Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 64

Morgunblaðið - 07.10.1999, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM MYNDBOND Sjálfsvörn fyrir fólk á öllum aldri Stutt Mjóróma undrabarn Litla rödd (Little Voice) Gamanmynd/dram a ★ ★'/2 Loiksljóri og handritshöfundur: Mark Herman. Byggt á Ieikriti eftir Jim Cartwright. Aðalhlutverk: Jane Horrocks, Michael Caine, Brenda Blethyn og Ewan McGregor. (96 mín) Bretland. Skífan, september 1999. Bönnuð innan 12 ára. í LITLU herbergi í hrjúfu sjávar- þorpi í Bretlandi kúldrast ung stúlka sem fengið hefur viðurnefnið Litla rödd. Daglangt hlustar hún á sígild- ar dægurplötur föð- ur síns heitins og raular með. Ráðrík móðirin telur stúlk- una enga framtíð eiga fyrir sér, þang- að til að umboðs- maður nokkur upp- götvar undraverða sönghæfileika stúlkunnar. Jane Horrocks, sem leikur aðal- hlutverkið í þessari kvikmynd, er ekki aðeins góð leikkona, heldur gíf- urlega hæfileikarík söngkona en hún syngur sjálf í öllum söngatriðum myndarinnar. Þar endurvekur hún raddir stjarna á borð við Judy Gar- land, Marilyn Monroe og Marlene Dietrieh svo vart má greina á milli fyrirmyndar og eftirlíkingar. Aðrir leikarar eru einnig frábærir en per- sónurnar sem þeir túlka eru bæði skemmtilegar og raunsannar. "L Brenda Blethyn túlkar hina lífs- þyrstu móður af ótrúlegum krafti, Michael Caine leikur hinn vongóða en lífsþreytta umba af öryggi og Ew- an McGregor er elskulegur sem hinn vatnsgreiddi og hlédrægi vonbiðill Litlu raddar. Þó að sagan sé góð tek- ur hún dálítið ósamstæðar sveiflur milli gamans og háalvarlegs drama. Þá taka persónur móðurinnar og umbans heldur ófyrirsjánlegum stakkaskiptum undh- lokin. Heiða Jóhannsdóttir --------------------- Máttur ' hlátursins Patch Adams Saiinsuguíeg gamanmjiid ★ ★Ví2 Leikstjórn: Tom Shadyac. Aðalhlut- verk: Robin Williams, Monica Potter, Daniel London og Bob Gunton. 111 mín. Bandarísk. ClC-myndbönd, sept- ember 1999. Öllum leyfð. MYND þessi er byggð á atburðum í lífí Hunters nokkurs „Patch“ Ad- ams, sem trúði því að hláturinn lengdi og létti lífið og reyndi að færa kenningu sína inn í læknisfræðina þar sem hann mætti nokkurri andstöðu vantrúaðra. Það er mikill dýrðarljómi yfir ævisögunni. Hún er voða sæt og nokkuð skemmtileg á köflum. Robin Williams er í mjög kunnuglegu hlutverki hér og maður hefur það á tilfinningunni að hann hafi leikið hlutverkið oft áður. Mikið er spilað á tilfinningasemina og verð- .*ur myndin ansi væmin á köflum. Boðskapurinn er auðvitað ákaflega jákvæður og sjálfsagt jafnþarfur. Myndin er öll fagmannlega unnin, jafnt hvað varðar leik, stjórnun og tæknivinnu, en líður nokkuð fyrir takmarkalausa upphafningu aðal- hetjunnar og einfaldan leik að til- '^fínningum áhorfenda. Annars ágæt ^skemmtun. Guðmundur Ásgeirsson. Lífið er eini verð- launagripurinn Isaac Cohen hyggst standa fyrir nám- skeiðum í sjálfsvörn hérlendis. Hann hefur m.a. þjálfað sérsveitir bandaríska hersins, --------------------------------------y,------ barist í Yom Kippur-stríðinu fyrir Israel og þróað eigin bardagaaðferð sem nefnist sverð Gídeóns. Pétur Blöndal talaði við hann um að fara að öllu með gát. SVERÐ Gídeons nefnist sjálfsvarn- ai’aðferð sem Isaac Cohen hefur þró- að og kennt víða um heim. Hann er nýkominn frá Grænlandi og stendur fyrir námskeiði næstkomandi sunnu- dag frá kl. 14 til 17 í æfingasal Karatefélags Reykjavíkur. Þá stefn- ir hann á að koma hingað aftur í febrúar á næsta ári og vera með lengra námskeið. Cohen er með tíundu gráðu af svarta beltinu, lengra er ekki hægt að komast, og hefur víðtæka reynslu á sviði sjálfs- varnaríþrótta. Ekki er nóg með að hann hafi barist með sérsveitum ísraelska hersins í Yom Kippur- stríðinu heldur hefur hann þjálfað sérsveitarmenn bandaríska hersins. Hann hefur þróað sérstaka sjálfs- varnaraðferð sem nefnist sverð Gíd- eons og hentar körlum og konum á öllum aldri. Byggist ekki á styrkleika ,A-ðferðin byggist ekki á styrk- leika sem er mikilvægt því annars gæti árásarmaðurinn einfaldlega verið sterkari," segir Cohen. ,Að- ferðin byggist á því að nota þyngdar- aflið; að trufla jafnvægisskyn and- stæðingsins. Ef árásarmaðurinn læt- ur til skarar skríða þarf hann að hreyfa sig í átt að fórnarlambinu. Það stígur til hliðar og beitir tækni sem veldur því að hreyfing árás- armannsins heldur áfram og hann skellur í gólfið. Þessi aðferð dugar við hvaða árás sem er, engu skiptir hvort árásarmennirnir eru einn eða fleirýeða hvort vopn eru með í spil- inu. I öllum þessum aðstæðum mun árásannaðurinn enda í gólfinu á þremur sekúndum, jafnvel fyrr.“ Cohen segir mikilvægt að halda ró sinni. „Eg kenni fólki að hafa stjórn á huganum. Fyi-ir það fyrsta má ekki reiðast árásarmanninum og ekki meiða hann heldur. Vissulega býður aðferðin upp á það en maður er í að- stöðu til að gera það ekki. Árás- armaðurinn er ekki í andlegu jafn- vægi og auðvitað er mikilvægt að vernda líf sitt en maður vill ekki auka örvæntingu hans; við vitum aldrei hvaða bakgrunn hann hefur eða til hvers hann er líklegur." Að sögn Cohens kemur aðferðin sem hann kennir til góða, er rökrétt og raunsæ og kemur öllum að haldi sem hafa sjálfsaga, einbeitingu og löngun til að læra. „Ég myndi lýsa þessu þannig að þetta sé fyrir fólk sem langar til að geta varið sig,“ seg- ir hann. „Til að byrja með þarf það að forðast óþarfa áhættur eins og að vera í vondum fé- lagsskap á öldurhús- um, verða of drukkið, , nota eiturlyf eða jafn- Aðferðin sem1 Cohen hefur þróað hæfir fólki af báð- um kynjum og á öllum aldri. vel að vera ekki með öryggisbelti." Hann segir að fólk þurfi einnig að vera sér meðvitandi um hætturnar sem leynast í umhverfmu. Ef það gengur inn í bíl þarf það að líta aftur fyrii' sætið. Ef tveir fara á sitthvorum bílnum af bíiastæði eiga þeir að bíða eftir hinum. Að sama skapi ef öðrum er skutlað heim á hinn að bíða eftir að ljósin kvikni. Ef fólk kemur heim til sín og hurðin er opin, má ekki taka óþarfa áhættu, það er aldrei að vita hvað hefur gerst. Konur sem ganga einar heim eiga að ganga á lýstu svæði og ekki hrópa á hjálp ef eittr hvað kemur fyrir heldur að kviknað sé í; annai-s gæti fólk orðið óttaslegið og ekki komið út á götu. Þetta er langur listi og fleira sem ég tíni til. Þegar fólk er orðið vart um sig, þá fyrst er ástæða til að kenna sjálfs- vörn. En fyrst þarf að þjálfa hugann." Hugarró skiptir öllu máli Sá sem kann allar sjálfsvarnarað- ferðir í heiminum, að sögn Cohens, en er ekki í andlegu jafnvægi gæti gleymt öllum aðferðunum ef ráðist er á hann. Hann segir að maður þurfi að læra að stjórna huganum, t.d. með réttri öndun. Margir andi aðeins háifa leið en þurfi að anda alla leið. Þá þurfi menn að huga að augnaráðinu; ef augun fari að flökta þegar hætta steðji að viti árásarmað- urinn af hræðslunni. „Það er engin keppni í mínu kerfi, eins og öðrum sjálfsvarnaríþróttum. Það fæst við veruleikann og eini verðlaunagripur- inn er lífið.“ Isaac Cohen verður með nám- skeið um helgina í Karatefélagi Reykjavíkur. Cohen segist geta kennt margt í einum tíma en aðferðin sé ferðalag, ekki áfangastaður; hægt sé að læra hana allt lífið. Þá segir hann að eftir að hafa lært sína aðferð muni fólk vilja forðast átök. „Því meira sem það lærir því betur verður það sér meðvitandi um hversu mannslíkaminn er viðkvæmur; það fær meiri samúð með árásarmanninum. Stundum er hægt að komast hjá átökum með orðum eða því að halda aftur af sér. I karate er byrjað á árás en í mínu kerfi er um algjöra sjáifsvörn að ræða; aldrei er byrjað að fyrra bragði. Það sem gerist í raunverulegum aðstæðum þegar komið er út fyrir æfingasalinn er að árás úr tíu metra fjarlægð tekur eina og hálfa til tvær sekúndur. Það er því ekki mikill tími til stefnu, jafnvel fyrir sérþjálfaða og vopnaða lögreglumenn. Þess vegna er mikilvægt að læra aðferð sem kennir ósjálfráð viðbrögð við nánast hvaða aðstæður sem er, hvort sem ráðist er aftan að eða framan, með kylfu eða skotvopn." Höfum ekki efni á að tapa Cohen var í sérsveitum ísraelska hersins í Yom Kippur-stríðinu árið 1973 og var Yitzhak Rabin, sem síð- ar varð forsætisráðherra Israels, góður vinur móður hans. „Ég á nokkrar myndir af þeim saman og þekkti hann ágætlega eins og nokkra af öðrum ráðamönnum Israels," seg- ir Cohen og bætir við að það hafi verið hræðilegt þegar Rabin var myrtur. Hann hefur búið í 12 ár í Bandaríkjunum. En er það rétt sem sumir segja að ísraelskir hermenn séu þeir best þjálfuðu í heiminum? „Við eigum engra kosta völ; við búum í landi sem býður ekki upp á ósigur. Ef við bíðum lægri hlut einu sinni er allt tapað. Þess vegna þurf- um við að kafa eins djúpt og hægt er í allar greinar hernaðar og vera fremstir í heiminum. Okkur hefur tekist ágætlega upp.“ Dætur Hróa hattar í þýskum nútíma í KVÖLD kl. 20.30 verður þýska kvikmyndin „Burn- ing Life“ frá árinu 1994 sýnd í Goethe-stofnuninni á Lindargötu 46. Leikstjóri inyndarinnar er Peter Welz en með aðalhlutverk fara Anna Thalbach og Maria Schrader. Myndin íjailar á gamansaman hátt um skuggahlið- arnar á sameiningu þýsku ríkjanna. Eftir gleðibylgj- una sem fór um Þýskaland í kjölfar sameiningarinnar vaknar fólk aftur til blákalds og oft ófagurs veru- leika. Ung kona ákveður að réttast sé í stöðunni að ræna banka og ákveður önnur kona í skyndingu að aðstoða hana við ránið. Þessar dætur Hróa hattar Þessar þýsku konur ákveða að taka málin í sínar hendur að hætti Hróa hattar. fremja hvert ránið á fætur öðru um allt Þýskaland og lögreglan þarf að skipa sérstaka sveit til að hafa hendur í liári þeirra. Kvikmyndasýning í Goethe-stofnuninni Oþreytandi starfsmenn úr plasti ÞEIR líta út eins og öryggisverðir með öryggishunda en þeir blikka ekki auga ef skotið er á þá, þurfa aldrei pásur og hafa fullkomna sjón um dimmar nætur. Ef einhver undrar sig á þessum ofurmennum er það ekki skrýtið því lýsingin er á nýjum vélmennum í þjónustu ör- yggisfyrirtækis í Rio de Janeiro. Þeir eru búnir til úr treljaplasti og í augntóftum þeirra eru myndavél- ar sem varpa myndum af umhverf- inu inn á skrifstofur öryggisvarða fyrirtækisins Tradicom. Forstjóri fyrirtækisins, Deoclidio Correa, sagði í samtali við Reuters-frétta- stofuna að hann byggist við að vél- mennin yrðu geysivinsæl. „Vél- mennin vinna í rigningunni, verða aldrei þreytt og geta unnið alla sunnudaga." Magatöflur út næstu öid KONA ein í Hong Kong reiddi fram rúma milljón íslenskra króna til að losa sig við aldamótaandann mai'g- umrædda. Konan keypti magatöflur í tonnatali af óprúttnum sölumönn- um sem notfærðu sér þekkingarleysi konunnar. Konan sem er 43 ára að aldri hafði að sögn lögreglunnar í Hong Kong ekki hugmynd um hvort títtnefndur vandi væri tengdur tölv- um eða hvort um væri að ræða veik- indafaraldur sem myndi dynja á mannkyninu stundvíslega um alda- mótin. Sölumennh'nir höfðu sann- fært konuna um að hún gæti efnast stórlega á því að selja hluta maga- taflnanna og myndi því sigla stórefn- uð inn í nýja öld. En í stað þess þarf hún að bíta í það súra epli að hafa keypt köttinn í sekknum. Gestir þessa heims og annars LÁTNIR gestir eru sérstaklega boðnir velkomnir á væntanlega skemmtiferð í Karabíska hafinu og fá ferðina frítt en hinir sem enn draga andann þurfa að greiða um 80 þúsund krónur fyrir skemmtun- ina. Ferðaskrifstofan Gotta Go Cruises í New York stendur nú í ströngu við að bóka í ferðina NowÁge 2000, ferð með norska skemnitiferðaskipinu Norwegian Sky í vikuferð til Cayman-eyjanna. Fararstjórinn er Suzane Northrop sem skrifað hefur bókina „Miðils- fundurinn: Skilaboð að handan“ og munu því allir gestir fararinnar geta hist og rætt málin á fundum hennar í ferðinni. Búist er við að færri komist í ferðina en vilji. Oumbeðnar lýtalækningar LÖGREGLAN á Miami Beach leitar nú logandi Ijósi að manni sem þykist vera lýtalæknir. Maðurinn er talinn svæfa sjúklingana með dýrasvefnlyfi og einn karlkyns sjúklinga hans vaknaði eftir svæfinguna með sili- konbrjóst sem hann hafði ekki beðið um, svo eitthvað sé nefnt. Lögregian segir að hinn 58 ára gamli Reinaldo Silvestre hafi ekki próf í iæknisfræði og hefur lögregl- an handtekið hann og tvo aðstoðar- menn hans fyrir að stunda lækning- ar án læknaleyfis, auk þess að nota ólöglegt deyfilyf. Rannsókn málsins hófst þegar fyrrverandi fyrirsæta sýndi lögregl- unni myndband þar sem Silvestre var að framkvæma lýtaaðgerð á karlmanni sem hafði beðið um sili- konfyllingu í upphandleggsvöðva. Myndbandið sýndi „lækninn“ hafa óskir sjúklingsins að engu og búa til á hann brjóst í staðinn. Ekki nóg með það heldur voru læknatólin lík- lega fengin úr næsta eldhúsi og saumaskapurinn eftir aðgerðina engu líkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.