Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 22.10.1999, Qupperneq 60
/«0 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga gaman- myndina „Bowfínger“ með Steve Martin og Eddie Murphy í I aðalhlutverkum undir leikstjórn Franks Oz_ • • ______________ Orþrifaráð Bowfingers BOBBY Bowfínger (Steve Martin) dreymir um að vinna með þeim stóru í Hollywood sem framleiðandi og leikstjóri og einsetur sér að gera síðustu tilraun- ina til þess að slá í gegn. Hann ræð- lir til sín tæknimenn héðan og þaðan, heldur lánlausan lýð, og með þeim ætlar hann að gabba eina skærustu stjörnu kvikmyndanna til þess að fara með aðalhlutverkið í einstaklega ódýrri mynd eftir sig. Þannig er sagan í gamanmyndinni „Bowfmger", sem Háskólabíó hefur tekið til sýninga, með þeim Steve Martin og Eddie Murphy í aðalhlut- verkum en þeir hafa ekki leikið sam- an í bíómynd áður. Leikstjóri er Frank Oz (Inn og út) en Martin ger- ir handritið sjálfur. Með önnur hlut- verk í myndinni fara Heather Gra- ham, Robert Downey og Terence Stamp svo nokkrir séu nefndir. Steve Martin fékk hugmyndina að - Á»Bowfinger“ fyrir um áratug síðan og hann var ekki nema nokkra mán- uði að ljúka handritinu. „Ég vildi að áhorfendur skildu hvað væri að ger- ast í myndinni án þess endilega að þekkja til kvikmyndaiðnaðarins," er Eddie Murphy og Steve Martin leika saman í fyrsta skipti í gaman- myndinni „Bowfinger". haft eftir gamanleikaranum. „Við framleiðandinn Brian Grazer vildum ekki endilega að handritið væri háðsádeila á Hollywood. Við vildum bara að hún væri skemmtileg og ég skrifaði handritið með það í huga fyrst og fremst." Framleiðandinn Grazer tekur í sama streng: „Þótt myndin gerist í Hollywood hefur hún í rauninni ekki mikið með draumaverksmiðjuna að gera. Hún fjallar meira um almenn gildi og markmið sem menn setja sér.“ Martin og leikstjórinn Frank Oz hafa áður unnið saman við þrjár bíó- myndir, Litlu hryllingsbúðina, „Dir- ty Rotten Scoundrels" og „Hou- Frumsýning Heather Graham í hlutverki sínu í „Bowfinger". sesitter“. „Það er erfítt að finna leik- stjóra sem skilur gamanleik nógu vel til þess að hlæja og hræðist ekki efn- ið,“ segir Martin. „Frank skilur að eitthvað getur verið fyndið án þess að maður hafí hugmynd um hvers vegna.“ Eddie Murphy fer með tvö hlut- verk í myndinni. Hann leikur ofur- stjörnuna Kit Ramsey og heldur ólánlegri bróður hans, hinn treggáf- aða Jiff. „Ég hafði mjög gaman af handriti Martins og það eykur á gamanið fyrir mig að fá að fara með tvö hlutverk." Kit er aðalnúmerið í mynd sem hann veit ekki að hann er í. „Fólk í ljótum búningum sem fer með óskiljanlegar setningar nuddar sér upp við hann. Hann veit ekki að það eru leikarar. Þetta eru mjög fyndnar kringumstæður í gaman- mynd.“ Myndin fjallar um það að koma sér áfram í Hollywood. „Bowfinger verð- ur að svindla til þess að koma sér áfram og það er það sem hann gerir, ekki aðeins sjálfs sín vegna heldur líka félaga sinna, sem treysta á hann og vona það besta,“ segir Martin. KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga þýsku spennumyndina Hlauptu, Lóla, hlauptu eftir leikstjórann ____Tom Tykwer með Franka Potente í aðalhlutverki._ Lóla tekur til fótanna Frumsýning MÁGLÆPAMAÐURINN Manni (Moritz Bleibreu) starfar fyrir valdamikinn mafíósa. Manni er aðeins ómerkileg senditík en er harðákveðinn í að vinna sig upp í undirheimunum. Hann á pönkaða, rauðhærða kærustu, sem heitir Lóla (Franka Potente). Dag einn er Manni svo óheppinn að gleyma skjalatösku með 100.000 (.nörkum í neðanjarðarlest eftir vel- heppnuð dópviðskipti. Hann er dauð- ans matur ef hann skilar ekki mafíósanum peningunum og hringir í Lólu og biður hana að koma sér úr klípunni með því að bjarga sér um 100.000 mörk. Annars neyðist hann til þess að ræna banka til þess að koma sér út úr ógöngunum. Hún hefur ekki nema tuttugu mínútur upp á að hlaupa og tekur þegar til fótanna. Höfundur myndarinnar, Tom Tywker, sýnir áhorfendum þrjár mismunandi útgáfur af björgunar- leiðangri Lólu eins og þeir þekkja sem sáu myndina á Kvikmyndahátíð í Reykjavík í sumarlok. Myndin hef- ur nú verið sett á almennar sýningar í Stjörnubíói. „Það byrjar alltaf með myndskeið- um sem ég sé fyrir mér,“ segir leik- stjórinn Tywker aðspurður hvernig hann hafí fengið hugmyndina að Hlauptu, Lóla, hlauptu. „Ég fæ myndir í hausinn og fínn þörf til þess að búa til sögu í kringum þær og loks bíómynd. Þegar ég fékk hugmyndina að Hlauptu, Lóla, hlauptu sá ég fyrir mér konu á hlaupum. Ég held að flesta kvikmyndagerðarmenn dreymi um að byggja upp togstreitu og spennu. Þess vegna held ég að hasarmyndir séu svona vinsælar; vegna þess að kvikmyndir geta gefíð í skyn hraða með einstökum hætti. En kvikmyndir geta líka miðlað til- fínningum. Maður á hlaupum getur sameinað þetta tvennt; spennu og til- fínningar. Ég vildi klófesta áhorf- endur með Lólu og fá þá með mér í æsispennandi skemmtiferð. Ég vildi hraðan, villtan eltingarleik og afleið- ingarnar sem hann hefur." Hlauptu, Lóla, hlauptu er þriðja mynd Tywkers og þótt myndir hans séu ólíkar segist hann þekkja sjálfan sig í hverri og einni þeirra. Hann er fæddur í Wuppertal árið 1965 en býr í Berlín þar sem Hlauptu, Lóla, hlauptu gerist. Hann hefur alla tíð verið mikill bíóáhuga- maður og gerði sína fyrstu Super - 8 mynd þegar hann var ellefu ára. Hann starfaði sem bíóstjóri, vann við handrit og fjallaði um nokkra uppá- haldsleikstjóra sína fyrir þýskt sjón- varp, þar á meðal Aki Kaurismáki, Wim Wenders, Peter Greenaway og Lars von Trier. „Það skiptir ekki máli hvort þessi mynd gerist í Peking, Helsinki eða New York,“ segir hann. ,_,Aðeins sögusviðið mundi breytast. Ég held að allir, og þá meina ég allir, geti fundið sig í Lólu.“ aw Hættu að raka á þér fótlegginal Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus og fljótleg aðferð sem skýrir vinsælair One Touch á íslandi í 12 ár. Svo einfalt er það Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið það síðan afmeð rökum þvottaklút. (Sjá leiðbeiningar.) Húðin verður tnjúk, ekki hrjúf! One Touch er ofnæmisprófað Margra ára reynsla segir sína sögu! Fæst í apótekum og stórmörkuðum. Sensitive ■tÍr iðkvæma húð Bikini fyrir „ínkini" svæði m: Stutt Seldi eskimóa ísskáp JIM Moran lést á mánudag 91 árs að aldri en hann átti engan sinn líka þegar kom að því að vekja athygli á vörum, kvikmyndum frá Hollywood og sjálfum sér. Að selja eski- móa ísskáp? Moran ferðaðist til Alaska og gerði nákvæm- lega það fyrir ísskápafram- leiðanda. Að skipta um hest í miðri á? Moran gerði það í forsetakosningunum árið 1944 í Truckee-ánni í Reno. Að unga út strútseggi undir strútsfjöðrum? Það tókst honum árið 1946 og var engin tilviljun að á sama tíma gaf hann út metsölubókina „Egg- ið og ég“ sem átti eftir að verða gamanmynd með Claudette Colbert. Þegar framleiðendum sýningarinn- ar Fanny á Broadway tókst ekki að draga til sín áhorf- endur sneru þeir sér til Mor- ans. Hann setti simpansa í bílstjórasætið á breskum leigubfl með nafn söngleiks- ins á skottinu og ók bflnum sjálfur úr aftursætinu um Manhattan. Ljósmynd af við- burðinum birtist í tímaritinu Life. Hér sést auglýsing Monicu Lewinsky í blaðinu sem ætluð var Clinton forseta. Ekki hægt að vita allt FJÖLMARGIR reyndu að fara inn á nýja vefsíðu al- fræðiorðabókarinnar Encyc- lopaedia Britannica eftir að aðgangur var leyfður öllum að kostnaðarlausu á slóðinni www.britannica.com. Var þetta liður í að stokka upp ímynd fyrirtækisins en á síð- unni er að finna innihald 32 binda útgáfu alfræðibókarinn- ar, nýjustu fréttir Washington Post, tímaritagreinar og sögu- legan fróðleik, auk auglýsinga sem hin 231 árs gamla útgáfa hyggst hagnast á. En það fór illa fyrsta daginn þegar 12 til 15 milljónir reyndu að komast inn á slóðina því móðurtölvan fraus, áhugasamir netverjar komust ekki inn á síðuna og þurfti fyrirtækið að biðjast af- sökunar. Það er víst ekki hægt að vita allt. Draumur sælkerans DRAUMUR sælkerans og martröð tannlæknanna á sér stað í heila viku í súkkulaði- borginni Perugia þar sem haldin er „Evrósúkkulaði"- hátíðin og er hún tileinkuð súkkulaði í öllum sínum fjöl- breyttustu myndum. Á tísku- sýningu í „Sweet Tooth“-leik- húsinu eru sýndir kjólar inn- blásnir af súkkulaði, lista- menn mála með bráðnu súkkulaði og göturnar breyt- ast í sagnamusteri súkkulað- is. Mesta athygli vekur jafnan risastór súkkulaði- og kara- mellukonfektmoli á Cedrinco- básnum sem vegur rúmt tonn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.