Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 2

Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Staðfesting frá bandaríska varnarmálaráðu- neytinu vegna greinar um kjarnavopn á fslandi Staðurinn í eyðunni er allt annars staðar Berlín. Morgunblaðið. UTANRIKISRÁÐHERRA barst í gær staðfesting frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu um að ekki væri rétt að átt væri við ísland í bandarísku skjali, sem þrír banda- rískir fræðimenn, Robert S. Norris, William M. Arkin og William Burr, halda fram í grein í tímaritinu The Bulletin of the Atomic Scientists að sýni að geymd hafi verið kjarnorku- vopn hjá vamarliðinu á Keflavíkur- flugvelli á árunum 1956 til 1959. I lista í skjalinu hafði verið strik- að yfír nafnið, sem fræðimennirnir töldu að ætti við ísland, en þeir kváðust hafa komist að þeirri niður- stöðu að Island hefði staðið í eyð- unni með því að styðjast við aðrar heimildir. Halldór Asgrímsson utanríkis- ráðherra sagði í gær að í svarinu frá vamarmálaráðuneytinu segði að um stað allt annars staðar á hnettinum væri að ræða, en ekki kæmi fram hvaða staður það væri. Hann gagn- rýndi höfunda tímaritsgreinarinnar. „Þessir aðilar, sem þama hafa verið að stunda rannsóknir, hafa verið mjög ónákvæmir í gegnum tíðina," sagði hann. „Hvað eftir ann- að hafa komið fram fullyrðingar á þessum vettvangi, sem síðan hafa verið bornar til baka. Maður hlýtur að gera þær kröfur til slíkra rann- sóknaraðila að þeir vandi sig meira, en maður hefur stundum á tilfinn- ingunni að þeir vilji slá fram alvar- legum hlutum fyrst og fremst til að fá viðbrögð, í þeirri von að það geti upplýst meira og þeir fái meiri at- hygli.“ Yfirlýsing sendiráðsins Sendiráð Bandaríkjanna á íslandi sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem fullyrðinga höfunda skýrslunnar í Bulletin of the Atomic Scientists er vísað á bug. Stefna bandarískra stjómvalda varðandi fullyrðingar um að kjam- orkuvopnum hafí verið komið fyrir í einhverju tilteknu ríki hafí jafnan verið sú að játa hvorki né neita slík- um fullyrðingum. „Hins vegar vilj- um við benda á að ásakanir, sem sérstaklega vísa til þess að kjam- orkuvopnum hafi verið komið fyrir á íslandi, hafa komið fram á liðnum ámm. Eftir samráð bandarískra og íslenskra embættismanna og á grundvelli upplýsinga sem ríkis- stjóm Bandaríkjanna hefur látið ríkisstjóm íslands í té, hafa íslensk stjórnvöld ítrekað lýst því yfir að slíkar fullyrðingar eigi ekki við rök að styðjast,“ segir í yfírlýsingunni. „Þótt við hyggjumst ekki fylla í eyður þær, sem skildar vom eftir í uppmnalega skjalinu, viljum við að skýrt komi fram að sú niðurstaða, sem birt er í Bulletin of the Atomic Scientists og gefur til kynna að bandarískum kjarnorkuvopnum hafi verið komið fyrir á Islandi er röng,“ segir einnig í yfirlýsingunni. 49 starfsmenn vant- ar í leikskólana FRAM kom á fundi borgarstjórn- ar í gærkvöldi að enn vantar 49 starfsmenn til að leikskólar borg- arinnar verði fullmannaðir. Krist- ín Blöndal, borgarfulltrúi R-list- ans og formaður leikskólaráðs, segir allra leiða leitað til að leysa vanda í leikskólum og nokkuð miði í rétta átt. Hún sagðist eiga von á að boðað yrði til aukafund- ar í leikskólaráði í næstu viku til að ræða nýjar hugmyndir sem hún vonast til að bætt geti ástand mála á leikskólunum þótt ekki sé um neinar töfralausnir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn vöktu máls á vandanum og kröfðust svara um leiðir til lausnar honum. Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, benti á að ekki væri unnt að nýta um 230 pláss á leikskólum borgarinnar vegna manneklu og þurft hefði að senda börn heim af 12 leikskólum í Reykjavík síðasta mánuðinn. Manneklan hefði einnig í för með sér að biðlistar eftir leikskólaplássi lengdust. Sjálfstæðismenn gagnrýndu meirihlutann í borgarstjórn fyrir að hafa lagt ofuráherslu á bygg- ingu leikskóla en litla á innra starf og rekstur þeirra. Sjálfstæðis- menn hvöttu til þess að allar við- bótargi'eiðslur borgarinnar til leikskólanna rynnu beint í launa- greiðslur til starfsmanna þeirra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri svaraði gagnrýni sjálfstæðismanna með því að vekja athygli á því að bygging nýrra leikskóla í höfuðborginni þýddi það að 2000 fleiri börn fái nú þá úrlausn inni á leikskólunum sem foreldrar þeirra kjósi en árið 1994 er R-listinn tók við völdum í borgarstjórn. Borgarstjóri dró þó ekki dul á það að meiri festu þyrfti að ná í starfsemi leikskól- anna og mannahaldi þar. Það þyrfti bæði að gera með því að líta til lengri tíma og eins með því að bregðast við þeim brýna vanda sem er á einstökum deildum leik- skóla borgarinnar. Ingibjörg Sólrún benti á að til að takast á við vandann þegar til lengri tíma er litið sé ein af for- sendunum sú að menntaðir verði fleiri leikskólakennarar en verið hefur. Þá sagði hún engum bland- ast hugur um að taka verði á launamálum leikskólakennara. Hún sagði viðbótarfjárframlög borgarinnar til leikskólanna á þessu árí og því næsta fara beint í laun starfsmanna. Morgunblaðið/RAX Urskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald KARLMAÐURINN, sem lögreglan í Reykjavík handtók í fyrradag, vegna rannsóknar á stóra fíkniefna- málinu var í gær úrskurðaður í eins mánaðar gæsluvarðhald í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, var handtekinn í Reykjavík og með úrskurði dómara frá í gær sitja alls tíu karlmenn í gæsluvarðhaldi vegna málsins. * LI skylt að afhenda upp- lýsingar um fjármag*nstekjur Myndir frá Eyjabakka- svæðinu LJÓSMYNDASÝNING sjö Ijós- myndara, þar sem sýndar eru myndir af Eyjabökkum eða stfflustæði fyrirhugaðs Eyja- bakkalóns, var formlega opnuð í verslunarmiðstöðinni Kringl- unni í Reykjavík í gær. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri opnaði sýninguna við hátíðlega athöfn en með henni hér á myndinni eru þeir Guð- mundur Páll Ólafsson, Haukur Snorrason og Snorri Snorrason sem allir eiga myndir á sýning- unni. Auk þeirra eru á sýning- unni myndir eftir Pál Stefáns- son, Sigurgeir Sigurjónsson, Ómar Ragnarsson og Ragnar Axelsson. HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest þann dóm Héraðsdóms Reykjavíkur að Landsbanka íslands sé skylt að afhenda embætti ríkisskattstjóra upplýsingar um fjármagnstekjur hóps skattgreiðenda. Bankinn hafði borið fyrir sig bankaleynd, en Hæstiréttur segir hvorki lög um við- skiptabanka og sparisjóði né stjórn- arskrána koma í veg fyrir að um- beðnar upplýsingar yrðu veittar. Málið var rekið sem prófmál og beindist að öllum viðskiptabönkun- um og sparisjóðum. Með lögum nr. 94/1996 um stað- greiðslu skatts á fjármagnstekjur, sem gildi tóku 1. janúar 1997, var ákveðið að innheimta í staðgreiðslu 10% tekjuskatt til ríkissjóðs af vöxt- um og arði. Skylda til greiðslu skattsins hvílir á öllum þeim, sem fá vaxtatekjur og arðstekjur með örfá- um undantekningum. Skylda til að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum og afföllum og skila í ríkissjóð hvílir á innlánsstofnunum og öllum þeim, sem hafa atvinnu af fjárvörslu. Ríkisskattstjóri ákvað að kanna framkvæmd laganna og gera saman- burð á framtöldum fjármagnstekjum hóps skattgreiðenda og þeirri fjár- hæð, sem bankar og sparisjóðir höfðu reiknað sama hópi í fjár- magnstekjur og einnig _ afdregna staðgreiðslu af tekjunum. í því skyni var óskað upplýsinga um þessi atriði vegna 1.347 skattgreiðenda, sem valdir voru af handahófi. Landsbankinn neitaði ríkisskatt- stjóra um upplýsingarnar og taldi að embættið ætti ekki lögvarinn rétt til upplýsinga um þessi atriði án tengsla við eiginlega rannsókn á skattskilum tiltekinna aðila. Bankinn taldi beiðni ríkisskattstjóra fara í bága við meginreglu um bankaleynd og grunnreglu 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins íslands nr. 33/1944 um persónuvernd. Liður í hefðbundnu skatteftirliti I dómi Hæstaréttar kemur fram það álit dómsins, að upplýsingar þær, sem ríkisskattstjóri fór fram á, væni liður í hefðbundnu skatteftirliti og í samræmi við hlutverk skattyfír- valda. Ekki yrði annað séð en að málefnalegar ástæður hefðu legið að baki beiðni ríkisskattstjóra og ör- yggissjónarmiða gætt í viðeigandi mæli. Hæstiréttur féllst ekki á að Landsbankinn gæti borið fyrir sig 43. gr. laga nr. 113/1996 um við- skiptabanka og sparisjóði, sem kveð- ur á um bankaleynd, enda væri þar skýrt tekið fram, að fyrirmæli ákvæðisins vikju þegar skylt væri að veita upplýsingai' lögum samkvæmt. Þá þótti Hæstarétti að 71. gr. stjórn- arskrárinnar um persónuvernd kæmi ekki heldur í veg fyrir að um- beðnar upplýsingai- yrðu veittar. Rétturinn staðfesti þar með þá nið- urstöðu héraðsdóms, að Landsbank- anum væri skylt að afhenda ríkis- skattstjóra upplýsingarnai'. Sérblöð f dag Á FÖSTUDÖGUM Með Morgun- blaðinu í dag er dreift blaði frá Nóatúni, „Danskir dag- ar“. Blaðinu er dreift á suð- vesturhorninu. Norsku liðin standa sig vel í Evrópukeppninni/C3 Hillir undir kaup íslending anna á Stoke/C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.