Morgunblaðið - 17.12.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Prenttæknistofnun og Rafíðnaðarskólinn í samstarfí
Standa að stofnun
Margmiðlunarskóla
Morgunblaðið/Sverrir
Guðbrandur Mag-nússon, formaður skólastjórnar Margmiðlunarskól-
ans, og Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins,
skrifa undir sanming um stofnun skólans.
PRENTTÆKNISTOFNUN og Raf-
iðnaðarskólinn hafa stofnað nýjan
skóla, Margmiðlunarskólann, en
þessir aðilar hafa boðið upp á nám í
margmiðlun. „Þetta er eflaust dýr-
asta nám sem hægt er að bjóða í dag,“
sagði Jón Arni Rúnarsson, skóla-
stjóri. „Náminu fylgir mikill tækja-
búnaður, þar sem mai'gmiðlun spann-
ar svo breitt svið. Við eigum að vinna
með tölvutækni, gi'afík, hljóð og
mynd og til þess að þetta vinni saman
þarf mjög dýr tæki. Það var því báð-
um aðilum ofviða að halda úti öflugum
skóla, sem yrði í forustu í margmiðlun
á Islandi. Því vai' ákveðið að stofna
nýjan skóla, sem ekki félli undir hús-
næði Rafiðnaðarskólans né Prent-
tæknistofnunar.“
Guðbrandur Magnússon, verðandi
formaður stjómar Margmiðlunar-
skólans, sagði mikilvægt að tekist
hefði samstarf prent- og rafiðnaðar
um rekstur Margmiðlunarskólans.
„Breytingai- á tækni og starfsum-
hvei-fi hafa leitt til þess að þessar
tvær starfsgreinar eiga meira sam-
eiginlegt en áður. Störf skarast í rík-
ari mæli en áður og því er nauðsyn-
legt að prent- og rafiðnaðurinn vinni
saman að námi í margmiðlun til þess
að undirbúa atvinnulífið fyrir frekari
breytingar á þessu sviði í framtíð-
inni,“ sagði Guðbrandur.
Jón sagði að tilgangurinn með
stofnun skólans væri að svara þörf og
örva nýsköpun í atvinnulífinu. Jafn-
framt væri nýi skólinn byggður á
þeim sérþekkingu og þeim árangri
sem skólamir hafa náð hvor á sínu
sviði. „Innlegg í þekkingu í búnaði og
hugmyndum mun nýtast mun betur
einum skóla heldur en tveimur," sagði
hann.
Boðið er upp á tveggja ára nám í
nýmiðlun, en undir hana falla margm-
iðlun, vefmiðlun, hljóð- og mynd-
vinnsla og verða 30 nemendur teknir
inn á hverri önn.
„Markmiðið er fyrst og fremst að
útskrifa hæft fólk til að starfa í at-
vinnuumhverfinu og til að sinna nýs-
köpun í atvinnulífinu," sagði Jón Ámi.
„Væntanlega verða inntökuskilyrð-
in þau að nemendur verða að vera
sæmilegir notendur á tölvur eða hafa
unnið í umhverfi sem tengist marg-
miðlun. Sá sem lýkur svona námi á að
vera hæfur til að fara með sín gögn og
upplýsingar hvort sem er á prentmið-
il, margmiðil, sjón- eða hljóðmiðil.“
Auk tveggja ára náms verður boðið
upp á styttri námskeið sem tengjast
margmiðlun, upplýsinga- og tölvu-
tækni og gagnavinnslu. „Skólinn mun
því einnig sinna þeim nemendun sem
vilja stytti’a nám, endurmenntun og
símenntun," sagði Jón Arni.
Verulegar endurbætur á húsnæði Alþingis á næsta ári
98 milljónir til breytinga
Nefndir og þingflokkar verða til húsa í nýbyggingu við Austurvöll.
MEÐAL tillagna um breytingar á
fjárlagafrumvarpinu sem samþykkt-
ar voru í gær var tillaga um að veittar
verði 98 milljónir króna til Alþingis
vegna innréttinga og breytinga á
húsnæði sem Alþingi hefur nýlega
tekið á leigu í Austurstræti. Um er að
ræða húseignirnar Austurstræti 8,
sem er nýbygging, og hluta samliggj-
andi húseignar, Austurstrætis lOa.
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri
Alþingis, segir að mikil uppstokkun
verði á húsnæðismálum Alþingis í
kjölfar þess að hluti starfseminnar
verður fluttur í hið nýja húsnæði í
Austurstræti. Nýja húsnæðinu er
fyrst og fremst ætlað að hýsa starf-
semi fastanefnda Alþingis sem og
nefndasviðs sem annast þjónustu við
nefndirnai' auk þess sem þar verða
skrifstofur þingmanna. I kjölfar
þessara flutninga þarf að lagfæra og
endurbæta eldra húsnæði Alþingis
og er lagt til í breytingartillögu
meirihlutans að til þess verði varið 15
milljónum króna.
Friðrik segir að meta þurfi stöð-
una í húsnæðismálum Alþingis alveg
upp á nýtt í kjölfar flutninganna í
Austurstræti.
I breytingartillögunni er einnig
gert ráð fyrir 60 milljóna kr. framlagi
til framkvæmda á alþingisreit.
Framkvæmdum við byggingu skála
verði frestað til haustsins 2000 vegna
þenslu. Fjái'veitingunni á að veija til
að loka grunni skálans og lagfæra
umhverfið til að reiturinn verði í for-
svaranlegu ástandi á næsta ári.
Aðgerðir gegn losun gróður-
húsalofttegunda undirbúnar
TILLAGA umhverfisráðhen-a um
undirbúning aðgerða til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda var
samþykkt á ríkisstjórnarfundi sl.
þriðjudag. Stefnt er að því að drög
að nýrri framkvæmdaáætlun, fyrir
tímabilið 2001-2005, verði lögð fyrir
ríkisstjórn næsta haúst.
Núverandi framvæmdaáætlun um
hvernig draga eigi úr losun gróður-
húsalofttegunda og hvernig auka
eigi bindingu þeirra á komandi tíma-
bili rennur út í lok ársins 2000. Nýja
framkvæmdaáætlunin byggist á
stefnu ríkisstjórnarinnar um að Is-
land gerist aðili að Kyoto-bókuninni
þegar fyrir liggur viðunandi niður-
staða og lausn á sérmálum Islands.
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra, segir að mikilvægt sé að hefj-
ast þegar handa við að móta þá
vinnu sem mun eiga sér stað í næsta
áfanga.
„Að mínu mati er mjög mikilvægt
að vinna við stefnumótun næsta
áfanga hefjist strax þar sem um er
að ræða mjög umfangsmikið starf.
Nefnd ráðuneytisstjóra átta ráðu-
neyta, undir forystu umhverfisráðu-
neytis, mun stýra vinnunni,“ segir
umhvei'fisráðherra.
Hagrænar aðgerðir
Starfshópur á vegum stýrihópsins
mun vinna tillögur um aðgerðir til
að ná losunarmarkmiðum Kyoto-
bókunarinnar á fyrsta skuldbinding-
artímabili hennar á árunum 2008-
2012. í stefnumörkuninni verður
hugað að því hvaða stjórnvaldsað-
gerðir eru vænlegastar til árangurs.
Þær aðgerðir sem skoðaðar verða til
að draga úr losun eða auka bindingu
koltvíoxíðs eru einkum fræðsla og
upplýsingagjöf, rannsóknir og þró-
un, lög og reglugerðir, frjálsir samn-
ingar við atvinnulífið um losunar-
markmið, og hagræn stjórntæki svo
sem skattlagning, gjaldtaka og við-
skipti með losunarkvóta innanlands,
eða á milli landa.
Fleiri og hagkvæmari kostir
munu gefast til þess að standa við
skuldbindingar bókunarinnar, að
sögn ráðherra, eftir því sem fyrr er
hafíst handa við þessa vinnu. Með
því eru einstaklingum og atvinnu-
lífinu jafnframt sköpuð skilyrði til að
nýta tímann til að ná settum mark-
miðum á sem hagkvæmastan hátt.
- Handunnin sófasett m/3 borðum, aðeins kr. 157.000
- Handunnin húsgögn - Úrval af viðarbörum
Úrval gjafavöru
Mörg jólatilboð
í gangi
Opið
til jóla kl. 10-21,
Sigurstjarna
sun. 13-18
Fákafeni (Bláu húsin),
sími 588 4545.
Skráning nýrra deilda
Ævisjódsins hf. á VÞÍ
Ævisjóðurinn hf.
Útgefandi Ævisjóðurinn hf„ kt: 601097-2579, Laugavegi 170
105 Reykjavík
Umsjón og milliganga Fjárvangur hf„ kt: 590789-2089, Laugavegi 170,
meðskráningu 105Reykjavík
Skráning Skráðar verða 3 deildir Ævisjóðsins hf„ islensk
skuldabréf skammtíma, islensk skuldabréf langtíma
og islensk hlutabréf. Deildlmarverða skráðar
á Verðbréfaþing íslands þann 22.12.1999
Tilgangur skráningar Tilgangur félaglns með skráningu
hlutdeildarskírteina á VÞÍ er að auka seljanleika
hlutdeildarskírteina félagsins auk þess að bæta
upplýsingastreymi til eigenda hlutdeildar-
skirteina með því að gangast undir reglur VÞÍ
varðandi upplýsingaskyldu útgefanda skráðra
verðbréfa
Viðskiptavaki Fjárvangur hf. mun í eigin nafni setja fram kaup- og
sölutilboð á Verðbréfaþing íslands meðan sjóðurinn
er í vörslu fyrirtækisins.
Frekari gögn Skráningarlýsingu, samþykktir Ævisjóðsins hf„
ársfjórðungsskýrslur, upplýsingar um ávöxtun ofl.
má nálgastá skrifstofu Fjárvangs hf. Laugavegi 170,
105 Reykjavík
Þessi auglýsing er
eingöngu birt í
upplýsingaskyni.
fpi^
FJÁRVANGUR
lOBGILI VERBBRÉFAFYRIRTAKI
Laugavegur 170, sími 540 5060, fax 540 5061, www.fjarvangur.is
ENS
Nýir sambyggðir kæli- og
frystiskáparfrá Siemens.
Þeir gerastvart betri!
KG 26V20
1981 kælir, 651
H x b x d = 150:
KG 31V20 - [Sjá
1981 kælir, 105
H x b x d = 170
65.900 kr
KG 36V20
2351 kælir, 1051 frvstir.
H x b x d = 186 x
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is