins vegar, að enginn telji það kristilegt eða eðlilegt að ráðast með þeim hætti að dýpstu, helgustu og fegurstu þrám Fann- yjar, jafnvel þó að hún telji það skyldu sína að dæma með- bræður sína og -syst- ur með sambærileg- um fullyrðingum. „Þó er hvað eftir annað látið í veðri vaka að ef menn haldi því fram að hægt sé að breyta kynhneigð sinni þá megi allt eins halda þvi fram að menn geti hætt að vera Kínverjar eða svertingjar. Slíkur málflutningur er ákaflega ótraustvekjandi," segir hún. Ef svo er vill Fanny Kristín þá ekki ganga fram fyrir skjöldu og sanna mál sitt með því að breyta kyn- hneigð sinni svo sem eins og í eina viku, elskast með konu og lýsa því síðan á síðum Morgunblaðsins, hvað það hafi verið vandalaust að láta sér þykja það eðlilegt? Nei, lesandi góður, hingað og ekki lengra í vitleysunni, vitanlega get- ur Fanny Kristín ekki breytt kyn- hneigð sinni frekar en aðrir. Hún er henni bæði meðfædd og eðlileg. Sem endranær eru kærleiksorð Jesú Krists töfralausn og þau vernda og græða andspænis aðför Fannyjar Kristínar og skoðana- bræðra hennai' að tilfinningum fólks, sem ekkert hefur gert þeim annað en að vera til. Hörmulegt er að hugsa til fólks, sem hefur trúað slíkum málflutningi og beðið Guð sinn í áraraðir af þeim trúarhita, sem verður til í sárustu neyð, um að fá að vera „eðlilegt“, - af því sumt samferðafólk þess telur sig hafa rétt til þess að dæma það óeðlilegt - smám saman byggt upp sjálfshatur, misst móðinn og að lokum örmagnast. Slík dæmi þekki ég af eigin raun og mun gráta í hjarta mínu, meðan ég lifi, yfir örlögum þessara saklausu mannvera. Samkynhneigð Getum við ekki farið að líta á okkur öll eins og mismunandi gerðir blóma á akri tilverunn- ar, spyr Bergþór Pálsson, sem öll eigum okkar tilverurétt? Ég bið Guð fyrir Fannyju Kristínu og skoðanabræður henn- ar, en el jafnframt þá von í brjósti, að þau hugsi sig tvisvar um, áður en þau halda því fram að hægt sé að lækna samkynhneigð eins og um sé að ræða sjúkdóm. Það er grafalvarlegt mál. Getum við ekki senn farið að líta á okkur öll eins og mismun- andi gerðir blóma á akri tilver- unnar, í ótal formum og litum, sem öll eigum okkar tilverurétt, já, rétt til að njóta sólarinnar? Höfundur er óperusöngvari. Blómin á akri tilverunnar Bergþór Pálsson 58.50 Ný sending af glæsilegum húsgögnum Húsgögn, rúm, dýnur, koddar og fleira fyrir svefninn Koddar VERSLUNIN Undirdívan Skútuvogfi 11* Sími 5Ó8 5588 Dagur frímerkisins frímerki í dag kemur úí eitt frímerki hetgað Degi frímerkis- ins og tvö frímerki í tilefni af því að Reykjavík verður ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Frímerkjasýning 7. til 9. október verður Degi frímerkisins fagnað með frímerkjasýningu að Síðumúla 17. Sýningin er opin frá kl. 17.00 til 21.00 fimmtudag og föstudag en frá 11.00 til 17.00 á taugardag. Aðgangur er ókeypis og gestir fá sérprentaða örk sem jafnframt er happdrættismiði. Boðið er upp á kaffiveitingar. Fyrsiadagsumslög fást stimptuð á pósthúsum um land aiit. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050 Fax: 580 1059 Heimasíða: www.postur.is/postphíi BMW 520 I, 5 gíra, árg. 1999. bílar Blásans., ek. 25 þ. km, 16" álfetgur, ný dekk, topplúga, ASR-spólvörn, rafmagnsrúður, hljóðkerfi, fjarstýrðar samtæsingar. Glæsilegur farkostur. Svartsans., ek. 112 þ. km, álfetgur, topptúga, leðursæti, rafrúður, rafmagnssæti með minni, loftkæling, ABS, CD-spilari. Bíll fyrir vandláta M-Benz 300 E 24 ventla, 220 hö, árg. 1992.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.