Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 39
38 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ (!0G aii STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. GOTT FORDÆMI STAÐA kvenna í íslensku atvinnulífí er ekki góð sam- kvæmt könnunum ef tekið er mið af setu þeirra í stjórn- unar- og ábyrgðarstöðum. Konur eru þar í miklum minni- hluta, hvort sem einkageirinn er skoðaður eða hinn opinberi. Sjálfsagt hefðu fáir trúað því fyrir aldarfjórðungi eða svo, þegar barátta fyrir jafnstöðu kvenna og karla komst í há- mæli, hversu stutt við yrðum komin á veg hvað þetta varðar og jafnréttismál yfirleitt í lok aldarinnar. Vafalaust mun þróunin í átt til aukins jafnréttis á vinnumarkaði þó verða hraðari á næstu árum, einfaldlega vegna þess að konur leita nú menntunar og frama í atvinnulífi í sama mæli og karlar. Jafnframt virðast fyrirtæki og stofnanir sífellt vera að átta sig betur á því að í konum býr mannauður sem þau verða að nýta í samkeppnisumhverfi nútímans, auk þess sem konur hafa oft annað sjónarhorn á hlutina og nálgun sem sé dýr- mætt. Eimskipafélag Islands hefur sýnt gott fordæmi í þróun og stöðu jafnréttismála í fyrirtækinu. Jafnréttisráð hefur veitt félaginu viðurkenningu fyrir þetta starf þar sem þess er sér- staklega getið að markvisst hafí verið unnið að því að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum. Félagið hóf að leggja aukna áherslu á hlut kvenna í stjórnunarstöðum árið 1993. Tilgangurinn var meðal annars að auka breidd í stjórnendahópnum og nýta þá þekkingu, menntun og reynslu sem konur búa yfir. Unnið hefur verið markvisst að settu marki hvað þetta varðar og nú eru konur rúmlega 40% af forstöðumönnum og deildarstjórum á skipuriti yfirstjórn- ar félagsins eða átta talsins, en aðeins ein kona var á skipu- ritinu árið 1994. Konum í stjórnunarstöðum hefur fjölgað úr átta 1996 í átján og fleira mætti telja. Vitanlega er enn mikið verk óunnið í að auka hlut kvenna í stjórnun og framkvæmdastjórnum fyrirtækja hér á landi, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Jafnréttisráði um viðurkenninguna. Fátt mun þó vinnast nema með frum- kvæði á við það sem Eimskipafélagið hefur tekið. Vonandi verður fordæmi þess öðrum til eftirbreytni. Hvert og eitt fyrirtæki, hver og ein stofnun verður að huga að þessum málum í eigin ranni. BLÓMLEG BYGGÐ MITT í umræðunni um ójafnvægi í byggð landsins og fólksflóttann frá landsbyggðinni, kemur fram á sjónar- sviðið ung og þróttmikil kona, sveitarstjóri Eyrarsveitar í Grundarfirði, Björg Agústsdóttir, og lýsir uppgangi sinnar byggðar. Sveitarfélagið hennar virðist hafa haft í fullu tré við höfuðborgarsvæðið og íbúar eru að þriðjungi undir 16 ára aldri. Blómleg byggð, þar sem fólki finnst greinilega gott að búa. Grundarfjörður er dæmigert sveitarfélag, sem byggzt hefur upp á sjávarútvegi. Par eru starfrækt þrjú sjávarút- vegsfyrirtæki. Þau hafa alltaf verið sterk fjárhagslega og við hlið þeirra hafa þrifizt aðrar atvinnugreinar. Iðnaðar- menn hafa verið þar umsvifameiri en á flestum öðrum stöð- um. Þeir hafa haft mikla vinnu og þjóna fyrirtækjunum og íbúunum, sem vinna við fiskveiðar og fiskvinnslu. Einnig hafa Grundfirðingar verið duglegir við að bjóðaþjónustu út fyrir byggðarlagið og fyrirtækin hafa því eflzt. A síðastliðn- um 10 árum hefur íbúum Grundarfjarðar fjölgað um 18%, sem er svipuð fjölgun og átt hefur sér stað á höfuðborgar- svæðinu. Sveitarstjórnin í Grundarfirði hefur gert tilraunir til að fá opinberar stofnanir til þess að flytjast í bæjarfélagið, en lítt orðið ágengt. Hins vegar hefur verið unnið að því leynt og ljóst að nýta upplýsingatæknina og freista þess að skapa at- vinnu á því sviði. Hefur verið rekinn farkennsla frá Tölvu- skólanum Framtíðarbörnum og hafa grunnskólanemendur notið tölvunáms á vegum skólans. Börnin hafa náð ákveðnu forskoti á jafnaldra sína á þessu sviði og njóta bæði börn og unglingar í sveitarfélaginu þjálfunar í samskiptum í tölvu- heiminum. Þannig hafa kraftar sveitarfélagsins mjög beinzt að ung- viðinu á staðnum og að gera það samkeppnisfærara í lífsins amstri. Grundfirðingar hafa greinilega undirbúið jarðveginn vel fyrir upplýsingasamfélagið og sýnt mikinn vilja til að ná langt á því sviði. I samtali við Björgu Agústsdóttur í Morg- unblaðinu segir hún m.a. um fólksflóttann af landsbyggð- inni: „Það getur auðvitað verið hagkvæm fjárfesting fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að koma upp bygginga- svæðum og aðstöðu, þau fá tekjur af nýjum íbúum. En á móti erum við að fórna verðmætum á öðrum stöðum. Við er- um lítil þjóð og höfum ekki efni á þessari sóun.“ Enn vantar um 70 manns til þess að leikskólar Reykjavíkur verði fullmannaðir Morgunblaðið/Arnaldur Leikskólakennarar telja margir hverjir að menn geri sér ekki grein fyrir því hve gífurlega krefjandi og mikilvægt starf það sé að vinna með litlum börn- um allan daginn. Lokanir hafa bitnað á um 350 börnum í tólf leikskólum Tolf leikskólar Reykj avíkurborgar hafa á undanförnum mánuðum þurft að grípa til öess ráðs að loka einstaka deildum um há- degi með reglulegu millibili vegna manneklu. I samantekt Örnu Schram kemur m.a. fram að rekja megi þennan vanda á leikskólum borgarinnar til launakjara leikskólakennara og annarra starfsmanna leikskólanna. AF 72 leikskólum Reykjavíkurborgar hafa tólf þurft að grípa til þess ráðs að senda börn fyrr heim á daginn síðustu mánuði vegna skorts á starfsfólki, þ.e. vegna skorts á leikskólakennurum eða öðrum starfsmönnum, sem starfa á deildunum með börnunum. Þessar lok- anir hafa þannig bitnað á um 350 leik- skólabörnum víða um borgina og segja þeir sem til þekkja að ástandið á leik- skólunum hafi sjaldan eða aldrei verið jafnslæmt. Samkvæmt upplýsingum frá skrif- stofu Leikskóla Reykjavíkurborgar vantar enn um 70 manns til þess að manna lausar stöður á leikskólum borgarinnar þrátt fyrir að ítrekað hafi verið auglýst eftir nýjum starfsmönn- um í haust og talið er að ekki sé hægt að nýta samtals um 60 heilsdagspláss á leikskólum borgarinnar vegna mann- eklu. Þá bíða átján börn, sem í sumar fengu vilyrði iyrir leikskólaplássi, enn eftir því að komast að. Þessa vanda hefur vissulega gætt í fleiri sveitarfélögum en í Reykjavík, en að mati Bjargar Bjarnadóttur for- manns Félags íslenskra leikskólakenn- ara er ástandið sýnu verst í höfuðborg- inni. Þar virðist vandinn ætla að vara fram eftir vetri, enda engar lausnir í sjónmáli. Enn vita foreldrar eða for- ráðamenn margra leikskólabama ekki annað en að þeir þurfl að sækja bömin sín fyrr en ella einu sinni í viku næsta mánuðinn eða mánuðina. Flestir þeir sem Morgunblaðið ræddi við vom á því að rót vandans mætti rekja til lélegra kjara leikskóla- kennara eða ófaglærðra starfsmanna leikskólanna. Og á meðan þensla væri í þjóðfélaginu ættu leikskólar erfiðara með að keppa við aðra vinnustaði um starfsfólk sem byðu hærri laun. Sigrún Kristín Guðmundsdóttir leik- skólastjóri á Ægisborg bendir til að mynda á að byrjunargrunnlaun ófag- lærðs starfsmanns á leikskóla sé rúm- lega 70 þúsund krónur á mánuði og fullyrðir að hægt sé að keyra út pizzur fyrir um 120.000 krónur á mánuði svo dæmi sé tekið. Af þessum sökum verði leikskólar einíáldlega undir í sam- keppninni um starfsfólk þegar næga vinnu sé að fá annars staðar. Sigrún tekur fram að haustin séu yf- irleitt sá tími þar sem erfitt sé að manna stöður í leikskólum borgarinn- ar, m.a. vegna þess að sumarfólk sé að hætta og byrja t.d. í skóla, en yfirleitt hafi þó tekist að fylla í skörðin í sept- ember eða október. „Nú sjáum við leikskólastjórar hins vegar ekki fram á að geta mannað lausar stöður þrátt fyrir að við höfum auglýst eftir starfskrafti viku eftir viku í DV, Morgunblaðinu, á Netinu og fleiri stöðurn," segir hún. „Jú, við fáum svör við þessum auglýsingum," bætir hún aðspurð við, „en við tökum ekki við hverjum sem er inn á leikskólana. Við höldum náttúrulega okkar kröfum." „Aukafjárveiting nægir ekki“ Björg Bjarnadóttir formaður Félags íslenskra leikskólakennara tekur í sama streng og Sigrún varðandi vand- ann við að manna lausar stöður en bendir jafnframt á að ástandið hafi far- ið versnandi undanfarin ár. I íyrra hafi vissulega þurft að loka einstaka deild- um á leikskólum borgarinnar vegna manneklu en það ástand hafi þó ekki varað eins lengi eða verið eins víðtækt og nú. „Leikskólarnir eru einfaldlega ekki lengur samkeppnisfærir um vinnukraft þegar kemur að launurn," segir hún. „Það er staðreynd sem við leggjum áherslu á að sveitarstjórnar- menn geri sér grein fyrir og hafí í huga næst þegar sest verður að samninga- borðinu." Núgildandi kjarasamningur leik- skólakennara var undiiritaður 20. september árið 1997 og gildir hann út árið 2000. I upphafi samningstímans voru byijunargninnlaun leikskóla- kennara tæplega 90.000 krónur á mán- uði, en gert ráð fyrir því að þau verði rétt rúmlega 102.000 krónur á mánuði í lok samningstímans, eða frá og með 1. desember árið 2000. Svo annað dæmi sé tekið þá var deildarstjóri á leikskóla með rúmlega 91.000 krónur í grunnlaun á mánuði í upphafi samn- ingstímans, en undir lokin ná launin upp í rúmlega 107 þúsund krónur á mánuði. Meðaltalshækkun launa er því um 27% á samningstímanum, segir Björg. „Þetta þótti heilmikil hækkun á sín- um tíma, en á hinum langa samnings- tíma hefur þenslan aukist töluvert í þjóðfélaginu og starfsmenn annars staðar en á leikskólum hafa einfaldlega fengið yfirborganir,“ segir Björg og ít- rekar að það geri samningsstöðu leik- skólanna erfiðari að lítil sem engin von sé um aukavinnu til handa leikskóla- kennurum hvað þá yfirborganir. Borgaryfirvöld virðast gera sér grein fyrir bágum launakjöram leik- skólakennara en virðast þó ekki vilja hrófla við þeim kjarasamningi sem nú er í gildi. Á hinn bóginn samþykkti borgan'áð um miðjan september sl. samhljóða tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra um að veita 90 milljónum króna „til að efla starf í leikskólum borgarinnai'", eins og það var kallað. Þar af yrðu 20 milljónir greiddar strax í haust en 70 milljónfr á næsta ári. Áður, eða í vor, hafði borg- arráð hins vegar samþykkt að veita leikskólunum 30 milljónir króna til efl- ingai' starfsins í leikskólunum. Borgar- ráð hefur því veitt samtals fimmtíu milljónum til þessa málaflokks á þessu ári og hefur þeim fjármunum verið skipt nokkurn veginn jafnt milli leik- skóla borgarinnar, sem eru eins og áð- ur segir ,72 tálsins. „Þessum fjármunum er ætlað að bæta kjör starfsmanna Ieikskólanna,“ segir Bergur Felixson framkvæmda- stjóri Leikskóla Reykjavíkurborgar í samtali við Morgunblaðið og hinn sami skilningur kom fram í máli borgar- stjóra á fundi borgarstjórnar í síðustu viku. Leikskólastjórar höfðu nokkuð frjálsai' hendur með það á hvern hátt þeir notuðu þessa fjármuni til að bæta kjör starfsmanna sinna og segir Sig- rún Kristín Guðmundsdóttir leikskóla- stjóri að þeir hafi m.a. verið notaðfr til að mæta auknu vinnuálagi vegna t.d. námskrárgerða og foreldrastarfs. „En þetta hefur þó engu breytt. Við höfum ekki fengið neitt nýtt starfsfólk út á þessa fjármuni,“ segir hún. Þegar hún er spurð að því hvort þetta hafi ekki bætt kjör þess starfsfólks sem íyrfr er segir hún: „Jú, því við eram að reyna að halda því fólki. Vandinn snýst nefnilega ekki eingöngu um að ná starfsfólki inn á leikskólana heldur líka að halda því sem þegar er á leikskólun- um.“ Lítil virðing borin fyrir störfum leikskólakennara? Launamál era þó ekki einu þættfrnir sem nefndir hafa verið sem rót þess vanda sem ríkir í leikskólum borgar- innar heldur hefur því m.a. verið hald- ið fram að ekki sé nóg framboð af menntuðum leikskólakennurum. Lausnin á ríkjandi vanda felist því m.a. í því að útskrifa fleiri leikskólakennai'a á ári frá leikskólaskor Kennaraháskóla íslands (KHÍ). Að sögn Jóhönnu Einarsdóttur skorarstjóra leikskólaskorar KHÍ hafa um 70 til 90 leikskólakennarar útskrif- ast á ári hverju undanfarin ár sem þýðir að um 70 til 90 manns séu teknir inn í skorina á hverju hausti. Aðspurð segir hún þó að oft hafi þurft að vísa einhverjum tugum hæfra umsækjenda frá vegna þess að ekki væri íjármagn til þess að taka við fleiram en áður- nefndar tölur gefa til kynna. „Jú, við væram til í að taka inn fleiri nemendur en 70 til 90 fengjum við fjár- magn til þess,“ segir hún aðspurð. „Við lítum á það sem skyldu okkar að taka við eins mörgum nemendum og við mögulega getum.“ Jóhanna telur að nýútskrifaðir leik- skólakennarai' skili sér nokkuð vel út í 4- leikskólana, en Björg Bjarnadóttir er ekki á sama máli. „Eg veit af mjög mörgum leikskólakennurum sem starfa ekki á leikskólum. Þá vinna margir leikskólakennarar ekki fulla vinnu því það borgar sig ekki tfl dæmis hjá konum sem eru með lítil börn.“ Björg telur hins vegar víst að hægt verði að ná til þessa hóps með bættum kjörum starfsgreinarinnar. Eins og áður sagði hefur oft þurft að vísa hæfum umsækjendum frá skóla- vist í leikskólaskor KHI, en síðasta vor má segja að dæmið hafi snúist við. Þá var tekinn inn 81 nemandi af þeim 170 sem sóttu um, að sögn Jóhönnu, eða allir þeir sem uppíylltu inntökuskil- yrði. „Við tókum inn um það bil þann fjölda sem við máttum, en aðrir upp- fylltu ekki skilyrðin," segir Jóhanna, en til þess að teljast hæfur umsækj- andi þarf viðkomandi að hafa stúdents- próf eða aðra sambærilega menntun eða starfsreynslu sem að mati inntöku- nefndar jafngildir sama undirbúningi. En hver er ástæða þess að dæmið snerist við í vor? Að mati Bjargar gæti ástæðan ein- faldlega verið lág laun fyrir krefjandi vinnu. Fólk sjái enga framtíð í því að leggja á sig þriggja ára nám í leik- skólaskor fyrir þau laun sem í boði eru. Jóhanna tekur í svipaðan streng og telur jafnframt að vandinn geti líka verið sá hve lítil virðing sé borin fyrir starfi leikskólakennara. „Eg held að menn geri sér ekki grein fyrir því hve gífurlega krefjandi og mikilvægt starf það er að vinna með litlum bömum allan daginn og það hlýtur að segja manni eitthvað um við- horf til starfsins að launin skuli ekki vera hærri en raun ber vitni.“ Boðið verði upp á styttri námsbrautir Jóhanna skýrir frá því að m.a. í ljósi reynslunnar frá síðasta vori hafi stjórn leikskólaskorar lagt til við yfirvöld KHI sem og við menntamálaráðuneyt- ið, í samráði við Félag íslenskra leik- skólakennara, að boðið verði upp á styttri námsbrautir í skólanum fyrir þá nemendur sem ekki uppfylli skilyrði til að komast í leikskólakennaranám. Það nám yrði til að mynda tveggja ára nám sem gæfi réttindi til þess að starfa á leikskólum og til að halda áfram námi í leikskólaskor og ljúka leikskólakenn- araprófi. „Við leggjum þessa tillögu fram með þá vitneskju að leiðarljósi að mai'gir vilja gjarnan stai-fa á leikskólum og verða leikskólakennarar en uppfylla ekki inntökuskilyrðin," segir Jóhanna. Hún segir ennfremur að með þessari leið mætti takast á við vanda á leik- skólunum á annan hátt en hingað til. „Hugmyndin er þó,“ segir hún, „það nýtilkomin að hún er enn á umræðu- stigi innan KHI og menntamálaráðu- neytisins.“ Fleiri ástæður en hér hafa verið taldar upp hafa einnig verið nefndar sem ástæða þess vanda sem við er að glíma á leikskólum borgarinnar um þessar mundir. Mætti þar nefna þá gagnrýni að R-listinn hafi í valdatíð sinni bætt við og byggt fjölda leikskóla án þess að gera ráð fyrir því að í þá þyrfti að ráða starfsfólk. Samkvæmt upplýsingum frá skrif- stofu Leikskóla Reykjavíkurborgar voru tveii' nýir leikskólar byggðir og teknir í notkun í Reykjavík á síðasta ári og einn á þessu ári. Þá hefur á þessu ári verið byggt við og fjölgað börnum á tveimur eldri leikskólum borgarinnar. Um 5.515 börn vora á leikskólum borgarinnar árið 1998 og um áramótin er gert ráð fyrir að þau verði um 5.600. Áhersla hefur verið lögð á að ljölga heilsdagsrýmum á leik- skólum borgarinnar og fullyrti borgar- stjóri á fundi borgarstjórnar í síðustu viku að 2.000 fleiri börn fengju nú þá úrlausn inni á leikskólum sem foreldr- ar þeirra kysu en árið 1994 er R-listinn tók við völdum. Burtséð frá því hvaða ástæður séu taldar fyrir þeim vanda sem leikskólar borgarinnar eiga við að etja virðast þær allai' bera að sama brunni; kjara- málum leikskólakennara og annaixa starfsmanna á deildum leikskólanna. Sigrún Kristín Guðmundsdóttfr leik- skólastjóri segir um þessa stöðu: „Það sem þarf að gera til að bæta ástandið er að hækka laun starfsmanna leik- skólanna og láta leikskólana njóta meiri virðingar þannig að starfið verði eftfrsóknarverðai'a.".,, .... Formaður landbúnaðarnefndar Alþingis hvetur til umræðna um byggðamál Framtíð byggðar á stórum sauðfjárrækt- arsvæðum í húfi Morgunblaðið/Sverrir Hjálmar Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar Alþingis. HJÁLMAR Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fonmaður land- búnaðarnefndar Alþingis, segir afar mikilvægt að hugað verði sérstak- lega að vanda hinna dreifðu byggða við gerð næsta búvörusamnings í sauðfjárrækt. Segir hann að framtíð byggðar á stórum sauðfjárræktar- svæðum velti í raun á því að sérstak- ur stuðningur komi til, að öðrum kosti séu menn að taka ákvörðun um að byggðin skuli leggjast af. Framundan er gerð sauðfjár- samnings bænda og ríkisins og von- ast Hjálmar til að sú vinna taki ekki mjög langan tíma. Núgildandi samn- ingur rennur út í árslok 2000 og þá þarf að vera búið að gera nýjan samning og staðfesta hann á Alþingi. „Eg geri mér vonir um að hægt verði að taka hann til afgreiðslu á vorþinginu núna,“ segir Hjálmar í samtali við Morgunblaðið. „Ef það tekst ekki þá verður það á næsta haustþingi sem er óþægilega seint.“ Hjálmar leggur áherslu á að nýr búvörusamningur verði almenns eðl- is og að við gerð hans sé byggt á nú- gildandi samningi. Hins vegar sé mikilvægt að sérstaklega verði tekin afstaða til stóru sauðfjárræktar- svæðanna í tengslum við samninginn. Hjálmar vekur í þessu sambandi at- hygli á þingsályktunartillögu Alþing- is um stefnumótandi byggðaáætlun, sem samþykkt var í mai's síðastliðn- um, en í henni er kveðið á um að sköpuð verði skilyrði til að styðja sérstaklega aðgerðir á afmörkuðum svæðum þar sem veruleg röskun verður á atvinnuháttum og búsetu. „Sérstaklega verði hugað að að- gerðum í byggðum þar sem atvinnu- líf er fábreytt og útgerð á í vök að verjast. I þeim sveitum sem byggja nær eingöngu á sauðfjárrækt og samgöngur hindra atvinnusókn í önnur byggðarlög verði hugað að að- gerðum sem gætu m.a. falist í breyttum áherslum í ráðstöfun bein- gi'eiðslna með tilliti til byggðasjón- armiða,“ segir einnig í ályktun Al- þingis. Hjálmar vekur ennfremur athygli á þingsályktunartillögu sem Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðis- flokki, og Stefán Guðmundsson, þá- verandi þingmaður Framsóknar- flokks, lögðu fram á Alþingi á 122. löggjafarþingi árið 1997-1998. Þar var ríkisstjórninni falið að skipa nefnd til að gera tillögu um hvernig megi efla sauðfjárbúskap í jaðar- byggðum þar sem beitflönd séu van- nýtt. Báðar tillögurnar samþykkti Al- þingi mótatkvæðalaust og segir Hjálmar að framhjá þeim sé ekki hægt að horfa. „I þessum þingsálykt- unartillögum hlýtur að felast ákveðin viljayfirlýsing Álþingis," segir hann. Gífurleg vandamál á sumum sauðfjárræktarsvæðum Samkvæmt núgildandi búvöru- samningi fá sauðfjárbændur bein- greiðslur frá ríkinu vegna fram- leiðslu dilkakjöts. „Það er í raun og veru litið svo á að bein- greiðslurnar séu niður- greiðslur á dilkakjöti til neytenda, enda beint framhald af niðurgreiðsl- um á heildsölustigi. Bónd- inn fær þær bara beint í staðinn fyr- ir að þær séu borgaðar þegar fram- leiðslan kemur frá bóndanum,“ segir Hjálmar. Áður var reyndar við lýði kvóta- kerfi í sauðfjárrækt um aðgengi að innanlandsmarkaðnum. Það kerfi var lagt niður með núgildandi bú- vörusamningi og nú mega menn framleiða eins mikið og þeir vilja. „Hið eina sem tengir beingreiðslum- ar framleiðslunni nú er 60% ásetn- ingskvöð,“ segir Hjálmar. Að hans sögn er sauðfjárrækt ágætis búbót fyrir þá sem geta haft hana að hlutastarfi og að hún henti vel sem slík. Þannig sé hún víða mik- ilvægur hluti af fjölskyldutekjum í sveit og ráði úrslitum um að fólk sitji jarðimar í stað þess að flytja í þétt- býlið. Hins vegar segir Hjálmar að gíf- urleg vandamál blasi við þeim svæð- um þar sem fólk byggir afkomuna að stærstum hluta á sauðfjárræktinni. Hann nefnir í þessu sambandi Dala- byggð, A-Barðastrandarsýslu, Str- andir, Húnavatnssýslur, hluta Skagafjarðar og Þingeyjarsýslna, Hérað og Fljótsdal, auk V-Skafta- fellssýslu og hluta Borgarfjarðar. „Það sem einkennir þessi svæði fyrst og fremst er að þau hafa tapað mörgu fólki frá sér á undanförnum árum, 30-40% íbúafækkun sl. 10 ár og 15-20% sl. 5 ár,“ segir Hjálmar. Jafnframt hafa tekjur fólks á þess- um svæðum verið mjög lágar, um 40% undir landsmeðaltali. „Þessi svæði einkennast af ein- hæfni í atvinnulífi og ársverk í land- búnaði era um eða yfir 50% ársverka á svæðunum. Það segir okkur það að ef sauðfjárræktin dregst saman þarna eins og hingað til þá fai-a þessi svæði í eyði fyrr en síðar.“ Ríkið bjóði uppkaupasamning Til að bregðast við vandanum í sauðfjárbúskap vill Hjálmar að í tengslum við nýjan búvörusamning verði opnaður möguleiki á tilfærslu greiðslumarks milli jarða og þannig reynd í þriðja sinn uppkaup greiðslu- marks þeirra bænda sem rflja bregða búi. Þannig verði við úthlutun á inn- leystu greiðslumarki höfð hliðsjón af ástandi beitilanda og almennu at- vinnuástandi á svæðinu. „Það er eðlilegt að sauðfjárræktin sé hlutastarf og hún er ágæt sem slík, eins og ég hef áður sagt,“ segir Hjálmar. „Eg vil ekki að neinum fjárbónda sé gert að hætta. Mönnum verði á hinn bóginn gert uppkaupa- tilboð, það er að greiðslumarkið' verði innleyst af ríkinu. Þannig gæt- um við verið að hafa áhrif á að sauð- fjárræktai'svæðin haldi velli, menn fái aukinn styrk til að búa þar sem graslendi er gott og mikið eða þar sem í raun og veru er eðlilegt að hafa sauðfé,“ segir hann. „Semsagt að þessi þróun verði þannig að ekki sé tekið neitt af nein- um, hins vegar sé mönnum gefinn kostur á því að selja sitt en greiðslu- markinu síðan útdeilt á þessi til- teknu svæði.“ Margir bændur þekkja ekki góðærið I dag eru um 2.500 fjárbændur skráðir í landinu en afar misjafnt er hversu háar upphæðir þeir em að fá í beingreiðslum frá rikinu. Hjálmar segir að af 2.500 bændum séu um 400 sem fái einungis 20 ærgfldi eða minna í beingreiðslum. Það er u.þ.b. 50 þúsund krónur á ári og slíkt sé náttúrlega algerir smámunir. Tfl að fjölskylda geti lifað af sauð- fjámæktinni einni saman þarf búið að vera með um 450-700 ærgilda- greiðslumark en að sögn Hjálmars em innan við hundrað bændur í landinu með 450 ærgildi eða meira. „Staðreyndin er sú,“ segir Hjálmar, „að þótt sumir bændur hafi það ágætt er sá hluti stéttarinnar mun stærri sem hefur óviðunandi af- komu.“ Að mati Hjálmars er í raun óhjá- kvæmilegt að breytingar eigi sér stað og tilfærslur verði einhverjar í sauðfjárræktinni. Segir hann að það gæti gerst með auknum uppkaupum og endurúthlutun greiðslumarks, að minnsta kosti sé það möguleiki sem skoða þurfi í fullri alvöru við samn- ingagerðina. „Fáir geta verið ánægðir með stöðu sauðfjárræktarinnar nú um stundir," segir Hjálmar. „Afkoman verður að batna og því er mikilvægt. að sem flest sjónannið og möguleik- ar séu ræddir. Að sjálfsögðu hef ég engar patent-lausnir á þessu en um- ræðan um framtíð sauðfjárræktar- innar þarf hins vegar að fara fram áður en samningnum er lokað,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður land- búnaðamefndar Alþingis. Sauðfjárrækt ágæt sem hlutastarf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.