Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 23

Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 23 STUTTFRÉTTIR Hugsanleg lánsfjárþurrð á erlendum mörkuðum um áramót vegna 2000-vandans Nýr fram- kvæmda- stjóri RJC • ÁSGEIR Johansen hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Rolf Johan- sen & Company ehf. Ásgeir lauk stúd- entsprófi frá Verslun- arskóla íslands árið 1991 og BS-prófi í stjórnunarfræði frá Guilford College skól- anum í Norður-Kar- ólínufylki í Bandaríkj- unum árið 1995. Að loknu námi starfaði hann um tfma hjá R.J. Reynolds tóbaksfyrirtækinu í N- Karólínu sem sölufulltrúi og síðar í dreifingardeild fyrirtækisins. Hann starfaði sem sölustjóri hjá RJC frá 1996-1997 og sem deildarstjóri und- anfarin tvö ár. Ásgeir er kvæntur og á þrjú börn. --------------- Tölvuæði bætir hag Microsoft Seattle. Reuters. • Microsoft hefur skýrt frá því aö hagnaöur ftyrirtækisins hafi aukizt um 30% á síðasta ársfjórðungi vegna „ægilegrar" eftirspurnar eftir einmenn- ingstölvum. Búzt er við að salan haldi áfram að aukast og fyrirtækið skilaði meiri haganði en búizt hafði verið við að sögn Microsoft. Hagnaður Microsoft nam 2,29 mill- Ijörðum dollara á þremur fyrstu mán- uðum reikningsárs félagsins til sept- emberloka. Hagnaðurinn jókst úr 1,68 miilljörðum dollara á sama tíma í fyrra. Bréf í Micrsoft hækkuðu um tæp þrjú stig eftir að tilkynningin var birt. Ótti við tölvuhrun við árþúsundamót virtist hafa lítil áhrif. „Árþúsundamótin virðast ekki hafa haft veruleg áhrif á afkomuna," sagði Greg Maffet aðal- fjálmálastjóri. Tekjur í Asíu jukust um 82% á fjórð- ungnum í 593 milljónir dollara. Staðfest var að framleiðsla Windows 2000 stýrikerfisins, arftaka Windows NT, mundi hefjast í árslok. -------♦-♦-♦----- Hluti Ax hf. seldur • Logic ehf. hefur keypt iðnstýri- og skjámyndakerfislausnir Ax hf. sem áður voru hluti af Iðnstýrideild Tæknivals hf. Logic ehf. verður framvegis með umboðið fyrir In- tellution Inc., sem er framleiðandi FIX stjórn- og eftirlitskerfa. Þjónust- an við FIX stjórn- og eftirlitskerfin, sem sett hafa veriö upp hjá viö- skiptavinum iðnstýrideildar Tækni- vals hf. í gegnum árin, mun því flytjast yfir til Logic ehf. Logic ehf. verður sjálfstætt starf- andi fyrirtæki t eigu þriggja fyrrver- andi starfsmanna iönstýrideildar Tæknivals hf./Ax, Jóns Arnarsonar, rafmagnstæknifræöings, Jóhanns Sigurðssonar, rafmagnstæknifræð- ings, og Guðjóns Þorkelssonar, raf- magnsiðnfræðings. -------♦-♦-♦----- Kælimottur til flutninga • Fyrirtækið Móði og Magni ehf. hef- ur hafið innflutning á nýrri tegund af kælimottum hingað til lands. Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða kælimottur sem viðhalda kælingu á matvælum í flutningum og geymslu. Motturnar sem kallast „En- virofreeze", fást í ýmsum stæröum. Þær eru bleyttar upp í vatni og draga þá í sig 40-falda þyngd sína. Þær eru síöan frystar og notaðar sem kælimið- ill fyrir hvers kyns vörur sem þurfa á kælingu að halda á leið á markað. Þegar mottan þiðnar, lekur ekki úr henni vatniö og má frysta hana aftur. Bankarnir gera ráðstafan- ir vegna skammtímaskulda SEÐLABANKINN hefur komið þeim skilaboðum á framfæri við við- skiptabankana að þeir gæti að því að vera ekki með of mikið af skammtímaskuldum hjá erlendum lánastofnunum í kringum næstu áramót þar sem þá gæti hugsanlega orðið lánsfjárþurrð á mörkuðum í tengslum við ótta við svokallað 2000-vandamál sem upp kunni að koma. Birgir Isleifur Gunnarsson seðlabankastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að hann sæi ekki fram á nein stórvægi- leg vandamál í þessu sambandi, og samkvæmt upplýsingum bankanna hafa þeir þegar gert viðeigandi ráðstafanir. „Það bergmál sem kemur frá mörkuðunum erlendis er að sumir séu hræddir við þetta 2000-vanda- mál sem komi upp um áramót og þess vegna geti orðið einhvers kon- ar lánsfjárþurrð á markaðnum síð- ustu vikurnar fyrir áramót. Vegna þessa eru menn varaðir við og beðnir um að vera ekki með of mik- ið af skammtímaskuldum gangandi því þeir gætu átt í vandræðum með að endurnýja þær þegar líður nær áramótum. Þetta er meðal annars það sem við höfum heyrt frá bankakerfinu, og við höfum komið því áleiðis til íslensku bankanna að þeir gæti sín á því sérstaklega að vera ekki með þannig stöðu að þeir þurfi að endurnýja skammtímalán síðustu vikur ársins og kannski fyrstu 2-3 vikur næsta árs á meðan þetta er að líða yfir,“ sagði Birgir' Isleifur. Gengið frá langtímalántökum Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri Islandsbanka F&M, sagði að hjá bankanum væru menn meðvit- aðir um að vera byrgir af lausu fé um áramótin og hvað varðar er- lenda stöðu hefði síðastliðið sumar verið byrjað að framlengja skamm- tímalán fram yfir áramót. „Það er ljóst að sumir erlendir bankar hafa dregið úr lánum yfir áramótin en við aðra höfum við náð Liður í aðgerðum okk- ar er að við erum nýlega búin að tryggja okkur 75 milljóna evra langtímalántöku, sem er rúmlega 5,5 milljarðar íslenskra króna. Við höfum gert hér viðbragðsáætlun sem vonandi mun ekki reyna á, en ég hef traust á því að við séum búin að gera það sem þarf að gera hvað þetta varðar," sagði Tryggvi. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, sagði að það hefði verið hluti af vinnuáætlun bankans að tryggja að skammtíma- lánastaða bankans yrði óvenjugóð um næstu áramót og sú yrði raunin. .Ábending Seðlabankans er í sjálfu sér ágæt en það er búið að vera inni í vinnuáætlunum Lands- bankans frá því síðastliðið vor að tryggja að staðan verði góð. Við erum afar sáttir við okkar stöðu núna og sérstaklega með okkar velheppnuðu nýjustu er- lendu lántöku er staða Landsbankans óvenju sterk,“ sagði Halldór. Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðar- bankans, sagði að bréf sem borist hefði frá Seðlabank- anum hefði verið ágæt ábending, en Búnaðarbankinn hefði þá þegar verið búinn að gera þær ráðstafanir sem talin hafi verið þörf á. Hann sagði þetta því ekki skapa nein vandamál hjá bankanum þar sem hann hefði strax í lok september gengið frá langtímalántöku erlend- is. Búnaðarbankinn hækkar vexti BÚNAÐARBANKI íslands hf. hækkaði óverð- tryggða vexti í gær um 0,2-0,5 prósentustig. Overðtryggð vaxtakjör sparireikninga hækka um 0,4 prósentustig, að Markaðsreikningi undantekn- um, sem hækkai- um 0,27 prósentustig, í samræmi við hærri ávöxtun ríkisvíxla. Óverðtryggð vaxta- kjör útlána hækka til samræmis um 0,4 prósentu- stig með þeirri undantekningu að vextir óverð- tryggðra skuldabréfalána hækka um 0,5 prósentu- stig og hámarksvextir yfirdráttarlána einstaklinga hækka um 0,2 prósentustig. í frétt frá Búnaðarbankanum kemur fram að með vaxtabreytingunum vill bankinn koma til móts við stefnu Seðlabanka og ríkisstjórnar, um að reyna að hægja á hraða efnahagslífsins meðal annars með því að draga úr eftirspurn eftir útlán- um. „Efnahagslífið ber einkenni þenslu og er við- skiptahalli töluverður. Vísitala neysluverðs til verðtryggingar hefur hækkað um 5,2% það sem af er árinu, en það svarar til ríflega 6% verðbólgu á ársgnjndvelli. Mikilvægt er að taka merki um hækkandi verðlag alvarlega. Sérstaklega þegar haft er í huga að undanfarin ár hefur hagstæð gengisþróun haldið aftur af verðbólgu. Gengi krónunnar er nú sterkara en nokkru sinni áður og því takmarkað rými til að halda aftur af verðlags- hækkunum með styrkingu krónunnar." Vaxtahækkun Búnaðarbankans er ekki aðeins hugsuð til að draga úr eftirspurn eftir útlánum, að því er fram kemur í frétt bankans. „Þessi breyting vaxtakjara er ekki síður nauðsynleg til að verja hag sparifjáreigenda vegna aukinnar verðbólgu. Eftir hækkun óverðtryggra vaxtakjara um 0,4 prósentustig hafa óverðtryggð vaxtakjör ein- stakra innlánsreikninga Búnaðarbankans hækkað um 1,85-2,5 prósentustig frá áramótum. Ofan- nefnd hækkun hefur verið nauðsynleg vegna auk- innar verðbólgu. Bankinn fylgist ávallt grannt með þróun verð- lags, vaxtamála og lánsfjáreftirspurnar og byggir sínar vaxtaákvarðanir á aðstæðum hvers tíma án þess þó að eltast við skammtímasveiflur. Bankinn kemur áfram til með að fylgjast með þróuninni á fjármagnsmarkaði og ef fram koma einhverjar þær breytingar sem túlka má þannig að eðlilegt sé að endurskoða vaxtakjör bankans þá verður það skoðað hverju sinni,“ að því er segir í frétt Búnað- arbankans. 80/75/70 cm 1 Flugfreyjutöskur 1 á hjblum i r-Ó , frSHr UB 'i i1 ^ 1 'úd'b 01 'j HAGKAUP Meira úrval - betri kaup

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.