Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 29 LISTIR sögu sem nær yfir 15 ára tímabil, frá því hún er 10 ára og endar þeg- ar hún er 25 ára. Við ákváðum að vera með tvær Sölkur og tvo Arn- alda. Barnið og fullorðna einstakl- inginn. En við ákváðum líka að byrja sýninguna á því að fara inn í hugarheim Sölku eldri. Á þeirri stundu þegar hún er taka ákvörðun um sitt líf gagnvart Arnaldi. Hún tekur sér eina nótt til að gera upp við sig hvað hún ætlar að gera við þennan Arnald, manninn sem hún elskar. Þessi aðferð gefur okkur talsvert svigrúm því með því að segja söguna sem upprifjun Sölku sjálfrar getum við valið og hafnað hvað hún man. Við getum þannig réttlætt að nokkru leyti hvað birt- ist, maður man ekki alltaf hver sagði hvað og hvenær. Aðalpersón- urnar sitja eftir og fleyta sögunni áfram.“ - Stendurðu núna með þá sýn- ingu í höndunum sem þú sást fyrir þér í Finnlandi fyrir ári? „Það hef ég ekki hugmynd um lengur. Það eina sem maður getur vonað er að þetta hafi heppnast. Auðvitað er leikhúsvinnan frá því að bókin er í hendi manns og þar til maður grætur í hljóði eftir aðalæf- ingu fólgin í því að elta innblástur- inn og reyna að komast eins langt með hann og hægt er.“ Draumur Maríu Hér bætist leikkonan María Ell- ingsen í hópinn, móð af hlaupum eftir að hafa notað tækifærið til að sinna barni sínu á milli strangra æf- inga þessa síðustu daga. Hilmar bendir á að María sé hinn eiginlegi upphafsmaður þessa verkefnis en ekki aðstandendur Hafnarfjarðar- leikhússins. „Þetta verkefni er upp- haflega draumur Maríu og það var hún sem kom með það hingað til okkar og bauð upp á samstarf. Sýn- ingin er afrakstur samstarfs okkar í Hafnarfjai'ðarleikhúsinu við Ann- að svið, leikhús Maríu Ellingsen," segir Hilmar. „Salka Valka gekk beint inn í hjartað á mér þegar ég las hana sem unglingur. Mér fannst við Salka eiga margt sameiginlegt, ég var með alltof langar lappir og vildi helst bara ganga í buxum og lopa- peysu niður á hné. Bókin ferðaðist með mér hvert sem ég fór og þegar ég var orðin leikari mótaðist þessi hugmynd að mig langaði til að koma henni á svið í nýjum búningi. Þá kom auðvitað praktíska hliðin til sögunnar, að finna peninga, og ég leitaði til fyrirtækja í sjávarútveg- inum um stuðning og ýmissa ann- arra líka, en það eru margir útgerð- ai'menn og -konur sem standa að baki okkur og hafa styi’kt sýning- una. Síðan fékk Annað svið styrk til þessa verkefnis frá menntamála- ráðuneytinu og með þetta kom ég til Hilmars og bauð upp á samstarf. Mér hafa þótt sýningar Hafnar- fjarðarleikhússins gríðarlega spennandi og langaði til að Salka yrði sett upp í þeim stíl.“ Hilmar segir að fyrir Hafnar- fjarðarleikhúsið hafi þetta verið ómótstæðilegt tilboð. „Koma hing- að með söguna og réttinn til að búa til úr henni leikgerð undir hendinni og hafa peninga í handraðanum upp í sýningarkostnað. Við höfum leitast við að hafa þetta svona og fara í samstarf við aðra aðila, sem eykur möguleika okkar. Við höfum verið í samstarfi við aðra leikhópa áður og einnig við Leiklistarskóla Islands. Við höfum komið okkur upp góðri leikhúsaðstöðu og það eina sem okkur vantar er að eiga nóg af peningum til að nýta aðstöð- una til fulls. Þetta tilboð Maríu var einnig í fullkomnu samræmi við listræna stefnu okkar, sem er sú að flytja ný íslensk leikrit og leikgerð- ir.“ María gekk til liðs við Hafnar- fjarðarleikhúsið er hún tók þátt í sýningunni Síðasti bærinn í daln- um, þar sem hún lék tröllskessuna. „Ég var farin að sjá sýninguna á Sölku fyrir mér hér í Hafnarfjarð- arleikhúsinu og undir stjórn Hilm- ars. Með því að leggja saman gát- um við gert þetta af þessari stærðargráðu, sem er níu leikarar." íslensk kona Salka ástarsaga er fjórða upp- færslan sem Annað svið stendur að. Fyrsta verkefni leikhópsins var Sjúk í ást haustið 1989, þá kom Leikarar og listrænir stjórnendur SALKA ÁSTARSAGA. Leik- gerð Hilmars Jónssonar og Finns Arnars Arnarsonar eft- ir sögu Halldórs Laxness. Leikarar: María Ellingsen, Benedikt Erlingsson, Gunnar Helgason, Magnea Valdi- marsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Þrúður Vil- hjálmsdóttir, Jóhanna Jónas, Dofri Hermannsson, Jón Stef- án Kristjánsson. Leiksijóri: Hilmar Jónsson. Leikmynd: Finnur Ai-nar Arnarson. Búningar: Þórann María Jónsdóttir. Tónlist: Margrét Örnólfs- dóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsspn. Förðun: Ásta Hafþórsdótt- ir. Framkvæmdastjóri: Ás- laug Dóra Eyjólfsdóttir. Svanurinn sem sýnt var í Borgar- leikhúsinu og í fyrra voru fiuttir þrír einþáttungar eftir Samuel Beckett í Iðnó. „Það útheimtir al- veg ofboðslega orku að finna fjár- magn til að setja upp eigin sýningu og maður hefur ekki orkuna nema maður virkilega trúi á verkefnið. Annars nennir maður því hreinlega ekki.“ - Er Salka það draumahlutverk sem þú taldir það vera? „Það er sú áskorun sem ég bjóst við að það yrði. Þetta hefur verið svo skemmtilegt, allan tímann. Ég fann stóran mun á því þegar ég kom heim frá Ameríku, eftir að hafa leikið þar amerískar týpur eða útlendinga, að taka að mér hlutverk Agnesar í kvikmyndinni. Það felst gríðarlegur kraftur í því að standa á sinni eigin jörð og leika sögu sem sprettur úr okkar eigin jarðvegi. Ég finn það sama í Sölku. Þetta er mín saga, minn veruleiki." Steinþór Bogesen - Haldið þið að veruleiki Sölku Lífíð er saltfískur. Fiskþvottur á Óseyri. Völku, íslenskt sjávarþorp í kreppu millistríðsáranna, sé ekki orðinn býsna fjarlægur í dag? „Mér hefur eiginlega þótt bein- línis fyndið að vera að vinna í Sölku Völku, sögu sem er skrifuð á þriðja áratug aldarinnar, og heyra dag- lega fréttirnar af Þingeyri, Ólafs- firði, Breiðdalsvík og hvað þau heita þessi þorp. Það sem maður heyrir útgerðarmennina segja í fjölmiðlunum núna er nákvæmlega það sama og kapítalistarnir í Sölku Völku era að segja. „Við hættum bara að gera út og förum eitthvað annað ef þið verðið ekki almenni- leg,“ segja þeir. Auðvitað er þetta ekkert fyndið. Þetta er blákaldur veraleiki. Við spyrjum gjarnan þegar farið er út í vinnu með verk sem gerast í fortíðinni hvernig fólk hafi verið þá. Svarið er ósköp ein- falt. Fólk var nákvæmlega eins þá og nú. Það hefur ekkert breyst. Það eina sem breytist er að fjármagnið skiptir um eigendur. Það er eina breytingin." - „Steinþór tekur við af Bogesen," bætir María við. Gagngerar breytingar Hafnarfjarðarleikhúsið hefur tekið stakkaskiptum á undanförn- um vikum en húsnæðinu hefur ver- ið breytt og aðstaðan gjörbreyst til hins betra. „Aðkoman fyrir leikhús- gesti er mun skemmtilegri, nú er gengið inn hafnarmegin í húsið og þar era einnig næg bílastæði. Við höfum fengið mikið viðbótarrými fyrir framan sjálfan salinn, þar er orðin mjög góð aðstaða fyrir áhorf- endur, veitingasalur, miðasala og skrifstofur. Með þessari breytingu hefur aðstaðan að tjaldabaki einnig batnað og búningsherbergi leikara era nú aftan við sviðið í stað þess að vera framan við það eins og áður var,“ segii- Hilmar. „Hafnarfjarðar- bær lagði okkur til fé til að standa að þessum breytingum og við eram mjög þakklát og ánægð með þann velvilja sem við njótum hjá bæjar- yfirvöldum." Það verður því frumsýning í tvennum skilningi í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld, ný og spennandi sýning í breyttu og endurnýjuðu húsnæði. Menntaskólinn á Egilsstöðum Leikfélagið setur upp Rocky Horror Egilsstöðum. Morgunblaðið. LEIKFÉLAG Menntaskólans á Egilsstöðum frumsýnir söngleikinn Rocky Horror Show í Hótel Vala- skjálf í kvöld. Höfundur verksins er Richard O’Brien en söngleikurinn var fyrst settur upp í London árið 1973. Fjölmargir nemendur ME koma að verkinu á einn eða annan hátt en þeir sjá sjálfir um búninga, leik- mynd, förðun, hárgreiðslu o.fl. Með helstip hlutverk fara: Þor- steinn Helgi Árbjömsson, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, Vígþór Sjafnar Zóphaníasson, Þórður Ingi Guðmundsson, Helga Jóna Jóna- sdóttir, Oddný Ólafía Sævarsdóttir, Ólafur Ágústsson, Sigurður Borgar Arnaldsson og Björgvin Gunnars- son. Aðalheiður Borgþórsdóttir sér um kórstjórn og Hafþór Snjólfur Helgason um hljómsveitarstjórn, en hann hefur auk þess útsett öll Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir Á æfingu á Rocky Horror Show hjá Leikfélagi ME. Þór- unn Gréta Sigurðardéttir er í einu aðalhlutverkinu. lögin upp á nýtt. Leikstjóri er Guð- jón Sigvaldason. Leiðsögn um sýning- ar Haftaar- borgar NÚ stendur yfir málverka- sýning Jóhönnu Bogadóttur og Kristínar Þorkelsdóttur í Hafnarborg og lýkur báðum þessum sýningum mánudag- inn 25. október. Listamenn- irnir verða í Hafnarborg laug- ardag og sunnudag og veita upplýsingai- um verkin ef ósk- að er kl. 12-18. Kristín verður með leiðsögn um sýningu sína kl. 14 og 16.30, báða dagana. Sýning Jóhönnu Bogadótt- ur í Aðalsal hefur yfirskriftina „Frá Skeiðai'á til Sahara“ en sýning Kristínar Þorkelsdótt- ur, Ljósdægur, er sýnd í Svemsasal, Ápótekinu, í gangi og á kaffistofunni. Hafnarborg er opin alla daga, nema þriðjudaga, frá kl. 12-18. ALFA ROMEO 146 Sportbíll og fjölskyldubíll í einum pakka en samt ódýr. “ óvenjugaman að aka þessum bíl, ...virkilega sportlegur I meðförum, ...sérlegafáguðogsmekkleginnrétting” (S.H. DV 14.8 1999) 8ára ábyrgð á gegnumtæringu. Galvanhúðaður Loftpúðar_______ ABS hemlar Vél / hestöfl 4 diskahemlar Stærð LxB 0-100 km/klst Álfelgur________ Verð I Bretlandi Verð á íslandi Alfa Romeo 146 4 Já______ 1.6 16v /120 hö Já 4.26 x 1.71 10.Ö sek. Já 1.736.000 1.570.000 BMW 316 Compact 1.6 8v/102 hö 4.21 x 1.69 10.7 sek. 1.743.000 1.948.000 Audi A 3 1.6 8v/101 hö 4.15 x 1.73 11.2 sek. 1.782.000 1.840.000 Ford Focus GHIA 4 Já 1.6 16v/100 hö ______Já_______ 4.15 x 1.69 10,6 sek. ______Nei______ 1.695.000 1.731.000 Istraktor ?o BlLÁR FYRIR ALLA smTð sTffo 2 g (TrðaT? sImi S 4 0 0 * 0 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.