Morgunblaðið - 21.11.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 21.11.1999, Síða 16
16 B SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ við hlið mér. Ég gerði mér ekki grein fyrir hvernig ljós þetta voru. Þau voru hvít og stök. Ég sá hvern- ig þau ýmist gnæfðu uppi á öldum eða hurfu niður í öldudali. Mér fannst jafnvel eins og einhver bátur væri að koma til að bjarga okkur. Ég gaf félögum mínum tO kynna að hugsanlega gæti einhver verið á leiðinni til okkar. „Ertu orðinn eitthvað ruglaður?“ spurði Jón. Ég svaraði ekki. Vissulega var það ruglingslegt þegar báturinn okkar hringsnerist og við fórum um leið upp og niður á öldunni. En hvít Ijós sá ég. Og það fleira en eitt. Það var alveg klárt.“ Jóhannes Briem, deildarstjóri hjá Slysavarnafélagi íslands, hafði verið á bakvakt heima hjá sér við jólahald á Hjarðarhaga í vesturbæ Reykjavíkur þegar Nesradíó hafði við hann samband. Jóhannes gerði sér grein fyrir hve mikil alvara var á ferðum og að bregðast þyrfti skjótt við. Það fyrsta sem þyrfti að gera var að koma flugvél á staðinn til að finna og fylgjast með skipinu og síðan að útvega þyrlur með nægilegt flugþol til björgunar. Sírenur og ljóskastarar í Þórshöfn Preben A. Andersen var að ganga upp stiga á leið upp í skip- herraíbúð sína þar sem hann hugð- ist fara í koju eftir jólagleðskapinn þegar loftskeytamaðurinn kom tii hans. Hann tilkynnti Preben að borist hefði neyðarkall frá íslensku skipi á Atlantshafi í gegnum Reykjavík. Jan Rasmussen þyrluflugstjóri var nýlega lagstur á mjúkan kodd- ann í koju sinni: „Ég hafði farið í koju rétt eftir miðnætti. Káetan mín var alveg við hliðina á loftskeytaklefanum. Ég var nýbúinn að slökkva ljósið og hafði lokað augunum. Allt í einu heyrði ég einhver læti frá loftskeytaklefanum. Ég fór að hlusta betur. Þessi skilaboð voru skýr: „Mayday, mayday, mayday!" „Hvað er að gerast núna?“ sagði ég við sjálfan mig. Ég klæddi mig strax og fór fram. Þegar ég kom út á gang var mér sagt að við værum að taka á móti beiðni um aðstoð. Neyðarkall hafði komið frá ís- lensku flutningaskipi - skipið hét Suðurland - það var statt 340 sjó- mílur (um 630 kílómetra) norðaust- ur af Færeyjum - rétt norðan við heimskautsþaug og úti í miðju Atl- antshafi! Um borð voru 11 menn. Ég vissi strax hvað var að gerast. Við áttum að sigla af stað út í nótt- ina.“ Þar sem á annan tug manna úr áhöfn Vædderens var í landi voru skipssírenur nú settar í gang með skerandi hávaða - sírenur sem eru til þess ætlaðar að fólk í landi heyri í þeim. Ljóskösturum var einnig beint með ákveðnum hreyfingum upp í loftið til að gefa skipverjum uppi í bæ til kynna að þeir ættu að koma tafarlaust um borð. Ekki var laust við að íbúar Þórshafnar yrðu forviða. Hvað var eiginlega að ger- ast hjá Dönunum þarna niðri við höfn? Arne G. Berg, sjóliðshöfuðs- maður hjá Færeyja-kommando, horfði niður að höfninni frá heimili sínu. Honum fannst eins og verið væri að vekja upp alla Þórshöfn á þessu annars kyrrláta aðfanga- dagskvöldi - í bænum sem enn var í sárum eftir hið hörmulega strætis- vagnaslys í Skálafirði nokkrum dögum áður. Nú gekk allt ótrúlega hratt fyrir sig á þessu 72 manna skipi sem hafði ruggað svo rólega við bryggjukantinn í Þórshöfn nokkrum mínútum áður. Læknir- inn Lars Meinert Jensen var með- al þeirra Dana sem voru í landi. Hann var heima hjá færeysku vin- konunni sinni uppi í hæðunum í Þórshöfn: „Ég heyrði eitthvert væl berast að utan inn í stofu. Um leið var ég m búnaðarbanikinn er banki MENNINGARBORGARINNAR ÁRIÐ 2000 (S) BÚNAÐARBANKINN traustur banki Sveigjanlegur fasteignalífeyrir Fasteignalífeyrir Búnaðarbankans gerir þér kleift að njóta arðsins af lífsstarfinu strax við 65 ára aldur. Eigna lífeyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.