Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 25 Clinton mun ræða við Arafat og Barak í Oslo Washington. AFP, AP. BILL Clinton Bandaríkjaforseti mun eiga fund með Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, og Yas- ser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna, í Osló í byrjun nóvember, til að freista þess að leggja grunn- inn að varanlegum friðarsamning- um milli Israela og Palestínu- manna. Verður þetta fyrsta opinbei'a heimsókn Bandaríkjafor- seta til Noregs. Leiðtogarnir þrír munu taka þátt í athöfn 2. nóvember í tilefni jiess að sex ár eru liðin frá undirrit- un Oslóar-friðarsamkomulagsins. Þá munu þeir minnast morðsins á Yitzak Rabin, forsætisráðherra Israels, 4. nóvember 1995, en hann var myrtur af andstæðingi friðar- samkomulagsins. Upphaflega ætlaði Clinton ekki að fara til Oslóar, en honum snerist hugur eftir að Kjell Magne Bond- evik, forsætisráðherra Noregs, ít- rekaði boðið. Þykir ákvörðun Clin- tons undirstrika að hann vilji gera allt sem í valdi Bandaríkjastjórnar stendur til að varanlegur friðar- samningur verði undirritaður á þeim 15 mánuðum sem eftir eru af kjörtímabili hans. Sandy Berger, þjóðaröryggisráðgjafi Banriaríkj- anna, sagði að ekkert væri framar í forgangsröð forsetans. Hlutverk Bandarikja- sijórnar viðkvæmt Berger viðurkenndi á miðviku- dag að það væri viðkvæmt mál hve stóru hlutverki Bandaríkjastjórn ætti að gegna í friðarumleitunum ísraela og Palestínumanna. Barak hefur gefið til kynna að hann vonist til að Bandaríkin láti minna fara fyrir sér, og Berger sagði að í sam- ræmi við það hefðu stjórnvöld í Washington haldið sig fjarri sviðs- Ijósinu við undirritun samkomu- lags um framkvæmd Wye-friðar- samninganna í Egyptalandi í byrjun september. Reuters Etna í ham Eldfjallið Etna á Sikiley, sem er stærsta og virkasta eldfjall Evrópu, hefur tekið nokkrar rok- ur á undanförnum mánuðum. Vísindamenn hafa þó ekki viljað skilgreina þær sem eiginlegt gos og segja að fólki sem býr við ræt- ur ijallsins sé engin hætta búin. Nú stendur yfir kröftugasta hrinan til þessa og fjallið hefur spúið hrauni úr fjórum gígum. Afrýiunarréttarhöld yfír Ocalan Fer fram á mild- un dauðadóms Ankara. Reuters. ABDULLAH Öcalan, fangelsaður leiðtogi skæruliðahreyfingar Kúrda í Tyrklandi, fór fram á það fyrir áfrýjunarrétti í Ankara í gær, að dauðadómurinn sem felldur var yfir honum fyrr á árinu yrði mildað- ur, á grundvelli þess að hann hefði nú talið fylgismenn sína til að leggja niður vopn og vinna að friði. Er dómarar áfrýjunarréttarins höfðu hlýtt á beiðni Öcalans, sem lögmenn hans báru fram, var rétti frestað á ný fram til 25. nóvember, en þá á endanlegur úrskurður að vera kveðinn upp. Meðal annars vegna þess að niðurstaðan getur haft áhrif á viðleitni Tyrklands til að fá umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu (ESB) tekna til greina, eru dómarar réttarins undir margháttuðum pólitískum þrýstingi. I júní sl. var Öcalan dæmdur fyr- ir landráð og að hafa í 15 ár farið fyrir vopnaðri baráttu aðskilnaðar- sinna, sem talið er að hafi kostað í kring um 30.000 manns lífið. Hefur áskorun ESB áhrif? Meira hefur verið lýst eftir Öcal- an í Tyrklandi en nokkrum öðrum manni. Réttarhöldin hafa leitt til þess að augu umheimisins hafa í auknum mæli beinzt að tyrknesku réttarkerfi og hlutskipti á að gizka 12 milljóna Kúrda í Tyrklandi. Stjómarerindrekar Evrópu- sambandslanda voru meðal áheyr- enda er lögmenn Öcalans bára í Reuters Abdullah Öcalan gær fram röksemdir sínar fyrir nýjum réttarhöldum. Talsmenn ESB hafa skorað á tyrknesk stjórn- völd að taka Kúrdaleiðtogann ekki af lífi vilji þau að leiðtogar sam- bandsins samþykki að viðurkenna Tyrkland sem tilvonandi aðildar- ríki er þeir koma saman í Helsinki í desember. Varafastafulltrúi íslands hjá Evrópuráðinu, dr. Magnús K. Hannesson^ var viðstaddur réttar- höldin yfir Öcalan í gær. Islending- ar gegna nú formennsku í ráðherr- anefnd Evrópuráðsins. LANGAR ÞIG AÐ NÁLGAST VERKEFNIN FRÁ NÝRRI HLIÐ? Rauði krossinn í Kína Taívönum veitt meiri aðstoð Peking. Reuters. RAUÐI krossinn í Kína kvaðst í gær ætla að veita fórnarlömbum jarðskjálftans í Taívan 21. septem- ber meiri aðstoð og kínverska stjórnin skoraði á Taívana að hætta að gera hjálparstarfið að pólitísku deilumáli. Taívanar hafa sakað Kínverja um að hafa notfært sér jarðskjálft- ann, sem varð 2.300 manns að bana, í pólitísku skyni með því að skylda aðrar þjóðir til að óska eftir heimild kínversku stjórnarinnar til að veita fórnarlömbum skjálftans aðstoð. Framkvæmdastjóri Rauða krossins í Kína, Su Juxiang, sagði í gær að Taívanar hefðu þegið við- bótaraðstoð að andvirði 35 milljóna króna í peningum en ekki fallist á tilboð hans um að senda björgunar- sveitir og hjálpargögn á skjálfta- svæðið. Hann kvaðst þó vona að til- boðið yrði samþykkt þar sem björgunarsveitimar hefðu mikla reynslu af hjálparstarfi eftir slíkar náttúruhamfarir. Kínverskir embættismenn skor- uðu á Taívana að þiggja aðstoðina og sögðu að ásakanir þeiraa sköð- uðu samskipti Kína og Taívans. Þeir neituðu því að kínverska stjórnin hefði hindrað hjálparstarf- ið á Taívan en sögðu að samkvæmt stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna gætu aðeins sjálfstæð ríki óskað formlega eftir alþjóðlegri aðstoð. Pantið núna 565 3900 Rekstrarleigusamningur Engin útborgun 29.086 kr. á mánuði Fjármögnunarleiga Utborgun 270.000 kr. 16.582 kr. á mánuSi Rekstrarlelga er mi8u5 við 24 mánuSi og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarleiga er mi5u6 vi8 60 mánuði og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi f*r hann endurgreiddan ef hann er með skattskyldan rekstur. Allt ver5 er án vsk. ATVINNUBÍLAR FyRIRTSKJAÞJÓNUSTA Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1225/575 1226 $ RENAULT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.