Morgunblaðið - 22.10.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 55
BRÉF
Húrra
fyrir vís-
indunum
Frá Svavari Knúti Kristinssyni:
KÆRU lesendur. Ég hef undan-
farið fylgst grannt með skoðana-
skiptum um eðlileika samkyn-
hneigðar í Morgunblaðinu okkar
landsmanna, og ég veit ekki alveg
hvað ég á að halda. Miklir andans
menn hafa skrifað stórorðar og
margorðar greinar um hvað sam-
kynhneigð er viðbjóðsleg, óeðlileg
og hreint og beint óæskileg í mann-
legu samfélagi og svo ekki sé
minnst á það hvað guði finnst þetta
hrikalega pirrandi ávani hjá þess-
um greyjum. Svona eins og að bora
í nefið eða klóra sér í óæðri endan-
um. Menn hafa sagt að þrátt fyrir
ítrekaða leit hafi ekkert
„hommagen" fundist og því þætti
„sannað" að samkynhneigð væri
ekki arfgeng. Þá fór ég sisona að
hugsa hvort einhverjir sænskir eða
svissneskir akademíuvísindamenn
hafi sest niður með hóp af hársker-
um og fatahönnuðum öðrum megin
og síðan trukkabflstjórum og
gröfuköllum, ekki það að ég hafi
neitt á móti gröfuköllum, hinum
megin og tekið blóðprufur og
greint. Er virkilega í gangi einhver
skipuleg leit að „hommageninu" og
hvers vegna í bévítanum vilja
menn vera að finna það? Til að
geta sagt væntanlegri móður að
barnið hennar muni fæðast með
„erfðagalla" sem muni valda sam-
kynhneigð og mæla með fóstureyð-
ingu? Jaðrar það ekki við einhvers
konar Hitlersnasisma? Eða
kannski til að geta þróað bóluefni
gegn samkynhneigð? Úff, við erum
komin út á hálan ís þar. Svo hefur
víst guð blessaður heldur aldrei
fundist í smásjá, stjömukíki eða
petriskál. Þykir þá ekki sannað að
hann sé ekki til? Mér finnst þetta
allt hálfafkáraleg rök.
Hinn punkturinn sem ég rakst
á í þessu leiðindamáli er sá að nú
sé hægt að „afhomma“ þennan
skrfl og senda í meðferð. „Af-
hommun" ku jú vera raunverulegt
fyrirbæri. Hún byggist á aðferð
sem kölluð er skilyrðing og felst í
því að styrkja vissa hegðun með
annaðhvort neikvæðum eða já-
kvæðum styrkingum (t.d. með því
að gefa viðkomandi rafstraum í
hvert sinn sem hann æsist við að
sjá nakinn karl en gefa honum
banana í hvert sinn sem hann sýn-
ir viðbrögð við kvenmannslík-
ama). Það er víst hægt að breyta
hommum í beinteina. En með
sömu aðferðum er líka hægt að
lækna lofthræðslu, breyta gall-
hörðustu kvennabósum í örgustu
homma og telja fólki trú um að
það sé appelsína svo örfá dæmi
séu nefnd. Þessi aðferð þykir
mjög viðkvæm og ef henni er mis-
beitt er hún kölluð heilaþvottur,
sem er einmitt það sem vissir sér-
trúarsöfnuðir eru þekktir fyrir að
gera við fórnarlömb sín. Þá þarf
oft að kalla til afþvottamann til að
snúa við skaðanum og ná viðkom-
andi aftur í samband við fjöl-
skyldu sína. Sú þjóðsaga að
hommum sé hægt að snúa til
„betra“ lífs getur vel verið sönn,
en það verður aldrei gert án þess
að svipta þá mannlegu eðli sínu og
frelsi, og það eru aðferðir sem
einungis sæma nasistum, komm-
únistum og framsóknarmönnum
og ekki vil ég við það borð sitja.
Eg vil þess vegna mæla með því
að fólk hætti að skrifa um hluti
sem það hefur enga reynslu eða
þekkingu á, og kynna sér þá frek-
ar áður en fullyrðingarnar byrja,
svo að við fáum bæði upplýstari
umræður og áhugaverðari að-
sendar greinar í Moggann okkar
allra.
SVAVAR KNÚTUR KRISTINSSON,
kerfisfræðingur,
Lönguhlíð 19, Reykjavík.
Hafnarfjarðarkirkja
Safnaðarstarf
Dægurlaga-
kvöldmessa
í Hafnarfjarð-
arkirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ kemur,
24. október, fer fram dægurlaga-
kvöldmessa í Hafnarfjarðarkirkju
og hefst hún kl. 20.30. Sr. Þórhild-
ur Ólafs þjónar sem prestur við
messuna. Hjartarbandið sem
Hjörtur Howser, hljómborðsleik-
ari, stýrir leikur þá sígild lög eftir
Bítlana og Simon og Garfunkel,
ásamt léttri trúartónlist. Gunnþór
Ingason og fjöllistamennirnir Da-
víð Þór Jónsson og Omar Ragnars-
son hafa þýtt textana. Með því að
flytja þessi lög í kirkju með áhrifa-
ríkum boðskap sínum kemur
glöggt fram hve hrífandi og inni-
haldsrík þau eru og fá miðlað sann-
indum og fögrum lífsgildum krist-
innar trúar. Hjartarbandið skipa
auk Hjartar, Sigrún Eva Ármanns-
dóttir, söngkona, Eysteinn Ey-
steinsson, slagverksleikari, Gunn-
þór Ingason, munnhörpuleikari,
Jens Hansson, saxófónleikari, Ingi-
mundur Óskarsson, bassaleikari,
og Þröstur Þorbjörnsson, sólógít-
arleikari. Anægjulegt væri að sem
flest fermingarbörn og fjölskyldur
þeirra kæmu í dægurlagakvöld-
messuna á sunnudaginn kemur.
Fyrr um daginn fer fram guðs-
þjónusta í kirkjunni á venjulegum
messutíma kl. 14. Sr. Þórhallur
Heimisson þjónar við hana.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa kl. 11-13. Létt
hreyfing, slökun og kristin íhugun.
Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni
kl. 12. Orgelleikur, sálmasöngur.
Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arpresta og djákna. Kærleiksmál-
tíð, súpa, salat og brauð eftir helgi-
stundina.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir börn.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyiTðarstund.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Ailir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgunn. Héraðs-
presturinn verður með spennandi
innlegg fyrir feður jafnt og mæður.
Keflavíkurkirlga. Námskeið fyrir
hjón og sambýlisfólk í Kirkjulundi.
„Að gera erfitt hjónaband gott og
gott hjónaband betra“. Um sam-
skipti, tjáskipti og tilfinningar sam-
býlisfólks. Umsjón Stefán Jóhanns-
son, M.A., fjölskylduráðgjafi.
Skráning fer fram í síma 553 8800
og 553 9040. Dagskráin verður að
nokkru leyti sniðin að þörfum þátt-
takenda samkvæmt mati þeirra á
föstudagskvöldinu.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Unglingasamkoma kl. 20.30. Mikill
og hress söngur. Allir hjartanlega
veikomnir.
Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30.
Sjöunda dags aðventistar á Islandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Einar Val-
geir Arason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón-
ustu. Ræðumaður Eric Guðmunds-
son.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Björgvin Snorrason.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Finn Éckhoff.
Rubinsthn
Áhrifarík „andlitslyfting"
án skurðaðgerðar
Face Sculptor með
Pro-Phosphor
Húðsnyrtivörur hafa aldrei komið
í stað andlitslyftingar. En í dag
nólgumst við það með Face
Sculptor serumi-kremi og augn-
kremi. Pro-Phosphor örvar
nóttúrulegan fosfór líkamans til að
styrkja grunn húðarinnar. Samtím-
is strekkja mótandi efni ó yfirborði
húðarinnar. Arangur: Tafarlaus
strekkjandi óhrif og dag fró degi verða útlínur andlitsins
afmarkaðri og skarpari og dregur úr línum og hrukkum.
Askja með 30 ml serumi, 15 ml kremi og 3 ml augnkremi.
Verð kr. 4.925.
Raunverðmæti með kaupauka kr. 7.150.
Askja með 15 ml augnkremi, 5 ml serumi og 15 ml kremi.
Verð kr. 3.100.
Raunverðmaeti með kaupauka kr. 5.520.
Revkiovik oq nóqrenni:
Androrro, Hofnarfirði.
Ársól, Efstolondi.
Bylgjon, Kópavogí.
Clora, Kringlunni.
Fíno, Mosfellsbæ.
Hygea, Kringlunni og
Laugovegi.
Libio, Mjódd.
Soro, Bonkostrætí.
Sigurboginn, lougovegi.
Snyrtivöruverslunin,
Glæsibæ.
Lonitð:
Bjorg, Akronesi.
Clossic, Keftovík.
Hilmo, Húsovík.
Hjó Mon'u, Amoró, Akureyri.
Miðbaer, Vestmannoeyjum.
Krismo, Isafirði.
SIEMENS
Haust-Búhnykkur!
KG 26V20
KG 31V20
Berðu
saman
verð,
gæði og
þjónustu!
198 I kælir, 65 I frystir.
Hxbxd = 150x60x64 sm.
KG 36V20
235 I kælir, 105 I frystir.
H x b x d = 186 x 60 x 64 sm.
198 I kælir, 105 I frystir.
Hxbxd = 170x 60 x 64 sm.
61.900 fcr.
stgr.
65.900 fi^v
stgr.
69.900 fcr.
mstgr.
I NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!