Morgunblaðið - 22.10.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 27
ERLENT
Forsetakosningum
flýtt á Sri Lanka
Colombo. Reuters.
CHANDRIKA Kumaratunga, for-
seti Sri Lanka, hefur tilkynnt að
efnt verði til forsetakosninga í land-
inu innan tveggja til þriggja mán-
aða, tæpu ári áður en sex ára kjör-
tímabili hennar lýkur. Sérfræðingar
í stjómmálum landsins segja að hún
hafi ákveðið að flýta kosningunum
til að auka líkumar á því að hún
næði endurkjöri. Hvorki hefði geng-
ið né rekið í tilraunum hennar til að
leysa deilur þjóðarbrotanna og
binda enda á stríðið við aðskilnaðar-
hreyfingu Tamíla.
„Kumaratunga hefur flýtt kosn-
ingunum til að tryggja að staða
hennar versni ekki frekar. Ekkert
bendir nú til þess að eitthvað já-
kvætt gerist á næstu níu mánuð-
um,“ sagði Jehan Perera, leiðtogi
Friðarráðs Sri Lanka. Hann bætti
við að Kumaratunga hefði verið treg
til að taka þessa ákvörðun en að lok-
um séð sig knúna til þess.
Tókst ekki að binda
enda á stríðið
Kumaratunga var kjörin forseti
með 62% atkvæða í nóvember 1994.
Hún naut þá mikills stuðnings með-
al minni þjóðarbrotanna en ólfldegt
þykir að hún haldi honum í næstu
kosningum. „Niðurstaða kosning-
anna er ekki líkleg til að ráðast af
persónutöfrum eins frambjóðend-
anna eins og síðast,“ sagði stjóm-
málafræðingurinn Jayadeva
Uyangoda. „Árið 1994 var hún for-
setaefni með framtíðarsýn, nýtt
andlit í stjórnmálunum. Ég tel ekki
að hún njóti jafn mikillar hylli sem
sitjandi forseti."
Stjóm Kumaratunga hefur lagt
til að stofnuð verði héraðsráð, m.a. í
norður- og austurhluta landsins, til
að reyna að koma til móts við að-
skilnaðarhreyfingu Tamíla, LTTE,
sem berst fyrir sjálfstæðu ríki á
svæðinu. Þessi tillaga hefur ekki
náð fram að ganga þar sem stjóm-
arflokknum hefur ekki tekist að afla
henni nægilegs stuðnings á þinginu,
sem þarf að samþykkja hana með
tveimur þriðju atkvæðanna.
Stjómarherinn hefur náð stórum
svæðum í norðurhluta landsins á
sitt vald en varð að hætta við stór-
sókn gegn tamflsku aðskilnaðar-
hreyfingunni vegna mikils mann-
falls.
Nvjutigar í anda haustsins
Arden kynnin^
Hygea í Kringlu
föstudag og laugardag
Netanyahu yfírheyrður
af ísraelsku lögreglunni
Kynntur verður nýr
andlitsfarði,
SMART WEAR.
Þessi nýi andlitsfarði er mjög léttur,
gefur húðinni náttúrulegt útlit,
er auðveldur f notkun og
smitar ekki út frá sér.
Verið velkomin.
Ráðgjöf á staðnum.
*
Ath. Tilboð á kremum!
Bat Yam, Jerúsalem. AFP, AP.
BENJAMIN Netanyahu, fyrrver-
andi forsætisráðherra ísraels, og
eiginkona hans, Sara, voru í gær yf-
irheyrð af fulltrúum fjársvikadeild-
ar ísraelsku lögreglunnar, í kjölfar
þess að hald var lagt á tugi dýr-
gripa á heimili þeirra á miðvikudag.
Hjónin vora yfirheyrð vegna
gruns um að þau hefðu haldið ýms-
um gjöfum, sem Netanyahu vora
færðar í forsætisráðherratíð sinni, í
heimildarleysi, en samkvæmt ísra-
elskum lögum era slíkar gjafið eign
ríkisins. I húsleitinni á miðvikudag
var meðal annars lagt hald á mál-
verk, silfur- og gullmuni.
Lögmaður Netanyahus, David
Shimron, fullyrti í gær að skjól-
stæðingur sinn hefði ekki brotið í
bága við lög, og sakaði lögregluna
um að láta stjómast af pólitískum
illvilja. Sagði hann að munirnir,
sem hald var lagt á, hefðu verið í
geymslu ásamt persónulegum eig-
um hjónanna, og hefðu beðið þess
að vera flokkaðir. Kvartaði Shim-
ron einnig yfir því að fregnum um
að til stæði að gera húsleit hefði
verið lekið til fjölmiðla, en aðgerðin
hefði komið Netanyahu-hjónunum
algerlega í opna skjöldu. Sagði
Húsleitin á miðvikudag var hluti
af víðfeðmri rannsókn á ásökunum
um að Netanyahu hefði á þriggja
ára valdatíma sínum gerst sekur
um spillingu og hindran réttvísinn-
ar. Hjónin hafa áður verið yfir-
heyrð vegna gruns um að verktak-
inn Avner Amedi hafi innt af hendi
ýmsa þjónustu á heimili Netanya-
hus, en sent forsætisráðuneytinu
reikninginn eftir að hann lét af
embætti í sumar.
izabeth Arden
Fegurðarinnar fremsta nafn
Fasteignir á Netinu v^)mbl.is
A.t-LTAF= GITTH\SAÐ /VÝT7
Reuters
Lögreglumaður fylgir Netan-
yahu-hjónunum frá heimili
sínu til yfirheyrslu í höfuð-
stöðvum fjársvikadeildar lög-
reglunnar í gær.
hann það vera til marks um að lög-
reglan gætti ekki sanngimi gagn-
vart þeim.
Microsofí NovelL^m® Adobe
Eru hugbúnaðarmál í lagi
...hjá þínu fyrirtæki?
Hugbúnaður er verndaður af lögum um höfundarétt.
Margir tölvunotendur skáka í því skjólinu að þeir viti
ekki hvort forrit eru afrituð eða ósvikin. Þetta er ekki
gild afsökun. Nú er verið er að skera upp herör gegn
hugbúnaðarstuldi — ert þú með hreina samvisku?
Fengi tölvan þín hreint sakavottorð?
(£)
550-4000
...hringdu núna
Þjónusturáðgjafar Tæknivals veita öll svör við
spurningum um hugbúnað og þau leyfi sem
nauðsynleg eru fyrir löghlýðna tölvunotendur.
Tæknival
Hefur þú upplýsingar um
fyrirtæki sem nota ólöglegan
hugbúnað?
Við viljum gjarnan heyra frá þér.
Notkun hugbúnaðar án tilskilinna leyfa er lögbrot sem getur haft í för
með sér alvarlegar afleiðingar. Hafir þú vitneskju um slíka notkun getur
þú hringt í númerið fyrir neðan.
533 3333
E-mail: bsa@am-law.is
Business SoftwareAlIiance
Samtök nokkurra stærstu hugbúnaðarframle iðenda
www.taeknival.is