Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 21 LANDIÐ 900 fm reiðhöll rís á Blönduósi Blönduósi - Árni Þorgilsson á Blönduósi hefur unnið að byggingu 900 fermetra reiðhallar og 24 hesta hesthúss í Arnargerði en svo nefnist hesthúsahverfi hestamanna á Blönduósi. Arni byrjaði á þessu mannvirki í sumar og er áætlaður kostnaður ekki undir 20 milljónum króna. Nú hyllir undir verklok og hefur Árni gert samninga við hesta- menn og Blönduóssbæ til sjö ára um afnot þeirra af reiðhöllinni og voru þeir samningar undirritaðir í reið- höllinni 26. okt. síðastliðinn. Með Árna að byggingunni hafa unnið tveir til þrír menn auk þess sem fjölskylda hans hefur lagt drjúga hönd á plóginn. Um síðustu helgi fjöl- menntu hestamenn í héraði og fjöl- skylda Árna til byggingarstarfa en þá tókst að klæða stóran hluta bygging- arinnar. Fyrirhugað er að gera annað slíkt átak á næstunni til þess að ljúka klæðningu fyrir veturinn. „Víst er að reiðhöllin mun verða mikil lyftistöng fyrir hestamennsku í Húnavatnssýslu á komandi árum,“ segir Hörður Ríkharðsson, talsmað- ur hestamanna á Blönduósi, en að- staða sem þessi nýtist vel við tamn- ingar og þjálfun reiðhrossa. Sölu- sýningar munu fá fastan sess í starfi reiðhaliarinnar auk keppni og námskeiða af ýmsu tagi. Hvað ferðaþjónustu viðvíkur er reiðhöllin ákjósanleg til þess að kynna hestinn fyrir erlendum ferðamönnum og skapa þeim örugga aðstöðu til þess að reyna íslenskan hest, sagði Hörð- ur ennfremur. Húnvetnskir hesta- menn og hrossaræktendur fagna þessu framtaki Árna sem glöggt má sjá í fórnfúsu sjálfboðastarfi þeirra við byggingu reiðhallarinnar og þeir hugsa sér gott til glóðarinnar að nýta sér þessa aðstöðu sem vafalítið mun efla allt þeirra starf á komandi misserum. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hestamenn og fulltrúar bæjarstjdrnar undirrita samninga við Árna Þorgilsson um not af reiðhöllinni sjö ár. Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar Mikið líf og kraftur er í kirkjunni þegar þar eru saman komnir upp undir 200 lífsglaðir einstaklingar. Sameiginlegur sunnudaga- skóli í Ólafsvíkurkirkju Ólafsvík - Það var glatt á hjalla í Ólafsvíkurkirkju á sunnudaginn 24. október sl. þegar þar var haldinn sameiginlegur sunnu- dagaskóli fyrir allt Snæfellsnes enda við góðu að búast þegar allt hið hæfileikaríka fólk sem þar starfar leggur saman krafta sína. Frá árinu 1993 hefur það verið árlegur viðburður í starfi sunnu- daga- eða kirkjuskólanna á Snæ- fellsnesi að hittast til skiptis í Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík og á Ingjaldshóli. Það er spennandi fyrir börnin að fá að fara í aðrár kirkjur í langferðabifreið og kynnast þar öðrum börnum og öðrum aðstæð- um og aðferðum heldur en notað- ar eru á hverjum sunnudegi á heimakirkjunni. Að þessu sinni var barn borið til skírnar í sunnudagaskólanum, en hátíð og gleði fylgir jafnan þeirri athöfn. Oft er ferðalagið góð upphitun fyrir stundina, því þar er sungið af krafti og jafnvel farið í brand- arakeppni á leiðinni. I lokin hefur verið boðið upp á hressingu. Öll árin hafa söfnuð- irnir notið vinsemdar Mjólkur- samlagsins í Búðardal sem lagt hefur þessu sameiginlega starfi til skólamjólk og fleira til að seðja Iíkamann að lokinni upp- byggilegri stund í kirkjunni. Sterkbyggð- ur bensín- söluskáli rís Flateyri - Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýs Essoskála á Flat- eyri, en skálinn sem var fyrir eyði- lagðist í snjóflóðinu 1995. Um lang- an tíma var beðið svars frá forráða- mönnum Veðurstofu Islands og 01- íufélagsins Esso um hvort nýr skáli yrði reistur á grunni gamla skálans. Þeirri spurningu hefur verið svarað með þessum framkvæmdum. Nýi skálinn verður stærri en sá fyrri, eða um 100 fm að stærð. Hann verður steinsteyptur, útveggir og þak verða járnbent og steypt og í gluggum verða öryggisgler. Við hönnun hússins er gert ráð fyrir að það þoli mikinn kófþrýsting (högg- bylgju). Þá er talað um viðmiðun sem samsvarar fimmföldu vind- álagi, eða um 47 metra vindhraða á sekúndu. Þetta telst vera hár stuð- ull borið saman við hús sem standa skjóllítil á sjávarkambi. Við bygg- ingu húsa er oftast nær reiknað með öryggisálagi, ekki kófálagi eins og í þessu tilfelli. Með þessari sér- stöku hönnun hússins er gert ráð fyrir að húsið muni þola snjóflóð sem kæmi yfir garðinn sem afleið- ing af stærra flóði. Verktaki hússins er verktakafyr- irtækið Ágúst og Flosi frá ísafirði og um hönnun hússins sáu arkitekt- ar á vegum Olíufélagsins Esso og Nýju Teiknistofunnar. Um burðar- þolsteikningar sá Leifur Benedikts- son, verkfræðingur hjá Nýverki. Ráðgert er að afhenda húsið fullbú- ið að utan og tilbúið undir tréverk fyrir 21. des. nk. Kristnihátíð í Rang- árvallaprófastsdæmi KRISTNIHÁTÍÐ verður haldin sunnudaginn 31. október nk. í Þykkvabæjarkirkju og á Lauga- landi, en hún er önnur af þremur hátíðum sem prófastsdæmið hefur áfomað að halda í tilefni 1.000 ára kristnitökuafmælisins. Hátíðin hefst kl. 13 með hátíðar- messu í Þykkvabæjarkirkju, þar sem sóknarpresturinn sr. Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari en sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir pró- fastur prédikar. Sameinaðir kirkjukórar Fellsmúla- og Odda- prestakalls munu sjá um sálmasöng en einsöng flytur Eyrán Jónasdótt- ir, skólastjóri tónlistarskóla Rang- æinga. I sumar hefm' verið unnið að endurnýjun á þaki Þykkvabæjar- kirkju og settur upp nýr rafmagns- knúinn hringibúnaður sem notaður verður í fyrsta skipti til að hringja inn hátíðarmessuna. Að athöfn lokinni verður haldið að Laugalandi í Holtum þar sem fram fer hátíðardagskrá. Munu þar halda fyrirlestra um ábyrgð manns á sköpun Guðs og um safnaðarlíf og safnaðaruppbyggingu, þeir dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í gamla testamentisfræðum við HI, og dr. Sigurður Árni Þórðarson, verkefnastjóri safnaðaruppbygg- ingar á Biskupsstofu. Þá mun kvennakórinn Ljósbrá syngja sem og áðurnefndir kirkjukórar, Guðríður Júlíusdóttir syngur einsöng og síðast en ekki síst verða börn og unglingar með sín atriði. í tengslum við hátíðina verður myndlistasýning á verkum Gunnars Arnar myndlistarmanns í Kambi í húsinu þennan dag. Kaffiveitingar verða í boði héraðs- nefndar Rangæinga sem kvenfé- lögin á svæðinu sjá um. í byi'jun júní sl. var kristnihátíð haldin á Breiðabólsstað og Hvols- velli og á hvítasunnudag, 11. júní á næsta ári, verður aðalhátíð pró- fastsdæmisins haldin í Odda og á Hellu. i TL ffiirm-w.riTfSv r sem gleymist seint hú§a> og suiiiarbústaðaskihi ,, úr tré Pantið tímanlega fyrir Axel Björnsson S: 897 3550 565 3553 fimmtudag laugardag föstudag sunnudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.